Morgunblaðið - 19.06.2001, Page 26
Systurnar Steinunn og Margrét Valdimarsdætur.
S
MIÐJULÓÐIN svonefnda
var þar sem húsið
Kirkjustræti 8A stendur
nú. Helgi E. Helgason
skólastjóri fékk hluta af henni
undir hús árið 1882. Sama ár
kaupir hann kálgarð af Geir Zoëga
og stækkaði þannig lóð sína. Hús-
ið sem Helgi byggði var einlyft
grindarhús með kjallara.
Helgi E. Helgason var skóla-
stjóri Barnaskólans í Reykjavík.
Hann var fæddur 15. október 1831
í Reykjavík, sonur Einars trésmiðs
Helgasonar, prests á Eyri í Skut-
ulsfirði, og konu hans Margrétar
Jónsdóttur frá Ytri-Njarðvík.
Helgi E. Helgason varð
cand.theol í Kaupmannahöfn árið
1856. Kona hans var Magdalena
Margrét Jóhannesdóttir Zoëga
glermeistara í Reykjavík. Helgi E.
Helgason lést 1. apríl 1890. Í nóv-
embermánuði árið 1903 selur
ekkja hans Magnúsi Blöndahl tré-
smið eignina.
Skjaldbreið byggð 1906
Magnús byggði hús á austur-
hluta lóðarinnar sem enn stendur
og er Kirkjustræti 8B. Hann selur
eldra húsið Sigríði Sigurðardóttur
sem lét rífa það og byggja nýtt
hús á lóðinni (árið 1906) sem enn
stendur og er þekkt undir nafninu
Skjaldbreið.
Í virðingu frá 22. apríl 1907
segir að Sigríður Sigurðardóttir
hafi fullgjört íbúðarhús sitt.
Grunnflötur hússins er 20 3/4 X
15 álnir, hæð 12 3/4 álnir. Það er
tvílyft með porti, kvisti, fimm álna
háu risi og veggsvölum á suð-
urhlið.
Byggt úr bindingi, klætt utan
með 1“ borðum, pappa, listum og
járni yfir með járnþaki á 1“ borða
súð. Innan á binding er klætt með
pappa og milligólf er í öllum bita-
lögum. Að innan eru öll herbergi
hússins, veggir og loft, klætt með
striga, pappír og málað. Á fyrstu
hæð eru þrjú íbúðarherbergi, eld-
hús með eldavél, búr og gangur.
Á annarri hæð eru fimm íbúðar-
herbergi, gangur og einn fastur
skápur. Í rislyfti eru sjö íbúðar-
herbergi, gangur og einn fastur
skápur. Á skammbitum þar yfir er
gólf úr plægðum 5/4“ borðum.
Kjallari er undir öllu húsinu 3 1/2
alin á hæð. Þar eru sex klefar þilj-
aðir að hluta eða kalkdregnir. Þar
er miðstöðvarvél og múraður
vatnskassi. Í húsinu eru vatns-
leiðslur.
Gólf kjallara er gert af stein-
steypu. Sunnan við húsið er inn-
og uppgönguskúr, 15 álna hár;
grunnflötur hans er 4 1/4 X 4 1/2
álnir. Marnús Blöndahl trésmiður
er hönnuður hússins og smiður.
Heimildum ber ekki saman um
það hvort Sigríður seldi eignina
árið 1907 eða veðsetti. En hún
mun hafa haft þar veitingarekstur
sem aðallega var ætlaður þing-
mönnum enda stutt að fara og að-
Kirkjustræti 8A Veitingasalurinn í Hótel Skjaldbreið. Staðurinn var vel þekktur og naut virð-ingar á meðal þeirra, sem þangað komu. Helgi Einarsson Helgesen
Hótel Skjaldbreið var lengi eitt virðulegasta veitinga-
og gistihús Reykjavíkur. Freyja Jónsdóttir rifjar hér
upp sögu hússins.
M
ARGIR þekkja húsið
Skaftahlíð 24. Þar var
lengi rekinn skemmti-
staðurinn Lido og síðan
Félagsmiðstöðin Tónabær. Húsið
skipar því vissan sess í huga
margra, sem eiga þaðan skemmti-
legar minningar.
Húsið var hannað af Skarphéðni
Jóhannssyni arkitekt og byggt
1956. Það stendur á mjög áberandi
stað, ekki hvað sízt gagnvart bíla-
umferð á Miklubraut. Það niðurrif
á húsinu, sem hófst í maímánuði,
hefur því glatt fáa, enda gengið svo
nærri húsinu, að segja má að ekk-
ert nema grindin ein eða burðar-
virkið sé eftir og húsið þá orðið
mikið lýti á umhverfinu.
Allt stendur þetta þó til mikilla
bóta. Þessar framkvæmdir eru ein-
ungis byrjunin á gagngerum end-
urbótum á húsinu, en því er ætlað
að ganga í endurnýjun lífdaganna.
Það á að fá nýtt yfirbragð og nýtt
hlutverk í framtíðinni.
Vandað hús að upplagi
Húsið er um 2.100 ferm eða um
700 ferm á hæð, en húsið er þrjár
hæðir. „Þetta er vandað hús að
upplagi, en það var í mjög slæmu
ástandi, þegar byrjað var á að end-
urnýja það, enda þótt enn hafi verið
starfsemi í húsinu,“ segir Freyr
Frostason, arkitekt hjá Teiknistofu
Halldórs Guðmundssonar, en hann
hefur stjórnað hönnunarvinnunni
við endurbæturnar á húsinu.
„Félagsmiðstöðin Tónabær var á
efri hæðinni og að hluta til í kjall-
aranum. Á neðri hæð var fiskbúð
og sjoppa. Gengið var inn í húsið í
gegnum viðbyggingu, sem var
byggð nokkru seinna en aðalbygg-
ingin, sem var vestar. En mikið af
húsinu var ónotað og kjallarinn full-
ur af drasli. Að utan var húsið illa
farið og útveggir, klæðning og ann-
að farið að láta mjög á sjá.“
Freyr segist hafa haft það að
leiðarljósi að láta burðarvirki húss-
ins halda sér. „Í húsinu eru steypt-
ar plötur, steypt þak og steyptar
súlur, sem látið var halda sér,“ seg-
ir hann. „Súlurnar eru mjög ein-
kennandi fyrir þetta hús að inn-
anverðu, en þær eru mjög margar
og burðarvirkið byggist að veru-
legu leyti á þeim.
Aftur á móti er megnið af út-
veggjunum, bæði norðan megin og
sunnan megin, léttir veggir með
miklu gleri, sem auðvelt var að
fjarlægja.“
Hönnunarvinnan fólst því einkum
í að endurhanna útlit hússins og
annað, sem með þarf umhverfis
þetta burðarvirki. Auk þess þurfti
að skipuleggja gaflana upp á nýtt,
en þeir eru steyptir, bæta við þá
gluggum o. fl.
Gamla Tónabæjarhúsið við
Skaftahlíð endurnýjað
Húsið Skaftahlíð 24
hefur gegnt margvíslegu
hlutverki og á að baki
litríka sögu. Nú á það að
fá nýtt yfirbragð og nýtt
hlutverk. Magnús
Sigurðsson ræddi við
Frey Frostason arkitekt,
aðalhönnuð breyting-
anna á húsinu.
Morgunblaðið/Golli
Frá vinstri: Freyr Frostason, arkitekt á Teiknistofu Halldórs Guðmundssonar, sem stjórnað hefur hönnuninni við end-
urnýjun hússins, og Kristinn Sigurbjarnarson, verkfræðingur hjá VST, sem stjórnar framkvæmd verksins.
26 C ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐHeimiliFasteignir