Vísir - 18.09.1979, Síða 12
VISIR Þriöjudagur 18. september 1979
12
Þriðjudagur 18. september 1979
Leikmenn ÍBV, þjálfarar og forráöamenn liösins, veifa til mannfjöld ans á bryggjunni I þann mund sem Herjólfur lagöist upp aö.
Ræöur voru aö sjálfsögöu fluttar. Hér sést Sveinn Tómasson forseti bæjarstjórnar flytja ávarp, en hjá
honum stendur Páil Zophaniasson bæjarstjóri meö fangið fullt af blómuin.
tþróttabandalaginu bárust mörg áheit, og hér sést Viktor Helgason þjálfari taka á móti 500 þúsund króna áheiti frá Lee Cooper umboö-
inu.
Allir sem vettlingi gátu valdið þustu niöur aö höfn þegar Herjólfur kom þangaö meö islandsmeistarana. Þótt komiö væri fram undir
miönætti létu börnin sig ekki vanta til aö vera viöstödd þennan merka atburö.
Frá boröi roguöust leikmennirnir hver af öörum, hlaönir blómvöndum. Hér sést Þóröur HallgrImsson,fyrirliðivtil vinstri, þá Kjartan
Helgason aöstoöarþjálfari og Viktor Helgason þjálfari.
Texti: Gylfi
Kristjánsson.
Næstum helmingur bæjarbúa mætti viö móttökuathöfnina og sést hér hluti þeirra tvö þúsund Eyjabúa
sem viðstaddirvoru.
„Viö erum komnir meö islandsbikarinn heim loksins”! — Þeir Þóröur Hallgrimsson
fyrirliöi og Viktor Helgason komnir fland á Heimaey meö hinn langþráða verölauna-
grip.
Konunglegar
móttðkur i
bryggiunni
Þaö var mikiö um dýröir þegar nýbak-
aöir islandsmeistarar IBV i i knattspyrnu
komumeö tslandsbikarinn heim tilEyja i
fyrrakvöld. A bryggjunni voru um tvö
þúsund manns til aö fagna meisturunum,
eöa hátt i helmingur allra þeirra sem búa
á Heimaey!
Menn þeyttu-flautur bifreiöa sinna á-
kaft og skipslúörar Herjólfs hljómuöu
undir. A bryggjunni lék lúörasveit,
kirkjukórinn söng og geysimikil flugelda-
sýning var haldin i tilefni dagsins.
Þegar Herjólfur haföi veriö bundinn viö
bryggju fluttu forráöamenn bæjarins á-
vörp og liöinu bárust áheit og peninga-
gjafiri striöum straumum. Allir kepptust
viö aö hylla hetjurnar i liöinu, piltarnir
vorukysstir og knúsaöir i bak og fyrir og
stjórnendur liösins fengu aö sjálfsögöu
sinn hluta af hamingjuóskunum.
Þaö var mikill dýröardagur i Eyjum,
enda hefur Islandsmeistarabikarinn
aldrei komiö þangaö áöur. Þó hafa leik-
menn frá IBV keppt i Islandsmótinu I
meira en 65 ár, en nú loksins var stóri
draumurinn oröinn aö veruleika.
Eftir móttökuathöfnina voru leik-
mennirnir drifnir á matsölustaðinn Gest-
gjafann sem bauö þeim og stjórnendum
liösins I veislumáltlö, en frekari hátlöa-
höldum var frestað um sinn. En viö
þekkjum Eyjamenn ekki rétt ef þeir eiga
ekki eftir aö fagna þessum áfanga enn
betur og á eftirminnilegan hátt áður en
langt um liöur.