Morgunblaðið - 05.04.2001, Qupperneq 1
2001 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
SETUR TIGER WOODS ENN EITT METIÐ? / B4
Samningur Þorbjörns við HSÍ umþjálfun liðsins var fram í júní
nk., en Þorbjörn hefur stýrt landslið-
inu frá sumrinu 1995 er hann tók við
af Þorbergi Aðalsteinssyni.
Guðmundur Ingvarsson, formað-
ur HSÍ, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að viðræður væru í
gangi við nýjan þjálfara, en fleiri en
einn kæmu til greina. „Ég vonast til
þess að gengið verði frá ráðningu
nýs landsliðsþjálfara öðru hvoru
megin við næstu helgi. Um þetta er
þó ekki hægt að fullyrða neitt,“ sagði
Guðmundur og bætti því við að bæði
kæmi til greina að ráða Íslending og
útlending í starfið. Eins væri ekki
ljóst á þessu stigi hvort starf lands-
liðsþjálfara yrði hlutastarf eða fullt
starf eins og verið hefur. Landsliðs-
þjálfarinn hefði þá einnig með
fræðslu- og útbreiðslustarf að gera,
en Þorbjörn hefur einnig sinnt þeim
málaflokkum.
Næstu verkefni landsliðsins eru
tveir leikir við Hvít-Rússa í undan-
keppni Evrópukeppninnar í byrjun
júní – fyrst í Minsk, síðan hér á landi.
Sú þjóð, sem hefur betur í þeim leikj-
um, tryggir sér rétt til þátttöku í
Evrópukeppninni í Svíþjóð í byrjun
næsta árs.
Þorbjörn hættur
með landsliðið
ÞORBJÖRN Jensson er hættur í starfi landsliðsþjálfara karla í
handknattleik. Í fréttatilkynningu frá Handknattleikssambandi Ís-
lands, HSÍ, í gær sagði að Þorbjörn hefði óskað eftir að láta af störf-
um og hefði HSÍ orðið við því.
KR og Þór hafa náð samkomulagi
um félagaskipti knattspyrnumanns-
ins Jóhanns Þórhallssonar. Jóhann,
sem leikið hefur með KR-ingum
undanfarin tvö ár, fer aftur í sitt
gamla félag og mun hann skrifa
undir þriggja ára samning við Ak-
ureyrarliðið á næstu dögum. Jó-
hann átti eitt ár eftir af samningi
sínum við KR og undanfarnar vikur
og mánuði hafa forráðamenn félag-
anna togast á um hvernig standa
ætti að félagaskiptunum.
„Samkomulagið liggur á borðinu
og það er orðið ljóst að hann verður
leikmaður Þórs og mun gera við
okkur þriggja ára samning. Mér
sýnist þetta mál fá farsælan endi og
við erum auðvitað mjög ánægðir að
endurheimta strákinn frá KR,“
sagði Árni Óðinsson, formaður
knattspyrnudeildar Þórs, við Morg-
unblaðið í gær. Árni vildi ekki
greina frá því hve háa upphæð Þór
greiðir KR fyrir að leysa Jóhann
undan samningnum við KR en hann
sagði verðið vera viðunandi.
Jóhann hefur æft með Þórsurum
í allan vetur og fór með liðinu í æf-
ingaferð til Spánar í gær. Hann er
21 árs gamall, sóknar- og miðju-
maður sem lék 12 leiki með KR-
ingum í efstu deild.
Þá hafa Þórsarar fengið frekari
liðsstyrk fyrir átökin í 1. deildinni í
sumar því Jónas Baldursson hefur
ákveðið að leika með liðinu í sumar.
Jónas hefur mörg undanfarin ár
verið lykilleikmaður í liði Dalvík-
inga og jafnframt því að leika með
því hefur hann þjálfað það und-
anfarin ár.
Jóhann fer í Þór
SIGURBJÖRN Hreiðarsson, knattspyrnumaður,
er hættur hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Trelle-
borg en hann fór fram á að verða leystur undan
samningi. Félagið varð við þeirri beiðni og er
hann væntanlegur til Íslands á næstu dögum. Sig-
urbjörn gekk í raðir Trelleborg í árslok 1999 frá
Val og átti samningur hans að renna út í haust.
Sigurbjörn fékk aðeins að spreyta sig í 10 leikjum
Trelleborg á síðustu leiktíð en þessi 25 ára gamli
sóknarmaður lék með Val frá 1992–1999, alls 105
leiki í efstu deild og skoraði 18 mörk.
„Aðalástæðan að ég er á heimleið er sú að ég
hafði vonast eftir því að fá að spila meira. Maður
er í þessu til að fá að spila og ég sá fram á að það
yrði á brattann að sækja á leiktíðinni sem er að
ganga í garð. Það liggur ekki ljóst fyrir ennþá
hvar ég spila í sumar. Auðvitað hef ég taugar til
Vals en það er ekki sjálfgefið að ég verði með
þeim,“ sagði Sigurbjörn við Morgunblaðið í gær.
Sigurbjörn hættur
með Trelleborg
SIGURÐUR Gunnarsson, hand-
knattleiksþjálfari hjá norska liðinu
Stavanger, er mikið í sviðsljósinu í
samnefndum bæ þar sem margir telja
að árangur liðsins í vetur hafi ekki
uppfyllt þær væntingar sem til þess
voru gerðar. Á mánudag fór blaða-
maður staðarblaðsins Stavanger Aft-
enblad hörðum orðum um frammi-
stöðu liðsins í vetur og vildi að
Sigurður léti af störfum hið fyrsta.
„Ég á tvö ár eftir af samningi mín-
um við liðið og það er ekkert sem
bendir til þess að ég verði ekki þjálf-
ari Stavanger næstu tvö keppnistíma-
bil,“ sagði Sigurður í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Ég tók við lið-
inu 20. ágúst á síðasta ári, fjórum vik-
um áður en keppnistímabilið hófst.
Handknattleiksfélögin hér í Stavang-
er, Viking og Stavanger, höfðu sam-
einast undir merkjum Stavanger.
Flestir leikmenn Viking hurfu á braut
og aðeins einn úr því liði leikur með
okkur í dag. Viking var með sterkt lið
og flestir þeirra sem hurfu á braut
leika sem atvinnumenn í Þýskalandi,
Danmörku og Svíþjóð. Það var því
þunnur hópur sem ég hafði úr að
moða og í vetur hefur meiðslasaga
liðsins verið með ólíkindum og gert
mér erfiðara um vik. Við töpuðum að-
eins þremur af síðustu 22 leikjum í
deildinni. Við töpuðum fyrstu sjö
leikjunum í deildinni, en þegar málin
eru skoðuð betur þá unnum við 17
leiki, gerðum tvö jafntefli og töpuðum
12. Það má segja að ég hafi tekið við
liði sem var skipað varamönnum
gömlu liðanna og það segir sig sjálft
að það lið nær ekki stórkostlegum ár-
angri á fyrsta ári sínu í erfiðri deild-
arkeppni,“ sagði Sigurður.
Sigurður
bjartsýnn
Reuters
Ian Harte, leikmaður Leeds, er hér að skora fyrsta mark sinna manna á móti Deportivo beint úr aukaspyrnu. Leeds vann 3:0-sigur og
stendur vel að vígi fyrir síðari leikinn. Í hinni viðureigninni í 8 liða úrslitum hafði Arsenal betur gegn Valencia, 2:1.