Vísir


Vísir - 06.07.1979, Qupperneq 8

Vísir - 06.07.1979, Qupperneq 8
VISIR Föstudagur 6. júli 1979 8 Utgefandi: Reykjaprenth/f Framkvæmdastjdri: Davfð Guðmundsson Ritstjórar: ólatur Ragnarsson Hörður Einarsson Ritstjórnarfulltrúar: Bragi Guðmundsson. Elias Snæland Jónsson Fréttastjóri er- lendra frétta: Guðmundur G. Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammendrup, Edda Andrésdóttir, Friðrik Ir.driðason, Gunnar Salvarsson, Halldór Reynisson, lllugi Jökulsson, Jónina Michaelsdóttir, Katrin Pálsdóttir, Kjartan Stefánsson. Oli Tynes, Páll Magnusson, Sigurður Sigurðsson, Sigurveig Jónsdóttir, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan t. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. utlit og hönnun: Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Magnús Olafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreif ingarstjóri: Sigurður R, Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Sfðumúla 8. Slmar 86411 og 82240. Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 slmi 86611. Ritstjórn: Slðumúla 14 simi 86611 7 linur. Askrift er kr. 3000 á mánuði innanlands. Verð I lausasölu kr. íso eintakið. .Rrentun Blaðaprent h/f Reynumst viö góðir gistivinir? Kinn Asiumannanna, sem Vlsir ræddi við, sagði það inikið undir íslendingum sjálfum komið hvort einhver vandamál fylgdu i kjolfar komu flóttafólksins frá Víetnam. A það mun meðai annars reyna, hvort við erum eins umburðarlyndir og við segjumst vera? Ríkísstjórnin hefur nú ákveðið að bjóða hér hæli nokkrum fjöl- skyldum víetnamskra flótta- manna og er nú að hef jast undir- búningur fyrir móttöku þessa fólks, en óvíst er enn hve langt verður þar til það kemur til þessa nýja og norðlæga heimalands síns. Miklar umræður hafa að von- um orðið um ákvörðun rikis- stjórnarinnar enda um flókið og viðkvæmt mál að ræða. Visir lýsti þeirri skoðun sinni í forystugrein fyrir 10 dögum, þegar beiðni Flóttamannastofn- unar Sameinuðu þjóðanna barst hingað til lands, að við íslend- ingar yrðum að legg ja hér hönd á plóginn eins og aðrir til þess að lina þjáningar þessa hrjáða fólks og finna lausn á vandamálum þess. Spurning væri hins vegar um það i hvaða formi aðstoðin ætti að vera, f járhagsleg aðstoð, læknishjálp eða að skjóta skjóls- húsi yfir tiltekinn fjölda flótta- manna. Vísir sagði þá, að við skyldum forðast alla hræsni gagnvart sjálfum okkur í umræðum um málið og láta skynsemi og þekk- ingu ráða ákvörðunum okkar fremur en tilfinningar. Umfram allt þyrftum við þó að þekkja okkur sjálf áður en ákvörðunin yrði tekin. Biskupinn yfir (slandi, herra Sigurbjörn Einarsson, tók mjög í sama streng í viðtali í Helgar- póstinum um síðustu helgi. Hann kvaðst eins og aðrir kristnir menn vera algerlega andvígur öllum kynþáttafordómum, en hitt væri annað mál, að hann teldi að við ættum að fara varlega í það að flytja inn vandamál. ,,Ég er ekki ugglaus um það" sagði biskup ,,að þetta myndi hafa í för með sér vandamál og þó að við (slendingar tölum fagurlega í þessum efnum, þá er ég ekki ugglaus um hvernig við reynumst, þegar á á að herða. Og við erum ekkert miskunn- samari en aðrir gagnvart alveg prýðilegu fólki. Ég er ekki laus við kviða fyrir hönd litaðs fólks hvort sem það eru börn f rá Kóreu eða öðrum löndum." Ennfremur sagði Sigurbjörn Einarsson biskup: ,,Víetnamar skera sig úr um útlit og ég hef vissan beig, að við reynumst bara ekki gistivinir þessa fólks, þegar á skal herða". Þessi orð biskups okkar ættu menn að hugleiða og þar sem ákvörðun hef ur verið tekin um að bjóða hingað til búsetu 25-30 manna hópi Víetnama ættu landsmenn að strengja þess heit að vera umburðarlyndari þessu fólki en ýmsir næstu nágrannar okkar hafa verið. Vísir hefur undanfarna þrjá daga birt úttekt blaðamanna á sambúð Asíumannna og íslend- inga hér á landi i tilefni af komu f lóttamannanna. Hefur í því sambandi meðal annars verið rættviðfólk frá Suðaustur-Asíu, sem hér er búsett. Einn viðmælenda Vísis var ung kona frá Thailandi, Naremon Thepchai. Hún sagði um komu flóttamannanna: ,,Ég held að það sé mikið undir íslendingum sjálfum komið hvort um vanda- mál verður að ræða eða ekki. Ef fólkið finnur fyrir andúð við komuna hingað er hætta á að það þjappi sér saman og þá myndast tortryggni sem er það hættuleg- asta, sem upp getur komið." Hún taldi viðbúið að fólkið fengi heimþrá fyrst i stað, allt væri hér svo ólíkt því, sem Austur-Asíu- menn ættu að venjast.,, En ef vel tekst til gæti þetta fólk jafnvel gert (slendingum mikið gagn og hugsanlega kennt þeim eitthvað nýtt — opnað einhver ný svið í íslenskum atvinnuvegum. Þetta fólk kann ýmislegt f yrir sér og er mjög duglegt," sagði Naremon Thepchai. Vonandi verður sú ákvörðun, sem ríkisstjórnin hefur tekið varðandi víetnömsku flótta- mennina bæði þeim og okkur til góðs en mikið er í húfi að við reynumst komumönnum góðir gistivinir. færi til aö komast á hestbak, en um kvöldið veröa skátar meö varöeld. Ekki er allt upptaliö ennþá, þvi klukkan 20:30 um kvöldið hefst skemmtun i Egilsbúð þar sem auk leiks skölahljómsveit- ar Neskaupsstaðar verður kynning á Norðfirskum skálum Þar veröa kynnt skáldin Jónas Þorsteinsson, Valdimar V. Snæ- var, María Bjarnadóttir, Teitur Hartmann og Einar Sveinn Fri- mannsson. Þá mun Lárus Sveinsson leika á trompet og Margrét Pálma- dóttir syngja við undirleik Hrefnu Eggertsdóttur. Þjóðdansaflokkurinn frá Es- bjerg sem skemmti fyrr um daginn mun koma aftur fram á kvöldskemmtuninni I Egilsbúð, en kynir á báðum skemmtunun- um veröur Stefán Þorleifsson. Hátiðardagskrá laugardagsins lýkur siðan meö dansleik sem hefst i Egilsbúð klukkan 23:00 en þar mun hljómsveitin Amon Ra leika fyrir dansi. Þess má að lokum geta að þessa dagana stendur yfir i Eg- ilsbúð sýning á höggmyndum Gerðar Helgadóttir. Sýning Gerðar verur opin daglega milli klukkan 16 og 22 fram til 21. júli. Viö munum I blaðinu á morg- un kynna dagskrá hátiöahald- anna á sunnudag. _ GEK 50 ara afmæll Neskaupslaðar: Hátíðahöldln standa sem hæst um helglna Hátiöahöld vegna hálfrar ald- ar afmælis Neskaupsstaðar eru nú i fúllum gangi. t samtaii við fréttaritara Visir á Neskaups- staö, Hjörvar Jónsson, kom fram aö Norðfiröingar hafa að undanförnu veriö önnum kafnir viö að hreinsa og snyrta bæinn ogi tilefni hátiöahaldanna hefur verið komið upp fjölda flagg- stanga sem setja sinn svip á bæ- inn þessa dagana. Þótt aöalhátiðahöldin fari fram dagana 1.-8. júli má segja að timamótin hafieinkennt alla heföbundna nátiðisdaga sem haldið hefur veriö upp á á Nes- kaupsstaö þaö sem af er árinu. Hátiðadagskráin hófst i gær með frumsýningu Leikfélags Neskaupstaöar á Vaxlffi, en það er nýtt islenskt verk eftir einn bæjarbúa Kjartan Heiðberg. Leikstjóri sýningarinnar er Haukur Gunnarsson. 1 dag, föstudag, hefst dag- skráin klukkan 16 meö þvi aö opnuö veröur i barnaskólanum sýning á verkum þriggja mynd- listarmanna, þeirra Sigurðar Þóris Sigurðssonar sem sýn- ir grafik Snorri Helgasonar sem sýnir lágmyndir úr gifsi og Tryggva Ólafssonar sem sýnir málverk og klippimyndir. Sam- timis verður opnuð i barnaskól- anumsýningi myndum ogmáli á þróun byggöar og mannlifs i Nesi og Neskaupsstaö i 100 ár. Báðar þessar sýningar verða opnar daglega frá kl. 16-22 fram til 21. júii. Klukkan 18-20 verður haldinn dansleikur fyrir 12 ára og yngri og efastenginn um aö þar verö- ur lif I tuskunum. Aö loknum dansleik unga fólksins munu 2. deildar liðin Þróttur og Austri keppa og hefst leikurinn stund- vislega klukkan 20. Klukkutima siðar hefst siöan unglingadansleikur og lýkur honum ekki fyrr en klukkan 01, samkvæmt auglýstri dagskrá. Laugardagur A morgun laugardag hefst dagskráin klukkan 10 árdegis, það er aö segja ef veöurguðirnir leyfa. Þá er áætlað að sigla meö gesti um Norðfjarðarflóa. Laust upp úr hádegi eða kl. 14 hefst útisamkoma i skúrögaröi bæjarins með þvi aö lúörasveit frá Stavanger og skólahljóm- sveit Neskaupsstaöar leika. Samkomuna setur Kristinn V. Jóhannsson forseti bæjarstjórn- ar, en hátiðarræðu flytur Bjarni Þórðarson. Að henni lokinni munu gestir ávarpa bæjarbúaog þjóðdansa- flokkur frá Esbjerg skemmta. Skemmtiefni fyrir börn munu félagar i Leikfélagi Neskaups- staðar sjá um meö aðstoö Sig- riöar Þorvaldsdóttur og Mar- grétar Guðmundsdottur. Úti- skemmtuninni lýkur siðan meö ávarpi Loga Kristjánssona. Að útiskemmtuninni lokinni munu félagar I hestamannafé- laginu Blæ gefa börnum tæki- Frá Neskaupstaö

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.