Morgunblaðið - 09.01.2001, Blaðsíða 8
HANDKNATTLEIKUR
8 B ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Það tók íslensku leikmenninafimm mínútur að átta sig á því
að þeir voru að spila landsleik en
ekki á æfingu.
Frakkar byrjuðu
hins vegar af krafti,
skoruðu þrjú fyrstu
mörkin og það var
ekki fyrr en fimm og hálf mínúta
var liðin af leiknum sem Íslendingar
komust á blað. Það fór vel á því að
Haukamaðurinn Einar Örn Jónsson
skoraði það en frammistaða þessa
snjalla hornamanns í leiknum var
einn af fáum jákvæðum hlutum í ís-
lenska liðinu. Íslendingar náðu í
kjölfarið ágætum leikkafla. Þeir
jöfnuðu 5:5 eftir 11 mínnútna leik og
komust svo yfir í fyrsta sinn mínútu
síðar þegar Ólafur Stefánsson skor-
aði sjötta markið. Það sem eftir lifði
fyrri hálfleikins var leikurinn í járn-
um, Frakkar náðu að vísu þriggja
marka forskoti en Íslendingar jöfn-
uðu og höfðu alla burði til að vera
með jafna stöðu í leikhléi. Á loka-
sekúndum fyrri hálfleiks var Joél
Abati, samherji Ólafs Stefánsson,
rekinn í bað fyrir ljótt brot á Pat-
reki Jóhannessyni. Portúgölsku
dómararnir dæmdu vítakast en Pat-
rekur skaut yfir úr vítakastinu og
Frakkar því marki yfir í leikhléi,
11:12.
Fyrstu 20 mínúturnar í síðari
hálfleik datt leikur íslenska lands-
liðsins niður á lágt plan og minnti
um margt á frammistöðuna á Evr-
ópumótinu í Króatíu á síðasta ári.
Sóknarleikurinn sigldi í strand og á
þessum kafla skoruðu Íslendingar
aðeins þrjú mörk en Frakkar áttu
greiða leið framhjá slakri vörninni
og skoruðu níu mörk. Staðan þegar
10 mínútur voru til leiksloka var því
orðin 14:21 og útlitið ekki gott. Ís-
lensku piltarnir náðu að berja sig
saman og þá einkum í vörninni. Þeir
skoruðu fjögur mörk í röð og
minnkuðu muninn niður í þrjú
mörk, 18:21, þegar rúmar fimm
mínútur lifðu leiks. Lokakafli þessa
leiks var alfranskur. Gestirnir
spýttu í lófana og skoruðu þrjú síð-
ustu mörkin og undirstrikuðu að
þeir eru vel á undan Íslendingum í
undirbúningi sínum fyrir heims-
meistaramótið.
Vissulega verður að taka það með
í reikinginn varðandi þennan leik ís-
lenska liðsins að langt er síðan
menn spiluðu saman landsleik en
það á ekki að vera nein afsökun fyr-
ir þá litlu stemningu sem ríkti í her-
búðum Íslendinga. Áhorfendur fjöl-
menntu að Ásvöllum til að sjá
íslensku leikmennina gefa sig í
verkefnið og fylgjast með mönnum
eins og Ólafi Stefánssyni og Patreki
Jóhannessyni, sem hafa blómstrað í
þýsku úrvalsdeildinni í vetur. Þeir
urðu hins vegar fyrir vonbrigðum.
Ólafur og Patrekur náðu sér engan
veginn á strik frekar en aðrar úti-
skyttur liðsins. Eitt mark með lang-
skoti í 60 mínútur segir sína sögu en
það skoraði Dagur Sigurðsson. Ein-
ar Örn Jónsson var langbesti leik-
maður íslenska liðsins. Hann skor-
aði fimm mörk úr jafnmörgum
skottilraunum, fiskaði tvö vítaköst
og frammistaða hans var líklega það
eina sem áhorfendur gátu glaðst yf-
ir. Valgarð Thoroddsen kom inn fyr-
ir Einar síðustu 20 mínúturnar en
setti lítið mark á leikinn. Dagur lék
allan leikinn í stöðu leikstjórnanda
og komst ágætlega frá sínu sem og
Sebastian Alexandersson markvörð-
ur sem leysti Guðmund Hrafnkels-
son af hólmi í síðari hálfleik. Róbert
Duranona og Patrekur skiptust á að
leika í skyttustöðunni vinstra megin
en hvorugur þeirra náði sér á strik.
Hinum megin leysti Heiðmar Fel-
ixsson Ólaf Stefánsson af hólmi í 20
mínútur. Heiðmar var lítt ógnandi
og þó svo að Ólafur hafi oft opnað
ágætlega fyrir félaga sína þarf hann
að vera miklu meira afgerandi upp á
eigin spýtur. Guðjón Valur Sigurðs-
son byrjaði í vinstra horninu og
komst aldrei í takt við leikinn. Gúst-
af Bjarnason kom inn fyrir hann eft-
ir 20 mínútna leik og lék þokkalega.
Róbert Sighvatsson lék allan leikinn
á línunni. Hann var í strangri gæslu
og var ekki mikið í boltanum. Aron
Kristjánsson lék eingöngu varnar-
leikinn. Róbert Gunnarsson og Guð-
finnur Kristmannsson sátu á bekkn-
um allan tímann. Vörnin er visst
áhyggjuefni eins og hún lék í þess-
um leik. Að fá á sig 24 mörk er
kannski ekki svo slæmt en vörnin
opnaðist oft mjög illa og skyttur
Frakkanna, einkum Jéróme Fern-
andes (nr. 2), fékk að skjóta óáreitt-
ur á markið trekk í trekk.
Þa
len
us
un
sjú
lið
þjá
Ró
se
no
Kr
og
Morgunblaðið/Ásdís
Patrekur Jóhannesson sækir að vörn Frakka. Róbert Sighvatsson bíður átekta fyrir
aftan frönsku varnarmennina.
Fátt var um
fína drætti
HANN hófst ekki með neinum glæsibrag lokaundirbúningur ís-
lenska landsliðsins í handknattleik fyrir HM í Frakklandi sem hefst
eftir hálfan mánuð. Sex marka tap, 18:24, gegn Frökkum í fyrsta
landsleik þjóðanna af þremur, sem fram fór á Ásvöllum bar þess
glöggt merki að sjö mánuðir voru liðnir síðan Íslendingar léku síð-
ast landsleik. Leikur íslenska liðsins var mjög kaflaskiptur. Í síðari
hálfleik lék liðið afar illa og ekki annað að sjá að töluverð vinna sé
fram undan að slípa liðið saman fyrir átökin í Frakklandi.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
T
h
u
m
i
Þ
l
Þ
m
Þ
m
m
i
l
m
I
m
m
H
g
m
VASSILI Kudinov, rússneska
stórskyttan hjá þýska handknatt-
leiksliðinu Magdeburg, yfirgefur
félagið í vor. Hann hafnaði nýjum
eins árs samningi og hefur gert
þriggja ára samning við japanska
félagið Honda Kumamoto. Kud-
inov er 31 árs og kom til Magde-
burg frá Hameln fyrir þetta tíma-
bil.
Alfreð Gíslason og hans menn
hjá Magdeburg eru farnir að svip-
ast um eftir nýjum leikmanni í
staðinn og samkvæmt þýskum
fjölmiðlum er Júgóslavinn hávaxni
hjá Kiel, Nenad Perunicic, efstur á
óskalistanum.
Dujshebaev
til Spánar
Talant Dujshebaev, félagi Gúst-
afs Bjarnasonar hjá Minden og
fyrrum handknattleiksmaður árs-
ins í heiminum, fer frá Þýskalandi
í vor. Hann hefur gert samning við
Ciudad Real á Spáni en Dujsheb-
aev er eini landsliðsmaður Spán-
verja sem leikur utan heimalands-
ins um þessar mundir.
Dujshebaev gerði þriggja ára
samning við spænska félagið en
honum bauðst að fara til Japans
eða Sádi-Arabíu fyrir mun hærri
laun. „Peningar eru ekki allt,“
sagði hinn 33 ára gamli fyrrver-
andi leikmaður Rússlands og
Sovétríkjanna.
Minden hefur samið við Joachin
Boldsen, 22 ára danskan leik-
stjórnanda, sem kemur til félags-
ins frá Grosswallstadt eftir þetta
tímabil.
Vassili Kudinov
til Kumamoto