Morgunblaðið - 22.06.2001, Qupperneq 1
Kirkjan
hús úr húsi
EIGA trú og trimm eitthvað sam-eiginlegt? Veitir trúin meiraöryggi en bílbeltin? Hverniguppfyllum við hjónabands-
samninginn? Eru fatlaðir velkomnir til
kirkju? Er í lagi að búa til genabreytt
börn? Er fjölgun innflytjenda áhætta eða
blessun?
Um hugsanleg svör við þessum og ótal
öðrum vafamálum verður fjallað á Skóla-
vörðuholti um helgina. Kirkjudagar á
Jónsmessu verða haldnir í fyrsta sinn hér-
lendis í dag og á morgun og stendur mikið
til. Málstofur sem taka á viðkvæmum
álitamálum samtímans verða fimmtíu
talsins, listviðburðir skipta tugum og í
tengslum við dagana verður Leikmanna-
stefna þjóðkirkjunnar haldin á morgun,
að þessu sinni öllum opin.
Meðal málstofuþema eru „Friðhelgi
einkalífsins og fjölmiðlar“ þar sem fjallað
verður um nafnbirtingar í sakamálum,
„Umhverfisvernd og Guðs góða sköpun“
þar sem virðing fyrir náttúrunni verður
rædd og „Miðborgarkirkjan í markaðs-
umhverfinu“ sem snýst um nærveru
markaðsafla, kröfur um löggæslu og
meinta fátækt í miðborginni. Af öðrum
umfjöllunarefnum má nefna sambúð
kirkju og ferðaþjónustu, útfararsiði í ýms-
um löndum, sorgina í íslenskum veruleika,
fangahjálp, lífvísindi, kirkjuna í hverfinu
og ímynd Maríu guðsmóður í íslensku
samhengi.
Kirkjan er ekki steypa
Kirkjudagar eiga sér langa hefð í ná-
grannalöndunum og eru ætlaðir sem vett-
vangur nýrra hugmynda og skapandi um-
ræðu. Málstofurnar eru öllum opnar en
málshefjendur eru úr ýmsum starfsstétt-
um og þjóðfélagshópum.
Athyglisvert er hvernig Skólavörðu-
Heimahús – Fyrir
lestrar verða
um trúaruppeldi b
arna og helgi-
hald heimilanna.
Bíó – Í tveimur málstofumverður fjallað um trúarvísanirí kvikmyndum.
Kirkjudagar á Jónsmessu í fyrsta sinn
Dómshús – Málstofa verður umfangahjálp og önnur um nafn-birtingar í sakamálum.
Markaðstor
g – Messu
r eru
haldnar mán
aðarlega í ka
ffihúsi
Kolaportsins
.
holtið í heild er nýtt sem vettvangur
Kirkjudaga. Iðnskólinn og Vörðuskóli
hýsa málstofur og ævintýraland barna, í
Hallgrímskirkju verða messur, kirkjulist-
sýningar og kirkjukóramót og tjald, sem
sett hefur verið upp á holtinu af þessu til-
efni, er vettvangur morgunleikfimi, djass-
messu og leiksýninga. Í umræðum verður
einnig í huganum farið vítt og breitt um há
og lág hús; rætt um fangelsi, heimili,
banka, bíóhús og skóla í ljósi trúariðkunar
Íslendinga. Markmið daganna er nefni-
lega ekki síst að leggja áherslu á að
„kirkja Krists er ekki steypa, heldur lif-
andi steinar, manneskjur af holdi og
blóði“, eins og segir í útgefinni dagskrá.
List og leikir setja svip á Kirkjudaga,
með þátttöku fólks hvaðanæva af landinu.
Opnaðar verða kirkjulistsýningar, lista-
verkstæði verður fyrir börn, ljósmynda-
maraþon fyrir unglinga, trúð-
arnir Barbara og Úlfar túlka
óð Páls postula um kær-
leikann og ungt fólk frá
Bolungarvík setur upp
söngleik. Messur
verða einnig af ýms-
um toga; djass-
messa, þjóðlaga-
messa, taizé-
messa, kolaports-
messa og kvenna-
messa, auk æðru-
leysismessu í
Dómkirkjunni.
Dagskrá dag-
anna er að finna í
kirkjum á höfuð-
borgarsvæðinu og
á vefnum www.-
kirkjan.is.
sþ
Trúarstef 2
F Ö S T U D A G U R 2 2 . J Ú N Í 2 0 0 1 B L A Ð B
Amerískir
KRISTUR, POPP OG KÓK/2 GANGANDI AUGLÝSINGAR/2
EINFÖLD FORM – ÓHÁÐ TÍMA/4 Á HVÍTUM NÓTUM OG SVÖRTUM/5
HOLLT FYRIR KARLMENN AÐ VINNA VIÐ HJÚKRUN/6 AUÐLESIÐ/8