Vísir - 12.01.1979, Page 8

Vísir - 12.01.1979, Page 8
8 Föstudagur 12. janúar 1979 VÍSIR fólk Leikkonaársins Tvisvar sinnum á tveimur vikum var Ingrid Bergman kjörin leikkona ársins a.f amerískum kvikmynda- gagnrýnendnum. I lok ársins 1978 kusu kvik- myndagagnrýnendur [ New York hana leikkonu ársins og nú f yrir stuttu, i byrjun þessa árs, fylgdi ameríski kvik- myndagagnrýnenda- klúbburinn á eftír. Það er leikur hennar í mynd IngmarBergman, Haust- sónatan, sem gerir þetta að verkum, op þess má geta að ameríski leikar- lngrld Bergman inn Gary Busey fékk verðlaun fyrir besta karlhlutverkið í „The Buddy Holly Story". Abe Vigoda heitir sá tll vinstri og hefur unniö meb Dean Martin f sjónvarpsþáttum þess slbastnefnda. Hann segir Dean einn besta samstarfsmann sem hægt sé aö hugsa sér Elskulegur í raunveruleikanum Dean AAartin sem alltaf birtist hunangs- sætur, Ijúfur og bros- andi, hvort sem er á hvíta tjaldinu eða í sjón- varpinu, er jafn elsku- legur í raunverulekan- um, segja þeir sem best þekkja til. Það sé því engin gríma sem leikar- inn skelllr á sig áður en hann kemur fram fyrir almenning. Þeir sem vinna með honum segja hann einn þægilegasta og skemmtilegasta sam- starfsmann sem hægt er að hugsa sér. Og þá vitum við það.... Dennls Weaver og Edward Asner i verkfallsvaktinni. 70 þúsund fóru í verkfall Dennis Weaver, betur þekktur undir nafninu AAcCloud úr sjónvarps- þáttunum samnefndu, stillti sér upp sem verk- fallsvörður einn daginn nú fyrir stuttu. Hvorki meira ne minna en sjötiu þúsund ameriskir leikarar og sjónvarps- menn sem vinna við sjónvarpsauglýsingar, fóru í verkfall til þess að krefjast hærri launa. Segja þeir að borguð séu sultarlaun fyrir þessa vinnu. Weaver stóð sem verkfallsvörður í Los Angeles og með honum á myndinni ér leikarinn Edward Asner. Umsjón: Edda Andrésdóttir

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.