Vísir - 23.12.1978, Blaðsíða 21
NEiW YO»RK
Arlega er sett upp stórt og fallegt jólatré á Rockefeller Center f New York. Mikift fjölmenni er ávallt
saman komiö þegar ljósin eru tendruö á trénu, en þaö er gert I byrjun desember. 1 ár eru 46 ár siöan aö
jólatré var fyrst sett upp á Rockefeller Center.
vtsm
cz
VESTUR-ÞÝSK ALAND:
Þcir eru viöar á feröinni jólasveinarnir en á tslandi. Þessir voru á
ferö i borginni Passau, en þar fara þeir I heimsókn um hver jól á
munaöarleysingjahæli. Tii þess aö komast þangaö þurfa þeir aö róa
niöur Dóná sem liggur i gegnum borgina.
TOKYO:
Masavoshi Ohira tók nýlega viö forsætisráöherra embættinu f Japan.
Forveri hans f embætti er til hægri á myndinni, Takeo Fukuda, en hann
beiö ósigur fyrir Ohira i kosningum um leiötoga Frjálslynda demó-
krataflokksins. Flokkurinn hefur meirihluta á þingi I Japan og þar sem
Ohira var valinn sem leiötogi flokksins tók hann einnig viö forsætisráö-
herraembættinu.
N E W Y O R K :
Fjársjóður Tutankham-
ons nefnist sýning sem ný-
lega var opnuð í Metropoli-
tan Museum og Art í New
York. Styttan sem sést á
myndinni er úr tré en hef-
ur varðveist ótrúlega vel
því hún er um þrjú þúsund
ára gömul.
LONDON:
Þaö gekk mikiö á hjá ljósmyndurum I London þegar Ollvia Newton-dohn var þar f heimsókn nýlega.
Hún var elt á röndum og ljósmyndarar notuöu hvert tækifæri til aö smella af henni mynd. Þaö er ekki
aö sjá aö Oliviu liki þetta neitt illa og hún brosir sinu blföasta.
.CO-OTUA
FRÁ RAFMAGNSVEITU REYKJAVÍKUR
Raf magnsveitunni er það kappsmál, að sem fæstir
verði fyrir óþægindum vegna straumleysis nú um
jólin sem endranær. Til þess að tryggja öruggt raf-
magn um hátíðirnar, vill Rafmagnsveitan benda
j notendum á eftirfarandi:
IReynið að dreifa elduninni, þ.e. jafna
henni yf ir daginn eins og kostur er, eink-
um á aðfangadag og gamlársdag. Forð-
ist, ef unnt er, að nota mörg straumfrek
tæki samtímis, t.d. rafmagnsofna, hrað-
suðukatlaþvottavélar og uppþvottavélar
— einkanlega meðan á eldun stendur.
2Farið varlega með öll raftæki til að forð-
ast bruna og snertihættu. Illa meðfarnar
lausataugar og jólaljósasamstæður eru
hættulegar.
Útiljósasamstæður þurfa að vera vatns-
þéttar og af gerð, sem viðurkennd er af
Rafmagnserftirliti Ríkisins.
3Eigið ávallt til nægar birgðir af vartöpp-
um („öryggjum"). Helstu stærðir eru:
10 amper = Ijós
20-25 amper=eldvél
35 amper=aðalvör fyrir íbúð.
Ef straumlaust verður,skoluð þér gera
eftirtaldar ráðstafanir:
Takið straumfrek tæki úr sambandi. Ef
straumleysið tekur aðeins til hluta úr
ibúð, (t.d. eldavél eða 'jós), getið þér
sjálf skipt um vör í töflu íbúðarinnar.
5Ef öll íbúðin er straumlaus, getið þér
einnig sjálf skipt um vör fyrir íbúðina i
aðaltöflu hússins.
6Ef um víðtækara straumleysi er að ræða
skuluð þér hringja í gæslumann Raf-
mangsveitu Reykjavíkur.
B'ilanatilkýnningar i síma 18230 allan
sólarhringinn.
Á aðfangadag og gamlársdag til kl. 19
einnig i símum 86230 og 86222.
Vér flytjum yður beztu óskir um
Gleðileg jól og farsæld á komandi ári,
með
þökk fyrir samstarfið á hinu liðna.
F/3 RAFMAGNSVEITA
r/w REYKJAVÍKUR
’ Geymið auglýsinguna.