Morgunblaðið - 27.03.2001, Side 6
KNATTSPYRNA
6 B ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
STEFAN Effenberg, leikstjórn-
andi þýsku meistaranna í Bayern
München, segist vilja yfirgefa félag-
ið þegar samningur hans við það
rennur úr eftir rúmt ár. Effenberg,
sem nú er 32 ára, hefur verið í her-
búðum Bayern síðan 1998, en hann
hafði áður leikið með félaginu á sín-
um yngri árum. Draumalönd Effen-
bergs til þess að reka smiðshöggið á
ferilinn eru Spánn og England.
„EFTIR eitt ár get ég kvatt félag-
ið og þakkað fyrir ánægjulegan tíma
og marga góða sigra,“ sagði Eff-
enberg í viðtali við Bild am Sonntag.
FILIPPO Inzaghi skoraði tvö
mörk og tryggði Ítalíu verðskuld-
aðan 2:0 sigur á Rúmeníu í Búk-
arest. Heimamenn voru afar slakir í
leiknum og ljóst að þeir verða held-
ur betur að bíta í skjaldarrendurnar
í næstu leikjum til þess að eiga
möguleika á að komast í lokakeppni
HM. Ítalir eru hins vegar í fínum
málum í 8. riðli, eru í efsta sæti,
fimm stigum á undan Ungverjum
sem náðu aðeins jafntefli, 1:1, við
Litháen á Búdapest.
FERNANDO Hierro, jafnaði
markamet Emilios Butraguenos
fyrir spænska landsliðið er hann
skoraði eitt mark í 5:0 sigri Spán-
verja á Liectenstein. Hierro hefur
nú gert 26 mörk fyrir spænska
landsliðið sem er ekki síður athygl-
isvert fyrir þá sök að hann hefur
flesta af sínum 77 landsleikjum leik-
ið í vörn.
GESTGJAFAR næsta heims-
meistaramóts í knattspyrnu, Japan-
ir, urðu að bíta í það súra epli að
tapa 5:0 fyrir heimsmeisturum
Frakka í vináttulandsleik á Stade
de France-leikvanginum í París á
laugardaginn. David Trezeguet
skoraði í tvígang fyrir heimsmeist-
arana, Zinedine Zidane, Thierry
Henry, og Sylvian Wiltord voru
með eitt mark hver í þessum örugga
sigri. Úrslitin eru Japönum talsvert
áfall en þeir binda miklar vonir við
landslið sitt á HM næsta sumar.
ZIDANE þótti fara hreinlega á
kostum í leiknum og lofaði Roger
Lemerre, landsliðsþjálfari Frakka,
Zidane í hástert í leiklok og sagði
hann hafa verið hreint ótrúlegan.
RYAN Giggs kom til móts við
félaga sína í landsliði Wales þegar
þeir komu heim frá 2:2 jafntefli við
Armeníu í Jerevan. Giggs fékk frí í
þeim leik vegna meiðsla en verður
að öllum líkindum tilbúinn í slaginn
annað kvöld þegar Wales mætir
Úkraínu í Cardiff. Robbie Savage
er einnig klár í slaginn með Wales
en hann tók út leikbann gegn Arm-
eníu.
HENRIK Larsson segist að öllum
líkindum leika með Celtic í nokkur
ár í viðbót, en núverandi samningur
hans við skoska félagið rennur út
eftir eitt ár. Larsson, sem gert hef-
ur 47 mörk á leiktíðinni segist ekki
vera nægilega góður til þess að leika
með einhverjum af allra bestu liðum
Evrópu, Celtic hafi sér vel.
JOE Kinnear, fyrrverandi knatt-
spyrnustjóri Wimbledon og núver-
andi stjóri Luton, segist ekki útiloka
að hann taki við stjórnvölunum hjá
Tottenham standi honum starfið til
boð. Það sé sannkallað draumastarf
að vinna fyrir Lundúnarliðið.
ALAN Shearer leikur ekki með
Newcastle það sem eftir er leiktíðar
vegna meiðsla í hné.
CHELSEA er eitt þeirra félaga
sem vill krækja í tékkneska fram-
herjann Jan Koller frá Anderlecht.
Líklegt er að belgíska félagið vilji fá
að minnsta kosti 12 milljónir punda,
1,5 milljarða króna fyrir kappann.
STEVE Gerrard, miðvallarleik-
maður Liverpool, varð á sunnudag-
inn að draga sig út úr landsliðshópi
Englendinga fyrir leikinn við Alb-
aníu annað kvöld vegna meiðsla í
baki. Gerrard lék sinn fyrsta heila
landsleik gegn Finnum á Anfield sl.
laugardag.
FÓLK
Það vantaði svo sannarlega ekkidramatíkina á Hampden Park
þegar Skotar tóku á móti Belgum í
6. riðli á laugardaginn. Hetja gest-
anna var varamaðurinn Daniel van
Buyten sem jafnaði leikinn, 2:2, á
síðustu andartökum hans, en þá
höfðu gestirnir verið einum leik-
manni færri frá 28. mínútu þegar
Eric Deflandre var rekinn af leik-
velli. Þá voru heimamenn í góðum
málum, höfðu 1:0 yfir eftir að Billy
Dodds hafði komið þeim á bragðið á
2. mínútu. Deflandre varði síðan
með hendi á marklínu skalla frá Col-
in Hendry á 28. mínútu. Deflandre
var umsvifalaust vísað af leikvelli,
enda ekki í hans verkahring, sem
varnarmanns, að hindra mark með
höndunum. Dodds skoraði úr víta-
spyrnunni sem dæmd var í kjölfarið
og heimamenn voru komnir í 2:0,
einum manni fleiri og allt lék í lyndi.
Belgar voru hins vegar ekkert á
því að gefast upp. Marc Wilmots
minnkaði óvænt muninn á 58. mín-
útu með laglegum skalla eftir fyr-
irgjöf Bob Peeters. Eftir það óx
Belgum enn ásmegin. Þeir tóku að
sækja allt hvað af tók, en Skotar
reyndu hvað þeir gátu til þess að
halda fengnum hlut. Þolinmæðin
þrautir vinnur allar og það sönnuðu
Belgar svo um munaði þegar van
Buyten jafnaði metin, skallaði
knöttinn í mark Skota án þess að
Neil Sullivan, markvörður heima-
manna, fengi nokkuð við ráðið.
Belgar fögnuðu ákaft markinu og
stiginu vel og innilega þegar Daninn
Kim Milton Nielsen flautaði til
leiksloka skömmu síðar. Vonbrigði
heimamanna voru mikil og 37.400
áhorfendur voru heldur hnípnir
þegar þeir héldu til síns heima.
Þjóðirnar eru því sem fyrr efstar og
jafnar í riðlinum, hvor hefur 8 stig.
„Það ríkti algjör þögn á meðal
okkar í búningsklefanum eftir leik-
inn, það var engu líkara en við hefð-
um tapað,“ sagði Craig Burley, mið-
vallarleikmaður Skota, eftir leikinn.
Sögulegt á Hampden Park
FORRÁÐAMENN norður-írska
knattspyrnusambandsins tilkynnti
landsliðsmönnum sínum áður en
haldið var af stað til Búlgaríu í
gær að flugið frá Belfast til Sofíu
yrði áfengislaust.
Leikmenn eða aðrir myndu
ekki getað fengið sér öl og heldur
ekki á heimleið liðsins frá Búlg-
aríu. „Hver sá leikmaður sem
virðir ekki þessa reglu þarf ekki
að hafa áhyggjur af að ferðast
með landsliðinu í framtíðinni,“
sagði John Quinn, talsmaður
norður-írska knattspyrnu-
sambandsins.
Hvar er írska
heppnin?
N-Írar mæta Búlgörum í Sofíu
á morgun í undankeppni HM.
Þeir höfðu ekki heppnina með sér
er þeir léku gegn Tékkum í Bel-
fast á laugardaginn. Þeir fengu
mörg gullin marktækifæri til að
skora og áttu tvö skot sem höfn-
uðu á tréverkinu á marki Tékka.
„Hvað er orðið um írsku heppn-
ina?“ spurði þjálfarinn Sammy
McIlroy.
Pavel Nedved, sem átti mjög
góðan leik með Tékkum, skoraði
sigurmark þeirra á elleftu mínútu
leiksins.
Ekkert
öl á
boð-
stólum
Draumur Norðmanna um aðkomast í úrslitakeppni Heims-
meistaramóts landsliða í knatt-
spyrnu gæti verið úti eftir 2:3-tap
gegn Pólverjum á Ullevaal-leikvang-
inum í Ósló. Norski landsliðsþjálfar-
inn, Nils Johan Semb, sagði eftir
leikinn að til að komast á HM í Japan
og Kóreu 2002 þyrfti lið hans að
sigra í fimm af næstu sex leikjum
liðsins en Norðmenn leika við Hvít-
Rússa á miðvikudag í Minsk. Ole
Gunnar Solskjær og John Carew
skoruðu mörk Norðmanna og jöfn-
uðu leikinn en það dugði ekki til.
Pólverjar fengu ágætis hjálp frá
bakverði Norðmanna, Ståle Stens-
aas, en öll þrjú mörk liðsins komu
eftir varnarmistök af hans hálfu.
Pólski framherjinn Olisadebe sem
fæddur er í Nígeríu skoraði tvö
fyrstu mörk leiksins á 23. og 30. mín-
útu. Sigurmark Pólverja kom á 81.
mínútu eftir varnarmistök hjá
Stensaas. Allir helstu fjölmiðlar
Noregs gáfu Stensaas falleinkunn
eftir leikinn og er það í fyrsta sinn í
sögunni sem leikmaður norska
landsliðsins fær einn í einkunn fyrir
frammistöðu sína.
Tap í Ósló
Ebbe Sand skoraði þrennu fyrirDani sem unnu afar sannfær-
andi og öruggan sigur á Möltu, 5:0, á
Ta’Qali-leikvanginum í Valetta, en
liðin eru á meðal andstæðinga Ís-
lendinga í 3. riðli. Danir áttu reyndar
í erfiðleikum með að brjóta heima-
menn á bak aftur og Sand skoraði
eina mark fyrri hálfleiks á áttundu
mínútu eftir að óreiða kom upp í vörn
Möltu. Heimamenn stilltu nær allri
sinni sveit upp í vörninni og hugsuðu
um það eitt að sleppa með sem
minnst tap. Danir sýndu hins vegar
þolinmæði í leik sínum og strax í
byrjun síðari hálfleiks var Dennis
Rommedahl óheppinn að skora ekki
annað mark Dana. Jan Heintze tókst
loks að bæta öðru marki við á 51.
mínútu með laglegu skoti rétt utan
vítateigs. Þar með komst los á vörn
Möltumanna og Sand átti greiða leið
að marki á 63. mínútu er hann gerði
þriðja mark gestanna. Varamaður-
inn, Claus Jensen, bætti fjórða
markinu við á 75. mínútu eftir að
hafa aðeins verið tvær mínútur inni á
leikvellinum. Ellefu mínútum fyrir
leikslok innsiglaði Sand þrennu sína
og fimmta mark Dana á heitasta degi
ársins til þessa á Möltu. Leikið var í
30 stiga hita og glaðasólskini og
verður leiksins e.t.v. helst minnst í
huga Dana sem fyrsta landsleiksins
eftir að Peter Schmeichel markvörð-
ur lagði landsliðsskóna á hilluna.
Eftirmaður hans, Thomas Sörensen,
átti náðugan dag í blíðunni og kom
vart við knöttinn. Heimamenn áttu
ekki skot að danska markinu og lán-
aðist aðeins að fá tvær hornspyrnur,
en hvorug þeirra olli umtalsverðum
usla í vörn Dana.
Annars var danska liðið mjög ein-
beitt í leiknum, lék skipulega og af
þolinmæði. Höfðu leikmenn greini-
lega í huga að falla ekki í sömu gryfj-
una og Tékkar sem náðu aðeins
jafntefli við Möltu á Ta’Qali-leik-
vanginum sl. haust. Tékkar, sem
lögðu N.-Íra á sama tíma í Belfast,
1:0, eru efstir í riðlinum, hafa tíu stig,
en Danir koma næstir með tveimur
stigum færra.
Reuters
Pavel Nedved átti mjög góðan leik með Tékkum og skoraði sigurmark þeirra í Belfast.
Ebbe Sand með
þrennu á Möltu
Belgíska knattspyrnufélagiðGenk hefur sent kvörtun til
FIFA, Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins, vegna þess að Las Palm-
as hefur ekki staðið í skilum með
greiðslur fyrir Þórð Guðjónsson.
Las Palmas keypti Þórð af Genk
síðasta sumar fyrir 180 milljónir
króna og leigði hann sem kunnugt
er til Derby County fyrir skömmu.
Spænska félagið á í miklum fjár-
hagsörðugleikum og fyrir skömmu
munaði litlu að það yrði gjaldþrota
vegna skuldar sem nam 700 millj-
ónum króna.
Nýir styrktaraðilar fengust þá
til að bjarga félaginu fyrir horn.
Las Palmas í van-
skilum vegna Þórðar