Vísir - 21.03.1980, Side 7

Vísir - 21.03.1980, Side 7
sjónvarp Úlvarp ki. 16.40 í mitvlkudaglnn: Ný útvarps- saga barnanna - „Glaumbælngar á ferð og flugl" Þriðjudagur 25. mars 20.00 Fréttir og veöur 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Tommi og Jenni. 20.40 örtölvubyltingin. Fjóröi þðttur. Hiö innhverfa þjóö- félag. Bráöum veröur unnt aö geyma frdöleik margra bóka I örsmáum kisilmola. örtölvan sér um aö bregöa textanum á skjáinn meö þeim hraöa sem lesandinn kýs, og þá veröur einka- kennarinn ekki lengur forréttindi hinna vellriku. Þýöandi Bogi Arnar Finnbogason. Þulur Gylfi Pálsson. 21.10 Óvænt endaiok. Annar þáttur. Sæt er ávinnings- vonin. Þýöandi Kristmann Eiösson. 21.35 Umheimurinn. Þáttur um erlend málefni og viö- buröi. Umsjónarmaöur Bogi Agilstsson, fréttamaö- ur. 22.25 Dagskrárlok. Miðvikudagur 26. mars 18.00 Börnin á eldfjallinu. Ný- sjálenskur myndaflokkur. Annar þáttur. Þýöandi Guöni Kolbeinsson. 18.25 Einu sinni var. Teiknl- myndaflokkur. Þýöandi Friörik Páll Jónsson. Sögu- menn Ómar Ragnarsson og Bryndis Schram. 18.50 Hlé 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Nýjasta tækniog visindi. Umsjónarmaöur örnólfur Thorlacius. 21.05 Ballettdansarinn. (I Am a Dancer). Bresk kvikmynd um hinn heimskunna ballettdansara Rudolf Nureyev. Fylgst er meö honum m.a. aö æfingum, og sýndir vinsælir ballettar. Meöal dansfélaga Nureyevs i myndinni er Margot Font- eyn. Þýöandi Kristriin Þóröardóttir. 22.35 Dagskrárlok. ,,Sagan segir frá sumarfrii fjölskyidu utan af landi, sem fer til Reykjavikur milli sauö- buröar og sláttar. Söguhetjan er 8-9 ára gamall drengur og segir hann frá I fyrstu per- sónu”, sagöi Guöjón Sveinsson rithöfundur f Breiödalsvik, en fyrsti lestur á sögu hans „Glaumbæingar á ferö og flugi” veröur i útvarpinu á miövikudaginn. Lesari er Sig- uröur Sigurjónsson leikari. „Drengurinn lýsir feröinni og þvi sem fyrir augun ber i Reykjavik og þegar heim kemur dembir fjölskyldan sér i heyákapinn”, sagöi Guöjón ennfremur. „Glaumbæingar á ferö og flugi” er áframhald sögunnar „Glatt er i Glaumbæ”, sem kom út I bókarformi áriö 1978. Handritinu af siöari bókinni lauk hann á miöju ári 1979 og hefur hún af þeim sökum ekki enn fariö i prentun, þó hún sé nú lesin i útvarpi. „En þaö er náttúrlega meiningin aö gefa hana út siöar”. Ætla má aö lestrarnir veröi 10-12 talsins. H.S. Siguröur Sigurjónsson leikari — lesari nýju barnasögunnar. Slónvarp kl. 21.05 á mlövikudaglnn: Ballett- dansarinn Rudoiv Nureyev „Viö fáum aö sjá þann fræga baliettdansara Rudolf Nureyev i starfi, þar sem hann dansar ýmsa parta úr frægum bailettum”, sagöi Kristrún Þóröardóttir, en hún þýddi myndina „Ballettdansarinn” (I am a dancer), sem sjón- varpið sýnir á miövikudaginn. Rudolf Nureyev er Rússi eins og liklega flestir vita. Hann bjó viö þröngan kost i landi sinu og fluttist búferlum til Englands, en I Londón hefurhann siöan átt fastastaö, þó hann sé á eilifum þönum út um allan heim. Rudolf Nureyev er án efa einn besti ballettdansari, sem nú fyrlrfinnst á jaröarkringlunnl. Frægastur er Rudolf fyrir dans sinn meö ballerinunni Margot Fonteyn. 1 bresku kvikmyndinni mun hann m.a. einnig dansa viö Lynn Say- mour. Þeir ballettar sem sjón- varpsáhorfendur fá aö sjá hann taka nokkur dansspor úr, eru bæöi klassiskir og nútima- legir. Sem dæmi um þann klassiska má nefna „Skóg- ardisina” og um þá nýrri „Akurverurnar” (Field figures), en sá ballett var saminn sérstaklega handa Rudolf. —H.S.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.