Vísir - 06.07.1979, Page 16

Vísir - 06.07.1979, Page 16
Umsjón: Gunnar Salvarsson VlSIR Föstudagur 6. júli 1979 Lállð vel áf ÞURSABITI Hinn íslenski Þursaflokkur ■ Þursabif Fálkinn Ffl oio „oddvitar” islenskrar rokktónlistar. Vísism.: J.G. Hinn islenski Þursa- flokkur er sérstæður að þvi leyti að liðsmenn hans sækja sér efnivið og innblástur aftur i aldir. Og þeir leita ekki hófanna út um viðan völl heldur einblina á sögu sinnar eigin þjóðar, bæði hvað snertir ljóð og lög. Þetta er virðingarvert m.a. sökum þess að stór hluti þjóðarinnar hefur alist um við þá „þjóðlygi” að við íslendingar ættum enga tónlistarsögu. Fyrir vikið eru Þursar sérkennileg hljóm- sveit á islenskan rokk- mælikvarða og bæði „ofvitar” og „oddvit- ar” islenskrar rokktón- listar siðustu ára. Sérkenni Þursaflokksins myndi þó duga skammt ef ekki kæmi meira til, — og þetta „meira til” hefur Þursa- flokkurinn i' talsverðum mæli. Hann hefur til að mynda áræöi og þor til að takast á hendur það vandasama verkefni aö blanda saman fornum islenskum stefj- um og rafmagnaðri rokktónlist — og það sem mest er um vert, vit til að gera hugmyndina ekki að auðvirðilegri söluvöru. tónlist Liðsmenn Þursaflokksins eru tónlistarmenn sem vilja láta taka sig alvarlega, það sýna báðar plötur þeirra til þessa. A hinn bóginn hefur mér fundist gæta nokkurs rembings hjá Agli yfirþurs með flokk sinn, svona eitthvað i áttina við það þegar sæt stelpa veit af þvi aö hún er snoppufrið. Þá er hætta á þvi að sjálfsgagnrýnin dofni og lista- mannsderringurinn taki yfir- höndina i formi oftúlkunar og Þursaflokkurinn — „ofvitar” og aulaháttar. „Þursabit ber þó ekki einkenni þess nema ef vera skyldi að óverulegum hluta. Platan er virkilega haglega gerð og stórum betri en fyrsta platan, sem hafði þó enga áberandi ókosti. Raunar er mér til efs að islensk hljómsveit hafi skilað af sér betri afurð til þessa. Þó ber þess að geta að i þessum efnum er oft óliku saman jafnað og niðurstaðan þvi kannski ekki ávallt mark- tæk. Egill_Olafsson er „heilinn” á bak við Þursaflokkinn án þess að rýrð sé kastað á getu eða hæfiieika annarra liðsmanna með þessum orðum. Það er hann sem einkum hefur kafað i brunn þess gamla tima sem speglast á plötunum, auk þess sem úrvinnsla efnisins, þ.á.m. útsetningar, hafa hvilt mest á herðum Egils. Styrkur Þursa- flokksins liggur þó i liðsheild- inni, þar sem veikan blett er ekki að finna. Það er þvi skarð fyrir skildi að Karl Sighvatsson hafi kvatt, en Lárus Grimsson mun væntanlega fylla það þó með öðrum hætti verði. Ég hef ekki nennu til þess að tiunda sérstaklega einstök lög en læt þakklæti fylgja með i lokin tilEgils, Asgeir, Tómasar, Þórðar og Lárusar fyrir gott þursabit. Sumarið 79. Hlöðuball I ðlfusinu „Sumarið 79" legur af stað I landreisu um helgina oghefst hún með miklu hlöðuhalli I Alfusinu á föstudagskvöld. Félagar I „Sumarið 79” eru Hljóhsveit Hljómsveit Stefán P„ sem leikur fyrir dansi, Július Brjánsson og Randver Þorláks- son, sem slá á léttari strengi, og Baldur Brjánsson, sem töfrar áhorfendur upp úr skónum. Hlöðuballið á föstudagskvöldið verðui haldið i hlöðunni við bæinn Þórus aði i Olfusi. Það hefst klukk. n 21 og stendur fram eftir nóttu. Að sögn Júliusar Brjáns- sonar leggja þeir felagar tölu- verða áherslu á þetta hlööuball. „Hér hefur ekki verið haldið hlöðuball árum saman og er þaö verr. Við höfum lagt mikið i þetta og ef tekst til gæti slikt hlöðuball orðið árviss viöburður”, sagði Július. Sætaferðir veröa farnar frá Umferðarmiðstöðinni og tjald- aöstaða veröur fyrir þá sem vilja gista. — ATA SUMAR A KJARVALSSTÖÐUM ÞRÍR HÓPAR LISTA- MAHNA SÝNA SAMTÍMIS „Ég lýsi ánægju minni með þetta samstarf við listamenn og býð þá sérstaklega velkomna til þessa fundar” sagði Sjöfn Sigur- björnsdóttir formaður stjórnar Kj arvalsstaða þegar dagskrá sumarsins var kynnt á fundi með blaðamönnum og hlutaðeigandi listamönnum. Sýningin verður opnuð á laugardaginn og mun kór Menntaskólans við Hamrahlið syngja viö það tækifæri, en stjórnandi kórsins Þorgerður Ignólfsdóttir er annar af tveimur fulltrúum listamanna i stjórn Kjarvalsstaða. Sýningin nefnist „Sumar á Kjarvalsstöðum” og munu þrir hópar listamanna sýna þar verk sin. Enginn þessara þriggja hópa hefur áður sýnt á Kjárvals- stöðum, en þeir eru Septem-hóp- urinn sem mun sýna i ve'stursal, Galleri Langbrók i kaffistofu og göngum og Myndhöggvarafélag- ið setur upp sýningu umhverfis fimm listamenn. 1 Septem-hópn- um er sjö málarar og einn mynd- höggvari, ellefu textil- og grafik- listamenn i Galleri Langbrók og fimmtán félagar úr Myndhöggv- arafélaginu. 1 austursal verða sýnd verk eftir Jóhannes Kjarval sem eru i eigu Reykjavikurborgar. Reykjavikurvika I undirbúningi er Reykjavikur- vika, sem á að standa dagana 13. — 19. ágúst, þarsem kynnt verða ýmsar stofnanir Reykjavikur- borgar. I tengslum við þá kynn- ingu verður meðal annars sett upp sýning frá þróunarstofnun á skipulagi þriggja hverfa i Reykjavik. Fyrirlestrar og um- ræðufundir eru ráðgerðir i tengslum við skipulagssýninguna og kynnisferðir i þessu tilteknu hverfi. Sýningin verður sett upp i fundarsal Kjarvalsstaða og fellur þannig inn i ramma sumarsýn- ingarinnar. Fleiri sýningar eru fyrirhug- aðar á göngum hússins i haust. Þá hafa forráðamenn Kjarvals- staða mikinn áhuga á þvi að auka þátt túlkandi lista i húsinu, og hefur verið rætt við tónlistar- menn, leiklistarfólk og fleiri um þaumál .Er þessaö vænta aðþær viöræöur beri ávöxt I haust. J.M.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.