Morgunblaðið - 27.03.2001, Qupperneq 16
RAGNAR Óskarsson skoraði
10 mörk, tvö þeirra úr víta-
köstum, þegar lið hans, Dunk-
erque, vann góðan útisigur á
Istees, 23:17, í frönsku 1.
deildinni í handknattleik um
helgina.
„Þetta var mjög góður sigur
og gríðarlega mikilvægur fyr-
ir okkur og við erum núna í
nokkuð góðum málum í deild-
inni. Þetta var jafnframt einn
besti leikur minn með liðinu,“
sagði Ragnar við Morg-
unblaðið.
Dunkerque er nú komið í
þægilega stöðu um miðja deild
eftir gott gengi frá áramótum
en liðið var á tímabili á hættu-
svæði deildarinnar. Ragnar er
sem fyrr í hópi markahæstu
manna 1. deildar.
Ragnar með
10 mörk
Dagbjört Víglundsdóttir vareinna best hjá ÍS en hún lék
áður með liði Þróttar N. Samt sem
áður voru allar að-
gerðir ÍS-liðsins
ómarkvissar á með-
an hver sóknarlota
Þróttar virtist þaul-
æfð. Í liði Þróttar eru tveir sterkir
rússneskir leikmenn og virðist vera
þeirra hjá félaginu hafa haft góð
áhrif á aðra leikmenn liðsins. Þor-
björg Ó Jónsdóttir, Sæunn Svava
Ríkharðsdóttir og Hjálmdís Zoega
léku vel í liði Þróttar.
Petrún B. Jónsdóttir, þjálfari og
leikmaður Þróttar, var að sjálfsögðu
ánægð með bikarmeistaratitilinn.
„Við vorum að vonast eftir spenn-
andi og skemmtilegum leik en það
gerðist ekki. Það er afar erfitt að
halda einbeitingu og athygli okkar
leikmanna þar sem við erum að
reyna gera þetta af alvöru. Liðið æf-
ir fimm sinnum í viku, allir leikmenn
eru á samning og það er mikið starf í
kringum liðið. Verkefnaskortur háir
okkur því getulega séð erum við að
stinga hin liðin af. Það er sorglegt að
lið eins og KA mæti ekki í fyrsta leik
í undanúrslitum Íslandsmótsins eins
og gerðist á dögunum. Sökin liggur
ekki alfarið hjá leikmönnum KA og
einhverjir hljóta að starfa í félaginu
sem taka slíkar ákvarðanir. Það kom
aldrei til greina að mæta ekki í aðra
viðureign liðanna á Akureyri og við
tökum ekki þátt í slíkum skrípaleik
að mæta ekki til leiks,“ sagði Petrún.
Því má bæta við að Petrún er einnig
formaður blakdeildar Þróttar og
landsliðsþjálfari íslenska kvenna-
liðsins.
ÍS sigraði þriðja árið í röð
Leikur karlaliðanna var bráð-
skemmtilegur og leikmenn Stjörn-
unnar og ÍS sýndu allar sínar bestu
hliðar. ÍS hefur haft mikla yfirburði í
deildarkeppninni í vetur og fyrir-
fram mátti búast við að róðurinn
yrði Stjörnumönnum erfiður. ÍS
sigraði í 1. og 3. lotu en Stjarnan náði
að jafna metin í þeirri 4. Í oddalot-
unni gekk mikið á og ÍS skoraði tvö
síðustu stigin sem tryggðu þeim
20:18 sigur í leiknum. Þriðja árið í
röð er það karlalið ÍS sem sigrar í
bikarkeppni en leikmenn Stjörnunn-
ar sýndu að óvæntir hlutir gætu
gerst í úrslitakeppni Íslandsmótsins.
Allir leikir liðanna á þessu ári hafa
ráðist í oddalotu og greinilegt að lið
Stjörnunnar er í mikilli sókn þessa
dagana. Í liði ÍS ber mikið á búl-
görsku bræðrunum Martin og Galin
Raditckov og einnig er Zdravko
Demirev, landi þeirra bræðra og
þjálfari ÍS, í lykilhlutverki. Izmar
Hadziredzepovic lék sérstaklega vel
í vörn og sýndi ágætis tilþrif í sókn.
Davíð Búi Halldórsson var skæður í
sóknarleik ÍS og náði oftar en ekki
að setja boltann í gólf Stjörnumanna
með öflugum skellum.
„Þessi leikur var góð kynning á
íþróttinni og frábært að spennandi
leikur skuli vera í beinni sjónvarps-
útsendingu. Þrátt fyrir að við Íslend-
ingarnir séum í minnihluta í liðinu er
þetta óumflýjanleg þróun þar sem
það vantar fleiri íslenska leikmenn.
Þetta eru allt strákar sem hafa valið
að búa hér á landi og enginn þeirra
fær greitt fyrir að spila,“ sagði Davíð
Búi Gíslason, leikmaður ÍS.
Stjarnan hefur á að skipa mun
lágvaxnara liði en ÍS og átti liðið erf-
itt um vik að finna leið framhjá há-
vörn ÍS. Skellirnir frá Vigni Hlöð-
verssyni fóru oftar en ekki í vörn ÍS
og út af og hinn reynslumikli leik-
maður var ógnandi allan leikinn.
Gottskálk Gissurarson og Róbert
Karl Hlöðversson léku vel en enginn
lék þó betur en Jóhann Már Arn-
arson, uppspilari Stjörnumanna.
„Við náðum að leggja ÍS fyrr í vet-
ur og vissum vel að það væri hægt að
gera það aftur. Það er gaman fyrir
okkur að spila gegn góðum leik-
mönnum og þrátt fyrir að fimm er-
lendir leikmenn séu í leikmannahóp
ÍS er það áskorun fyrir okkur hina
að reyna að gera betur en áður. Því
miður er nýliðunin í blakíþróttinni
lítil og það gengur ekki til lengdar að
hafa ekkert barna- og unglingastarf
hjá félögunum,“ sagði Vignir Þ.
Hlöðversson, fyrirliði Stjörnunnar.
Miklir
yfirburðir
hjá Þrótti
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Hulda Elma Eysteinsdóttir, fyrirliði Þróttar frá Neskaupstað,
og Þorbjörg Ó. Jónsdóttir með bikarinn.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Leikmenn karlaliðs ÍS hömpuðu bikarnum þriðja árið í röð.
KVENNALIÐ Þróttar frá Neskaupstað hafði mikla yfirburði í bikarúr-
slitaleik kvennaliða sem háður var á laugardag í Kópavogi – fagnaði
sigri annað árið í röð með því að leggja ÍS að velli, 3:0. Aftur á móti
fóru leikmenn karlaliðs ÍS með bikarinn heim þriðja árið í röð, eftir
sigur á Stjörnunni, 3:2.. Allar aðgerðir leikmanna Þróttar báru þess
merki að liðið er vel þjálfað og skipulagt. Það var aðeins í 1. lotu
sem ÍS náði að halda í við Þrótt en í næstu tveimur lotum var aldrei
spurning um að hvort liðið færi með sigur af hólmi. Hulda Elma Ey-
steinsdóttir og Anna Pavlicouk sáu að mestu leyti um að binda
endahnútinn á sóknarlotur Þróttar og leikmenn ÍS áttu ekkert svar
við þeim stöllum. Þróttur sigraði í þremur lotum og bikarinn verður
á Austfjörðum næsta vetur.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar
DÓMARAR á bikarúrslitaleik
karla og kvenna í blaki voru þeir
Leifur Harðarson og Þorvaldur Sig-
urðsson. Leifur var aðaldómari í
karlaleiknum en Þorvaldur tók við
því hlutverki í kvennaleiknum.
STJARNAN hafði ekki yfir stórum
leikmannahóp að ráða í úrslitaleik
karla. Aðeins einn varamaður var til
reiðu hjá liðinu og kom hann ekkert
við sögu hjá liðinu. Aðeins fleiri vara-
menn voru til taks hjá ÍS en þar voru
þrír varamenn.
ÞRJÚ lið af þeim fjórum sem tóku
þátt í bikarúrslitaleikjunum voru
með auglýsingar á keppnisbúningi
liðana. Aðeins búningar karlaliðs
Stjörnunnar var án auglýsinga.
FLESTIR leikmenn kvennaliðs
Þróttar frá Neskaupstað voru með
merki félagsins teiknað á báðum
upphandleggjum. Ekki var um húð-
flúr að ræða heldur höfðu listfengnir
leikmenn liðsins fengið að spreyta
sig við teikningarnar með penna.
BLAK
GUNNAR Andrésson, handknatt-
leiksmaður, endurnýjaði um helgina
samning sinn við svissneska hand-
knattleiksliðið Amicitia í Zürich til
tveggja ára. Gunnar er nú að ljúka
sínu þriðja keppnistímabili hjá félag-
inu, sem lengst af hefur leikið í úrvals-
deild svissneska handknattleiksins.
„Þá er það komið á hreint að ég
verð áfram hérna hjá Amicitia næstu
tvö árin,“ sagði Gunnar í samtali við
Morgunblaðið í gær.
„Ákvörðunin var frekar erfið en
það sem réð úrslitum var að mér hef-
ur var boðið áframhaldandi starf hjá
Generali tryggingarfyrirtækinu, sem
ég nú þegar starfa hjá, og því tæki-
færi vildi ég ekki sleppa. Ég hafði
reyndar úr nokkrum tilboðum að
velja frá liðum í Sviss og í Þýskalandi
en fjölskyldan er ánægð hér í Zürich
og því ákváðum við lengja dvöl okkar
hérna ytra,“ sagði Gunnar ennfrem-
ur. „Ég er eflaust að spila mitt besta
tímabil í langan tíma og er það bara
hið besta mál.“ Gunnar og samherjar
töpuðu um helgina fyrir Stanz, 28:26,
á útivelli. Gunnar skoraði 11 mörk og
hefur alls skorað 71 mark í 9 leikjum
eftir áramót eftir að við tók keppni
fjögurra neðstu liða úrvalsdeildarinn-
ar við fjögur neðstu lið 1. deildar um
fjögur laus sæti í úrvalsdeildinni á
næstu leiktíð. Amicitia er nú í 5. sæti í
þeirri keppni en nokkuð hefur hallað
undan fæti hjá liðinu upp á síðkastið
þar sem það hefur tapað fjórum leikj-
um á útivelli í röð.
Með Amicitia leikur einnig Suik
Hyung Lee, landsliðsmarkvörður S-
Kóreu, sem lék með FH við góðan
orðstír fyrir nokkrum árum.
Gunnar
endurnýjar
við Amicitia
AJAX-Farum, liðið sem Gunnar
Beinteinsson og Elvar Guðmunds-
son leika með í dönsku 1. deildinni,
austurhluta, vann sér á sunnudag-
inn keppnisrétt í dönsku úrvals-
deildinni á næstu leiktíð. Ajax-
Farum vann Team Rödovre í síðasta
leik sínum á leiktíðinni, 27:19. Þar
með fór Ajax-Farum upp á betri
markatölu en Team Mitsjælland,
sem einnig var með 36 stig að lokn-
um 22 umferðum.
Gunnar skoraði 4 mörk fyrir liðið
um helgina, en Gunnar leggur stund
á framhaldsnám í viðskiptafræði í
Danmörku í vetur. Elvar, sem lék
með Breiðabliki og FH áður en
hann hélt utan, stóð í marki Ajax-
Farum og stóð sig allvel.
Gunnar
og Elvar upp
um deild