Morgunblaðið - 27.03.2001, Qupperneq 10
FIMLEIKAR
10 B ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Try
gg
ðu
þé
r á
sk
rif
t s
tra
x
eða í síma 515 6100
www.syn.is
26. mars - 1. apríl
Njarðvík - KR
Epson-úrslitakeppnin kl. 19:45
lau Liverpool - Man. Utd
Enski boltinn kl. 10:30
lau Spænski boltinn
kl. 18:50
fim
sun Úrslitakeppnin
Epson-deildin kl. 19:40
sun Roma - Verona
Ítalski boltinn kl. 12:45
sun Charlton - Leicester
Enski boltinn kl. 14:50
sun Philadelphia 76ers -
Indiana Pacers
NBA kl. 17:00
Dýri hóf sig hátt til flugs af þver-slánni fór eitt og hálft heljar-
stökk yfir ránni en mistókst að grípa
og féll í þrígang, en að auki fékk hann
byltu í afstökkinu. Þetta sirkusatriði
Dýra varð þó ekki til þess að hann
missti af verðlaunum, en hann lenti í
þriðja sæti á svifrá. Eftir óvænt úr-
slit á laugardag þá var Dýri óum-
deildur sigurvegari sunnudagsins en
hann hlaut verðlaun í öllum greinum,
varð Íslandsmeistari í þremur grein-
um, gólfæfingum, hringjum og í
stökki, varð annar á tvíslá og þriðji á
bogahesti og á svifrá.
„Það kom mér í sjálfu sér ekkert á
óvart að Viktor skyldi vinna á laug-
ardaginn. Hann hefur verið í stöð-
ugri framför og átti góðan dag. Ég
fékk ekki mikla hvíld frá því ég kom
heim frá Minneapolis, þar sem ég bý
núna, og tímamunurinn hefur verið
aðeins að stríða mér og ég var því dá-
lítið þreyttur á laugardaginn. En
sunnudagurinn var ágætur og ég get
ekki verið annað en sáttur, það voru
engin stóráföll og þó það hafi vissu-
lega verið nokkur smáatriði sem
maður hefði viljað gera betur þá er
ég mjög sáttur,“ sagði Dýri Krist-
jánsson sem hefur verið í mikilli
framför frá því hann flutti til Banda-
ríkjanna þar sem hann æfir og
keppir. „Ég stefni að því að vera
þarna áfram og æfa á fullu í sumar.
Það eru þarna sterkir strákar sem
ýta manni áfram en það er fyrst og
fremst það sem vantar hér,“ sagði
Dýri og var hress með sína þátttöku
á Íslandsmótinu í fimleikum.
Sirkus-
atriði fyrir
áhorf-
endur
„ÉG gerði ekki þessa seríu á
laugardag og ákvað að gera
þetta dálítið skemmtilegra fyrir
áhorfendur með því að bæta inn
flugæfingu sem enginn hefur
gert hér á Íslandi áður, þetta er
erfið æfing og það gerist varla
brjálaðra en þetta,“ sagði Dýri
Kristjánsson, sem féll fjórum
sinnum af svifránni í miklu „sýn-
ingaratriði“ sem hann setti upp
í miðri keppni á sunnudag. Sif Pálsdóttir, sem varð Íslands-meistari í fjölþraut annað árið
í röð, er aðeins 14 ára gömul. Þrátt
fyrir ungan aldur
þá hefur hún mikla
yfirburði meðal fim-
leikakvenna hér á
landi en hún hafði
rúmlega þremur stigum hærri ein-
kunn heldur en Birta Benónýsdótt-
ir, sem varð önnur og fjórum stig-
um hærri einkunn heldur en Svava
B. Örlygsdóttir, sem hafnaði í
þriðja sæti, en þessar þrjár eru æf-
ingafélagar úr Ármanni.
„Ég hefði getað gert betur í báð-
um greinunum, sérstaklega í slá og
tvíslá. Ég datt á báðum áhöldunum
á laugardag og datt tvisvar sinnum
á tvíslánni í dag. Þetta er ekki
nógu gott,“ sagði Sif, sem svo
sannarlega á framtíðina fyrir sér í
fimleikunum.
Sif fékk hæstu einkun sem veitt
var í kvennaflokki um helgina, þeg-
ar hún hlaut 8,333 í stökki á laug-
ardeginum og hún átti líka hæstu
einkun sem gefin var á sunnudeg-
inum, 8,225, sem var líka fyrir
stökk.
Kom mér á óvart
„Þessi sigur kom mér mjög á
óvart. Mér gekk illa í mörgum
áhöldum á laugardaginn en mér
gekk betur í dag (sunnudag),“
sagði Viktor Kristmannsson, Ís-
landsmeistari í fjölþraut karla. Sig-
ur Viktors kom nokkuð á óvart,
Dýri Kristjánsson, sem er við æf-
ingar í Bandaríkjunum, kom sér-
staklega heim til að taka þátt í Ís-
landsmótinu og verja Íslands-
meistaratitil sinn og flestir töldu
hann sigurstranglegastan fyrir
mótið. En Viktor átti jafnari æfing-
ar heldur en Dýri, hann hlaut
hæstu einkunn í stökki og á svifrá
og varð annar í hinum æfingunum
öllum. Þar skiptu þeir Dýri og
Rúnar Alexandersson með sér
hæstu einkunum en þar sem Rúnar
tók aðeins þátt í keppni á boga-
hesti og á tvíslá þá hafði Viktor
betur í samanlögðu.
„Ég byrjaði að æfa þegar þjálf-
arinn hans Rúnars kom hingað og
hef allt frá byrjun haft mest dálæti
á bogahestinum. Það má eiginlega
segja að hann hafi att mér út í fim-
leikana í byrjun. Hinar greinarnar
hafa síðan fylgt í kjölfarið. Ég er
ekki alveg nógu ánægður með ár-
angurinn á svifránni og í hringj-
unum en ég er mjög sáttur við
helgina og sigurinn á laugardag-
inn,“ sagði Viktor.
Rúnar Alexandersson átti hæstu
einkun sem gefin var í karlaflokki
báða dagana, en hann hlaut 8,650
fyrir æfingar sínar á bogahesti á
laugardag en bætti um betur á
sunnudag þegar hann hlaut 9,150 í
einkunn.
VIKTOR Kristmannsson úr Gerplu og Sif Pálsdóttir, Ármanni, eru
besta fimleikafólk landsins um þessar mundir. Þau sigruðu í fjöl-
þraut á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum sem haldið var í Laug-
ardalshöll um helgina. Að auki varð Viktor Íslandsmeistari á svifrá
en Sif gerði enn betur og sigraði í þremur flokkum af fjórum í
keppni á einstökum áhöldum, en hún varð Íslandsmeistari í stökki,
á jafnvægisslá og í gólfæfingum.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Íslandsmeistarinn Viktor Kristmannsson.
Ingibjörg
Hinriksdóttir
skrifar
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Rúnar Alexandersson á æfingu á tvíslá á Íslandsmótinu í Laugardalshöll.
■ Úrslit/B14
Viktor og Sif
meistarar