Morgunblaðið - 05.04.2001, Qupperneq 4
JACK Nicklaus hefur sigrað oft-
ast á bandaríska meistaramótinu,
Masters. Nicklaus sigraði sex
sinnum, fyrst árið 1963 og síðast
árið 1986. Nicklaus var rúmlega 46
ára gamall þegar hann sigraði árið
1986 og er hann elsti kylfingurinn
sem fagnað hefur sigri.
TIGER Woods er yngsti kylfing-
urinn sem sigrað hefur á Masters.
Woods var 21 árs þegar hann sigr-
aði árið 1997 og er það í eina
skiptið sem hann hefur klæðst
græna sigurjakkanum.
WOODS á tvö önnur met frá
Augusta-vellinum. Tólf högg
skildu hann og Tom Kite að árið
1997 og er það mesti munur á
fyrsta og öðrum manni í sögu
keppninnar. 1997 lék Woods hol-
urnar 72 á 270 höggum og er það
mótsmet.
MARK Calcavecchia lék seinni
níu holur Augusta National-vall-
arins á 29 höggum, sjö undir pari,
á lokadegi mótsins árið 1992 og er
það met á seinni níu holunum.
Johnny Miller og Greg Norman
eiga metið á fyrri níu holunum, 30
högg. Árið 1996 jafnaði Norman
met Millers frá árinu 1975 en par
vallarins er 72 högg.
TOM Weiskopf og Tommy
Nakaijma deila með sér vafasömu
mótsmeti. Weiskopf lék 12. holu
vallarins á 13 höggum árið 1980 en
árið áður hafði Nakaijma leikið 13.
holuna á 13 höggum og er það
mesti fjöldi högga á einni holu í
sögu mótsins. NICK Price fékk
tíu fugla á 18 holum árið 1986 og
er það mótsmet. FJÓRTÁN kylf-
ingum hefur tekist að fara holu í
höggi á Masters. Ross Somerville
var fyrstur árið 1934 og síðast
gerðist það árið 1996 þegar Ray-
mond Floyd setti boltann ofaní 16.
holuna í upphafshögginu, líkt og
Somerville hafði gert árið 1934.
ELLEFU sinnum hafa úrslitin
ráðist í umspili á Masters. Eng-
lendingurinn Nick Faldo sigraði
tvö ár í röð eftir umspil, fyrst lagði
hann Scott Hoch árið 1989 og ári
síðar vann Faldo Bandaríkjamann-
inn Raymond Floyd.
ARNOLD Palmer sigraði fjórum
sinnum á Masters, fyrst árið 1958
og seinast árið 1964. Fjórir kylf-
ingar hafa þrisvar sigrað Masters.
Jimmy Demaret, Nick Faldo, Sam
Snead og Gary Player.
NÍU kylfingar hafa sigrað tvisv-
ar sinnum á Masters. Horton
Smith, árið 1934 og 1936, Byron
Nelson 1937 og 1942, Ben Hogan
1951 og 1953, Tom Watson, 1977
og 1981, Steve Ballesteros 1980 og
1983, Bernhard Langer 1985 og
1993, Ben Crenshaw 1984 og 1995
og Jose Maria Olazabal 1994 og
1997.
FÓLK
MASTERINN verður allur
sýndur á sjónvarpsstöðinni
Sýn eins og undanfarin ár.
Páll Ketilsson og Úlfar Jóns-
son munu lýsa því sem fyrir
augu ber og verður sýnt frá
keppninni alla dagana.
Í dag hefst útsending
klukkan 21.10, eða strax að
loknum leik Liverpool og
Barcelona. Á morgun hefst
útsending klukkan 20,
klukkan 19.30 á laugardag-
inn og klukkan 20 á sunnu-
dagskvöldið þegar síðasti
hringurinn verður leikinn.
Útsending stendur í um
þrjár klukkustundir hvern
dag.
Allt á Sýn
Síðasta keppnistímbil var frábærthjá Woods og hann kemur því
fullur sjálfstrausts til leiks og mun
örugglega leggja sig allan fram til að
halda öllum fjórum titlunum samtím-
is. Einn kylfingur hefur áður verið í
þessari stöðu. Bob Hogan sigraði á
þremur risamótum árið 1953 en tap-
aði síðan í bráðabana á Masters 1954
fyrir Sam Snead. „Ég hef svo sem
ekki miklar áhyggjur af því hvort ég
verð handhafi titlanna fjögurra á
sama tíma, en ég neita því hins vegar
ekki að það væri frábært,“ sagði
Woods á blaðamannafundi í gær.
Í fyrra varð Woods að sigra á
Opna breska mótinu til að fullkomna
„Stóru slemmu“, en hann leit ekki
þannig á málið heldur sagði að hann
ætlaði sér að sigra á Opna breska og
þá kæmi hitt af sjálfu sér!
„Ég ætla líka að hafa þetta svona
núna. Ég fer út á golfvöll eins og ég
geri á hverjum degi og reyni að spila
eins vel og ég get og sigra. Ef mér
tekst það þá læt ég aðra um að setja
það í sögulegt samhengi,“ segir
Woods.
Þegar Woods sigraði á Masters
árið 1997 voru 12 högg í næsta mann,
mesti munur sem hefur verið á
tveimur efstu mönnum. Hann lék
hringina fjóra á 270 höggum, sem
einnig er met. „Það er ágætt að vita
að maður getur leikið vel á vellinum
og reynslan er alltaf mikilvæg,“
sagði Woods í gær.
Hverjir eru líklegir til afreka?
Það verða 93 kylfingar sem reyna
með sér á Augusta-vellinum og þó
svo að margir telji víst að Tiger
Woods verði þar fremstur í flokki
eru margir aðrir sem koma til greina
sem sigurvegarar.
Vijay Singh, meistarinn frá síð-
asta ári, hefur leikið vel að undan-
förnu og er til alls líklegur. „Það er
mikið talað um að Woods sigri. Ég er
ekki hér til að koma í veg fyrir að
hann vinni, heldur til að sigrast á
sjálfum mér. Ég einbeiti mér full-
komlega að sjálfum mér fyrir mótið,“
segir meistarinn. Hann á einnig
möguleika á að komast á stall með
þeim Jack Nicklaus og Nick Faldo
en þeir eru einu kylfingarnir sem
hafa sigrað á Masters tvö ár í röð.
„Ég veit allt um söguna. Það er frá-
bært að sigra á Masters, en að gera
það tvívegis er ótrúlegt,“ segir
Singh.
Bandaríkjamenn hafa mikið dá-
læti á hinum örvhenta Phil Mickel-
son og vona að nú sé loks komið að
því hjá honum. Mickelson hefur tví-
vegis stöðvað sigurgöngu Woods og
hefur ekkert á móti því að gera það á
ný, allra síst ef það þýðir að hann
sigrar á bandaríska meistaramótinu.
„Auðvitað væri gaman að stöðva sig-
urgöngu hans aftur, en keppendur er
alls ekki komnir hingað með það í
huga að stöða Woods, heldur til að
spila vel,“ sagði Mickelson.
Hvað svo sem til er í þessu hjá
Mickelson þá er ljóst að Woods vann
síðustu fjögur af fimm risamótum.
„Það verður gríðarlega erfitt að
sigra Woods því hann virðist geta
kallað fram það besta í sér þegar á
þarf að halda. Þrátt fyrir að við séum
ekkert allt of ánægðir með að einn og
sami maðurinn hafi sigrað í fjórum af
síðustu fimm risamótum má ekki
gleyma því að þetta hefur vakið at-
hygli á íþróttinni og við höfum allir
hagnast á þessu,“ segir Mickelson.
Fleiri má nefna og til gamans má
geta þess að veðbankar telja líkurn-
ar á að Woods sigri 8-5, næstur kem-
ur Mickelson með 12-1, Davis Love
III og Singh 14-1, Ernie Els 18-1 og
David Duval 22-1.
Bandaríska meistaramótið í golfi hefst í dag á Augusta-vellinum
Reuters
Meistarinn frá síðasta Masters, Vijay Singh frá Fiji-eyjum gerir
teygjuæfingar á áttundu flöt Augusta-vallarins.
Setur Tiger
Woods enn
eitt metið?
ENN og aftur spá fjölmargir golfsérfræðingar því að Bandaríkja-
maðurinn Tiger Woods sigri á bandaríska meistaramótinu í golfi,
Masters, sem hefst á Augusta-vellinum í Georgíu í dag. Takist hon-
um það verður hann fyrsti kylfingur sögunnar til að verða sigurveg-
ari allra fjögurra risamótanna á sama tíma. Woods sigraði í fyrra á
US Open, Opna breska mótinu og PGA-meistaramótinu og gæti því
skráð nafn sitt í sögubækurnar enn einu sinni.
Reuters
Tiger Woods æfir sig í sandglompu við fimmtu flötina á Augusta.