Morgunblaðið - 27.03.2001, Page 15
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 B 15
Sigur Dormagen á Gummers-bach var nokkuð ævintýraleg-
ur því það átti lengi vel undir högg
að sækja. Þegar 5 mínútur voru eft-
ir var Gummersbach með tveggja
marka forskot, 23:21. Þá tóku leik-
menn Dormagen öll völd og skor-
uðu fjögur síðustu mörk leiksins og
tryggðu sér sigur, en Róbert Sig-
hvatsson var markahæstur leik-
manna Dormagen ásamt Svíanum
Christian Ericson með sex mörk.
Róbert Julian Duranona fór mik-
inn er Nettelstedt lagði Nordhorn,
27:24, þar sem gestirnir voru
tveimur mörkum yfir í hálfleik,
14:12. Duranona skoraði flest mörk
liðsmanna Nettelstedt, var með 7
mörk ásamt Beuchler.
Duranona hefur farið mikinn í
liði Nettelstedt eftir að Jörg Uwe
Lommel tók við stjórnartaumunum
hjá liðinu fyrir skömmu.
Patrekur Jóhannesson og félagar
í Essen áttu í nokkru basli með
næstneðsta lið deildarinnar, Wupp-
ertal, á heimavelli. Wuppertal, sem
hefur aðeins sex stig að loknum 28
leikjum, var yfir í hálfleik, 15:14.
Essen tókst að kreista fram sigur á
lokakaflanum, 29:27. Patrekur
skoraði 2 mörk fyrir Essen en
markahæstur í liðinu var Úkraínu-
maðurinn Oleg Velyky með 8. Heið-
mar Felixson skoraði flest mörk
Wuppertal, 7, þar af var eitt úr
vítakasti. Þá skoraði „Íslandsvin-
urinn“ Dmítrí Filippov 4 mörk fyrir
Wuppertal.
Þrátt fyrir sigurinn er Essen enn
í 8. sæti deildarinnar, hefur 33 stig
eftir að hafa lokið 27 leikjum.
Sigurður Bjarnason var ekki á
meðal markaskorara Wetzlar sem
lá á útivelli gegn Bad Schwartau,
23:19. Þá tapaði Hameln stórt á úti-
velli á móti Willstätt/Schutterwald,
35:22, og virðist sem mesti vind-
urinn sé úr leikmönnum Hameln,
a.m.k. að sinni, og er liðið nú fallið í
17. sæti með 20 stig. Nettelstedt er
komið í 16. sætið, hefur einnig 20
stig og stigum Dormagen fjölgar
einnig nú um stundir eftir tvo
sigurleiki í röð. Liðið hefur nú 17
stig en er þó sem fyrr í 18. sæti.
Rasch til Willstätt
Það hljóp á snærið hjá forráða-
mönnum Willstätt/Schutterwald
um helgina þegar norska skyttan
Stig Rasch skrifaði undir tveggja
ára samning við félagið. Hann leik-
ur nú með Solingen, en þar sem lið-
ið rambar á barmi gjaldþrots og
framtíð þess óviss ákvað Rasch að
yfirgefa skútuna í vor. Áður en
Rasch kom til Solingen lék hann
hjá Wuppertal undir stjórn Viggós
Sigurðssonar.
Dormagen réttir úr kútnum
ÍSLENDINGALIÐIN Bayer Dormagen og Nettelstedt virðast vera að
rétta úr kútnum og um helgina unnu bæði liðin mikilvæga sigra í
fallbaráttu þýsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik. Dormagen
lagði hið gamla veldi Gummersbach, 25:23, á útivelli og Nettelstedt
lagði Guðmund Hrafnkelsson og samherja í Nordhorn, 27:24, á
heimavelli.
Vesturbæingar ætluðu að takaleikinn strax í sínar hendur en
Keflvíkingurinn Brooke Schwartz
lét sig það litlu
skipta og raðaði nið-
ur körfunum. Það
tókst ekki síst vegna
þess að lið hennar
gaf hvergi eftir í vörninni, sem setti
sóknarleik KR-inga talsvert út af
laginu. Fyrir vikið var lítið skorað
framan af og greinilegt að spenna
var í stúlkunum. En er leið á annan
leikhluta fundu KR-stúlkur fjölina
sína og tókst með því að skora 10
stig í röð og hafa 24:21 forskot í
hálfleik.
Leikmenn fóru varlega í sakirnar
í síðari hálfleik enda tókst hvoru liði
aðeins að koma boltanum einu sinni
ofan í körfuna á rúmlega fjórum
mínútu. Þá tók Schwartz aftur við
sér með sex stig á stuttum tíma og
hafði þá skoraði 20 af 28 stigum
Keflvíkinga. En þetta viðbragð
vakti KR-stúlkur til lífsins, þær
tóku sig á í vörninni og í kjölfarið
fylgdi lukka í sóknarleiknum, sem
skilaði þeim í40:33 í þriðja leikhluta.
Schwartz hafði sig lítið frammi því
það tók sinn toll að leiða liðið áfram.
Það hýrnaði mikið yfir Vesturbæ-
ingum á áhorfendapöllunum í fjórða
leikhluta þegar Kristín kom KR í
49:40 og fimm mínútur til leiksloka.
Það fór því heldur betur um þá þeg-
ar Keflvíkingar með Schwartz í
broddi fylkingar hóf að saxa á for-
skotið svo að aðeins munaði tveimur
stigum þremur mínútum síðar. KR
náði 55:49 forystu á ný og tvær mín-
útur til leiksloka en fyrir klaufa-
skap í sókn þeirra tókst gestunum
að jafna, 55:55, þegar 30 sekúndur
voru til leiksloka. Sem fyrr segir
skoraði Kristín tólf sekúndum fyrir
leikslok og Vesturbæingum tókst að
verjast þar til yfir lauk.
„Ég átti ekki að skjóta en sá að
Heather myndi gefa á mig því hún
var búin draga tvo leikmenn að
sér,“ hélt Kristín áfram. „Við kom-
um ekki eins vel undirbúnar í leik-
inn og við ætluðum okkur og þetta
var rosalega erfitt allan tímann því
við vissum að þær kæmu brjálaðar
til leiks. Við byrjuðum illa en náðum
að rífa okkur upp í öðrum leikhluta
og þetta var jafnt eftir það. Næsti
leikur verður eflaust erfiðari enda á
þeirra heimavelli.“ Heather Corby
var stigahæst hjá KR og tók 19 frá-
köst.
Þjálfari Keflvíkinga, Kristinn
Óskarsson, ætlar ekki að láta deig-
an síga þrátt fyrir tapið. „Það er bú-
ið að tala mikið um KR og liðið er
búið að standa sig vel í vetur en við
ætlum að láta þær hafa mikið fyrir
því að ná þessu. Við erum baráttu-
glöð með gott lið þrátt fyrir að hafa
átt í meiðslum en allir leikmenn eru
tilbúnir í slaginn enda vita þeir hvað
þarf að gera,“ sagði Kristinn. Mikið
mæddi á Schwartz, sem spilaði 37
mínútur í leiknum, tók flest fráköst
og skoraði meira en helming stiga
liðsins en Kristinn sagði það eðli-
legt: „Hún er besti útlendingurinn í
deildinni í vetur og það væri óskyn-
samlegt að nota hana ekki vel.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Heather Corby var stigahæst KR-kvenna í gærkvöld og hér
skorar hún án þess að Keflvíkingurinn Sigríður Guðjónsdóttir
fái rönd við reist.
KR vann
fyrstu or-
ustuna
ÉG vissi að boltinn færi ofan í –það var alveg klárt,“ sagði Kristín B.
Jónsdóttir, sem skoraði sigurkörfu KR gegn Keflavík tólf sekúndum
fyrir leikslok í Vesturbænum í gærkvöldi þegar liðin léku sinn fyrsta
úrslitaleik. KR-stúlkur höfðu undirtökin meira og minna en með
góðu viðbragði síðustu mínúturnar tókst Keflvíkingum að hleypa
mikilli spennu í leikinn. Það dugði hinsvegar ekki til og KR vann
57:55.
Stefán
Stefánsson
skrifar
HELGI Jónas Guðfinnsson og
félagar úr Ieper sigruðu Pepinster
91:87 í framlengdum leik í belgísku
úrvalsdeildinni í körfuknattleik á
laugardag. Leikurinn var jafn þegar
þrjár sekúndur voru til leiksloka og
Pepinster átti tvö vítaskot en hitti úr
hvorugu. Í framlengingunni reyndist
Ieper betra og fagnaði sigri og heldur
því sjötta sætinu í deildinni.
HELGI lék í 14 mínútur, gerði ekk-
ert stig en tók þrjú fráköst og stal
boltanum einu sinni af andstæðingum
sínum.
ÓSKAR Örn Hauksson, 17 ára
knattspyrnumaður úr Njarðvík, fer
til reynslu hjá norska úrvalsdeildar-
félaginu Molde í næstu viku. Óskar,
sem lék með drengjalandsliðinu í
fyrra, hefur æft hjá Tottenham og
Coventry í Englandi í vetur.
GUNNLAUGUR Jónsson og félag-
ar í Uerdingen töpuðu óvænt heima,
2:0, fyrir TB Berlín í þýsku 3. deild-
inni í knattspyrnu á þriðjudag. Gunn-
laugur lék allan leikinn en lið hans
hefði með sigri verið þremur stigum
frá liðinu í öðru sæti.
JARI Litmanen, finnski landsliðs-
maðurinn hjá Liverpool, úlnliðs-
brotnaði í leiknum gegn Englandi á
laugardaginn og verður frá keppni í
sex vikur.
JOEY DiGimarino, bandaríski
knattspyrnumaðurinn sem Fylkir er
að fá til reynslu, kemur til landsins í
dag. Upphaflega var gert ráð fyrir að
hann kæmi til móts við liðið á Spáni í
næstu viku. DiGimarino leikur vænt-
anlega með Fylki gegn Fram í
Reykjavíkurmótinu annað kvöld.
SVERRIR Sverrisson miðjumaður
lék síðari hálfleikinn í marki Fylkis
þegar liðið gerði jafntefli, 4:4, við Vík-
ing í deildabikarnum á sunnudaginn.
Kjartan Sturluson, markvörður
Árbæinga, meiddist og þeir höfðu
engan varamarkvörð.
KJARTAN Antonsson, knatt-
spyrnumaður úr ÍBV, lék um helgina
æfingaleik með norska 1. deildarlið-
inu Haugesund gegn úrvalsdeildarliði
Viking Stavanger. Hann lék stöðu
miðvarðar allan leikinn en Hauge-
sund tapaði naumlega, 1:0. Norska
félagið hyggst skoða annan miðvörð í
þessari viku og eftir það kemur í ljós
hvort það gerir tilboð í Kjartan.
KJARTAN lék mjög vel gegn Vik-
ing, samkvæmt Haugesunds Avis.
Kjell Inge Brätveit, þjálfari Hauge-
sund, sagði við blaðið að Kjartan
hefði verið góður en hann þyrfti tíma
til að gera upp hug sinn um hvaða
leikmann hann vildi fá til félagsins.
ÓLAFUR Gottskálksson getur
leikið á ný í marki Brentford í ensku
2. deildinni um næstu helgi. Hann
fékk slæmt höfuðhögg í leik liðsins
gegn Southend í síðustu viku en þar
sem leik Brentford um helgina var
frestað missir hann engan leik úr.
FÓLK
GUÐLAUG Jónsdóttir skoraði bæði
mörk síns nýja félags, Bröndby, þeg-
ar það tapaði, 3:2, fyrir OB í dönsku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu um
helgina. OB er með níu stiga forystu í
deildinni og hefur ekki tapað á tíma-
bilinu en Guðlaug kom Bröndby í 2:0
eftir 26 mínútna leik. OB náði að
knýja fram sigur að lokum með marki
á 87. mínútu. Bröndby er í fimmta
sæti af átta liðum í deildinni með 17
stig. Erla Hendriksdóttir og stöllur
hennar í FB gerðu jafntefli við Hill-
eröd, 1:1, og eru í 6. sæti með 16 stig.
Tvö mörk
Guðlaugar
Atli hafnaði
Lilleström
ATLI Knútsson, markvörður
Breiðabliks, hafnaði um
helgina boði um lánssamning
frá norska úrvalsdeildarlið-
inu Lilleström. Norðmenn-
irnir vildu fá hann strax að
láni eftir að hann lék æfinga-
leik með liðinu gegn Odd
Grenland í síðustu viku.
„Þeir vildu að ég kæmi til
þeirra undir eins en ég var
ekki tilbúinn til að rífa mig
upp fyrir stuttan lánssamn-
ing,“ sagði Atli við Morg-
unblaðið í gær.
FH stöðvaði sigurgöngu ÍA í deilda-
bikarkeppninni í knattspyrnu með
sigri, 3:2, í leik liðanna í Reykjanes-
höll í gærkvöld. Hörður Magnússon
jafnaði metin fyrir FH, mínútu eftir
að hann kom inn á sem varamaður,
og Jóhann Möller skoraði sigurmark
Hafnfirðinga skömmu síðar.
Fyrsta tap
Skagamanna
FRANSKI knattspyrnumaðurinn
Moussa Dagnogo sem er til
reynslu hjá Íslandsmeisturum
KR í knattspyrnu þykir lofa góðu
en hann þótti sýna fín tilþrif þeg-
ar KR-ingar lögðu ÍR-inga, 3:0, í
deildarbikarkeppni KSÍ í fyrra-
kvöld. Dagnogo, sem er sókn-
armaður, skoraði eitt af mörkum
KR og var ekki langt frá því að
bæta við fleiri mörkum.
„Frakkinn stóð sig mjög vel
þrátt fyrir erfiðar aðstæður og
ég tel það líklegra en ekki að
hann verði með okkur í sumar.
Við ætlum þó að líta betur á
hann í tveimur leikjum í vikunni
og ef allt gengur þar að óskum
fer hann með okkur í æfingaferð
til Spánar í byrjun apríl,“ sagði
Leifur Grímsson, fram-
kvæmdastjóri Rekstrarfélags
KR, við Morgunblaðið í gær.
KR-ingar tryggðu sér sæti í
átta liða úrslitum deildabikars-
ins með sigrinum á ÍR en Breiða-
blik og Keflavík eru einnig kom-
in áfram úr B-riðlinum. Blikar
eru efstir og ósigraðir í riðlinum
eftir sigur á Val, 1:0, en Vals-
menn hafa hinsvegar enn ekki
unnið leik í mótinu.
KR-ingar eru
ánægðir með
Frakkann