Morgunblaðið - 16.02.2001, Page 5
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 2001 D 5
sportflíkurnar eiga heima á mörkuð-
um fyrir notuð föt að hans mati.
Jacobsson boðar áframhaldandi
blöndu mynstra, lita og efna. Stór-
mynstraðar blússur síðasta vetrar
lifa sumarið af, svo og hnésíð pils og
kvartbuxur, fatnaður og aukahlutir í
breskum yfirstéttarstíl. Gömul tíska
skýtur upp kollinum, þó ekki eins
skýr og áður. Ýmislegt minnir á sjö-
unda áratuginn, annað á stríðsár-
in. Plíseruð pils og refaskinn
geta lent saman við gaddabelti
og mynstraða ömmublússu.
Hælarnir ýmist himinháir
og oddmjóir eða lágir.
Því óvenjulegra lag því
betra og þykkir hæl-
ar eru harðbannað-
ir. Táin; hættu-
lega mjó eða
alveg þver. Stíg-
vélin með mjúku
aðskornu skefti.
Herramönnunum
verður boðið upp á fyrir-
ferðarmikla gervipelsa, brún
flauelsjakkaföt og brúnar og
fjólubláar peysur með mynstruðum
prjónavestum. Filt- og ullarefni
verða áfram, skórnir úr rúskinni
með stungnu mynstri og bindin, þau
verða með stungnum kanti og stutt.
Eins konar þindarbindi.
Hvað börnin varðar var eftir því
tekið að kynþokkafullur klæðnaður
handa stúlkubörnum er á útleið enda
mörgum sem þótt hefur nóg um bera
nafla og bak, aðskorinn fatnað og
hálfgegnsæjan. Hart hefur verið
deilt um þá tilhneigingu að sýna
meira og meira af barnsholdi og
greinilegt er að fataframleiðendur
hafa tekið sneiðina til sín. Kröfum
hinna allra yngstu um kynþokkafull-
an fatnað virðist hafa verið hafnað
þetta árið.
Að öðru leyti virðist barnatíska
margra sem fyrr vera stæling á því
sem fullorðnir vilja láta sjá sig í. Lit-
irnir og mynstrin mikið til hin sömu.
Og næsta vetur eiga allir að vera í
peysu.
Ljósmynd/Katrín Ragnars
sölukona hvíldi lúin bein er hægðist um í
Hún var að sjálfsögðu klædd nýjustu tísku.
Morgunblaðið/Urður
Sýning nema við Danska hönnunarskól-
ann í anddyri Øksnehallen gaf tóninn.
Morgunblaðið/Urður
Stutt og stungin
bindi eru það sem
koma skal. Litirnir
eru ekki úr lausu
lofti gripnir.
Grænlandsselur í bláma og grænt loðfóður.
Morgunblaðið/Urður
Illmögulegt er að sjá mun á gerviskinnum og ekta.
anef
a
tt,
r.
er
st
r
u.