Morgunblaðið - 27.03.2001, Qupperneq 2
KNATTSPYRNA
2 B ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Manni færri var eðlilega á bratt-ann að sækja fyrir Íslendinga
í síðari hálfleik en engu að síður áttu
íslensku strákarnir í
fullu tré við Búlg-
arina og veittu þeim
kröftuga mótspyrnu
en sigurmarki Búlg-
aranna var ekki forðað og niðurstað-
an því 2:1 tap í leik sem íslenska liðið
gerði marga góða hluti í. Byrjunin
var mjög góð hjá íslenska liðinu og
segja má að allt hafi gengið eftir
áætlun lengi fram eftir hálfleiknum.
Búlgarir fengu að vísu fyrsta færið í
leiknum en Árni Gautur Arason
varði þá vel skalla frá Georgi Ivanov
á 14. mínútu eftir stutta hornspyrnu
Búlgara. Tíu mínútum síðar þaggaði
svo Hermann Hreiðarsson niður í
áhorfendum þegar hann kom Ís-
lendingum í forystu. Brynjar Björn
Gunnarsson gerði vel í því að vinna
hornspyrnu sem Þórður Guðjónsson
framkvæmdi. Hermann var nálægt
því að skalla fyrirgjöf Þórðar inn en
eftir skot Eiðs Smára, sem hafði við-
komu í varnarmanni Búlgara, var
Hermann réttur maður á réttum
stað og skoraði með föstu skoti úr
vítateignum. Íslenska liðið fylgdi
þessu marki vel eftir og á 31. mínútu
spiluðu Þórður Guðjónsson og Eiður
Smári sig í gegnum búlgörsku vörn-
ina eftir hraða sókn en sending Eiðs
fyrir markið rataði ekki rétta leið.
Þremur mínútum síðar átti Heiðar
Helguson mjög góða tilraun að
marki Búlgara. Eftir aukaspyrnu
Rúnars Kristinssonar tók Heiðar
knöttinn viðstöðulaust á lofti en skot
hans fór rétt yfir búlgarska markið.
Við þetta var eins og búlgarska liðið
vaknaði af værum blundi því tveim-
ur mínútum síðar lá knötturinn í
marki Íslendinga. Rétt áður hafði
Árni Gautur Arason bjargað glæsi-
lega frá einum sóknarmanni Búlg-
ara en hann kom ekki neinum vörn-
um við þegar Krassimir Tchomakov
þrumaði knettinum í markhornið af
um 20 metra færi.
Lárus Orri fær reisupassann
og Eiður Smári á skot í slá
Íslendingar voru rétt búnir að
jafna sig á jöfnunarmarki Búlgara
þegar ósköpin dundu yfir. Eftir við-
skipti Lárusar Orra við einn leik-
mann búlgarska liðsins dró Michael
Riley rauða spjaldið upp úr vasa sín-
um og þrátt fyrir áköf mótmæli ís-
lensku leikmannanna var dómnum
ekki breytt. Eiður Smári Guðjohn-
sen var svo ekki langt frá því að
koma Íslendingum í forystu á
markamínútunni eða þeirri 43. en vel
framkvæmd aukaspyrna hans af 20
metra færi lenti ofan á markslánni.
Atli Eðvaldsson varð að endur-
skipuleggja leik sinna manna í síðari
hálfleik. Hann færði Þórð í bakvarð-
arstöðuna og framherjarnir Eiður
Smári og Ríkharður þurftu að gegna
enn frekari varnarskyldum. Þegar
Arnar Grétarsson kom svo inn fyrir
Þórð fór Rúnar í bakvarðarstöðuna
og Arnar inn á miðsvæðið. Eðlilega
þróaðist leikurinn í seinni hálfleik á
þann veg að Búlgarir sóttu mun
meira en þeir höfðu gert í fyrri hálf-
leik og í tvígang á 56. og 58. mínútu
varði Árni Gautur mjög vel. Íslenska
liðið náði af og til ágætum sóknum
en greinileg þreyta var komin í
menn og af þeim sökum var það oft
síðasta sendingin sem var að bila.
Mistök kostuðu mark
Búlgörum tókst ekki oft að finna
glufur á sterkri vörn Íslendinganna
en á 76. mínútu kom upp misskiln-
ingur í öftustu vörninni sem endaði
með því að varamennirnir Berbatov
og Todorov sáu um að koma sínum
mönnum yfir. Todorov, sem leikur
með West Ham, átti lúmska send-
ingu á Berbatov sem var einn og
óvaldaður í markteignum og honum
urðu ekki á nein mistök. Það sem
eftir lifði leiksins lögðu íslensku leik-
mennirnir allt í sölurnar og í tvígang
munaði ekki nema hársbreidd að
þeir kæmust í góð færi, Arnar Grét-
arsson og Ríkharður Daðason voru
við að sleppa í gegn en varnarmönn-
um Búlgara tókst að bægja hætt-
unni frá á síðustu stundu og leik-
urinn þróaðist út í það í lokin að
heimamenn biðu eftir lokaflauti Ril-
ey dómara og töfðu leikinn eins og
þeir gátu.
Árni Gautur stóð sig vel
í markinu
Ekki verður annað sagt en að
leikmenn íslenska landsliðsins hafi
lagt sig vel fram í leiknum, baráttan
var mikil og leikur liðsins vel skipu-
lagður og agaður en vendipunktur
leiksins var brottvísun Lárusar
Orra. Fram að því var íslenska liðið
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Eiður Smári Guðjohnsen (9) er hér kominn upp á bakið á Hermanni Hreiðarssyni til að fagna marki
hans. Aðrir á myndinni eru Rúnar Kristinsson, Heiðar Helguson, Brynjar Björn Gunnarsson, Þórð-
ur Guðjónsson og Ríkharður Daðason.
Brottvísun
Lárusar vendi-
punkturinn
ÞAÐ voru vonsviknir leikmenn íslenska landsliðsins í knattspyrnu
sem gengu af velli á CSKA-leikvanginum í Sofíu eftir 2:1 ósigur á
móti Búlgörum í undankeppni heimsmeistaramótsins á laugardag-
inn. Eftir góða byrjun þar sem Íslendingar náðu yfirhöndinni með
marki Hermanns Hreiðarssonar varð íslenska liðið fyrir tveimur
áföllum áður en fyrri hálfleikurinn var úti. Fyrst jöfnuðu heimamenn
og síðan kom reiðarslagið á 40. mínútu þegar Lárusi Orra Sigurðs-
syni var vikið af leikvelli. Dómur Michael Riley dómara frá Englandi
var mjög strangur og í annað sinn í riðlakeppninni urðu Íslendingar
að leika stóran hluta leiksins manni færri en Brynjar Björn Gunn-
arsson fékk reisupassann í fyrsta leiknum á móti Dönum.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
frá Sofiu
!
" # #
$%
& ' ( ) ' "
'
*
!
"
# # %
&'
()*+
%
&!
# ,-*+
"
" #
!
.
&
,*+
" #
/ "0 *
123 4 '
1 ' $+ & $,,-
5 6 . & $,
7
1 $,,,,
3 / 0
1 &
'
5
3
2'
2'3 #
'
8
9 % :
;-
;-
)
(
))
7 ! 5
8 < '
=9231 '
5 >3 ?
>3 ! 23
&5 !@
(*+
92 2: !
%A
&9 !
(*+
%B
= '8 ! 2
&5 'C3
,-*+
/ 4
& 5* 6-78
4' 49 & 5* 6+$8&
# #
& ) ' 6+$8&
5 5
& ) ' 6+:8&
; <
& ) ' 6+,8&
! 2:
% 2:
-; 6$+8
;; 6=:8
; 67:8