Morgunblaðið - 13.07.2001, Side 1
2001 FÖSTUDAGUR 13. JÚLÍ BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
KVENNALIÐ KR Á TOPPINN EFTIR SIGUR / C3
Ólafur
stefnir á
landsliðið
ÓLAFUR Gottskálksson,
markvörður Brentford, seg-
ir á netmiðlinum TeamTalk
að hann stefni á að verða
valinn í íslenska landsliðið á
ný. Ólafur, sem er 33 ára
gamall, hefur leikið 9 A-
landsleiki fyrir Ísland – síð-
ast árið 1997. Markvörð-
urinn minnist einnig á að
hann hafi lent í útistöðum
við Guðjón Þórðarson, fyrr-
verandi landsliðsþjálfara og
núverandi knattspyrnustjóra
Stoke City, og við það hafi
hann misst sæti sitt í byrj-
unarliðinu og eftir það atvik
hafi möguleikar hans farið
dvínandi. „Ég vona alltaf að
Stoke tapi,“ segir Ólafur.
Margir leikmenn, sem leika í úr-valsdeildinni, eru við keppni í
körfunni á Egilsstöðum, flestir með
sínum liðum, en þó-
nokkrir sem keppa
með öðru sambandi
en menn hefðu búist
við. Þannig er til
dæmis Keflvíkingurinn Fannar
Ólafsson með liði HSK sem að öðru
leyti er skipað leikmönnum Hamars í
Hveragerði. Fannar sagði svo gam-
an á landsmótum að hann hefði
ákveðið að leika með HSK í mótinu
enda býr fjölskylda hans í Biskups-
tungunum. Óli Bardal, sem lék með
Hamri í vetur, klæddist hins vegar
búningi Skagfirðinga, eða Tinda-
stóls, og keppti fyrir hönd UMSS.
Þar fór hann fremstur í flokki ásamt
Kára Maríssyni.
Keppt var í fjórum riðlum í gær og
í dag verður keppt í milliriðlum og á
laugardaginn verður leikið um sæti.
Ekki er ólíklegt að Njarðvíkingar,
HSK-menn, HSV (Héraðssamband
Vestfirðinga) og líklega UMSK-
menn eigi eftir að ná hvað lengst í
körfuknattleikskeppninni, Kjalnes-
ingar eru með lið sem er skipað jöfn-
um leikmönnum og hjá Vestfirðing-
um eru margir úr liði KFÍ. Í liði
Njarðvíkinga eru nokkrir af úrvals-
deildarleikmönnum félagsinsog þar
á meðal er Logi Gunnarsson og þetta
gæti hugsanlega verið síðasti leikur
hans hér á landi um sinn.
„Já, ég er að huga að atvinnu-
mennskunni í Evrópu og það eru
nokkur lið búin að spyrjast fyrir um
mig en þetta skýrist væntanlega inn-
an tíðar. Ef ég fæ þokkalegt tilboð
fer ég út en ef ekki spila ég bara hér
heima – vonandi með Njarðvíking-
um,“ sagði Logi í gær.
Logi hugar að
atvinnumennsku
ÞAÐ var mikil og hörð keppni í riðlunum í körfuknattleiknum í gær
og ekkert gefið eftir, jafnvel þótt ýmsir teldu fyrir fram að við ofur-
efli yrði að etja. Þannig veittu heimamenn í UÍA til dæmis Njarðvík-
ingum verðuga keppni og síðan unnu þeir Fjölni með körfu sem
skoruð var um leið og flauta tímavarðar gall.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Ekkert kynslóðabil. Svanbjört Þorleifsdóttir, t.v., sem keppir fyrir UMSK og yngsti keppandinn í
jurtagreiningu, Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir úr UMSB. Fimmtíu ára aldursmunur er á þeim.
KEPPENDUR í jurtagreiningu,
sem fram fór í gærkvöldi á lands-
mótinu á Egilsstöðum, voru fjórtán
talsins frá sex samböndum. Í þess-
ari grein, eins og fleiri starfsíþrótt-
um, er lítið sem ekkert kynslóðabil
enda kom á daginn við nafnakall
keppenda að elsti keppandinn var
Svanbjört Þorleifsdóttir sem
keppti fyrir UMSK og Þóra Geir-
laug Bjartmarsdóttir sem keppir
fyrir Borgfirðinga var sú yngsta.
Svanbjört er fædd árið 1936 og
Þóra Geirlaug fimmtíu árum síðar,
1986.
„Mig langaði að fara á landsmót
og ákvað að skrá mig í jurtagrein-
ingu,“ sagði Þóra Geirlaug áður en
hún þaut út í gróðurhús til að
greina þær plöntur sem keppnis-
stjórn hafði ákveðið. „Auðvitað hef
ég líka áhuga á plöntum og gróðri
og því er ég hér. Æfingar fyrir
svona keppni fólst fyrst og fremst í
því hjá mér að liggja yfir plöntu-
bókum,“ sagði yngsti keppandinn í
jurtagreiningu, Þóra Geirlaug.
Sjálf keppnin fer þannig fram að
þátttakendum er raðað hverjum
við sína plöntuna og síðan er gefið
merki og þá mega þeir byrja að
fylla út blað þar sem þeir eiga að
skrá íslenkst heiti plantnanna. Alls
þurfa keppendur að greina á milli
45 ólíkra plöntna og til þess fá þeir
skamman tíma – eina og hálfa
klukkustund.
Hálfrar
aldar ald-
ursmunur