Morgunblaðið - 01.04.2001, Qupperneq 4
LADA-umboðið í Reykjavík
býður nú Lada-fólksbíla
auk Lada Sport jeppans
sem kynntur var á dögun-
um hér í blaðinu. Fólksbíll-
inn er bæði til sem stall-
bakur og langbakur og er
verðið allgott eins og þessi
bílategund er þekkt fyrir
eða 850 þúsund krónur og
890 þúsund. Tekið var í
langbakinn fyrir stuttu.
Lada-fólksbílarnir eru
nefndir annars vegar 110
Family, sem er stallbakur-
inn, og hins vegar 111
Grand Tour en það er nafnið á
langbaksútgáfunni. Ekki er unnt
að segja að langbakurinn sé sér-
lega laglegur bíll þar sem hann er
eiginlega einum of sléttur og
felldur. Þannig virkar bíllinn
fremur síður og kannski dálítið
sleðalegur þegar litið er á hliðar
hans. Að öðru leyti er Lada
Grand Tour nokkuð snyrtilegur
og varðandi útlitið mætti helst
óska sér að gluggarnir væru
stærri. Það myndi strax bæta út-
litið.
Þokkalegur að innan
Að innan er Lada-langbakurinn
þokkalegur. Sætin eru stíf og
bera vel ökumann og farþega en
þau eru einföld í sniðum og með
hefðbundnum stillingum. Plássið
er þokkalega gott í aftursætum
en ekkert meira en það.
Báðar gerðir Lada-fólksbílanna
eru boðnar með sömu vélinni, 1,5
lítra fjölventlavél, sem er 79 hest-
öfl. Togið er 118 Nm við 3.000
snúninga. Hámarkshraðinn er
gefinn upp 170 km á klst. og það
tekur bílinn 14 sekúndur að ná
100 km hraða úr kyrrstöðu sam-
kvæmt upplýsingum framleið-
anda.
Í langbaknum sem var próf-
aður er vélin óþarflega hávær. Á
það við í flestum aðstæðum en þó
er gangurinn þýðastur og hljóð-
látastur á jöfnum hraða á þjóð-
vegi.
Lada 111 fær kannski ekki sér-
stakan vinning fyrir snöggt við-
bragð en það er þó fyllilega við-
unandi og vinnslan er kannski
öflugri en ætla mætti. Tæplega
80 hestöfl fara langt með að gera
rúmlega eins tonna bílinn þokka-
lega góðan í innanbæjarakstrin-
um en þegar farið er út á þjóð-
vegi væri mun skemmtilegra að
hafa úr meiri orku að spila.
Góð fjöðrun
Skiptingin mætti vera liðugri
en fjöðrun bílsins er það sem
kemur á óvart og má segja að
hann fari vel á grófustu vegum.
Að því leyti er Lada-fólksbíllinn
nokkuð álitilegur til ferða út um
land ef horft er frá aflinu, sem
mætti vera heldur meira. Það á
kannski hins vegar ekki að ráða
neinum úrslitum þegar bíll er val-
inn og trúlega hefur verðið hér
eitthvað að segja.
Meðal staðalbúnaðar í Lada
111 eru rafdrifnar rúður og sam-
læsingar og hægt er einnig að
opna afturhlerann innan frá. Mið-
stöðin er með sjálfvirkun hitastilli
og er það skemmtilegur kostur.
Þá er hæð höfuðpúða stillanleg og
stilla má einnig hæð aðalljósa.
Aftursætið má fella niður, allt eða
hluta þess til að drýgja plássið og
hlíf er yfir farangursrými.
Verðið aðalkosturinn
Verðið er aðalkosturinn við
Lada-bílana og á það ekki síður
við um fólksbílinn en Lada Sport,
sem áfram er boðinn á 990.000
króna tilboðsverði. Lada 111
kostar 890 þúsnd krónur og 110
stallbakurinn 850 þúsund. Fyrir
þetta er í boði allrúmgóður bíll
með allt sem nauðsynlegt er til að
komast frá einum stað til annars
með sjálfan sig og ýmislegt sem
fylgt getur.
Lada er hins vegar ekki nógu
skemmtilegur í akstri en ítreka
má að hann stendur fyrir sínu á
þessu verði. Fyrir þá sem vilja
hins vegar bíl með skemmtilega
aksturseiginleika er ýmislegt
annað í boði og þarf þá líka að
greiða heldur meira fyrir það.
Þess má að lokum geta að
Lada-umboðið nýja hefur fengið
til liðs við sig bílasölur á nokkrum
stöðum á landinu: Í Vestmanna-
eyjum Bifreiðaverkstæði Muggs,
Bílasölu Reykjaness í Keflavík,
Bílasöluna Ós á Akureyri, Ásinn á
Egilsstöðum, Betri bílasöluna á
Selfossi og Bíla- og búvélaverk-
stæðið á Hvammstanga.
jt
Farangursrými er í góðu lagi í Lada 111.
BÍLAR
4 D SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝR Renault Clio kemur á
markað á meginlandi Evrópu
næsta haust. Bíllinn er mikið
breyttur að framan og minnir
um margt á Vel Satis lúxusbíl-
inn sem væntanlegur er á
markað. Nýjar framlugtir og
grill setja nýjan svip á bílinn og
hann verður með fjölda nýrra
véla og gírkassa, þar á meðal
cvt-reimskiptingu, þeirri sömu
og í Nissan Micra.
AÐDÁUNAR Bandaríkja-
manna á því sem breskt er sér
nú líka stað í bílum. General
Motors hefur ákveðið að næsta
kynslóð Onstar leiðsögukerfa
fyrirtækisins verði með karl-
mannsrödd með enskum fram-
burði. Flest leiðsögukerfi í
Bandaríkjunum styðjast við
konuraddir með amerískum
framburði en GM ætlar sem sé
að gefa einnig kost á enskri
rödd. Talsmaður fyrirtækisins
segir að markaðsrannsóknir
sýni að ensk karlmannsrödd
höfði mjög til bandarískra bíl-
kaupenda.
BMW, sem eignast Rolls-Royce
að fullu og öllu leyti á næsta ári,
á eftir að koma hefðbundnum
kaupendum þessa virta merkis á
óvart, ekki síst með Rolls-Royce
sem knúinn verður vetni. Bíllinn
verður kynntur á næsta ári með
tæknibúnaði eins og t.a.m. raf-
stýrðri loftpúðafjöðrun og verð-
ur tæknilegt undur. Árið 2005
kemur bíllinn svo með vetnisvél-
inni. Fyrst verður hann samt
boðinn með V12 vél bensínvél-
inni sem þróuð verður út frá
sams konar vél BMW. Helsti
keppinauturinn verður Merce-
des-Benz Maybach lúxusbíllinn
sem væntanlegur er á markað á
næsta ári.
Vetnisknú-
inn Rolls-
Royce
INNAN tíðar verða hafnar
prófanir á Bretlandi á tækni-
búnaði sem kemur í veg fyrir
hraðaakstur. Búnaðurinn kall-
ast ISA (Intelligent Speed
Adaption), og er komið fyrir
undir vélarhlíf bílsins. Búnaður-
inn styðst við gervihnattatækni
og tekur við boðum frá gervi-
hnöttum sem sjá þegar bíllinn
fer inn á svæði þar sem hraði er
takmarkaður. Búnaðurinn vinn-
ur með eldsneytistölvu bílsins
og dregur sjálfkrafa úr inngjöf
þegar þörf er á því að lækka
hraðann. Bresk stjórnvöld segja
að fyrstu 20 bílarnir með ISA-
búnaði verði komnir á göturnar
snemma á næsta ári.
Bíllinn
ákveður
hraðann
Clio verður með nýjum
framenda.
Nýr Clio
Enskur
framburður
fyrir Banda-
ríkjamenn
Vél: 1,5 lítrar, 8 ventlar,
79 hestöfl.
Veltistýri.
Samlæsingar.
Rafdrifnar rúður.
Samlitir stuðarar.
Vindskeið með hemlaljósi.
Rafopnun á afturhlera.
Miðstöð með sjálfvirkum
hitastilli.
Lengd: 4,26 m. Breidd: 1,67
m. Hæð: 1,43.
Hjólhaf: 2,49 m.
Þyngd: 1.020 kg.
Hámarkshraði: 170 km/klst.
Bensíneyðsla: 5,2 l/100 km á
þjóðvegi, 8,9 l í þéttbýli.
Staðgreiðsluverð: 890.000 kr.
Umboð: Lada-umboðið,
Reykjavík.
Lada 111
í hnot-
skurn
Lada langbakur
á góðu verði
Morgunblaðið/Þorkell
Lada 111 Grand Tour heitir langbakurinn fullu nafni.
Í mælaborðinu er allt það nauðsynlega en ekki mikið meira en það.
RE
YN
SL
UA
K
ST
UR