Vísir - 06.07.1979, Side 3
Föstudagur 6. júli 1979
r»n»M.
I
Rðttæk Dreytlng a reglum um afengissolu:
ENGIHN ,>URR DAGUR
00 BARIR OPNIR LENQUR
Dómsmálaráðuneytið hefur nú gert róttækar
breytingar á 25 ára gamalli reglugerð um sölu og
veitingu áfengis. Breytingar þessar miða mjög
mikið i frjálsræðisátt og er til dæmis opnunartimi
vinveitingahúsa lengdur fram til klukkan þrjú að
nóttu á föstudögum og laugardögum, lokun vin-
veitingahúsa kl. 23.30 er afnumin, áfengisbann á
miðvikudögum er einnig afnumið og fleira má
telia.
Steingrimur Hermannsson
dómsmálaráðherra boðaði
blaðamenn á sinn fund i gær og
kynnti þeim hinar nýju reglu-
gerðarbreytingar. Ráðherra
sagði að byrjað hefði verið að
vinna að þessum málum áður en
hann tók við embætti dóms-
málaráðherra og hann hafi
siðan fylgt þvi eftir enda hafi
hann haft mikinn áhuga á fram-
gangi þessa máls.
Dómsmálaráðherra sagði að
borgarstjórn Reykjavikur hafi
þrýst á úrlausn málsins og
einnig samtök vinveitingahúsa.
Ennfremur hafi lögregluyfir-
völd verið hlynnt þessum breyt-
ingum. Ráðuneytið hafi siðan
ákveðið að standa ekki lengur i
veginum fyrir breytingunum og
sent tillögur sinar til umsagnar
réttra aðila, s.s. áfengisvarnar-
ráðs, sem hafi stutt sumt sem
fram kæmi i þessum breyting-
um. Reglugerðarbreytingin
mun taka gildi hinn 16. júli
næstkomandi.
Opnunartimi lengdur
Eitt aðal nýmælið i reglu-
gerðarbreytingunni er að
heimilt er að hafa vinveitinga -
hús opin til klukkan þrjú að
nóttunni á föstudögum og
laugardögum. Aðra daga vik-
unnar er heimilt að hafa opið til
klukkan eitt eftir miðnætti.
Skylt er þó að hætta veitingu
áfengis hálftima áður en staðn-
um er lokað.
A miðvikudögum verður
einnig heimilt að veita áfengi
eins og aðra daga vikunnar,
þannig að ekki verður lengur
um „þurran” dag að ræða.
Sem kunnugt er var veitinga-
húsunum skylt að stöðva inn-
göngu gesta eftir 23.30 en slikt
er nú úr sögunni. Gestum er
heimilt að fara inn á vinveit-
ingastað hvenær sem er meðan
er opið, svo lengi sem húsrúm
leyfir.
Hádegisbarirnir
Vinveitingastaður mun sam-
kvæmt reglugerðarbreyting-
unni hafa leyfi til þess að veita
áfengi til matargesta frá kl.
12.00 til 14.30, en til annarra frá
kl. 12.00 til 13.00. Aður var
heimilt að veita áfengi i hádeg-
inu án sérstakra takmarkana.
Sá háttur verður aðeins leyfður
laugardaga, sunnudaga og al-
menna fridaga.
Afengisveitingar verða sem
fyrr bannaðar siðdegis að öðru
leyti en þvi að til dvalargesta á
gistihúsi má veita áfengi frá kl.
14.30 til 18.00
Byrja má að veita áfengi að
kvöldi dags kl. 18.00 i staöinn
fyrir 19.00 eins og verið hefur.
Frjálsræði
Eirikur Tómasson, aðstoðar-
maður dómsmálaráðherra
sagði á blaðamannafundinum i
gær, að þessar reglugerðar-
breytingar horfðu i átt til frjáls-
ræðis án þess þó að gengið hafi
verið út i öfgar.
Dómsmálaráðherra sagði að
ætlunin væri að reyna með upp-
lýsingamiðlun að kynna skað-
semi áfengis og verður sú upp-
lýsingamiðlun kostuð með þvi
að tvöfalda leyfisgjald til
áfengisveitinga en það er nú sjö
þúsund krónur. Aðspurður taldi
ráðherra að hugsanlega yrði
leitað til frjálsra áhugasamtaka
einsog SÁÁ um slika kynningu.
Dómsmálaráðherra sagði að
Afengisvarnarráð hefði verið
samþykkt afnámi á takmörkun-
um á inngöngu i vinveitingahús,
en verið á móti lengingu
opnunartimans. __ss__
Steingrimur Hermannsson dómsmálaráðherra kynnir fyrir blaða-
mönnum breytingar á reglugerö um sölu og veitingu áfengis.
(Visismynd ÞG)
LandsDjðnusta
sparisjóðanna
A aðalfundi Sambands is-
lenskra sparisjóða sem haldinn
var nýlega að Bifröst i Borgar-
firði var ákveðið að vinna að þvi
að koma á svokallaðri Lands-
þjónustu sparisjóðanna.
Felur hún i sér þá auknu þjón-
ustu að viðskiptavinur sem á
sparisjóðsbók, útgefna af spari-
sjóði, geti lagt inn eða tekið út úr
bókinni i hvaða sparisjóði sem er.
Sama mundi gilda um innborgan-
ir á veltureikninga. Að loknum
aðalfundinum var haldin
ráðstefna um ýmis málefni spari-
sjóðanna og sóttu ráðstefnuna og
fundinn 66 fulltrúar frá 32 spari-
sjóðum. Er það meiri þátttaka en
nokkru sinni áður, en á landinu
eru nú 42 sparisjóðir. —AHO
Flateyrarmorðið:
7 ára fangelsi
Sakadómur Reykjavikur kvað i
gær upp dóm yfir Þórarni Einars-
syni, fyrir að hafa orðið fyrrver-
andi unnustu sinni að bana i ver-
búð á Flateyri i september sl.
Þórarinn var dæmdur i 7 ára
fangelsi og kemur gæsluvarðhald
til frádráttar refsingunni en
ákærði hefur setið i gæsluvarð-
haldi frá þvi að atburðurinn átti
sér stað. Akærða var og gert að
greiða allan sakarkostnað. Sam-
kvæmt lögum verður málin sjálf-
krafa áfrýjað til Hæstaréttar.
vandamál ullarlðnaðarlns:
Beðið eftir Þorsteini
„Nefndin er svo til nýbyrjuð að
starfa og hefur ekki komist að
neinum niðurstöðum um lausnir á
vandamálinu enn” sagði Guð-
mundur Sigþórsson deildarstjóri
áætlana- og hagdeildar land-
búnaðarráðuneytisins er Visir
innti hann eftir hvað liði störfum
samstarfsnefndar ráðuneyta
rikisins, sem falið var að fjalla
um erfiðleika ullariðnaðarins.
Þorsteinn Ólafsson aðstoðar-
maður iðnaðarráðherra, er for-
maður þessarar nefndar en hann
er nú staddur erlendis. Að sögn
Guömundar sem einnig á sæti i
nefndinni mun ætlunin að ganga
að málinu með oddi og egg þegar
Þorsteinn kemur heim. Búist er
við að hann snúi aftur til vinnu i
iðnaðarráðuneytinu á mánudag.
„Við göngum frá þessu á næstu
tveimur til þremur vikum” sagði
Guðmundur”. Ullarfram-
leiðendum hefur tekist að hjara
frá áramótum.og ættu þeir þvi að
geta lifað af fáeinar vikur i við-
bót”. —AHO
Nýr raf-
magnseftir-
litsstjörl
Bergur Jónsson verk-
fræðingur hefur verið
skipaður rafmagnseftirlits-
stjóri rikisins frá og með 1.
júli.
Bergur var áður deildar-
verkfræðingur hjá Lands-
virkjun og vann m.a. við hönn-
un og eftirlit með Sigöldu-
virkjun.
Fráfarandi rafmagnseftir-
litsstjóri, Jón A. Bjarnason,
lét af störfum að eigin ósk
vegna heilsufarsástæöna. PM
FJÖLVAI=ÍÞÚTGÁFA
Klapparstíg 16 Sími 2-66-59
RÍKISBUBBEVN RATTATI
Megum við kynna af-
bragð annarra dýra,
tryggasta vin mannsins/
merkishundinn Rattata.
Það er vist leitun á þeim
sem taka honum fram að
gáfum og tröllatryggð.
Rattati er ein
aðalsöguhetjan í Lukku-
Láka bókunum, einhverj-
um vinsælustu teiknisög- ,(
um Fjölva, sem slaga nú '
hátt upp í Tinnabækurn-
ar.
Ef Rattati getur ekki
bjargað ástandinu með
árvekni sinni og ráð-
kænsku, — ja/. hver getur
það þá.
Udnarlegt er þó að fákur-
inn friði, hann Léttfeti
hefur aldrei kunnað
reglulega að meta gáfna-
far „fúsablesans”, eins
og hann orðað þar. En
Rattati bætir það marg-
faldlega upp með elsku
sinni og trúmennsku við
________________
ría/JiS/ að það íé/ Eg eröund-
hinn geðgóða Jobba
Daldóna.
Rattati er svo merkileg
persóna, að á næstunni er
væntanleg sérútgáfa og
aukaútgáfa 3. prentun,
sem fjallar einungis um
margslungið sálarlíf
hans.
Bókin heitir:
Ríkisbubbinn
Rattati
og segir frá kostulegum
atburðum, þegar þetta
stórgáfaða hundspott
erfir milljónaeignir.
Verið viðbúin, í næstu
viku kemur ut Lukku-
Láka bókin um Rattata.
Benni flugmaður
Fjölvi hefur merkilegar
bókmenntaf regnir að
flytja. Næsta haust hefst
útgáfa á storsniðugri
nýrri teiknisöguröðj um
Benna flugkappa. Bæk-
urnar eru eftir Captein
Johns, það eru hinar
heimsfrægu Benna-bæk-
ur, en sænskur listamað-
ur Björn Karlström hefur
teiknað þær, og er það
fyrsta teiknisöguröðin
frá Norðurlöndum, sem
slær i gegn á heimsmark-
aðnum. Teiknarinn til-
heyrir Tinna-skólanum í
teiknisögugerð.
Fyrsta bókin um Benna
flugmann heitir Tigrís-
klóin. Athugið vel að hún
kemur ekki út fyrr en
næsta haust, en við gátum
ekki á okkur setið að
segja þessar stórfréttir
úr sjálfum bókmennta-
heiminum. Það verður
spennandi að sjá Benna-
bækurnar.
Léttfeti
Benni flugkappi
—■ AUGLYSING