Morgunblaðið - 01.04.2001, Síða 2
BÍLAR
2 D SUNNUDAGUR 1. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
!
"
TOUGHSEAL lakkvörn á bílinn
2ja ÁRA ENDING. Sérhæfð bónstöð í
lakkvernd blettunum og mössun,
einnig alþrif og djúphreinsun.
Bónstöðin Teflon, Toughseal umboðið
Krókhálsi 5, sími 567 8730, www.teflon.is
FJALLASPORT hf., fyrirtæki sem
sérhæfir sig í breytingum á jeppum,
hefur breytt Isuzu Trooper-jeppa fyr-
ir 44 tommu dekk. Breytingin er talin
vera einhver sú mesta sem gerð hefur
verið á þessari gerð bíla.
Reynir Jónsson, framkvæmdastjóri
Fjallasports, segir að búið sé að
breyta mörgum Trooper-bílum fyrir
38 tommur, sem hann segir að sé til
þess að gera einfalda breytingu. Mun
meiri vinna og yfirlega sé fólgin í
breytingu fyrir 44 tommur. Bíllinn
kemur á sjálfstæðri vindustangafjöðr-
un að framan frá framleiðanda en
Fjallasport tekur hana undan og set-
ur heila hásingu í staðinn og gorma-
fjöðrun. Með því að setja heila hás-
ingu að framan var jafnframt unnt að
færa hásinguna framar um þrjá sentí-
metra og jafnframt hækka hann
meira. Afturhásingin var líka færð
aftur um þrjá sentímetra þannig að
hjólhafið er nú sex sentímetrum
lengra sem gerir bílinn stöðugri og
gefur betri hreyfingar í torfærum.
Bíllinn er sjálfskiptur og settur var
skriðgír í hann þannig að hann er nú
með tveimur lágum drifum, eða sam-
tals 16 gírum áfram og fjórum aftur á
bak. Einnig var sett í hann ný 5,38:1-
drifhlutföll og Megalock-driflæsingar
sem eru 100% vakúmlæsingar að
framan og aftan. Frá framleiðanda
kemur bíllinn með Dana 60-afturhás-
ingum, sem Reynir segir sams konar
hásingar og verið sé að nota í bíla í
torfærukeppnum hérlendis. Nýr
stýristjakkur var settur í bílinn til að
létta stýrið.
Bíllinn er með 3ja lítra forþjöppu-
dísilvélinni, 166 hestafla, og sett var
sverara púströr undir hann. Til stend-
ur að tengja tölvukubb við vélina sem
skilar aukalega 40–50 hestöflum.
Bíllinn vegur ekki nema 2,4 tonn
með öllum búnaði og er orðinn gríð-
arlega öflugur fjallabíll. Með þessari
breytingu verður bíllinn að sjálfsögðu
ekki eins meðfærilegur í borgarum-
ferðinni en með mun meiri getu utan
vegar. Breyting af þessu tagi kostar
sitt, eða nálægt þremur milljónum
króna. Jeppabreytingar fyrirtækisins
eru kynntar nánar á vefslóðinni fjalla-
sport.is.
Mest breytti Tr
Ár og sprænur eru
ÍSTRAKTOR í Garðabæ hefur fengið
fyrstu tveggja lítra útgáfuna af Alfa
Romeo 147 með Selespeed-gírskipt-
ingu. Sagt var frá bílnum með 1,6
lítra vélinni, með og án hins breyti-
lega ventlastýringarbúnaðs, og í vik-
unni gafst kostur á að prófa 2ja lítra
bílinn.
Það þarf ekki að fjölyrða um útlitið,
svo mörgum fögrum orðum sem farið
hefur verið um það. Bíllinn sem
fékkst til prófunar var með aukabún-
aði sem fólst í rafdrifinni sóllúgu,
ljósu leðri á sætum sem var í
skemmtilegri þversögn við svart
mælaborðið, og málmlit. Að öðru leyti
er hann hlaðinn búnaði, svo sem sex
líknarbelgjum, hraðastilli, tvívirkri,
sjálfvirkri miðstöð, góðum hljómflutn-
ingstækjum, aftengjanlegri spólvörn,
ABS-hemlakerfi með hemlunarátaks-
dreifingu og skrikvörn sem spilar
saman við ABS-kerfið og dregur úr
afli og beitir hemlum þegar bíllinn
skrikar í beygjum. Í þessum búningi
og með tveggja lítra vélina er bíllinn
orðinn að litlum lúxussportbíl sem
vekur athygli hvar sem hann fer.
Vélin er með tveimur kveikjum á
hvern strokk, TSpark, eins og Alfa
kallar það, og skilar að hámarki 150
hestöflum. Þetta er, eins og vænta
mátti, öflug og þrælskemmtileg vél,
og er tengd um fimm gíra kassa í
framhjólin. Bíllinn er kvikur í stýri og
liggur vel og er uppstilltur fyrir hrað-
Alfa 147
2,0 – afl-
mikill með
Selespeed
Alfa Romeo 147 er fáanlegur þrennra og fimm
dyra með 1,6 og 2,0 lítra vélum. Hér segir
Guðjón Guðmundsson frá 2,0 lítra bílnum
með rafeindastýrðri beinskiptingu, Selespeed.
Ljóst leður og svart mælaborð mynda
takkaskipting og auk þess s
44 tommu dekk og aflmikil bú
EURO NCAP, leiðandi
stofnun á sviði árekstr-
aprófana, hefur sent
frá sér niðurstöður
vegna nýrra árekstr-
aprófana og í þeim
hlýtur nýjasta kynslóð
Renault Laguna fyrst-
ur bíla fimm stjörnur.
Sala á þessum bíl hefst
í vor hér á landi.
Einnig var skýrt frá
niðurstöðum í prófun-
um á fimm litlum fjöl-
notabílum og nýjum
Nissan Almera-fólks-
bíl.
Að baki Euro NCAP (New Car As-
sessment Program), er FIA, sem eru
alþjóðasamtök bifreiðaeigend-
aklúbba, og stærstu landssambönd
bifreiðaeigenda. Þetta er stærsta,
óháða prófunarstofnunin í Evrópu á
þessu sviði.
Vantrúaðir á fimmtu stjörnuna
Fram að þessu hafa bílar mest
fengið fjórar stjörnur í prófun Euro
NCAP, en fimmtu stjörnunni var
bætt við einkunnaskalann á síðasta
ári og um leið bílaframleiðendum í
Evrópu sett enn háleitari markmið á
sviði öryggismála. Til þess að hljóta
fimm stjörnur verður bíll að standa
sig framúrskarandi vel jafnt í árekstri
framan á bíl sem og hliðarárekstri en
auk þess einnig að bjóða upp á full-
nægjandi höfuðvörn fyrir þá sem í
bílnum eru. Sumir bílaframleiðendur
lýstu því yfir þegar fimmta stjarnan
var tekin upp á síðasta ári að ógerlegt
væri að útbúa bíla með þeim hætti að
allar stjörnurnar fimm fengjust.
Í árekstrarprófuninni fengu þrír
litlir fjölnotabílar fjórar stjörnur, þ.e.
Renault Scénic, Citroen Picasso og
Nissan Tino. Nissan Tino skaraði
fram úr öðrum bílum í þessum flokki.
Mazda Premacy fékk þrjár stjörnur
eins og Mitsubishi Space Star.
Nýr Nissan Almera fékk fjórar
stjörnur í prófuninni.
Renault Laguna fékk fullt hús stiga, 5 stjörnur,
í árekstrarprófi NCAP.
Ný Renault
Laguna fyrst til
að fá 5 stjörnur
! "
#$$%
#$$%
#$$%
#$$%
#$$%
&
' !
(
! )
! ! (
*! (
&
+
, - ./( -0
.) &- &
1
2 &- 2 +! #$$%
3-) #$$%
FYRIR skömmu opnaði kassi.is
bílasöluvefinn bilakassi.is. Vefur-
inn er nýr vettvangur fyrir kaup-
endur og seljendur ökutækja.
Á vefnum er að finna auk bíla-
auglýsinga ýmsar gagnlegar
upplýsingar og fróðleik tengdan
bílum og bílaviðskiptum.
Hægt er að birta allt að 5
myndir í auglýsingu.
Til að auðvelda þeim að nota
myndir sem ekki hafa tæki eða
þekkingu til, er kassi.is að koma
sér upp neti myndatökumanna
hringinn í kringum landið, sem
taka myndir á stafrænar mynda-
vélar og geta aðstoðað við skrán-
ingu auglýsinga.
Auk þessarar þjónustu hefur
fyrirtækið útgáfu bílasölublaðs-
ins bilakassi.is annan hvern
föstudag. Í blaðinu verða nýjustu
nýjustu auglýsingarnar af vefn-
um. Auglýsingarnar í blaðinu eru
birtar auglýsanda að kostnaða-
lausu.
Blaðið verður til sölu á eitt
hundrað krónur á bensínstöðvum
Skeljungs, hringinn í kringum
landið.
1. tölublaðið kemur út föstu-
daginn 6. apríl n.k.
bilakassi. is. opnaður