Morgunblaðið - 28.01.2001, Page 4
BÍLAR
4 D SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LAND Rover hefur smíðað
jeppa í meira en hálfa öld og
hafa þessir bílar verið þekktir
fyrir seiglu og styrk. Fyrir um
fjórum árum skellti fyrirtækið
sér í slaginn á jepplingamark-
aðnum og setti á markað
Freelander; lítinn jeppa, eða
jeppling, með sítengdu aldrifi
og betri aksturseiginleikum
fyrir borgina en jeppar státa
almennt af en um leið með
getu utan vega sem fólksbílar
hafa ekki. Freelander er því
eiginlega hvorki jeppi né fólks-
bíll en samt um leið hvort tveggja.
Sítengt fjórhjóladrif
Hann telst vart vera jeppi því
hann er ekki smíðaður á sjálfstæða
burðargrind heldur mynda grindin
og yfirbyggingin eina heild eins og
tíðkast í fólksbílum. Hann er heldur
ekki með millikassa og lágu drifi,
eins og raunverulegir jeppar, en
þess í stað sítengdu aldrifi sem deil-
ir aflinu til hjólanna eftir þörfum
hverju sinni. Aflið fer reyndar mest
til framhjólanna við venjulegar að-
stæður en um leið og veggrip tapast
sér drifbúnaðurinn um að dreifa
vélaraflinu milli fram- og afturása.
Þessi blanda er ákjósanleg fyrir
marga bílnotendur sem líta á bílinn
fyrst og fremst sem samgöngutæki
innanbæjar og utan og vilja komast
áfram í íslenskri vetrarveðráttu.
Há sætastaða og mjúkur akstur
Fyrir vikið býður Freelander upp
á mjúkan og liðugan akstur í borg-
inni en hefur um leið ýmsa kosti
jeppans, eins og t.a.m. fjórhjóladrif-
ið og háa sætastöðu. Sjálfstæð
fjöðrun er á öllum hjólum sem
tryggir gott veggrip og drifinu er
dreift milli fram- og afturhjóla með
seigjukúplingu. Við prófuðum á
dögunum nýjustu gerðina sem er
komin með 175 hestafla V6 bens-
ínvél og fimm gíra hálfsjálfskiptan
kassa, svokallaða steptronic-skipt-
ingu. Þetta er í fyrsta sinn sem
Freelander er fáanlegur með sjálf-
skiptingu og gæti það haft mikið að
segja um söluna hér á landi, ekki
síst þegar haft er í huga að hér er
um nútímalega sjálfskiptingu að
ræða sem gerir ökumanni kleift að
handskipta bílnum kjósi hann það
heldur.
Þýðgeng en þyrst V6 vél
Áður var bíllinn einungis fáan-
legur með 1,8 lítra, fjögurra strokka
vél sem skilar 120 hestöflum svo hér
er um verulega aflaukningu að
ræða, og kærkomna. Vélin er afar
lágvær og þýðgeng. Það þarf þó að
sækja aflið og gefa bílnum talsvert
inn til þess að fá hann til að skipta
sér niður en menn hafa að sjálf-
sögðu þann möguleika með steptro-
nic-skiptingunni að handskipta hon-
um sem gefur bílnum verulega
sportlega eiginleika. Miðað við
reynsluaksturinn virðist bíllinn hins
vegar talsvert þyrstur í bensín en
þess ber þó að geta að prófari hefði
aldrei komið til álita í sparakstur-
skeppni með aksturslagi sínu.
Þá er staðalbúnaður í bílnum svo-
kallað HDC-kerfi (Hill Descent
Control) sem kemur að hluta til í
stað lága drifsins þegar ekið er nið-
ur brattar og hálar brekkur. Kerfið
stjórnar vélarafli og hemlun í gegn-
um ABS-kerfið.
Góð nýting
á innanrýminu
Bíllinn virkar sterklegur í útliti.
Hlutar yfirbyggingarinnar, t.a.m.
framstuðari, eru gerðir úr plastefni
sem tekur á sig högg upp að vissu
marki án þess að dældast. Þetta
getur sparað háar upphæðir vegna
minniháttar viðgerða sem oft þarf
að gera á stuðurum og brettum bíla.
Að innan vekur athygli hve góð
nýtingin er á innanrýminu. Alls
staðar virðist nóg pláss og óhefð-
bundin lausn er að hafa tvö hanska-
hólf, eitt á hefðbundnum stað og
annað undir stýrinu. Hægt er að
fella niður aftursæti, 60:40, og búa
til mikið flutningsrými. Bíllinn er
vel einangraður sem finnst á því að
vegdynur er ekki til ama meðan ek-
ið er á löglegum hraða og vélar-
hljóðið er veikt. Tvöfaldir þéttilistar
eru á hurðum.
Afturhlerinn opnast til hliðar en
hagræði er að því að rúðan er opn-
anleg með fjarstýringu eða hnappi í
mælaborði. Þrátt fyrir háa sæta-
stöðu truflar varadekkið á aftur-
hleranum og þriðja afturljósið út-
sýni úr baksýnisspegli.
Frekar dýr kostur
Freelander V6 hefur allt til að
bera til að etja kappi við aðra jepp-
linga á markaðnum hér. Þetta er
laglegasti jepplingurinn á markaðn-
um að mati undirritaðs og eiginleik-
ar bílsins, jafnt í borgarakstri sem
þjóðvegaakstri, eru miklir. Eini
ljóðurinn er fullhátt verð sem er
3.250.000 krónur með sjálfskipting-
unni, en með 2,5 lítra vélinni fæst
hann ekki beinskiptur. Til þess ber
þó að líta að bíllinn er talsvert vel
búinn. Beinskiptur með 1,8 lítra vél-
inni kostar hann 2.650.000 kr.
Aflmeiri
Freelander
með nýrri
V-6 vél
Afturhlerinn opnast til hliðar en einnig er hægt er að opna rúðuna.
Varadekk í fullri stærð og þriðja afturljósið takmarkar útsýni um afturglugga.
Vélin er vel einangruð með plasthlífum en þetta er V6
vél og að mestu úr léttmálmi.
Freelander er þægilegur í borgarakstri og jafnframt góður ferðabíll.
! "# $
%& '(
)& "* +! ,
-
!
"#$
% &
' '
()
()
()
()
.%/01%111 !
!
*+,
' ))+
' '
()
()
/%021%111 !
"#$
()
' '
()
*+-.
()
()
/%331%111 !
!
"#$
()
' '
()
*+-
()
()
/%/21%111 !
/))+
()
' '
()
*+-
()
()
/%121%111 ! 4!
5 # (#
3
( #
6
" #
Guðjón Guðmundsson.
RE
YN
SL
UA
K
ST
UR
Hanskahólfin eru tvö og í stýri eru rofar fyrir
hljómtæki. Steptronic-skipting er staðalbúnaður.
Morgunblaðið/Árni Sæberg