Morgunblaðið - 07.11.2001, Page 1
2001 MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
BLAKIÐ Á UNDIR HÖGG AÐ SÆKJA Á ÍSLANDI / B4
Þeir félagar leika á Peralada-velli,sem er norður af Barcelona á
Spáni. Völlurinn er par 71, frekar
langur og „talsvert þröngur þannig
að það er betra að vera á braut,“ eins
og Björgvin orðaði það í gær, en
sjálfur hitti hann fjórar brautir af
þrettán, var 14 sinnum inni á flöt á
réttum höggafjölda og notaði 33 pútt.
„Ég sló alls ekki nægilega vel í dag,
en þetta var samt allt í lagi og ég sé
að ég á að geta gert miklu betur. Mið-
að við að ég sló ekki vel og notaði 33
pútt, þar sem ekkert datt hjá mér, þá
er þetta allt í lagi. Ég átti að vera
eitthvað undir pari í dag en þetta er
allt í lagi svona í fyrsta hring,“ sagði
Björgvin.
Hann sagði að Birgir Leifur hefði
leikið vel framan af en síðan hefði
komið eitthvert bakslag hjá honum
en hann hefði samt náð að spila á
tveimur höggum undir pari.
Annað stigið í úrtökumótinu er
leikið á þremur völlum og þar leika
alls 230 kylfingar og 30 komast áfram
á þriðja og síðasta mótið sem verður í
næstu viku. Birgir Leifur er sem
stendur í 15.-27. sæti og Björgvin í
41.-51. sæti. „Ég ætla mér áfram, það
passar svo fínt að fara héðan til
Barcelona og horfa á Hauka leika þar
í Evrópukeppninni í handbolta og
halda síðan til Malaga þar sem loka-
mótið verður,“ sagði Björgvin í gær.
Birgir Leifur tvo undir og
Björgvin á pari á Spáni
BIRGIR Leifur Hafþórsson, kylfingur frá Akranesi, og Björgvin Sig-
urbergsson úr Keili byrjuðu báðir ágætlega á öðru úrtökumótinu
fyrir evrópsku mótaröðina, en mótið hófst í gær. Birgir Leifur lék
fyrsta hringinn á tveimur höggum undir pari, Björgvin var á parinu.
STEFÁN Gíslason, leikmaður ungmennalands-
liðsins í knattspyrnu, sem leikur með norska
liðinu Strömsgodset, er kominn til Austurríkis
en austurríska úrvalsdeildarliðið Grazer AK
bauð honum að koma út til reynslu. Grazer AK
er í þriðja sæti deildarinnar eftir sautján um-
ferðir en þetta er sama félag og gerði tilboð í
Rúnar Kristinsson þegar hann lék með Lille-
ström í Noregi.
Stefán gekk til liðs við Strömsgodset árið
1999 og á eitt ár eftir af samningi sínum við lið-
ið, sem féll úr úrvalsdeildinni á dögunum en
með því leikur einnig Veigar Páll Gunnarsson.
Stefán segir í samtali við norska blaðið Dramm-
ens Tidende að framtíð sín sé óráðin en hann
lék 23 af 26 leikjum Strömsgodset á leiktíðinni
og skoraði eitt mark.
Stefán æfir
með Grazer
GUNNAR Þór Gíslason, stjórn-
arformaður Stoke City, sagðist
í samtali við Morgunblaðið í
gær ekki ætla að tjá sig op-
inberlega um gagnrýni þá sem
höfð var eftir Guðjóni Þórð-
arsyni, knattspyrnustjóra fé-
lagsins, og birtist í viðtali við
hann í dagblaðinu Sentinel og
sagt var frá í Morgunblaðinu í
gær. Þar beinir Guðjón spjót-
um sínum að stjórn félagsins,
telur hana m.a. sínka á fé,
standa í vegi fyrir að hann geti
styrkt lið sitt vegna áframhald-
andi keppni um sæti í 2. deild
ensku knattspyrnunnar. Þess
vegna hafi Pétur Marteinsson
m.a. gengið félaginu úr greip-
um.
„Ég hef ákveðið að tjá mig
ekkert um málið,“ sagði Gunn-
ar Þór, en bætti því við að
hann væri ekki viss um að al-
gjörlega rétt væri eftir Guðjóni
haft í Sentinel.
Gunnar Þór tjáir
sig ekki um
gagnrýni Guðjóns
Það er skemmst frá því að segjaað Íslendingurinn fékk 57% at-
kvæða en stórstjarnan frá Man-
chester United, Ole Gunnar Sol-
skjær, fékk til að mynda aðeins 14%
atkvæða. Torgeir Bjarmann fyrir-
liði Lilleström, varð annar í kjörinu
með 16% atkvæða á bak við sig.
Árni Gautur segir við VG að hann
hafi ekki leikið nógu vel í vorleikj-
unum með Rosenborg. „Ég var ekki
nógu stöðugur í fyrstu leikjunum en
í haustleikjunum hefur verið góður
stígandi í leikjunum. Inn á milli hafa
komið leikir þar sem illa hefur
gengið,“ segir Árni Gautur og er þá
6:0 tap Íslands gegn Dönum á Park-
en honum efst í huga.
Í einkunnagjöf VG fyrir Meist-
aradeild Evrópu er Árni Gautur
með 7,3 að meðaltali í sex leikjum
og þykir einkunnin vera mjög há á
norskan mælikvarða. Leikmaður
ársins í norsku knattspyrnunni, Er-
ik Hoftun (Rosenborg), fékk 5,96 að
meðaltali í þeim 26 leikjum sem
hann lék. Að mati VG lék Árni best
gegn Porto í Portúgal þar sem Ros-
enborg átti í vök að verjast í fyrri
hálfleik en í þeim leik áttu fram-
herjar Porto 12 skot að marki í fyrri
hálfleik sem flokkast undir mjög
góð marktækifæri en aðeins einu
sinni mátti íslenski landsliðsmark-
vörðuinn hirða knöttinn úr netinu.
Samkvæmt fréttum norskra fjöl-
miðla hefur ekkert lið gert Rosen-
borg formlegt kauptilboð í Árna
Gaut en allar líkur benda til þess að
Árni Gautur verði seldur frá félag-
inu ef gott tilboð komi frá réttu fé-
lagi. Í næstu viku mun Árni Gautur
fara yfir stöðu mála með umboðs-
manni sínum Erik Soliér, en Árni
hefur ítrekað það að sér líði vel í
Þrándheimi og hann ætli ekki að
fara frá liðinu nema mjög gott tilboð
komi frá stóru og þekktu félagsliði.
Lesendur VG tóku íslenska landsliðsmarkvörðinn fram yfir Ole Gunnar Solskjær
Árni Gautur Arason og Gianluigi Buffon, markvörður Juventus, þakka hvor öðrum fyrir leikinn –
er Rosenborg lék í Meistaradeild Evrópu í Tórínó á dögunum.
Yfirburðir
Árna Gauts
ÁRNI Gautur Arason sigraði með miklum yfirburðum í kosningu á
knattspyrnumanni októbermánaðar í dagblaðinu Verdens Gang, en
niðurstöður kosningarinnar voru birtar í gær. Lesendur blaðsins
gátu valið leikmenn úr norsku liðunum auk þeirra norsku leik-
manna sem leika á erlendri grund.