Morgunblaðið - 01.04.2001, Side 1
SUNNUDAGUR 1. APRÍL
2001 BLAÐ D
LADA LANGBAKUR Í REYNSLUAKSTRI - ALFA ROMEO
SELESPEED - ISUZU TROOPER Á 44 TOMMUM - LAGUNA
MEÐ FJÓRAR STJÖRNUR - RENAULT-NISSAN Í BLÓMA
CITROËN ætlar sér stærri hlut á smábílamarkaðnum og setur innan tíðar á
markað tvo nýja bíla í stað Saxo-smábílsins. C2 verður sportlegi þrennra dyra bíll-
inn en C3 lítill fimm dyra fjölnotabíll sem uppfyllir betur þarfir fjölskyldufólks.
Bílarnir boða mikla stefnubreytingu frá Saxo og svipar til Toyota Yaris og Re-
nault Twingo hvað varðar háa þaklínuna. Bílarnir verða smíðaðir á sama und-
irvagn og Peugeot 206 og meðal véla í boði verður 2ja lítra vél í VTS-sportgerðina.
Einnig verða bílarnir fáanlegir með samrásardísilvélum sem eru þróaðar í sam-
starfi við Ford.
Citroën C2
GENERAL Motors og Fuji Heavy
Industries, framleiðandi Subaru-bíla,
eru í samningaviðræðum um þróun á
bíl sem gæti farið í framleiðslu í verk-
smiðju Subaru í Indiana í Bandaríkj-
unum árið 2004 eða 2005.
Bíllinn, sem verður blendingur af
jeppa og langbaki, fær merki beggja
framleiðenda, og myndi hann verða
fyrsti ávöxtur af samstarfi fyrirtækj-
anna tveggja sem hófst í desember
1999. Þá keypti GM 20% hlut í Fuji.
GM sýndi fjórhjóladrifinn rallhug-
myndabíl á bílasýningunni í Los
Angeles á undirvagni Subaru
Legacy og með 2ja lítra Subaru
vél. Bíllinn kallast Chevrolet Bor-
rego en ekki þykir ljóst að hve
miklu leyti hinn sameiginlegi bíll
byggist á honum. Altént er víst að
bíllinn verður ekki stór og jafnframt
að hann verður með fjórhjóladrifi
þróuðu af Subaru, sem er eitt helsta
aðalsmerki japanska framleiðandans.
Chevrolet Borrego hugmyndabíll-
inn gæti verið grunnurinn að nýjum
bíl GM og Subaru.
GM og Sub-
aru saman
um bíl
VOLVO hefur ákveðið að hefja fram-
leiðslu á bíl sem sýndur var sem SCC-
hugmyndabíllinn á bílasýningunni í
Detroit í janúar.
Tölvugerðar myndir Automedia sýna
hvernig líklegt er að útlit fram-
leiðslubílsins verði. Flest
bendir til að Volvo, sem
er að stærstum
hluta í eigu Ford,
kynni til sög-
unnar bók-
stafinn H á
nýja bílinn.
H-ið stend-
ur fyrir
hlaðbak og
aðgreinir
bílinn frá
stallbaknum
sem ber stafinn
S og langbaknum
sem ber stafinn V. Bíllinn verður fram-
leiddur í þrennra og fimm dyra gerðum
og á að etja kappi við bíla í Golf-flokkn-
um. Hann verður smíðaður á nýjan P1
undirvagn sem Ford Focus og Mazda
323 hvíla einnig á.
Lítilsháttar breytingar
Framleiðslubíllinn verður örlítið
breyttur að utan frá hugmyndabílnum,
t.d. ný hönnun á framstuðara, stefnuljós
verða í hliðarspeglum, hurðarhúnar
verða samlitir bílnum og þaklínan verð-
ur hærri og þar með meira innanrými.
Búast má við að yngri kaupendahópur
með sportbílaáhuga verði áhugasamur
um bílinn en notagildi hans verður jafn-
framt aukið með stærri afturhlera en
var á hugmyndabílnum. Það veldur von-
brigðum að gegnsær a-gluggapóstur
hugmyndabílsins víkur fyrir hefðbund-
inni gerð gluggapósts. Bíllinn verður
dýrari en sambærilegir Ford Focus og
Mazda 323 og það endurspeglast í vél-
arframboðinu. Grunngerðin verður með
100 hestafla vél og líklegt þykir að bíll-
inn verði einnig boðinn með yfir 200
hestafla V6 vél.
Volvo
framleiðir
SCC-bílinn
Volvo H verð
ur framleidd
ur í þrennra
og fimm dyra
gerðum og á
að etja kappi
við bíla í Golf
-flokknum.
Automedia
Grunngerðin verður með 100 hest-
afla vél og líklegt þykir að bíllinn
verði einnig boðinn með yfir 200
hestafla V6 vél.
BÍLGREINASAM-
BANDIÐ hefur opnað
heimasíðu á www.bgs.is.
Á heimasíðunni er meðal
annars hægt að reikna út
viðmiðunarverð notaðra
bíla á einfaldan og þægi-
legan hátt. Reiknivélin er
gagnleg öllum sem eiga
viðskipti með notaða bíla, jafnt seljendum sem kaupend-
um. þar sem hægt er með einföldum hætti að reikna út
viðmiðunarverð notaðra bíla.
Viðmiðunarverðið er reiknað út frá forsendum þess
umboðs sem flytur inn viðkomandi tegund bifreiðar og
þarf því ekki að vera hið sama hjá öllum umboðunum.
Verðið er reiknað út frá aldri bifreiðar, akstri og afskrift-
um. Verðið sem kemur upp er þó einungis til viðmiðunar,
einstakar bifreiðar geta verið metnar hærra eða lægra
eftir ástandi og aukabúnaði. Síðar á þessu ári verður sett
inn á heimsíðu Bílgreinasambandsins raunverð á notuð-
um bílum sem er samantekt á því verði sem bílar seljast á.
Viðmiðunarverð á
notuðum bílum
reiknað út á Netinu