Morgunblaðið - 05.04.2001, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.04.2001, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2001 B 3  BIRGIR Leifur Hafþórsson verð- ur meðal keppenda á Opna portú- galska mótinu í Algarve í lok mán- aðarins. Meðal keppenda þar verða ekki ómerkilegri kylfingar en Colin Montgomerie, Padraig Harrington, Ian Woosnam, Paul Lawrie, Gary Orr, Patrik Sjöland, Paul Mcginley og Andrew Coltart.  GUNNAR Andrésson skoraði 9 mörk, ekkert úr vítakasti, þegar lið hans, Amicitia Zurich, vann Yellow Winterthur, 23:22, í svissnesku deildakeppninni. Gunnar er nú markahæstur í næstefstu deild, hef- ur skorað 87 mörk í tíu leikjum, þar af 22 úr vítakasti. Amicitia er nú í 5. sæti deildarinnar, hefur 10 stig úr jafnmörgum leikjum.  ARNAR Gunnlaugsso lék í 57 mín- útur í liði Leicester sem tapaði fyrir Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í gær, 2:1. Arnar leysti Dean Stur- ridge af hólmi í framlínunni en náði ekki að ógna marki Villa nema einu sinni en þá varði David James auka- spyrnu hans af 20 metra færi.  ÞÓRÐUR Guðjónsson átti mjög góðan leik með varaliði Derby í fyrrakvöld sem sigraði Coventry, 3:2. Þórður átti þátt í öllum þremur mörkum Derby og var valinn maður leiksins.  KATRÍN Jónsdóttir lék allan leik- inn fyrir norska liðið Kolbotn í 2:1 sigri á sænska liðinu Alvsjö á æf- ingamóti á La Manga í fyrrakvöldi.  FRANSKA knattspyrnuliðið Mónakó hefur framlengt samning við tvo af leikmönnum liðsins, Marco Simone og Rafael Marquez. Ítalski sóknarmaðurinn á eitt ár eftir af samningi sínum en framlengdi hann um tvö ár en Mexíkaninn ætlar að vera hjá Mónakó til ársins 2006.  GERAD Houllier, stjóri Liver- pool, hefur beðið þýska landsliðs- manninn Christian Ziege að þegja en sá síðarnefndi hefur verið dugleg- ur að kvarta yfir að vera ekki í byrj- unarliði Liverpool. „Ég skil að hann sé svekktur að vera ekki í byrjunar- liðinu en það besta sem hann getur gert er að þegja,“ segir Houllier.  „ÉG kom til Englands til að spila fótbolta en ekki til að laga enskuna mína,“ segir Ziega á heimasíðu sinni og segist ekkert skilja í að hann skuli hafa þurft að sitja á bekknum og horfa á leik Liverpool og Manchest- er United. „Hann gerir lítið úr öðr- um leikmönnum með svona tali,“ segir Houllier.  STEFAN Effenberg, fyrirliði Bay- ern München, vill fara frá Þýska- landi og segist vel geta hugsað sér að flytja til Lundúna og leika með ein- hverju af þeim þremur liðum sem þar eru. Þar eru hins vegar fleiri lið og meðal annars fimm í úrvalsdeild- inni, Arsenal, Charlton, Chelsea, Tottenham og West Ham.  LEIKUR Barcelona og Liverpool í UEFA-keppninni hefst klukkan 19.15 að íslenskum tíma, stundar- fjórðungi síðar en til stóð. Ástæðan er að BBC, sem sýnir leikinn beint í Englandi, er með framhaldsþáttinn EastEnders á dagskrá í kvöld og Bretar bíða spenntir eftir að komast að því hver reyndi að myrða aðal- sögupersónuna og það kemur í ljós í kvöld. Forráðamenn Barcelona tóku vel í beiðni BBC um að seinka leikn- um um stundarfjórðung.  FINNINN Jari Litmanen leikur væntanlega ekki með Liverpool á þessari leiktíð. Hann úlnliðsbrotnaði í landsleik Finna og Englendinga á dögunum og Gerard Houllier, stjóri Liverpool, segir að hann verði ekki leikhæfur fyrr en eftir sex vikur sem þýðir að leikur varla meira með á tímabilinu.  RYAN Giggs skrifaði í gær undir nýjan fimm ára samning við Man- chester United og gildir samningur Wales-verjans til ársins 2006. Giggs, sem er 26 ára gamall og hefur verið á mála hjá United í 10 ár, mun fá rúm- ar 6 milljónir króna í laun á viku. FÓLK skoraði sjö með liði Essen sem gerði jafntefli við dinni í handknattleik í gærkvöld. Pat- með sjö mörk og kom eitt markanna s í Wetzlar gerðu góða ferð til Minden 22. Sigurður skoraði 3 mörk og gull- rkinu en Gústaf Bjarnason var ekki á mátti þola skell á móti meisturum Kiel, örk fyrir Kiel og Nicloj Jacobsen 5. ið Ólafs Stefánssonar og Alfreðs en liðið er stigi á eftir Flensburg en á Morgunblaðið/Árni Sæberg Michail Antropov, Rússinn hávaxni í liði Tindastóls, fagnar ásamt leikmönnum og stuðnings- mönnum Tindastóls eftir sigurinn á Keflavík í fyrrakvöld. Morgunblaðið/Árni Sæberg ari Norðurlands vestra, á skrifstofu burði til að vinna Íslandsmeistaratit- mætir Njarðvíkingum í úrslitum. Ian Harte skoraði glæsilegt markbeint úr aukaspyrnu á 26. mínútu og varnarmaðurinn lagði síðan upp annað mark leiksins sem Alan Smith skoraði á 51. mínútu. Dýrasti varn- armaður heims, Rio Ferdinand, skoraði fyrsta mark sitt fyrir Leeds eftir að hann kom til liðsins frá West Ham og var Harte arkitektinn að markinu. „Ég hefði sætt mig við 1:0 sigur en mínir menn voru staðráðnir að fara með gott veganesti í seinni viðureignina 17. apríl. Við höfum náð langt í vetur þar sem við erum í raun litla liðið í keppninni og ævintýrið heldur áfram. Ég er ákaflega stoltur af leikmönnum mínum og get ekki annað en verið bjartsýnn að við klár- um dæmið á Spáni,“ sagði David O’Leary, framkvæmdastjóri Leeds. Enska liðið hefur leikið sérlega vel á útivöllum í deildarkeppnini að und- anförnu og ekki tapað leik í sjö við- ureignum en liðið sýndi einnig mik- inn styrk á útivelli gegn ítalska liðinu Lazio í riðlakeppninni. Erfitt verk- efni bíður leikmanna Deportivo en liðið náði að sigra PSV Eindhoven á heimavelli eftir að hafa verið undir 3:0 í hálfleik í lokaleik riðlakeppn- innar. Arsenal skoraði tvö mörk á tveim- ur mínútum í seinni hálfleik eftir að Fabian Ayala hafði komið Valencia yfir í fyrri hálfleik. Dagskipun Arsen Wenger, framkvæmdastjóra Arsen- als, var að sækja hart að hægri bak- verði spænska liðsins og hinn 35 ára gamli Jocelyn Angloma var greini- lega veikur hlekkur í vörn Valencia. „Sigurinn var það sem skipti öllu máli en ég var að gæla við það að okkur tækist að bæta þriðja markinu við og við fengum sannarlega tæki- færi til þess. Við verðum samt að fara til Spánar og halda áfram að sækja í stað þess að reyna halda fengnum hlut,“ sagði Arsene Weng- er. Franski leikmaðurinn Sylvain Wiltord breytti gangi mála hjá Arsenal, en hann kom inná sem vara- maður í upphafi síðari hálfleiks og leysti af hólmi sænska landsliðs- manninn Fredrik Ljüngberg. Wiltord var aðalmaðurinn á bak við fyrra mark Arsenals sem landi hans, Thierry Henry, skoraði og skömmu síðar þrumaði Ray Parlour knettinum í netið af um 20 metra færi. Valencia hafði aðeins fengið á sig sex til þessa í Meistaradeildinni og að venju var megináherslan lögð á sterkan varnarleik og skyndisóknir. Norðmaðurinn John Carew var að mestu í „norsku“ hlutverki og var oftar en ekki einn í framlínu Val- encia. Þrátt fyrir það átti Carew nokkur hættuleg færi og skaut m.a. í stöng og David Seaman sá við nokkr- um tilraunum kappans. Sterk staða hjá Leeds ENSKU liðin Arsenal og Leeds United eru með vænlega stöðu í 8 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa lagt andstæðinga sína á heimvöllum sínum í gærkvöld. Leeds lagði spænsku meist- arana Deportivo Coruna 3:0 og var varnarmaðurinn Ian Harte allt í öllu hjá lærisveinum Davids O’Learys. Tvö mörk frá leikmönnum Arsenals á tveggja mínútna kafla breyttu gangi mála í leik Arsenals og Valencia og sigraði Lundúnaliðið 2:1.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.