Morgunblaðið - 27.03.2001, Blaðsíða 1
2001 ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
GUNNAR ANDRÉSSON ÁFRAM HJÁ AMICITIA / B16
RAKEL Ögmundsdóttir skoraði sitt
fyrsta mark fyrir bandaríska at-
vinnumannaliðið Philadelphia
Charge sl. föstudag. Markið sem
Rakel skoraði var eina mark Phila-
delphia sem tapaði 3:1 fyrir San
Diego Spirit. Leikurinn, sem var
hluti af sameiginlegum undirbún-
ingstíma liðanna fyrir upphaf deild-
arinnar í apríl nk., var opinn og
skemmtilegur. Bandaríska lands-
liðskonan, Shannon MacMillan átti
sannkallaðan stórleik í liði San
Diego, hún skoraði tvö mörk og átti
stoðsendingu í þriðja markinu.
Rakel fær góða dóma fyrir
frammistöðu sína í leiknum, hún
jafnaði metin, 1:1, á 47. mínútu með
góðu skoti en þurfti að fara meidd
af leikvelli skömmu síðar eftir gróft
brot frá leikmanni San Diego.
Rakel
skorar
ÞÓREY Edda Elísdóttir, stangar-
stökkvari úr FH og Íslands- og
Norðurlandamethafi í stangarstökki
innanhúss, keppti á sínu fyrsta utan-
hússmóti á árinu sl. laugardag. Þór-
ey stökk 4,31 metra og bætti sinn
fyrri árangur utanhúss um einn
sentímetra, en mótið fór fram á
Drachman-leikvanginum á keppnis-
velli háskólans í Arisóna.
Einnig setti Þórey nýtt skólamet
við háskólann sinn í Athens í Georg-
íuríki. Um leið tryggði hún sér
keppnisrétt á bandaríska háskóla-
meistaramótinu utanhúss sem fram
fer í Eugene í Oregonríki fyrstu
helgi júnímánaðar næstkomandi.
Þetta var sjötta mótið sem Þórey
hefur tekið þátt í eftir að hún hóf
nám við háskólann í Athens og hefur
hún borið sigur úr býtum í öllum
þeirra.
Þórey
Edda byrj-
ar vel úti
Nilsson er 27 ára, lítill og snöggursóknarmaður sem lék með Fröl-
unda í sænsku úrvalsdeildinni árið
1999 og skoraði þá eitt mark í tólf
leikjum. Wahrnberg er 28 ára miðju-
maður sem lék eitt tímabil við hlið
Arnórs Guðjohnsen, þjálfara Stjörn-
unnar, hjá Örebro en spilaði síðan
m.a. með Oddevold í úrvalsdeildinni
og undanfarin þrjú ár hefur hann
leikið með Ljungskile í 1. deild. Hann
varð markahæsti leikmaður liðsins í
deildinni árið 1999.
„Svíarnir komu ágætlega út í leikj-
um með okkur og þeir styrkja okkar
hóp, það er engin spurning. Við sömd-
um við þá til haustsins og þeir eru
væntanlegir um miðjan maí, í tæka
tíð fyrir Íslandsmótið,“ sagði Arnór
Guðjohnsen við Morgunblaðið í gær.
Stjarnan hefur ennfremur fengið
til sín Birki Ómarsson, efnilegan
sóknarmann úr Völsungi, sem hefur
skorað mörk fyrir Garðabæjarliðið að
undanförnu, m.a. í 3:2 sigri á FH-ing-
um í síðustu viku.
Tveir Svíar
í Stjörnuna
TVEIR sænskir knattspyrnu-
menn, Peter Nilsson og Anders
Wahrnberg, leika með Stjörn-
unni úr Garðabæ í 1. deildinni í
sumar. Þeir hafa dvalið hjá
félaginu að undanförnu til
reynslu og nú er ljóst að þeir
koma aftur til félagsins í vor en
báðir stunda þeir nám í Banda-
ríkjunum og hafa leikið með
Ragnari Árnasyni Stjörnumanni
með háskólaliði Southampton-
háskóla.
Morgunblaðið/RAX
Öflugur varnarmúr Hauka dugði ekki gegn Metkovic Jambo í Evrópukeppninni. Haukar máttu þola tap, 22:20. Hér eru Einar Örn
Jónsson, Gunnar Einarsson, Vignir Svavarsson, Ásgeir Hallgrímsson, Aliaksandro Shamkuts og Rúnar Sigtryggsson í vörn er Króat-
arnir taka aukakast. Umsögn um leikinn B8,B9.