Morgunblaðið - 27.03.2001, Side 9
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 B 9
Morgunblaðið/RAX
ka aukakast gegn Metkovic Jambo.
AX
Við byrjuðum leikinn vel og sköp-uðum okkur góð færi eftir
hraðaupphlaup en við nýttum þau
færi afar illa. Í seinni
hálfleik var minna
um opin færi og þá
kom upp kunnugleg
staða hjá okkur og
við reyndum að hnoðast í gegnum
vörn Metkovic en það gekk ekki upp.
Þegar ráðleysið í sókninni var mikið
fengum við dæmt á okkur ruðninga
og leiktafir og þeir breyttu stöðunni
úr 15:15 í 16:20 og þá var sigurinn
nánast í höfn hjá þeim,“ sagði Bjarni.
Þreyta er orð sem er mikið notað
þegar Haukar eiga í hlut þessa dag-
ana, er það staðreynd að leikmenn
liðsins séu þreyttir og kraftlausir?
„Í upphafi leiksins vorum við að
brenna af og það var varið frá okkur
en þá ættu menn ekki að vera þreytt-
ir. Það er stutt á milli leikja og þegar
slíkt er uppi á teningnum viku eftir
viku er óhjákvæmilegt að menn
verði lúnir en það getur varla verið
ástæðan fyrir því að okkur gekk illa
að nýta færin í byrjun leiksins,“
sagði Bjarni.
Við hverju búist þið á laugardag
þegar þið mætið Metkovic í seinni
leiknum?
„Við erum búnir að sjá mynd-
bandsupptöku af leik liðsins á heima-
velli og miðað við það sem við sáum
þar er ljóst að heimavöllur þeirra er
ekki árennilegur. Mikill fjöldi áhorf-
enda mætir á leikina og loftvarna-
rflautur voru notaðar til að trufla
andstæðingana. Það er okkar verk-
efni að snúa því mótlæti sem við
mætum þar okkur í hag og þá er
aldrei að vita hvað getur gerst,“
sagði Bjarni Frostason.
Búumst við
loftvarnaflaut-
um í Króatíu
BJARNI Frostason, markvörður Hauka, var einn besti leikmaður
liðsins gegn Metkovic Jambo og varði Bjarni tæplega 20 skot og
þar af tvö vítaköst. Markvörðurinn var ánægður með varnarleik
Hauka en að sama skapi var Bjarni ósáttur með sóknaraðgerðir
liðsins.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
„VIÐ vorum ekki að spila
okkar besta leik og erum
svekktir yfir að tapa – það er
þó gott að við skulum vera
sárir yfir að tapa fyrir þessu
liði,“ sagði Halldór Ingólfs-
son, fyrirliði Hauka, eftir tap-
ið á Ásvöllum á sunnudaginn.
„Mér fannst við koma
grimmir og ákveðnir til leiks
svo að við erum á uppleið á ný
og vörnin virkaði vel hjá okk-
ur. Það fóru tíu dauðafæri í
súginn og það er alltof mikið.
Ég held að við höfum verið að
skjóta lélegum skotum á
markvörðinn, sem flokkast
frekar undir mistök hjá okk-
ur en það er líka ljóst að þetta
er gríðarlega sterkur mark-
vörður. Þegar við byrjuðum
að klikka á dauðafærum í
byrjun fóru menn að skjóta
úr erfiðari færum og það
gekk ekki upp. Við vorum
með nægar upplýsingar, það
vantaði ekki, því við höfðum
fjóra leiki með þeim á mynd-
bandi og vissum á hverju við
áttum von.“
Halldór gerir ráð fyrir að
síðari leikurinn verði erfiður
og telur möguleika á sigri.
„Þetta verður gríðarlega erf-
itt úti í Króatíu því þetta er
eflaust eitt af betri félagslið-
um í heiminum í dag sem
verður auk þess á heimavelli
en við gefumst ekki upp. Við
erum að spila um að komast í
úrslit í Evrópukeppni, sem er
draumurinn, og leggjum okk-
ur alla fram. Tvö mörk eru
ekkert gríðarlega mikið og
við vitum að þeir eru helm-
ingi sterkari á heimavelli og
hafa eflaust hægt eitthvað á
sér hérna á útivellinum. Við
eigum ekki mikla möguleika
en eigum samt möguleika,“
voru lokaorð Halldórs.
Ekki
okkar
besti
leikur
Varnaraðferðin gekk fullkomlegaupp og það er ekki hægt annað
en að vera ánægður með vörnina og
markvörsluna í
leiknum. Fyrir leik-
inn var lagt upp með
ákveðin áhersluat-
riði í vörn og sókn
og það gekk að mestu leyti upp.
Við gerðum okkur hins vegar erf-
itt fyrir með því að nýta ekki þau
fjölmörgu marktækifæri sem við
fengum í leiknum, það er ekki fjarri
lagi að við segja að 15-16 góð færi
hafi farið forgörðum hjá okkur,“
sagði Viggó.
Hvernig metur þú stöðuna sem
liðið er nú í, eigið þið möguleika á
að komast áfram í keppninni?
„Það er ljóst að Metkovic hefur
ákveðið forskot á okkur á heimavelli
sínum í Krótatíu. Þeir eru með
mikla hefð á bak við sig og það
verður á brattann að sækja gegn
þeim á laugardag. Við eigum einnig
erfiðan leik gegn Vestmannaeyjum
á útivelli í kvöld í deildinni hér
heima og eyðum þar dýrmætum
tíma sem hefði getað nýst okkur til
undirbúnings fyrir seinni leikinn
gegn Metkovic.
Okkur er ekki gert létt fyrir með
undirbúning fyrir seinni leikinn í
Evrópukeppninni og Þrándur lagð-
ur í okkar götu hér heima með
leikjum í deildarkeppninni sem ger-
ir okkur erfiðara að ná enn betri ár-
angri en við höfum þegar náð,“
sagði Viggó.
Er mikið álag síðustu tveggja
mánaða farið að segja til sín hjá
þínum leikmönnum?
„Það sést vel að leikmenn eins og
Óskar Ármannsson, Rúnar Sig-
tryggsson og Halldór Ingólfsson
eru ekki að leika eins og þeir geta
best. Við erum búnir að leika 17
leiki síðan 10. febrúar í deildar-
keppninni og við höfum alltaf verið
með svokallaða „enska viku“ síðan
þá, þ.e allt að þrír leikir á viku. Það
sér hver heilvita maður að slík
leikjadagskrá gengur ekki upp,“
sagði Viggó.
Hvernig gengur að setja upp
markvissar æfingar hjá liðinu þegar
stutt er á milli leikja?
„Það er mjög erfitt. Leikmenn
eru undir mismiklu álagi frá einni
viku til þeirrar næstu og ég er gíf-
urlega ósáttur við að þurfa að vinna
undir þessum kringumstæðum og
þetta gerir okkur erfitt fyrir á öll-
um vígstöðvum,“ sagði Viggó Sig-
urðsson, þjálfari Hauka.
Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka, er ósátt-
ur við leikjaniðurröðun Íslandsmótsins
Dagskráin
gengur
ekki upp
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
HAUKAR léku 3:3 vörn gegn
króatíska liðinu Metkovic
Jambo og kom það gestunum
töluvert á óvart hve framarlega
á vellinum Íslendingarnir léku.
Viggó Sigurðsson, þjálfari
Hauka, var ánægður með varn-
arleik sinna manna en að sama
skapi var hann ósáttur við hve
illa gekk að koma boltanum
framhjá Valter Matosveic,
markverði Metkovic.
Sjálfur hefði ég viljað fá aðeinsbetra lið en Hauka þó að þeir
séu með mjög gott lið og spili
mjög góða vörn. Við
vorum með mynd-
bönd frá leik lið-
anna í Portúgal en
ég hefði viljað fá
enn meiri upplýsingar. Það er hins
vegar mikið að gera hjá okkur í
Krótatíu og við höfum ekki haft
nógu mikinn tíma til að sinna því.
Það var skrýtið að sjá hvernig við
áttum í vandræðum þegar Haukar
spiluðu varnarleikinn framarlega.
Leikstjórnandi okkar gerði alltof
mörg mistök því hann var ekki
nógu fljótur og við verðum að gera
betur næst. Ég mun nú fara yfir
myndband af þessum leik og sjá
hvað má betur fara en það verða
ekki miklar breytingar,“ bætti
þjálfarinn við og hrósaði einnig
áhorfendum.
„Ég verð að hrósa áhorfendum
hér í Hafnarfirði, þeir voru mjög
kurteisir og skemmtilegir.“ Hann
tók ekki heilshugar undir að þeir
hefðu verið of kurteisir enda vanur
öðru umhverfi eins og Haukar
munu líklega sannreyna í leik lið-
anna í Króatíu um næstu helgi.
Ekki komnir áfram
„Við erum alls ekki komnir
áfram því þetta er alls ekki búið –
í dag var aðeins fyrri hálfleikur,“
sagði Dragan Jerkovic, markvörð-
ur Metkovic, eftir leikinn og vildi
ekki gera of mikið úr möguleika á
sigri í næsta leik í Krótatíu. „Við
vitum allir að leikurinn heima í
Króatíu verður erfiður líka en ég
er samt mjög bjartsýnn á að við
vinnum þann leik líka. Hins vegar
höfum í nógu að snúast því við er-
um í baráttu við að vinna meist-
aratitilinn í Króatíu og þurfum að
berjast á mörgum vígstöðvum,“
bætti markvörðurinn við en hann
reyndist Hafnfirðingum erfiður
ljár í þúfu og engu líkara en hann
vissi oft betur en Haukamenn
sjálfir hvar þeir ætluðu að skjóta.
„Það var mikið skrifað í króatísku
blöðunum um að við hefðum allar
upplýsingar um Haukaliðið svo að
við vissum allt um það.
Ég var síðan sjálfur búinn að
skoða vandlega hvernig Hauka-
menn skjóta, sérstaklega horna-
maðurinn hægra megin. Annars
fannst mér áhorfendur hér í dag
mjög skemmtilegir og gaman að
spila hér. Haukar eru með gott lið
og góða menn í öllum stöðum, til
dæmis línumaðurinn og markvörð-
urinn, og eru meðal sex bestu lið-
anna í þessari keppni.“
Ánægður
með sigurinn
„ÉG er mjög ánægður með sig-
urinn, en ekki eins ánægður
með leik minna manna því það
var alltof mikið um mistök hjá
okkur,“ sagði Dragan Jurkovic,
þjálfari Metkovic Jambo.
Eftir
Stefán
Stefánsson