Morgunblaðið - 05.04.2001, Page 2
KÖRFUKNATTLEIKUR
2 B FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
SKÍÐI
Skíðamót Íslands
Hlíðarfjall við Akureyri. Keppni í 5 km
göngu kvenna, 10 km göngu karla 17–19
ára og 15 km göngu karla kl. 14.
Setning í Íþróttahöllinni kl. 18 og sprett-
ganga í göngugötunni á Akureyri kl. 20.
HANDKNATTLEIKUR
Úrslit kvenna, annar leikur:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Haukar .............20
Í DAG
!
"
#
$ % &'
#
( ))) KNATTSPYRNA
Meistaradeild Evrópu
8-liða úrslit, fyrri leikir:
Arsenal - Valencia......................................2:1
Thierry Henry 58., Ray Parlour 60. -
Roberto Ayala 41.
Arsenal: David Seaman, Lee Dixon, Martin
Keown, Tony Adams, Ashley Cole, Fredrik
Ljungberg (Wiltord 46.), Patrick Vieira,
Ray Parlour, Robert Pires, Thierry Henry,
Kanu (Lauren 84.).
Valencia: Santiago Canizares, Jocelyn Ang-
loma, Roberto Ayala, Mauricio Pellegrino,
Amedeo Carboni, Gaizka Mendieta (Vicente
89.), Ruben Baraja, Kily Gonzalez, Pablo
Aimar (Angulo 68.), John Carew, Juan
Sanchez.
Leeds - Deportivo La Coruna...................3:0
Harte 26., Alan Smith 51., Ferdinand 66.
Leeds: Nigel Martyn, Danny Mills, Rio
Ferdinand, Dominic Matteo, Lee Bowyer,
Ian Harte, Oliver Dacourt, David Batty,
Harry Kewell (Wilcox 84.), Alan Smith,
Mark Viduka.
Deportivo: Francisco Molinal, Manuel
Pablo, Enrique Romero, Nourredine Nayb-
et, Cesar, Fran (Pandiani 71.), Sebastian
Scaloni (Tristan 71.), Emerson, Pedro Dusc-
her (Veleron 54.), Roy Makaay, Djalminha.
England
Aston Villa - Leicester ...............................2:1
Dion Dublin 29., Lee Hendrie 72. - Callum
Davidson 27.- 29,043
1. deild:
Blackburn - Sheffield Utd..........................1:1
Wolves - Wimbledon...................................0:1
3. deild:
Cardiff - Barnet...........................................1:0
Skotland
Aberdeen - Dundee Utd. ............................4:1
Grikkland
Bikarkeppni, undanúrslit:
PAOK Saloniki - Apollon............................5.2
Iraklis - Olympiakos ...................................0:1
HANDKNATTLEIKUR
Þýskaland
Minden - Wetzlar ................................... 22:24
Hildesheim - Essen................................ 29:29
Grosswallstadt - Eisenach .................... 33:23
Kiel - Flensburg ..................................... 29:20
Lemgo - Gummersbach......................... 23:20
Staða efstu liða:
Flensburg ......... 29 22 3 4 791:704 45
Magdeburg....... 28 20 4 4 739:590 44
Lemgo............... 29 21 2 6 730:664 44
Wallau-M. ......... 29 18 4 7 765:707 40
B.Schwartau..... 28 17 3 8 681:653 37
Grosswallst. ...... 29 17 3 9 722:694 37
Kiel .................... 29 18 0 11 773:708 36
Essen................. 29 16 4 9 730:714 36
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Miami - Boston ........................................77:82
New Jersey - Charlotte ........................88:103
New York - Orlando ...............................94:82
Indiana - Phoenix ...................................85:81
Toronto - Philadelphia .........................100:85
Utah - La Lakers ....................................88:96
Chicago - Detroit...................................83:110
Houston - Dallas....................................97:109
San Antonio - Seattle ............................107:89
Denver - Portland ..................................94:92
Sacramento - Milwaukee....................101:107
Patrekur s
PATREKUR Jóhannesson var í ham m
Hildesheim, 29:29, í þýsku úrvalsdeild
rekur var markahæstur sinna manna m
af vítalínunni.
Sigurður Bjarnason og félagar hans
þar sem þeir sigruðu heimamenn, 24:2
tryggði Wetzlar sigurinn með 24. mar
meðal markaskorara hjá Minden.
Flensburg, efsta lið deildarinnar, m
29:20. Nenand Perunicic skoraði 9 mö
Tap Flensburg þýðir að Magdeburg, li
Gíslasonar, getur skotist í toppsætið e
leik til góða.
Halldór var tæpast búinn aðjafna sig eftir fjörið í íþrótta-
húsi bæjarins kvöldið áður þegar
Tindastóll vann
Keflavík í oddaleik í
undanúrslitum Ís-
landsmótsins í
körfuknattleik og
tryggði sér í fyrsta skipti rétt til að
leika til úrslita um Íslandsmeistara-
titilinn. Þó stjórnsýsla og dómstörf
séu aðalatvinna Halldórs er hann
lykilmaður í íþróttahreyfingunni á
Sauðárkróki sem formaður körfu-
knattleiksdeildar Tindastóls.
Halldór segir að eftir þennan sig-
ur sé ljóst að Tindastólsmenn stefni
ótrauðir að Íslandsmeistaratitlin-
um. „Það væri nú annað hvort, fyrst
við erum búnir að hafa svona mikið
fyrir því að komast í úrslitin er
stefnan auðvitað sú að vinna titilinn.
Við ætlum að leggja allt í sölurnar
til að reyna að sigra Njarðvíkinga.“
Höfum allt að vinna
en engu að tapa
Hversu mikla möguleika telur þú
að þið eigið gegn hinu sterka liði
Njarðvíkinga sem vann KR 3:0 í
undanúrslitunum?
„Staðan er þannig hjá okkur að
nú höfum við allt að vinna en engu
að tapa. Ég tel að almennt reikni
menn með því að Njarðvíkingar
vinni og við þurfum að leggja þá að
minnsta kosti einu sinni á útivelli til
að verða meistarar. Þeir hafa
heimavöllinn með sér en ef Tinda-
stólsliðið nær að spila heilan leik í
Njarðvík eins og síðasta fjórðung-
inn í gær, og seinni hálfleikinn í
fjórða leiknum í Keflavík, mun það
sigra.
Við höfum vissulega ekki unnið
leik á Suðurnesjum á þessu tímabili
en það á ekki að flækjast fyrir
mönnum. Varla er um sálrænt
vandamál að ræða því lið okkar
breytist alltaf mikið frá ári til árs.
Suðurnesjaliðin tapa yfirleitt ekki
heima, nema þá hvert gegn öðru.
Reyndar höfum við unnið á Suð-
urnesjum í vetur en það var gegn
Reyni í bikarnum og annað en sigur
í þeim leik hefði þótt ófyrirgefan-
legt. “
Tindastól hefur lengi vantað
herslumuninn til að komast svona
langt. Hver er ástæðan fyrir því?
„Það er fyrst og fremst vegna sí-
felldra breytinga á liðinu. Við misst-
um sex leikmenn úr hópnum fyrir
þetta tímabil og þannig er þetta oft-
ast. Á sumrin erum við með 4–5
leikmenn tilbúna og vitum síðan
ekki hvar við stöndum fyrr en um
haustið. Þessar sífelldu manna-
breytingar eru mjög bagalegar fyr-
ir okkur og ég sé ekki að það lagist
mikið. Það er hætta á því að við
stöndum í sömu sporum einu sinni
enn eftir þetta tímabil og þurfum að
byggja upp enn og aftur.
Hinsvegar fáum við stöðugt upp
efnilega leikmenn því hér er komin
mikil körfuboltahefð. Körfuboltinn
er vetraríþrótt númer eitt hér á
Sauðárkróki. En þetta er stanslaus
barátta um að halda krökkunum við
æfingar því það er svo margt sem
keppir við íþróttirnar. Þau eru upp-
tekin af tölvuleikjum, SMS-skila-
boðum og fleiru í þeim dúr.“
Þrífa sviðahausa
og þvo glugga
Þið eruð með þrjá erlenda leik-
menn og mikil ferðalög í útileiki.
Hvernig gengur að reka körfu-
knattleiksdeild Tindastóls?
„Þetta er mjög kostnaðarsamt og
erfitt og það fylgja því vissulega
mikil útgjöld að vera með erlenda
leikmenn. Pomones (Kanadamaður
með grískt ríkisfang) og Antropov
(Rússi) eru okkur ekki mjög dýrir
en Myers (frá Trínidad) er hreinn
atvinnumaður. Staða okkar er ekk-
ert of góð, frekar en hjá alltof
mörgum íþróttafélögum víða um
land. Það er að vissu leyti okkur
stjórnendunum að kenna en kröf-
urnar eru mjög miklar. Ekki aðeins
að meistaraflokknum gangi vel,
heldur líka að við útvegum hæfa
þjálfara fyrir yngri flokkana. Æf-
ingagjöldin standa ekki undir
rekstri yngri flokkanna, það er
ljóst.“
Hvernig fjármagnið þið rekstur-
inn?
„Bæjarfélagið er stærsti styrkt-
araðili félagsins en atvinnulífið er
þannig samsett að hér eru ekki
mörg stórfyrirtæki. Þau styrkja
okkur og síðan tökum við ýmislegt
að okkur. Við höfum til dæmis þrifið
sviðahausa í sláturhúsinu, í sumar
fjarlægðum við olíutanka fyrir Ol-
íudreifingu, við leggjum gangstétt-
arhellur og rífum byggingar. Í vet-
ur keypti Tindastóll gamalt
íbúðarhús og gerði það upp til að
spara húsaleigu og það var gríð-
arleg sjálfboðavinna í kringum það.
Við þvoum glugga hjá fyrirtækjum,
t.d. hérna í stjórnsýsluhúsinu, og
það er einmitt kominn tími á það
núna, það sést vel þegar sólin er
komin á loft. Svona átaksverkefni
henta okkur best og reynslan er sú
að best er að fá fólk til starfa þegar
slíkt er í gangi.“
Knattspyrnan rakst
á við golfið
Halldór var á sínum tíma þekktur
knattspyrnumarkvörður hjá FH og
lék einn A-landsleik fyrir Íslands
hönd. Hann segir að þó knattspyrn-
an hafi staðið sér næst hafi brenn-
andi golfáhugi sinn leitt til þess að
hann tók að sér félagsstörf í kring-
um körfuboltann.
„Við fluttum hingað til Sauðár-
króks árið 1992 þegar ég var ráðinn
héraðsdómari. Ég spila mikið golf á
sumrin og á meðan er ekki hægt að
skipta sér mikið af knattspyrnunni,
af einhverju viti. Íþróttirnar rekast
einfaldlega á að sumrinu. Tinda-
stólsmenn leituðu til mín árið 1994
um að taka að mér formennsku í
körfuknattleiksdeildinni, og ég hef
verið fastur í þessu síðan, í sjö ár.
Bakgrunnur minn í körfubolta er
afskaplega lítill en ég lék þó reynd-
ar bæði körfubolta og blak með
HSK á Landsmóti UMFÍ á Selfossi
1978, þegar ég var í Menntaskól-
anum á Laugarvatni. En starf í
kringum flestar íþróttir er keimlíkt
þegar upp er staðið.“
Hvernig fara félagsstörfin saman
við starf þitt sem héraðsdómari?
Verða aldrei neinir árekstrar?
„Þetta fer ágætlega með starfinu,
ég get stjórnað dagbókinni minni
sjálfur og haft tiltölulega frjálsar
hendur. Ég hef einu sinni úrskurð-
að sjálfan mig vanhæfan í dómsmáli
en það snerti mann sem ég hafði
mikil samskipti við í gegnum körfu-
boltann. Það hefði getað gerst í
gegnum hvers konar félagsskap
sem var. Ég skipti um ham þegar
vinnu lýkur og á kvöldin get ég orð-
ið kolvitlaus og fengið tæknivillur
frá körfuboltadómurunum, því ég
hef setið á bekknum með þjálfaran-
um öll þessi ár og aðeins misst af
einum og einum útileik. Maður
verður að taka þátt í samfélaginu og
eiga líf utan vinnunnar.“
Kemur víða við
Halldór lætur sér ekki stjórnar-
störfin í körfuknattleiksdeildinni
nægja. Hann er ritari Golfklúbbs
Sauðárkróks, varaformaður Ung-
mennasambands Skagafjarðar, á
sæti í dómstól Íþróttasambands Ís-
lands og dómstól Knattspyrnusam-
bands Íslands, varamaður í dómstól
Körfuknattleikssambands Íslands
og á sæti í félagaskiptanefnd sama
sambands. Á heimaleikjum Tinda-
stóls grípur hann hljóðnemann og
kynnir leikmenn liðanna, og sest
síðan á varamannabekkinn til að
vera Val Ingimundarsyni, þjálfara,
til halds og trausts. Héraðsdómar-
inn á Norðurlandi vestra hefur sem
sagt í mörg horn að líta en hann
segir að í félagsstörfunum sé starfið
í kringum körfuknattleiksdeildina
það sem allt snúist um, önnur
stjórnar- og nefndastörf séu ekki
sérlega tímafrek.
„Ég legg mestan kraftinn í körfu-
boltann og þessa dagana er það úr-
slitakeppnin sem skiptir öllu máli.
Verkefnið er að koma Íslandsbik-
arnum til Sauðárkróks. Það er erf-
itt verkefni en ekki óleysanlegt, og
ef það tekst verður svakalega gam-
an á Sauðárkróki“ sagði Halldór
Halldórsson.
Erfitt verk-
efni en ekki
óleysanlegt
„ÞAÐ ríkir mikil gleði í bænum og hamingjuóskirnar hafa streymt til
okkar. Ég heyrði í einum stjórnarmanna okkar áðan og til hans kom
í morgun gamall maður framan úr sveit, sem engan grunaði að vissi
hvernig körfubolti liti út, og hann tjáði sig fjálglega um leikinn og
var mjög ánægður með framgang mála. Þessi frammistaða Tinda-
stóls snertir fólk um allan Skagafjörð,“ sagði Halldór Halldórsson,
héraðsdómari Norðurlands vestra, þegar Morgunblaðið heimsótti
hann í stjórnsýsluhúsið á Sauðárkróki í gærmorgun.
Halldór Halldórsson, héraðsdóma
sinni. Hann telur að Tindastóll hafi
ilinn í fyrsta skipti þegar liðið m
Eftir
Víði
Sigurðsson