Morgunblaðið - 19.06.2001, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 C 45HeimiliFasteignir
MIÐSKÓGAR - ÁLFTANES
Í byggingu 260 fm glæsilegt hús á frábærum útsýn-
isstað. Stór tvöf. bílsk., stórar stofur. Stór lóð og
sérlega rólegt umhverfi. Fuglasöngur og náttúru-
kyrrð. Teikn. á Garðatorgi. Þetta er draumurinn!
Rað- og parhús
HRAUNÁS - GBÆ.
Stórglæsileg 240 fm parhús, á besta stað í Garða-
bæ, óskert útsýni. Ýmsir möguleikar. Skilast fullbú-
ið að utan og fokelt að innan. Hér er gott tækifæri
fyrir vandláta.
BIRKIGRUND - KÓP.
Tveggja hæða 126,6 fm raðhús á besta stað í Foss-
vogsdalnum. Mjög gott og snyrtilegt hús á rólegum
og veðursælum stað. Verð 16,5 millj.
KLETTÁS - GBÆ.
Glæsileg eins hæða raðhús á frábærum stað í nýja
Ásahverfinu í Garðabæ. Um er að ræða fjögur hús,
tvö endahús 110 fm + 31,6 fm bílsk. og tvö milli
hús 103,8 + 31,6 fm bílsk. Skilast fullbúin að utan
og fokheld að innan (mögul að fá lengra komið).
ÁLFTANES -PARHÚS
Glæsileg og vönduð 194,6 fm parhús með bílskúr á
frábærum stað á nesinu. Skilast fullbúið utan og
fokhelt að innan. Teikn. á skrifst. Aðeins fjögur hús
eftir. Verð 14 millj.
SJÁVARGRUND - GBÆ.
Stórglæsilegt 177,7 fm hús ásamt 20 fm í bílskýli.
Allt er hér sérlega glæsilegt og vandað. Útsýni yfir
Arnarnesvoginn. Verð 18,5 millj.
ÁLFHOLT - HF.
Glæsilegt 131,3 auk 27 fm bílsk. samt. 158,3 fm. 4
svefnherb., suðurgarður. Húsið er staðsett í klasa-
byggð og skilast fullbúið að utan en fokhelt að inn-
an. Verð 12,5 millj.
BIRKIÁS - GBÆ.
Mjög gott 165 fm raðhús með innb. bílsk. á frá-
bærum stað í Garðabæ. Húsið er fullbúið að utan
og fokhelt að innan. Teikningar og lyklar á skriftst.
Verð 14,5 millj.
Hæðir
MIÐBÆR - „PENTHOUSE“
Glæsilegasta íbúð miðbæjarins er til sölu. Íbúðin er
135,8 fm auk 40,3 fm bílskýlis, samtals 176,1 fm.
Marmari á gólfi neðri hæðar og glæsilegar innrétt-
ingar. Mjög falleg og sérstök eldhúsinnrétting og
tæki. Heitur pottur á verönd. Þessi íbúð er algjör
draumur.
GRENIGRUND - KÓP.
Í einkasölu mjög góð 137,9 fm íbúð með bílskúr á
frábærum stað. Neðri sérhæð í góðu húsi. Íbúð með
ýmsa möguleika. Verð 14,8 millj.
SÚLUNES - ARNARNES
Stórglæsileg 167 fm neðri sérhæð á frábærum stað.
Vandaðar innréttingar. Sólpallur í garði. Mjög rúm-
góð og falleg íbúð. Verð kr. 18.5 millj.
BLÁSALIR - KÓP.
Nýkomin í einkasölu stórglæsileg 112,4 fm íbúð á
efri hæð í fjögurra íbúða húsi. Allt mjög vandað,
eikarparket og mahóní hurðir og innréttingar.
Glæsieign með frábæru útsýni.
4ra herb
LÆKJASMÁRI - KÓP.
Mjög góð 97 fm 3ja - 4ra herb. íbúð á jarðhæð með
bílskúr. Skilast tilb. til innréttinga.
ÁRSALIR - KÓP.
Glæsilegra 4ra. herb. íbúð í lyftuhúsi ásamt bíl-
geymslu. Vandaðar innréttingar og tæki og flísalagt
baðherb. Geymsla, hjóla og vagnageymsla. Fullbúið
hús og lóð.
Verð kr. 14.7 millj.
ÁLFASKEIÐ - HF. Bílskúr
Mjög góð 117,2 fm endaíbúð auk 24 fm bílskúrs.
Sérlega falleg og snyrtileg íbúð á góðum stað. Mjög
gott útsýni.
3ja herb.
ENGJASEL - REYKJAVÍK
Í einkasölu mjög góð 80 fm útsýnisíbúð á 3 h.,
ásamt stæði í bílgeymslu. Frábær staðsetning og
útsýni í suður. Falleg og rúmgóð íbúð, parket á
gólfum. Verð 9,9 millj.
DIGRANESVEGUR - KÓP.
Mjög góð 86,7 fm íbúð á miðhæð með frábæru út-
sýni. Parket á gólfum, frábærar suðursvalir og gott
eldhús. Góður garður og geymslur.
HRÍSMÓAR - GBÆ.
Nýkomin í einkasölu mjög falleg 71 fm íbúð á 2.
hæð í enda hússins. Parket á gólfum og flísalagt
bað. Falleg íbúð á góðum stað. Verð 10,5 millj.
LANGAMÝRI - M/bílsk.
Í einkasölu mjög glæsileg 125,7 fm íbúð með bíl-
skúr. Íbúðin er á jarðhæð í tveggja hæða húsi.
Parket og flísar á gólfum. Mjög vandaðar innrétt-
ingar. Sólstofa og hellulögð verönd.
LYNGMÓAR - GBÆ.
Góð 91,5 3ja herb. íb auk bílskúrs á 2. hæð í litlu
fjölbýli. Nýlegt eldhús. Parket á gólfum. Góðar
stórar suðursvalir. Verð 11.9 millj.
LAUTASMÁRI - KÓP
Stórglæsileg 75 fm íb. á 1. hæð í þriggja hæða fjöl-
býli. Vandaðar innr. og gólfefni. Góð sameign.
Mögul. á bílskýli. Góð íb. fyrir eldri borgara. Verð
11.6 millj.
2ja herb.
NÖKKVAVOGUR - RVÍK
Sérlega góð 57 fm íbúð á þessum friðsæla stað.
Parket á gólfum og góðar innréttingar. Góð eign á
góðum stað.
Eldri borgarar
GARÐATORG - GBÆ.
Mjög falleg 97,7 fm íbúð ásamt 26,4 fm bílksúr. 2
svefnherb. tvær stofur og mjög góðar suðursvalir.
Íbúðinni fylgir eignaraðld í sameiginlegum sam-
komusal eldri íbúa.
Kirkjulundi 13 - Garðabæ
Guðmundína Ragnarsdóttir hdl. og lögg. fast.sali
Þórhallur Guðjónsson rekstrarhagfræðingur
Sigurður Tyrfingsson húsasmíðameistari
Einbýli
DIGRANESHEIÐI - KÓP.
Gott 156,5 fm einbýli á tveimur hæðum ásamt 38,9
fm bílskúr, samtals 195,4 fm. 4 sv.herb. Parket á
gólfum og flísalögð baðherbergi. Gróinn garður.
Verð 19,9 millj.
HAGAFLÖT - GBÆ.
Mjög gott 224 fm einb. með tvöf. bílsk. Húsið
stendur á 1200 fm hornlóð. Mikið endurnýjað m.a.
þak og gler að hluta. Ný gólfefni. Mikil lofthæð í
bílsk. Mjög hugguleg stúdíóíbúð með sérinngangi.
HÖRGATÚN - GBÆ.
178,3 fm mjög gott hús, með 28 fm innb bilskúr, á
besta stað í Túnunum. 5 svefnherbergi. Góð suður-
verönd og mjög góður og fallegur garður. Mjög
stutt í alla þjónustu. Verð kr. 18.9 millj.
Brunabótamat 21 millj.
KRÍUNES - GLÆSIEIGN
Glæsilegt tvílyft 365 fm Í Arnarnesinu með stórum
bílsk. Mjög vandað og gott hús á frábærum stað.
Eign fyrir vandláta.
ÞRASTANES - ARNARNES
Mjög gott 275 fm einbýli á tveimur hæðum. Stað-
sett innst í botnlanga. Vandað hús á frábærum
stað. Húsið býður upp á mikla möguleika.
KEFLAVÍK - EINBÝLI
Mjög glæsilegt 278 fm einb. með 25 fm bílsk. Hús-
ið er allt nýlega tekið í gegn. Mögul. á 7 herb. Mjög
rúmgott og fallegt hús. 50 fm verönd og fallegt
grindv. með lýsingu. Verð aðeins 18. millj.
(Brunabótamat 23 milj.)
HVASSAHRAUN - EINSTAKT
Glæsilegt einbýli í friðsælu hruninu skammt frá
sjónum. Húsið er á tveimur hæðum og er allt hið
glæsilegasta. Gegnheilt parket og náttúrusteinn á
gólfum. Rólegur ævintýrastaður. Verð 16,5 millj.
STEINÁS - GBÆ.
Mjög fallegt einbýli ásamt tvöf. bílsk. samtals 226
fm á frábærum útsýnisstað. Ekki fullbúin eign. Eign
í sérflokki.
anir kirkjunnar. Hún var því
sprengd niður af landamæravarð-
liðum dédéerr seint á áttugasta
áratugnum.
Eftir sameiningu Þýskalands
vaknaði í Berlín áhugi á að
endurreisa kapelluna en ekki í
sama byggingarstíl og áður eins og
reglan er yfirleitt hér. Fremur var
valin sú óvenjulega leið að leita á
náðir óformlegrar hreyfingar þar í
landi sem byggir svokallaðar
náttúrutengdar byggingar. Til
dæmis úr stöppuðum leir, eins og
raunin varð hér.
Á fjölmörgum stöðum hnattkúl-
unnar er þessi byggingaraðferð
enn í notkun dagsdaglega, t.d. í
Tyrklandi. Leirbygging er óþekkt
fyrirbæri á Íslandi en er samt
nokkuð forn aðferð við að reisa
hús sem standast vel tímans tönn
og tryggja ekki síst hollt inniloft.
Hvort heldur sem um er að
kenna okkar afburða hús-háska-
lega veðurfari eða skorti á góðum
leir á stærstu byggingarsvæðunum
hefur þessi aðferð ekki komið fram
hjá okkur. Hér í Þýskalandi var
hún þó nokkuð mikið notuð sam-
hliða fyrstu steinsteypu bygging-
unum í byrjun tuttugustu aldar-
innar. Þessi nær aldagömu hús eru
enn eins og ný að sjá.
Þykkir veggir
Þegar byggja skal úr leir þarf,
svipað og með steinsteypu, fyrst
að gera góðan grunn. Síðan að
byggja mót fyrir leirinn – en nú
fyrir mun þykkari veggi – en að-
eins um 150 cm hæð í einum
áfanga. Leirinn er síðan lagður of-
an í mótin í lögum og þjappaður
vel saman. Áður fyrr voru menn
berfættir við þá skemmtilegu iðju í
mótunum.
Eftir að leirinn er þornaður – en
það tekur óratíma og hentar illa
hraða nútímans – eru mótin færð
upp og fest við vegginn sem er
tilbúinn. Þannig er haldið áfram
koll af kolli uns fullri hæð er náð.
Verja þarf blautan múrinn vel fyr-
ir of sterku sólskini meðan hann er
að þorna. Svo má geta þess að
engin mótajárn koma hér við sögu.
Veggir kapellunnar eru gerðir
úr 80 til 120 cm þykkum spor-
öskjulaga leirvegg. Hann er vel yf-
ir fimm metrar á hæð. Leirvegg-
urinn umlykur kapellurýmið sem
er um það bil 150 fermetrar að
stærð. Utanvið leirmúrinn er rúm-
lega metrabreitt rými sem afmark-
ast utanvert af vandaðri timbur-
grind. Hún gefur síðan bygg-
ingunni endanlegt útlit sitt.
Timburgrindin er opin eins og
grind á venjulegum hjalli og þjón-
ar tvíþættum tilgangi: Sem arki-
tektónísk rýmismyndun með sam-
spili ljóss og skugga og svo til
skuggamyndunar á leirvegginn
þannig að hitinn í kapellurýminu
sé nokkuð jafn árið um kring.
Kapellan hefur nú verið tekin í
notkun og er opin vikulega fyrir
guðsþjónustur. Það er skemmtileg
tilfinning að vera þar viðstaddur
og skynja það góða andrúm sem
byggingin býður uppá.
Hún er því gott dæmi um þá
nýju viðleitni „annars konar“ arki-
tekta að laða fram í byggingum
sínum áhrif sem virka jákvætt á
fólkið sem notar þær eða fer inní
þær. Áhrif sem ekki er unnt að
taka myndir af. Þ.e. eins langt frá
„glansmynda“-arkitektúr nútímans
og hægt er að komast.
Undir venjulegum kringumstæð-
um spyr enginn nútímamaður
lengur um það hvernig fólki líði
inní margverðlaunuðum arkitektúr
– það er aðeins spurt um þá út-
pældu yfirborðsmynd sem við
blasir.
Hér erum við komin að nýjum
landamærum á sviði byggingalist-
ar – svið sem mætti nefna húm-
aníska byggingarlist – eftir að
hafa uppfyllt allar útlitsþarfir
húsagerðar fram og til baka án
þess þó að vera fullkomlega
ánægð.
Því þrátt fyrir allt vantar ávallt
eitthvað – spurning er bara hvað?
Gæti það verið að líkamsmeðvit-
und okkar væri þrátt fyrir allt
ófullnægð inní yfirborðsgæða-arki-
tektúr?
Framkvæmd leirbygginga er
best skýrð með myndum. Frum-
skilyrði er auðvitað góður leir til
að byggja úr. Við Búðardal er án
efa hægt að finna góðan leir til að
byggja slík hús. Og hver veit nema
þessi náttúruvæna byggingarað-
ferð eigi líka eftir að berast til
landsins. Fyrir vissa starfsemi
henta slík hús vel og ef til vill ríða
Búðdælingar á vaðið?
Timburgrindin í smíðum.
Skuggamyndun í rými milli timburgrindar og leirmúrs.
Frá vígslu kapellunnar.