Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 13

Morgunblaðið - 09.01.2001, Page 13
KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 2001 B 13 Eiður Smári var tekinn út úrbyrjunarliðinu eftir gott gengi að undanförnu ásamt þeim Sam Dalla Bona og Jody Morris. Claudio Ranieri vildi hvíla þá eftir mikið leikjaálag yfir jólin. Gian- franco Zola kom inn í liðið fyrir Eið Smára og var í aðalhlutverki, skoraði tvö mörk og átti þátt í einu til viðbótar. Eiður kom inn á sem varamaður á 67. mínútu og þurfti aðeins fimm mínútur til að komast á blað. Hann skoraði þá þriðja mark Chelsea með viðstöðulausu skoti eftir fyrirgjöf frá Gustavo Poyet. Hin mörk Chelsea gerðu þeir Poyet og Jimmy Floyd Hass- elbaink. „Ég var búinn að lesa mikið um að Chelsea væri í kröggum, en ég fann áður en liðin gengu inn á völl- inn að leikmenn Chelsea voru virkilega samstilltir og liðsandinn hjá þeim frábær. Knattspyrnan sem liðið sýndi var í háum gæða- flokki og ég vona að Chelsea haldi sínu striki og vinni bikarinn aftur,“ sagði Barry Fry, knattspyrnu- stjóri Peterborough. Hermann óheppinn að skora ekki í sigurleik Hermann Hreiðarsson og félag- ar í Ipswich sóttu heim utandeilda- liðið Morecambe og unnu án of mikilla vandræða, 3:0. Marcus Stewart, Alun Armstrong og Jermaine Wright skoruðu mörkin. Hermann lék allan leikinn og var óheppinn að komast ekki á blað því hann átti þrumuskot í þverslá og tvö önnur ágæt marktækifæri. Arnar Gunnlaugsson fékk hins- vegar ekki tækifæri. Hann sat á varamannabekknum þegar Leic- ester vann 3. deildarliðið York, 3:0. Það tók Leicester 57 mínútur að ná forystunni en eftir það var sig- urinn ekki í hættu. Bjarki bróðir hans var líka fjarri góðu gamni en hann var ekki með Preston vegna meiðsla þegar lið hans tapaði í slag 1. deildarliða gegn Stockport, 0:1. Þá var Guðni Bergsson hvíldur ásamt fleirum hjá Bolton en lið hans marði sigur á utandeildalið- inu Yeovil, 2:1. Michael Ricketts skoraði sigurmark Bolton á síð- ustu mínútu leiksins. Colin Hendry lék heldur ekki í vörn Bolton en Coventry neitaði honum um að spila þar sem hann er í láni hjá Bolton og gæti spilað með Cov- entry í keppninni síðar í vetur. Lárus Orri Sigurðsson horfði einnig á af varamannabekk WBA sem tapaði, 3:2, fyrir Derby. Þar komst Derby í 3:0, Malcolm Christie skoraði tvö markanna, en litlu munaði að WBA jafnaði með góðum lokaspretti. Watford nálægt sigri á Everton Heiðar Helguson lék síðustu 12 mínúturnar þegar Watford tapaði á heimavelli fyrir Everton, 1:2. Watford var lengst af yfir, Tommy Mooney skoraði snemma leiks. Ro- bert Page, fyrirliði Watford, var rekinn af velli níu mínútum fyrir leikslok og strax í kjölfarið jafnaði Stephen Hughes fyrir Everton. Gestirnir misstu einnig mann af velli rétt á eftir en skoruðu samt sigurmark í lokin. Steve Watson var þar á ferðinni. Bjarnólfur Lárusson og félagar í 3. deildarliði Scunthorpe voru ör- fáum sekúndum frá óvæntum úti- sigri á 1. deildarliði Burnley. Þeir leiddu, 2:1, þegar uppbótartími var liðinn en þá fékk Burnley mjög vafasama aukaspyrnu og jafnaði metin. Sheringham bjargaði meisturunum gegn Fulham Teddy Sheringham kom Eng- landsmeisturum Manchester Un- ited til bjargar í einvígi toppliða 1. deildar og úrvalsdeildar á Craven Cottage í London. Hann skoraði sigurmark United, 2:1, þegar fjór- ar mínútur voru til leiksloka en leikurinn var í járnum allan tím- ann og Fulham síst lakari aðilinn. Ole Gunnar Solskjær skoraði fyrst fyrir United en Fabrice Fernandes jafnaði fyrir Fulham. Markið var það 16. hjá Sheringham á þessu tímabili og hann hefur nú skorað 25 mörk í 41 leik í ensku bik- arkeppninni. „Þegar 10 mínútur voru eftir var ég fullsáttur við að halda jöfnu og fá aukaleik á heimavelli. Við áttum fullt í fangi með sóknarmenn Ful- ham, Louis Saha og Luis Boa Morte, sem voru fljótir og bar- áttuglaðir. En markið frá Teddy var stórkostlegt – þetta hefur hann gert hvað eftir annað í vetur og það var ákaflega mikilvægt,“ sagði Alex Ferguson, knattspyrnu- stjóri Manchester United. Wenger slapp við slys Arsenal sótti heim botnlið 3. deildar, Carlisle, og varð að láta eitt mark nægja. Sylvain Wiltord skoraði það um miðjan fyrri hálf- leik. „Svona bikarleikir eru eins og að vera úti í umferðinni – maður vonast eftir því að lenda ekki í slysi,“ sagði Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal. Utandeildaliðið Dagenham & Redbridge var fjórum mínútum frá fræknum útisigri á úrvalsdeildar- liði Charlton. John Salako náði þá að jafna metin, 1:1, og Charlton fær annað tækifæri en nú á úti- velli. Mark Viduka tryggði Leeds sig- ur á Barnsley, 1:0, í slökum leik og gerði þar sitt 14. mark á tíma- bilinu. Gary Doherty tryggði Totten- ham sinn fyrsta útisigur í níu mán- uði þegar hann skoraði eina mark- ið gegn 3. deildarliðinu Leyton Orient, 1:0, mínútu fyrir leikslok. Lítill glæsibragur var á leik Tott- enham sem mátti þakka fyrir að þurfa ekki að mæta nágrönnum sínum í London öðru sinni. Liverpool var lengi að brjóta mótspyrnu 2. deildarliðs Rother- ham á bak aftur á Anfield. Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Emile Heskey í byrjun þess síðari. Igor Biscan hjá Liverpool var rek- inn af velli en samt bættu Heskey og Dietmar Hamann við mörkum fyrir úrvalsdeildarliðið. Manchester City, Coventry, Southampton og West Ham þurftu öll að hafa fyrir sigrum gegn mót- herjum úr 1. og 2. deild en sluppu öll áfram í næstu umferð. Sunder- land gerði hinsvegar aðeins jafnt- efli heima, 0:0, gegn 1. deildarliði Crystal Palace. Utandeildaliðið Kingstonian komst í 4. umferð í fyrsta skipti með því að sigra 3. deildarlið Sout- hend á útivelli, 1:0. Reuters Teddy Sheringham, Manchester United, fagnar sigurmarki sínu tveimur mínútum fyrir leikslok á Craven Cottage. Andy Melville, fyr- irliði Fulham, og samherji hans, Bjarne Goldbæk, verða að játa sig sigraða. Eiður þurfti fimm mínútur til að skora EIÐUR Smári Guðjohnsen skoraði sitt sjötta mark í síðustu sex leikjum Chelsea á laugardaginn þegar hann gerði eitt marka liðsins í öruggum sigri, 5:0, á Peterborough í þriðju umferð ensku bik- arkeppninnar. Bikarmeistarar Chelsea hófu þar með vörn titilsins á sannfærandi hátt á meðan mörg önnur úrvalsdeildarlið lentu í vandræðum með mótherja sína. LEEDS og Liverpool drógust saman í stórleik 4. umferðar ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu en dregið var eftir síðustu leiki 3. umferð- arinnar á sunnudag. Man- chester United fær West Ham í heimsókn í öðrum áhuga- verðum leik. Íslendingaliðin í úrvalsdeildinni, Chelsea, Ips- wich og Leicester, fengu öll útileiki en þessi lið mætast: Sunderland eða Cr. Palace – Ipswich Gillingham – Chelsea Bradford eða Middlesbrough – Wimbledon eða Notts County Bristol City – Kingstonian Bolton – Burnley eða Scun- thorpe Blackburn – Derby County Manchester City – Coventry City Cardiff eða Crewe – Stock- port Southampton – Sheffield Wed. Wycombe eða Grimsby – Wolves Charlton eða Dagenham & Redbridge –Tottenham Leeds – Liverpool Manchester United – West Ham Everton – Tranmere Luton eða QPR – Arsenal Newcastle eða Aston Villa – Leicester Leikirnir fara fram 27.–28. janúar. Leeds mætir Liverpool  ÓLAFUR Gottskálksson og Ívar Ingimarsson léku með Brentford sem gerði jafntefli, 1:1, við North- ampton í ensku 2. deildinni á laug- ardag. Ólafur fékk á sig umdeilda vítaspyrnu og gult spjald í lok fyrri hálfleiks en Brentford jafnaði á lokamínútunni.  BRYNJAR Björn Gunnarsson hefur verið útnefndur besti leikmað- ur Stoke City á fyrri hluta tímabils- ins í ensku 2. deildinni, af staðar- blaðinu The Sentinel. Sagt er að valið hafi verið auðvelt þar sem Brynjar hafi nánast verið í sérflokki hjá liðinu í vetur.  JEAN Tigana, knattspyrnustjóri Fulham, var ánægður með leik sinna manna gegn Manchester United þrátt fyrir nauman ósigur, 2:1. Hann sagði að leikurinn hefði sannfært sig um að Fulham hefði burði til að leika í úrvalsdeildinni næsta vetur en lið hans er með örugga forystu í 1. deild.  PAOLO Wanchope lék ekki með Manchester City gegn Birmingham á laugardaginn. Hann var heima í Kosta Ríka þar sem hann skoraði eitt mark í sigri. 5:2, á Guatemala í undankeppni HM. Kosta Ríka er þar með komið í úrslitakeppni sex liða í Norður- og Mið-Ameríku um þrjú sæti í lokakeppni HM 2002.  GARETH Barry, landsliðsmaður- inn ungi hjá Aston Villa, kostar 2,5 milljarða króna, að sögn forráða- manna félagsins. Manchester Un- ited er sagt hafa mikinn áhuga á honum en í herbúðum Villa er ekki talið koma til greina að selja hann.  PATRICK Vieira hjá Arsenal slapp vel á laugardaginn þegar einn leikmanna Carlisle braut hrottalega á honum. Richard Prokas stökk á Vieira og „tæklaði“ hann með báð- um fótum beint í legginn. Legghlíf Vieira brotnaði og talsvert blæddi úr áverka sem af hlaust en hann lék leikinn á enda. FÓLK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.