Vísir - 07.05.1979, Side 13

Vísir - 07.05.1979, Side 13
Mánudagur 7. mal 1979 13 okkur sjá um að smyrja bílinn reglulega Passat Auói 0000 VW 1200 Passat Variant //Þetta er búið að vera mikiðannríki " Eftir tónleikana héldu kórfélagar heim á Regent Palace- hótel við Piccadilly Circus, Þang- að var farið með „öndergránd- inu” og ku það hafa verið einhver stærsti hópur svartklæddra kvenna og smókingklæddra karla sem þar hefur ferðast i einu. Heima á hótelinu náðum við tali af Ingólfi Guðbrandssyni söng- stjóra Pólýfónkórsins, en hann bar hita og þunga af öllum undir- búningi þessarar ferðar. „Þetta er búin aö vera annrik en þó einhver skemmtilegasta helgi sem ég hef lifað” sagði Ingólfur: „Skemmtileg vegna félagsandans i Pólýfónkórnum og eins vegna þess árangurs sem náðist á tónleikunum, en hann fór fram úr öllum þeim vonum sem nokkur gat vænst. Kórinn var ekki fullskipaður og það vantað marga góða liðsmenn. Æfingar að undanförnu hafa verið stopular, svo að horfurnar voru ekki góðar. Söngfólkið mætti þreytt til tónleikahaldsins, gengiö upp að hnjám eftir búðarráp, en þrátt fyrir það náðist i lokin sú samstaða og samstilling i söngn- um sem fágætt er — jafnvel hjá bestu kórum.” Ingólfur sagði að þessi ferð yröi' sér eftirminnileg og þá fyrst og fremst vegna söngsins. Þekkt tónlistarfólk sem verið hefði á þessum tónleikum t.d. söngkonan Sandra Wilkins sem sungiö hefur m.a. hér heima, heföi farið lof- samlegum orðum um söng kórs- ins og leik organistans Haröar Askelssonar. „Þetta hefur veriö sannkölluð skemmtiferð — en þó blandin alvöru og hljómleikar kórsins verða örugglega það eftirminni- legasta”, sagöi Ingólfur að lok- um. Víster það kolkrabbi Að afloknum tónleikum efndu kórfélagar til veislu góðrar að klnverskum siö og auðvitað var þar framreiddur kinverskur mat- ur. Ekki vissu menn þó alltaf hvað þeir voru aö setja ofan I sig — t.d. var þar ein ágæt dama sem taldi sig vist vera að borða kol- krabba. Daginn eftir var fariö I skoðunarferö um borgina og svo haldið uppteknum hætti við að versla. Um kvöldið hættu menn sér svo inn I hið fræga Soho-hverfi en hér verður eigi tafiö við frá- sagnir af þeim ferðum. Við brugðum hins vegar á þaö ráð aö taka nokkra kórfélaga tali og hittum fyrst fyrir Kolfinnu Sigurvinsdóttur leikfimikennara: Lagiö tekið á Regent Palace — eða var kannski bara veriö að iýsa þelinu (ungu stúlkurnar vildu ekki segja feelingunni) af stórborginni? áhersla á að kenna söng og i Pólýfónkórnum”. Guömundur og Ólöf höfðu bæði það gaman af að syngja að lá við horfelli. /Þetta er líka megrandi " Nokkrum sætaröðum framar sátu þau Ólöf Magnúsdóttir bankaritari og Guðmundur Tómasson sölumaöur. Þau voru spurö hvers vegna þau syngju I Pólýfónkórnum. „Þegar ég heyröi i haust aö kórinn ætlaöi að syngja Jólaóra- torlu Bachs varð ég alveg friðlaus — það var eitthvað sem togaði i mig að fara og syngja. Annars finnst mér það gefa lifinu gildi að syngja I svona kór, þaö vlkkar sjóndeildarhringinn og er þar að auki heilbrigt tómstundagaman.” „Ég fór I kórinn þvl ég hef gaman að því að syngja” segir Guömundur: „þetta er aö visu mikil vinna, en jafnvel þótt maður komi dauöþreyttur á æfingar, þá slappar maöur af við þaö að syngja.” „Þetta er llka megrandi” skýtur nú Ólöf inn I: „ég má stundum ekk< vera að þvl að boröa, svo mikii er tilhlökkunin við að komast á æfingar.” „Maður er I skóla i þessum kór” segir nú Guðmundur: „og það hjá góðum kennara.” „Búinaö vera með þessa dellu lengi " /Það liggur viðað fólk fái slag..." „Ég fæ allt út úr þvi að syngja i svona kór” sagöi Hjálmtýr tenór. „Ég er búin að vera með þessa dellu lengi” sagði hún þegar við spuröum hana hvenær hún hefði byrjað að syngja „Ég byrjaði 17 ára i Pólýfónkórnum og ég er eiginlega alveg alin upp hjá Ingólfi þótt ég hafi verið i söng hjá fleirum. Mér finnst þessi ferð hafa verið ákaflega skemmtileg ekki síst fyrir það að fólkið I kórnum, ekki sist nýja fólkið, kynnist svo vel i svona ferðum”. Við lögðum þá samviskuspurn- ingu fyrir hana hvað henni heföi þótt vera skemmtilegast I þessari ferð: „Mér fannst skemmtilegast aö syngja i kirkjunni — ég er nefni- lega ekkert gefin fyrir þetta búðarráp. Hljómburöurinn i kirkjunni var líka alveg frábær og það var raunar undarlegt hversu sterkir straumar voru á milli kórsins og Ingólfs söngstjóra — það var eins og hann væri inni i kórnum.” „Ég fæallt..." Okkur gekk nú ekki sem best að finna fleiri viötalendur þennan sunnudag, þvl stórborgin hafði seitt þá til sin með lystisemdum sinum, svo við slógum þvi bara á frest þangað til daginn eftir, en þá skyldi hópurinn halda til brott- ferðar. Þaö var svo ekki fyrr en I flugvélinni heim til tslands að við tókum þráöinn upp aftur og réðumst þá að Hjálmtý Hjálmtýssyni súpertenór: „Ég fæ allt út úr þvi að syngja i svona kór” sagöi Hjálmtýr, „og ég er efins um að þeir sem eru að læra söng fái eins mikið út úr sínu námi og þeir sem syngja i Pólýfónkórnum. Þessi ár sem ég hef verið i kórnum finnst mér sem ég hafi verið i söngskóla og ég efast um að i nokkrum öðrum kór á tslandi sé lögð eins mikil ' Nokkrar táningsstúlkur sitja saman I hnapp og eru að piskra eitthvað svo við förum að plskra viö þær. „Það er gaman við kórinn að i honum skuli vera fólk á öllum aldri” segir ein þeirra.Guörún Edda ólafsdóttir 19 ára mennt- skælingur „svo lærir maður mik- ið i söng i Pólýfónkórnum”. „Já, við byrjuöum I haust og höfum þegar lært heilmikið” segir Helga Gottfreðsdóttir sömuleiðis 19 ára menntskæl- ingur og bætir svo við „já, ég meina það” þegar hinar ætla að grlpa orðið af henni. Solveig Lilja óladóttir heitir sú þriðja — hún er 17 ára og i menntaskóla. Spurningin sem lögð er fyrir hana er sú hvernig táningar líta á klassíska tónlist: „Mörgum á okkar aldri þykir gaman að klasslskri tónlist” segir hún „en það eru lika vissir fordómar hjá öðrum. Það liggur við aö ýmsir fái slag þegar þeir vita að maður er I Pólýfón.” t þessu eru menn beðnir um að spenna öryggisbeltin þar sem vélin eigi að fara að lenda og við þökkumþvi bara pent fyrir okkur og segjum blessfenda mál að linni. —HR Audi 100 Avant OPIÐ FRÁ KL. 8-6. HEKLAh Smurstöð Laugavegi 172 — Siniar 21240 — 21246.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.