Morgunblaðið - 22.06.2001, Side 8
AUÐLESIÐ EFNI
8 B FÖSTUDAGUR 22. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GEORGE W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, styður
stækkun NATO. Hann segir að
Rússar þurfi ekki að óttast
stækkun. Vladímír Pútín,
forseti Rússlands, er ekki á
sama máli. Forsetarnir hittust
í fyrsta sinn á fundi í Slóveníu
um helgina.
Bush styður það að
Eystrasaltsríkin Eistland, Lett-
land og Litháen fái aðild að
NATO og segir að engin þjóð
eigi að vera peð í tafli annarra.
Bush styður
stækkun
NATO
BANDARÍSKI dollarinn fór yfir
109 krónur í fyrradag og hafði
aldrei verið hærri. Gengi
íslensku krónunnar lækkaði
um 2% og hafði lækkað um
16,6% síðan í lok mars.
Dollar aldrei
verið hærri
KVENNAHLAUP ÍSÍ fór fram
16. júní. Talið er að um
20.000 konur hafi tekið þátt í
hlaupinu hérlendis sem er-
lendis. Hlaupið fór fram í 12.
skipti og var hlaupið á meira
en 100 stöðum.
Um 7.500 konur hlupu í
Garðabæ. Þar var elsta
konan 91 árs og yngsta
stúlkan í hópnum aðeins 9
daga gömul. Á Akureyri hlupu
til dæmis um 1.200 konur og
um 215 konur á Egilsstöðum.
Á kvennaráðstefnunni Konur
og lýðræði í Vilnius í Litháen
hlupu um 30 íslenskar konur.
Í Stykkishólmi voru 165
konur skráðar í hlaupið. Þar á
meðal var Svava Oddsdóttir.
Hún er 100 ára og tók þátt í
hlaupinu í hjólastól.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Um 7.500 konur hlupu í Garðabæ og hafa aldrei verið fleiri þátttakendur þar nema 1999.
Þúsundir kvenna á ferðinni
ÞÝSKA þungarokks-hljóm-
sveitin Rammstein lék í
troðfullri Laugardalshöll
síðastliðið föstudagskvöld.
Vegna þess að færri komust
að en vildu endurtók sveitin
leikinn kvöldið eftir og aftur
fyrir fullu húsi.
Tónleikarnir voru mjög
myndrænir og voru um 6.000
áhorfendur hvort kvöld vel
með á nótunum. Rammstein
spilaði í eina og hálfa klukku-
stund á tónleikunum og léku
eld-glæringar um sviðið
þegar kveikt var á blysum og
öðru slíku.
Mikil og góð stemmning
var í Höllinni og fór
skemmtunin vel fram. Í
gagnrýni um hljómleikana var
meðal annars sagt að rokkið
hefði unnið stóran sigur. Morgunblaðið/Árni SæbergÁhorfendur skemmtu sér vel á hljómleikum hjá Rammstein í Höllinni.
Um 12.000 áhorfendur
Þýska þungarokks-hljómsveitin Rammstein í Laugardalshöll
SAMVINNA heimila og skóla
hefur talsvert að segja um
námsárangur nemenda.
Árni Magnússon, skóla-
stjóri Hlíðaskóla, segir að
mikilvægi forráða-manna eigi
bæði við beina þátttöku
þeirra í skólastarfi og við
stuðning þeirra og hvatningu
á heimilunum.
Sveinn Þór Elinbergsson,
skólastjóri Grunnskólans í
Ólafsvík, segir að hvert
heimili þurfi að vinna með
skólanum. Fylgjast vel með
ástundun og námi.
Einar Sveinn Árnason,
skólastjóri Nesskóla í
Neskaupstað, segir að vinna
á heimilunum og hvatning að
heiman sé stór þáttur í
árangri nemenda. „Heimilin
og skólinn þurfa að vinna
saman til að þetta gangi,“
segir hann.
Samvinna
heimila
og skóla
mikilvæg
ÍSLAND er í riðli með Spáni,
Slóveníu og Sviss í Evrópu-
keppni landsliða í handbolta.
Keppnin fer fram í Svíþjóð
25. janúar til 3. febrúar 2002
og er leikið í fjórum riðlum.
Þrjú efstu liðin í hverjum riðli
fara í milliriðil.
Íþróttir
Sterk lið
með Íslandi
DAGSKRÁ þjóðhátíðardaginn 17.
júní var með hefðbundnum hætti
um allt land en hópar lentu í
átökum á Lækjartorgi.
Davíð Oddsson forsætis-ráð-
herra ávarpaði landsmenn og
sagði meðal annars að Íslend-
ingar hefðu enga ástæðu til að
tala af hroka til nokkurrar þjóðar.
Davíð Oddsson varaði líka við því
að gera of mikið úr tímabundnu
andstreymi. Hann sagði að flestir
erfiðleikarnir væru heima-tilbúnir
og vandamálin mætti leysa.
Til átaka kom milli ungmenna
af asísku bergi og annarra ung-
menna á Lækjartorgi skömmu
eftir miðnætti aðfaranótt sunnu-
dags. Guðrún Pétursdóttir, verk-
efnisstjóri hjá miðstöð nýbúa í
Reykjavík, segir átökin ekki hafa
komið á óvart. Útlendingar verði
oft fyrir áreiti og ofbeldi.
Guðrún segir að unglingarnir
séu ekki með meiri fordóma held-
ur en aðrir. Allt samfélagið sé
ábyrgt og þurfi að taka sig á. Á Ís-
landi búi fólk frá mörgum þjóðum
og ekki fari allt eftir forsendum
Íslendinga. Fólk ætti að ræða
þetta við börn sín til að koma í
veg fyrir árekstra á milli hópa.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Davíð Oddsson hélt ræðu á Austurvelli 17. júní.
Samfélagið
ábyrgt fyrir ofbeldi
Netfang: auefni@mbl.is