Morgunblaðið - 01.04.2001, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.04.2001, Blaðsíða 4
LADA-umboðið í Reykjavík býður nú Lada-fólksbíla auk Lada Sport jeppans sem kynntur var á dögun- um hér í blaðinu. Fólksbíll- inn er bæði til sem stall- bakur og langbakur og er verðið allgott eins og þessi bílategund er þekkt fyrir eða 850 þúsund krónur og 890 þúsund. Tekið var í langbakinn fyrir stuttu. Lada-fólksbílarnir eru nefndir annars vegar 110 Family, sem er stallbakur- inn, og hins vegar 111 Grand Tour en það er nafnið á langbaksútgáfunni. Ekki er unnt að segja að langbakurinn sé sér- lega laglegur bíll þar sem hann er eiginlega einum of sléttur og felldur. Þannig virkar bíllinn fremur síður og kannski dálítið sleðalegur þegar litið er á hliðar hans. Að öðru leyti er Lada Grand Tour nokkuð snyrtilegur og varðandi útlitið mætti helst óska sér að gluggarnir væru stærri. Það myndi strax bæta út- litið. Þokkalegur að innan Að innan er Lada-langbakurinn þokkalegur. Sætin eru stíf og bera vel ökumann og farþega en þau eru einföld í sniðum og með hefðbundnum stillingum. Plássið er þokkalega gott í aftursætum en ekkert meira en það. Báðar gerðir Lada-fólksbílanna eru boðnar með sömu vélinni, 1,5 lítra fjölventlavél, sem er 79 hest- öfl. Togið er 118 Nm við 3.000 snúninga. Hámarkshraðinn er gefinn upp 170 km á klst. og það tekur bílinn 14 sekúndur að ná 100 km hraða úr kyrrstöðu sam- kvæmt upplýsingum framleið- anda. Í langbaknum sem var próf- aður er vélin óþarflega hávær. Á það við í flestum aðstæðum en þó er gangurinn þýðastur og hljóð- látastur á jöfnum hraða á þjóð- vegi. Lada 111 fær kannski ekki sér- stakan vinning fyrir snöggt við- bragð en það er þó fyllilega við- unandi og vinnslan er kannski öflugri en ætla mætti. Tæplega 80 hestöfl fara langt með að gera rúmlega eins tonna bílinn þokka- lega góðan í innanbæjarakstrin- um en þegar farið er út á þjóð- vegi væri mun skemmtilegra að hafa úr meiri orku að spila. Góð fjöðrun Skiptingin mætti vera liðugri en fjöðrun bílsins er það sem kemur á óvart og má segja að hann fari vel á grófustu vegum. Að því leyti er Lada-fólksbíllinn nokkuð álitilegur til ferða út um land ef horft er frá aflinu, sem mætti vera heldur meira. Það á kannski hins vegar ekki að ráða neinum úrslitum þegar bíll er val- inn og trúlega hefur verðið hér eitthvað að segja. Meðal staðalbúnaðar í Lada 111 eru rafdrifnar rúður og sam- læsingar og hægt er einnig að opna afturhlerann innan frá. Mið- stöðin er með sjálfvirkun hitastilli og er það skemmtilegur kostur. Þá er hæð höfuðpúða stillanleg og stilla má einnig hæð aðalljósa. Aftursætið má fella niður, allt eða hluta þess til að drýgja plássið og hlíf er yfir farangursrými. Verðið aðalkosturinn Verðið er aðalkosturinn við Lada-bílana og á það ekki síður við um fólksbílinn en Lada Sport, sem áfram er boðinn á 990.000 króna tilboðsverði. Lada 111 kostar 890 þúsnd krónur og 110 stallbakurinn 850 þúsund. Fyrir þetta er í boði allrúmgóður bíll með allt sem nauðsynlegt er til að komast frá einum stað til annars með sjálfan sig og ýmislegt sem fylgt getur. Lada er hins vegar ekki nógu skemmtilegur í akstri en ítreka má að hann stendur fyrir sínu á þessu verði. Fyrir þá sem vilja hins vegar bíl með skemmtilega aksturseiginleika er ýmislegt annað í boði og þarf þá líka að greiða heldur meira fyrir það. Þess má að lokum geta að Lada-umboðið nýja hefur fengið til liðs við sig bílasölur á nokkrum stöðum á landinu: Í Vestmanna- eyjum Bifreiðaverkstæði Muggs, Bílasölu Reykjaness í Keflavík, Bílasöluna Ós á Akureyri, Ásinn á Egilsstöðum, Betri bílasöluna á Selfossi og Bíla- og búvélaverk- stæðið á Hvammstanga. jt Farangursrými er í góðu lagi í Lada 111. BÍLAR 4 D SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ NÝR Renault Clio kemur á markað á meginlandi Evrópu næsta haust. Bíllinn er mikið breyttur að framan og minnir um margt á Vel Satis lúxusbíl- inn sem væntanlegur er á markað. Nýjar framlugtir og grill setja nýjan svip á bílinn og hann verður með fjölda nýrra véla og gírkassa, þar á meðal cvt-reimskiptingu, þeirri sömu og í Nissan Micra. AÐDÁUNAR Bandaríkja- manna á því sem breskt er sér nú líka stað í bílum. General Motors hefur ákveðið að næsta kynslóð Onstar leiðsögukerfa fyrirtækisins verði með karl- mannsrödd með enskum fram- burði. Flest leiðsögukerfi í Bandaríkjunum styðjast við konuraddir með amerískum framburði en GM ætlar sem sé að gefa einnig kost á enskri rödd. Talsmaður fyrirtækisins segir að markaðsrannsóknir sýni að ensk karlmannsrödd höfði mjög til bandarískra bíl- kaupenda. BMW, sem eignast Rolls-Royce að fullu og öllu leyti á næsta ári, á eftir að koma hefðbundnum kaupendum þessa virta merkis á óvart, ekki síst með Rolls-Royce sem knúinn verður vetni. Bíllinn verður kynntur á næsta ári með tæknibúnaði eins og t.a.m. raf- stýrðri loftpúðafjöðrun og verð- ur tæknilegt undur. Árið 2005 kemur bíllinn svo með vetnisvél- inni. Fyrst verður hann samt boðinn með V12 vél bensínvél- inni sem þróuð verður út frá sams konar vél BMW. Helsti keppinauturinn verður Merce- des-Benz Maybach lúxusbíllinn sem væntanlegur er á markað á næsta ári. Vetnisknú- inn Rolls- Royce INNAN tíðar verða hafnar prófanir á Bretlandi á tækni- búnaði sem kemur í veg fyrir hraðaakstur. Búnaðurinn kall- ast ISA (Intelligent Speed Adaption), og er komið fyrir undir vélarhlíf bílsins. Búnaður- inn styðst við gervihnattatækni og tekur við boðum frá gervi- hnöttum sem sjá þegar bíllinn fer inn á svæði þar sem hraði er takmarkaður. Búnaðurinn vinn- ur með eldsneytistölvu bílsins og dregur sjálfkrafa úr inngjöf þegar þörf er á því að lækka hraðann. Bresk stjórnvöld segja að fyrstu 20 bílarnir með ISA- búnaði verði komnir á göturnar snemma á næsta ári. Bíllinn ákveður hraðann Clio verður með nýjum framenda. Nýr Clio Enskur framburður fyrir Banda- ríkjamenn Vél: 1,5 lítrar, 8 ventlar, 79 hestöfl. Veltistýri. Samlæsingar. Rafdrifnar rúður. Samlitir stuðarar. Vindskeið með hemlaljósi. Rafopnun á afturhlera. Miðstöð með sjálfvirkum hitastilli. Lengd: 4,26 m. Breidd: 1,67 m. Hæð: 1,43. Hjólhaf: 2,49 m. Þyngd: 1.020 kg. Hámarkshraði: 170 km/klst. Bensíneyðsla: 5,2 l/100 km á þjóðvegi, 8,9 l í þéttbýli. Staðgreiðsluverð: 890.000 kr. Umboð: Lada-umboðið, Reykjavík. Lada 111 í hnot- skurn Lada langbakur á góðu verði Morgunblaðið/Þorkell Lada 111 Grand Tour heitir langbakurinn fullu nafni. Í mælaborðinu er allt það nauðsynlega en ekki mikið meira en það. RE YN SL UA K ST UR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.