Morgunblaðið - 16.02.2001, Page 3

Morgunblaðið - 16.02.2001, Page 3
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 D 3 og öðrum kökum. Því kökur eru ekki bara kökur, þær geta verið misjafnar að uppbyggingu og haft ólíkan „per- sónuleika“.“ Hann segir það sama gilda um súkkulaði, konfekt, ís og eft- irrétti. Eftirréttur eigi t.d. ekki bara að vera „eitthvað sætt“ til að enda máltíð, heldur á hann að kveikja elda. „Þetta er líka spurning um hvernig fólk matast. Það er hollara að borða lítið af „alvöru“ sætindum en að hakka í sig eftirlíkingar. Og mér hef- ur alltaf þótt svolítið merkilegt hvað fólk spáir mikið í fituinnihald í mat, en þegar það fær sér súkkulaði þá virðist það ekkert velta fyrir sér inni- haldinu. Það er mikill munur á holl- ustu eftir því hvaða súkkulaði þú ert að borða. Langoftast er fólk á Íslandi að borða súkkulaði sem er kakó með palmaolíu, jurtafeiti eða annarri fitu. Flestir gera ekki aðrar kröfur en þær að fá eintóna mjólkursúkkulaði með mismunandi núggatfyllingum, því þeir þekkja ekkert annað.“ Ásgeir segir að fólk finni ekki muninn fyrr en það smakkar alvöru súkkulaði og hann ætlar að veita Frónbúum þessa ánægju sem honum finnst þeir hafa farið á mis við. Og til stendur að halda námskeið um súkkulaði. „Ég get lofað því að það er mikil sæla að borða alvöru súkkulaði, enda inniheldur það samskonar efni og heilinn framleiðir þegar við erum ástfangin! Í allt sem við búum til hér í Konditoríinu notum við hágæða súkkulaði sem er með ólík einkenni eftir prósentustigum ákveðinna efna og meðhöndlun í vinnslu. Það er heil- mikill skóli að læra að þekkja muninn á milli stiga og hvað passar með hverju – ekki ólíkt því að læra á vín. Þetta er ferskt súkkulaði sem meðal annars er ræktað við Ind- landshafið og hefur ákveðið sýru- magn sem er ekki í öðru súkkulaði. Svona hráefni er hægt að nota sem krydd með mat. Súkkulaðisósa fer til dæmis alveg prýðilega með fiski ef lagað er á réttan hátt,“ fullyrðir Ás- geir. Hráefnið skiptir öllu máli þegar framleiða á gæðavöru og hann nefnir nokkur dæmi. „Það er mikið atriði að nota ein- göngu árstíðabundna ávexti og grænmeti. Eins notum við eingöngu smjör í okkar framleiðslu og svo mætti lengi telja. Auðvitað kostar þetta sitt og við getum farið miklu auðveldari og ódýrari leið, en við vilj- um frekar fara þessa leið og leggja áherslu á gæðin.“ Erfitt að smakka í gegnum síma Norsk kærasta Ásgeirs, hún Gro Elisabeth, hefur unnið á stóru konditoríi í Danmörku og hefur mikla reynslu af brúðkaupstertu- gerð. Þetta kemur sér vel, því Sandholt-Konditori ætlar að leggja áherslu á brúðkaup og aðrar veislur. „Við ætlum að halda svokölluð brúðkaupskvöld fyrir væntanleg brúðhjón og bjóða þeim að smakka á öllu því sem við höfum í boði. Ég hef þá trú að það skili sér betur að láta fólk bragða á því sem það ætlar að bjóða gestum sínum upp á, en að telja allt upp í gegnum síma. Á svona kvöldum ætlum við líka að tala um hefðir sem liggja að baki brúðkaups- tertum.“ Ásgeir segir útlit og innihald þurfa að tóna saman og það skipti miklu máli að matur sé fallegur. Augað selji vöruna en bragðið fái fólk til að koma aftur. Unga kökuskreytingaparið getur gert ótrúlegustu listaverk úr mat sem hægt er að nota til skrauts í veislum. Má þar nefna hesta úr súkkulaði og undurfagra svani úr sykri, en þeir eru búnir til með sömu aðferð og notuð er við glerblástur. „Við blásum í bráðinn sykur. Þetta er ævagömul aðferð til að búa til skraut og var mikið notuð á tímum stóru kónganna í Frakklandi. Þá borðaði fyrirfólkið kannski samfleytt í ellefu klukkustundir og máltíðirnar innihéldu tuttugu rétti. Í slíkum veislum var mikið um skreytingar úr sykri, ís og súkkulaði.“ Það er kannski ekkert undrunar- efni að Ásgeir kunni að búa til góð- gæti því hann skartar bæði Norður- landa- og Íslandsmeistaratitli í köku- skreytingum. Hann brá sér líka til Portúgal á síðasta ári og tók þátt í heimsmeistaramótinu. „Við Gro Elisabeth höfum alltaf gert þetta saman þannig að hún á titl- ana ekkert síður en ég,“ tekur hann fram en þau skötuhjúin hafa sannar- lega haft í nógu að snúast undanfarið. „Þetta er búið að vera mikið álag og auðvitað tekur það á að vera nán- ast aldrei aðskilin 24 tíma sólar- hringsins. En þetta kemur til með að breytast þegar hlutirnir komast í fastari skorður, þá skiptum við með okkur vinnudeginum. Og við sjáum sannarlega ekki eftir að hafa farið út í breytingarnar því viðskiptavina- hópurinn hefur stækkað frá því við opnuðum Konditoríið. Þetta hefst allt með samvinnu, bæði fólksins í fjöl- skyldunni, starfsfólksins og við- skiptavinanna,“ segir Ásgeir að lok- um, bjartsýnn á framtíðina. Vörum frá Sandholt ekið út í kringum 1930, á tímum mjólkurbrúsa og hveitisekkja. Í bíl situr Arthúr Ísaksson en sendisveinn á hjóli er Haukur Friðriksson sem síðar stofnaði Grensásbakarí. Brautryðjandinn Stefán Sand- holt bakar rúgbrauð á fyrri hluta síðustu aldar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.