Morgunblaðið - 27.03.2001, Page 4
KNATTSPYRNA
4 B ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LANDSLIÐSÞJÁLFARI Búlg-
aríu, Stoicho Mladenov, þakkaði
blaðamanni búlgarsks íþróttadag-
blaðs, fyrir að hægt var að stilla
varnarmanninum sterka, Rossen
Kirilov, upp í byrjunarliðinu gegn
Íslendingum á laugardaginn.
Samkvæmt upplýsingum sem
Mladenov og knattspyrnusam-
band Búlgaríu höfðu undir hönd-
um fyrir leikinn þá átti Kirilov að
taka út leikbann vegna þess að
hann hafði fengið tvö gul spjöld í
fyrri leikjum í keppninni. Kirilov
tók ekki þátt í síðustu æfingu
landsliðsins fyrir leikinn gegn Ís-
lendingum af þessum sökum.
Anguel Kishin, blaðamaður á
íþróttadagblaði í Sófíu, tók eftir
þessu og benti forsvarsmönnum
búlgarska knattspyrnusambands-
ins að þeir væru á villigötum. Kir-
ilov hefði aðeins fengið eitt gult
spjald í keppninni og væri þar
með löglegur í leiknum. Búlgarar
höfðu umsvifalaust samband við
Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, sem staðfesti að upplýs-
ingar blaðamannsins væru réttar.
og að Kirilov væri heimilt að
taka þátt í leiknum. Kappinn
stökk því inn í byrjunarliðið og lék
með fram á 77. mínútu er honum
var skipt út af.
Þjálfari Búlgaríu
þakkaði blaðamanni
Við byrjuðum leikinn mjög vel ogskoruðum gott mark. Eftir það
kom – eins og oft gerist – smá
spennufall. Mér
fannst við vera að ná
góðum tökum á
leiknum aftur þegar
Búlgararnir skor-
uðu. Við vorum ekki langt frá því að
komast yfir aftur í fyrri hálfleiknum.
Heiðar átti gott skot rétt yfir og Eið-
ur Smári setti knöttinn í slána úr
aukaspyrnu. Ég taldi fjórar til fimm
sóknir í fyrri hálfleiknum, sem hefði
átt að koma meira út úr. Í seinni
hálfleik urðum við að stokka upp
spilin þar sem við vorum manni
færri. Mér fannst strákarnir þá
leysa verkefnið mjög vel, ég get ekki
annað en verið ánægður með þá.
Þeir gáfu allt í leikinn, baráttuand-
inn kom berlega í ljós á lokamínútun-
um þegar við fengum tvo góða mögu-
leika til að skora.“
Þú ræddir um það fyrir leikinn að
vandamálið í íslenska liðinu væri að
skora mörk.
,,Það hefur ekkert breyst eftir
þennan leik. Í öllum leikjunum til
þessa í riðlinum hefur liðið verið að
skapa sér nokkur færi en því miður
hefur nýtingin á þeim ekki verið góð.
Meðan það heldur áfram er erfitt að
ætla sér að vinna leiki. Að sama
skapi hafa andstæðingarnir verið
fljótir að refsa okkur fyrir mistök.“
Nú eruð þið búnir að leika fjóra
leiki í riðlinum og uppskera þrjú stig.
Er það ekki minna en þú ætlaðir þér
að fá eftir þessa leiki?
,,Að sjálfsögðu hefði verið gott að
vera með fleiri stig, en það er ekki
allt gefið í þessu. Í tveimur leikjun-
um af þessum fjórum, í Danaleiknum
og núna gegn Búlgörum, misstum
við mann út af með rautt spjald. Báð-
ir þessir leikir töpuðust 2:1 og það
gefur auga leið að það hefur verið
mjög adrifaríkt að missa leikmenn-
ina út af.
Tékkaleikurinn var slakur af okk-
ar hálfu, ég varð fyrir miklum von-
brigðum með Danaleikinn. Það varð
eitthvert spennufall en samt sem áð-
ur hefðum við getað tekið stig út úr
þeim leik. Leikurinn á móti Norður-
Írunum vannst á sanngjarnan hátt,
en síðan kemur tapið hér í Sofíu. Ég
hef ekkert lagt árar í bát þó svo að
staðan okkar í riðlinum sé ekkert
sérstök. Ég hef sett stefnuna á að
vinna Möltumennina í báðum leikj-
unum og það eru góður möguleiki á
að leggja Búlgarana að velli heima í
sumar. Ef þetta gengur eftir erum
við með tólf stig og þá eru enn þrír
leikir eftir.“
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari eftir leikinn í Sofíu
Við höfum ekki
lagt árar í bát
,,ÉG er að vonum svekktur yfir
úrslitunum en leikurinn var að
mörgu leyti góður hjá okkur.
Það var náttúrlega gríðarlega
erfitt að leika í svona langan
tíma einum manni færri, eða í
rúmar fimmtíu mínútur. Það var
mikið kjaftshögg fyrir okkur
þegar dómarinn tók þá ákvörð-
un að vísa Lárusi Orra af velli.
Þetta er í öðrum leiknum af fjór-
um í riðlinum sem við lendum í
þessum vanda. Brynjar Björn
var ranglega sendur út af á móti
Dönum og þó svo að ég hafi ekki
séð atvikið hjá Lárusi Orra þá
hafa hann og strákarnir sagt
mér að þarna hafi ekki verið um
neina brottvísun að ræða,“
sagði Atli Eðvaldsson landsliðs-
þjálfari í samtali við Morgun-
blaðið eftir ósigurinn fyrir Búlg-
örum í Sofíu.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
frá Sofíu
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Brynjar Björn Gunnarsson í baráttu við Krassimir Balakov.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hermann Hreiðarsson í sjónvarpsviðtali eftir leikinn.
„ÞAÐ gekk allt eftir áætlun fyrsta
hálftímann og við vorum að spila
vel og agað. Það var ekkert við
marki Búlgarana að gera. Leik-
maðurinn smellhitti boltann og
Árni Gautur átti ekki möguleika á
að verja skotið. Það er síðan Riley
dómari sem skemmir leikinn fyrir
okkur þegar hann rekur Lárus
Orra út af. Ég hélt að þessi dómari
sem er að dæma í ensku úrvals-
deildinni væri með svona hluti á
hreinu en þrátt fyrir öflug mótmæli
okkar breytti hann ekki ákvörðun
sinni. Þegar maður er að spila
svona leiki einum manni færri verð-
ur þetta allt öðruvísi leikur. Við
urðum að bakka með liðið aftar á
völlinn og hugsa fyrst og fremst um
það að verjast og fyrir vikið voru
menn orðnir mjög þreyttir. Þetta
gekk vel hjá okkur og við fengum
nokkrar fínar sóknir en svo skora
þeir þetta mark svona eiginlega
upp úr engu,“ sagði Hermann
Hreiðarsson.
Hermann skoraði annað mark
sitt fyrir íslenska landsliðið en leik-
urinn á móti Búlgörum var sá 35. í
röðinni hjá honum.
„Ég ætlaði að skora með skall-
anum úr hornspyrnunni hans Þórð-
ar en ég náði ekki nema rétt að
snerta boltann. En sem betur fer
datt boltinn fyrir fæturna á mér
rétt á eftir og ég náði góðu skoti.
Það kom ekki til greina að brenna
af úr öðru færi.“
Riley
skemmdi
leikinn
„Skoraði
fyrir Petrov“
KRASSIMIR Tchom-
akov, sem skoraði jöfn-
unarmark Búlgaríu
gegn Íslendingum með
þrumufleyg og Árni
Gautur Arason átti ekki
möguleika á að verja,
sagði eftir leikinn að
hann hefði skorað fyrir
Petrov. „Ég tileinka hon-
um markið mitt og vona
að hann verði fljótt kom-
inn á ný í hóp okkar,“
sagði Tchomakov.
Petrov er einn af
framtíðarstjörnum Búlg-
ara – 21 árs miðvallar-
spilari, sem leikur með
Celtic í Skotlandi. Hann
varð fyrir því óhappi á
dögunum að fótbrotna í
leik með Celtic og gat því
ekki leikið með Búlgör-
um gegn Íslendingum.