Morgunblaðið - 07.11.2001, Page 2
ÍÞRÓTTIR
2 B MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
HANDKNATTLEIKUR
Fram – HK 24:24
Framhús, 1. deild karla, 7. umferð, þriðju-
dagur 6. nóvember 2001.
Gangur leiksins: 0:3, 1:4, 4:4, 6:7, 9:7, 11:8,
13:9, 14:9, 16:11, 18:14, 20:21, 23:22, 24:23,
24:24.
Mörk Fram: Róbert Gunnarsson 9/1,
Björgvin Þór Björgvinsson 6, Guðjón Finn-
ur Drengsson 3, Hjálmar Vilhjálmsson 3,
Lárus G. Jónsson 3.
Varin skot: Sebastían Alexandersson 20/1
(þar af 7 til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk HK: Jaliesky Garcia 9, Valdimar
Grímsson 6/3, Alexander Arnarsson 4, Vil-
helm G. Bergsveinsson 3, Elías Már Hall-
dórsson 2.
Varin skot: Arnar Freyr Reynisson 8 (þar
af 3 til mótherja), Sigurður S. Sigurðsson 4.
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Bjarni Viggósson og Valgeir E.
Ómarsson. Ágætir.
Áhorfendur: Um 230
KA – Afturelding 26:22
KA-heimilið, Akureyri:
Gangur leiksins: 0:1, 2:4, 8:6, 12:9, 14:12,
18:14, 23:17, 24:20, 26:22.
Mörk KA: Arnór Atlason 8/2, Jónatan
Magnússon 7, Andreas Stelmokas 4, Jó-
hann Gunnar Jóhannsson 4, Hreinn
Hauksson 2, Halldór Sigfússon 1.
Varin skot: Egidius Petkevicius 10 (þar af
3 til mótherja).
Utan vallar: 16 mínútur.
Mörk Aftureldingar: Hjörtur Arnarsson 5,
Magnús Már Þórðarson 5, Páll Þórólfsson
4/3, Bjarki Sigurðsson 2, Hilmar Stefáns-
son 2, Daði Hafþórsson 1, Sverrir Björns-
son 1, Valgarð Thoroddsen 1, Atli R. Stein-
þórsson 1.
Varin skot: Reynir Þór Reynisson 8/1 (þar
af 3 til mótherja), Ólafur H. Gíslason 6 (1 til
mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Anton Pálsson og Hlynur Leifs-
son . Dæmdu sæmilega og spöruðu ekki
brottrekstrana.
Áhorfendur: Um 450.
Staðan:
Haukar 6 6 0 0 163:137 12
Valur 6 5 1 0 169:141 11
Þór 6 4 1 1 154:152 10
Grótta/KR 6 4 0 2 153:155 8
KA 7 3 1 3 176:166 7
Afturelding 7 3 1 3 161:161 7
HK 7 2 2 3 191:190 6
Selfoss 6 3 0 3 161:160 6
ÍR 6 3 0 3 132:142 6
FH 6 2 1 3 155:151 5
Stjarnan 6 2 0 4 147:155 4
ÍBV 6 2 0 4 159:176 4
Fram 7 0 3 4 161:174 3
Víkingur 6 0 0 6 130:162 0
KÖRFUKNATTLEIKUR
Grindavík – KR 83:73
Grindavík, 1. deild kvenna, þriðjudagur 6.
nóvember 2001.
Gangur leiksins: 6:7, 13:15, 21:16, 30:22,
39:27, 44:33, 52:42, 64:42, 64:46, 69:55,
78:64, 83:73.
Stig Grindavíkur: Sigríður Anna Ólafs-
dóttir 25, Jessica Gaspar 21, Sólveig Gunn-
laugsdóttir 16, Erna Rún Magnúsdóttir 6,
Sandra Guðlaugsdóttir 6, Ólöf Helga Páls-
dóttir 3, Petrúnella Skúladóttir 3, Jovana
Lilja Stefánsdóttir 3.
Stig KR: Hildur Sigurðardóttir 24, Helga
Þorvaldsdóttir 22, Krístín B. Jónsdóttir 17,
Gréta Grétarsdóttir 8, Georgia Kristjáns-
dóttir 2.
Dómarar: Jón Bender og Kristján Möller.
Áhorfendur: Um það bil 90.
Staðan:
Grindavík 5 5 0 380:317 10
ÍS 3 2 1 230:174 4
Keflavík 4 2 2 286:279 4
KR 3 1 2 215:229 2
KFÍ 2 0 2 118:150 0
Njarðvík 3 0 3 156:236 0
1. deild karla:
Ármann/Þróttur – Selfoss ................... 93:68
Bikarkeppni KKÍ:
1. umferð:
Léttir – Keflavík b................................ 54:66
NBA-deildin
Orlando – Seattle...............................119:123
Eftir tvíframlengdan leik.
LA Clippers – Atlanta.........................109:86
KNATTSPYRNA
England
2. deild:
Reading – Wrexham ................................ 2:0
Blackpool – Stoke..................................... 2:2
3. deild:
Hartlepool – Hull...................................... 4:0
Cheltenham – Bristol Rovers.................. 0:0
Shrewsbury – Darlington........................ 3:0
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla:
Ásgarður: Stjarnan – ÍR ..........................20
Ásvellir: Haukar – Selfoss........................20
Víkin: Víkingur – FH ................................20
Í KVÖLD
Heimastúlkur virðast ekki árenni-legar í þeim ham sem þær eru
þessa dagana. Gestirnir áttu í raun
aldrei möguleika
þótt þeir hafi verið
inni í leiknum í
fyrsta leikhluta.
Þær grindvísku
náðu snemma 10 stiga forystu í öðr-
um leikhluta og eftir 12 stig í röð í
stöðunni 52:42 í þeim þriðja var leik-
urinn nánast búinn, 64:42 . Gestirnir
gáfust þó aldrei upp og bitu hressi-
lega frá sér í síðasta leikhluta en það
var einfaldlega of seint.
Í liði KR áttu þær Hildur Sigurð-
ardóttir og Helga Þorvaldsdóttir
báðar stórleik og var erfitt að hemja
þær. Hjá heimastúlkum átti Sigríður
Anna Ólafsdóttir bestan leik í annars
mjög góðu liði Grindavíkur.
Þjálfari Grindavíkurstúlkna, Unn-
dór Sigurðsson var að vonum kátur í
lok leiks og sagði: „Við tökum einn
leik í einu og förum í alla leiki til að
vinna. Við uppskerum síðar. KR-lið-
ið er veikara en undanfarin ár en
verður sterkara þegar líður á vet-
urinn. Það sem við þurfum að laga
kemur hægt og bítandi þannig að ég
er bjartsýnn á framhaldið.“
GRINDAVÍKURSTÚLKUR halda fast í toppsætið í 1. deild kvenna í
körfuknattleik og eru enn ósigraðar eftir að hafa lagt KR 83:73 á
heimavelli í gærkvöld.
Garðar
Vignisson
skrifar
Grindavík á sigurbraut
Ekki byrjuðu heimamenn vel þvíReynir Þór Reynisson varði
vítakast í fyrstu sókn KA og réðu
gestirnir ferðinni
fyrstu tíu mínútur
leiksins. Þeir kom-
ust í 2-4 og 4-5 og
áttu heimamenn í
vandræðum með Magnús Má Þórð-
arson á línunni. Arnór var í miklu
stuði hjá KA og byrjaði með látum.
Einnig var Stelmokas sterkur á lín-
unni en þessir tveir skoruðu sjö
fyrstu mörk KA í leiknum. Um leið
og aðrir leikmenn tóku við sér
hrökk liðið í gang og náði yfirhönd-
inni. Vörnin small saman og áttu
leikmenn Aftureldingar fá svör eft-
ir að Magnús Már var gerður
óvirkur. Um miðjan hálfleikinn
náði KA tveggja marka forystu
sem þeir létu ekki ef hendi fram að
hléi. Staðan var 14-12 í hálfleik og
kom helmingur markanna af línu
eða úr hornunum.
KA byrjaði seinni hálfleik manni
færri og nýttu gestirnir sér það
með því að minnka muninn í eitt
mark. Lengra komust þeir ekki og
aftur skildi leiðir.
Þrátt fyrir að missa mann út af
reglulega juku heimamenn foryst-
una jafnt og þétt og er tíu mínútur
lifðu af leiknum var staðan 24-18
KA í vil. Jónatan Magnússon var
gríðarlega mikilvægur á þessum
kafla því hann skoraði fjórum sinn-
um í fyrstu sókn KA-manna manni
færri. Auk þess lék hann frábæra
vörn og dreif félaga sína áfram.
Leikmenn Aftureldingar spiluðu
hreinlega illa þessar tuttugu mín-
útur. Mikið var um tæknileg mis-
tök og skotin geiguðu mörg hver.
Þeir tóku sig þó á í restina og
minnkuðu muninn en heimamenn
gátu leyft sér að tapa boltanum
margoft án þess að sigurinn væri í
hættu.
KA-liðið lék virkilega vel en
varnarleikurinn lagði grunninn að
sigri þeirra.
Þrátt fyrir að markvarslan hafi
ekki verið neitt sérstök tókst Aft-
ureldingu aðeins að skora sex mörk
af síðusu fimmtán mörkum sínum
gegn fullmannaðri KA-vörninni.
Stelmokas lék ekkert í vörninni í
síðari hálfleik en það kom ekki að
sök. Í sókninni var Arnór virkilega
beittur en hann var tekinn úr um-
ferð megnið af síðari hálfleik. Þætti
Jónatans var áður lýst en hann átti
að auki fjölda stoðsendinga. Aðrir
léku ágætlega í sókninni. Hjá Aft-
ureldingu stóðu Hjörtur Arnarsson
og Ólafur H. Gíslason sig best en
Ólafur varði sex skot síðustu tíu
mínúturnar. Magnús Már var öfl-
ugur í sókninni, sérstaklega í upp-
hafi leiks en hann lék mjög góða
vörn allan tímann. Stórskytturnar
höfðu sig lítið í frammi og skoruðu
aðeins fjögur mörk samtals.
KA-menn komn-
ir í efri hlutann
KA spilaði gegn Aftureldingu í gærkvöldi og hafði sigur, 26:22. Það
var ólíkt meiri og betri stemmning á leiknum í gær heldur en á laug-
ardaginn á leik Íslands og Noregs. Þá biðu sjálfsagt flestir áhorf-
endur eftir því að sjá heimastrákinn Arnór Atlason spila sinn fyrsta
landsleik. Lítið varð úr þeim væntingum því Arnór þurfti að sitja á
bekknum allan leikinn og í ofanálag tapaði Ísland, áhorfendum til
mikillar gremju. Þeir gátu þó tekið gleði sína á ný í gær því bæði
Arnór og KA-liðið sýndu góðan leik. Lítill munur var á liðunum lengi
framan af en í síðari hálfleik stungu KA-menn af og sigur þeirra var
aldrei í hættu eftir það.
Einar
Sigtryggsson
skrifar
HAUKUR Ingi Guðnason, knatt-
spyrnumaður úr Keflavík, fer í dag
til reynslu hjá hollenska úrvalsdeild-
arfélaginu Groningen. Þetta er í
annað sinn í haust sem Haukur Ingi
fer þangað en í fyrra skiptið var lítið
spilað á æfingum vegna mikils leikja-
álags hjá liðinu. Forráðamenn Gron-
ingen vildu því fá hann aftur til að
sjá meira til hans.
ÞÓRSARAR frá Akureyri standa
vel að vígi gegn Tindastóli í átta liða
úrslitum Kjörísbikarkeppninnar í
körfuknattleik eftir að þeir unnu
fyrri leik liðanna á Akureyri í gær-
kvöld, 96:82. Þeir fara því með 14
stiga forskot í síðari leikinn sem
verður á Sauðárkróki annað kvöld.
STEVIE Johnson skoraði 35 stig
fyrir Þórsara í gærkvöld og þeir
Einar Aðalsteinsson og Óðinn Ás-
geirsson gerðu 21 stig hvor. Bryan
Lucas skoraði 16 stig fyrir Tindastól
og þeir Kristinn Friðriksson, Helgi
Freyr Margeirsson og Lárus Dagur
Pálsson gerðu 11 stig hver.
HK-INGAR munu fjölmenna á síð-
ari leik HK og Porto í Evrópukeppni
bikarhafa í handknattleik sem fram
fer í Portúgal 18. nóvember. Nú eru
aðeins um 25 sæti eftir af tæplega
150 í leiguvél sem flytur liðið og
stuðningsmenn þess til Portúgal.
KRISTINN Björnsson var Nor-
egsmeistari með Vålerenga í Noregi
1981, en ekki 2001 eins og misritaðist
á korti sem sýndi þá Íslendinga sem
hafa verið meistarar með liðum víðs
vegar um Evrópu.
ÍSLENDINGALIÐIÐ Stabæk
leikur fyrir hönd Noregs í UEFA-
bikarnum í knattspyrnu næsta
haust. Þetta kom á daginn þegar
Viking varð norskur bikarmeistari
um helgina en þar með var röðin
komin að Stabæk, sem varð í fjórða
sæti úrvalsdeildarinnar. Með Sta-
bæk leika Tryggvi Guðmundsson,
Marel Baldvinsson og Pétur Mar-
teinsson en reyndar er enn óljóst
hvort Pétur verði áfram hjá félaginu.
LEE Bowyer, miðvallarleikmaður
Leeds, mun ekki leika með liðinu
næstu fjórar til fimm vikurnar. Hann
meiddist á læri í leik við Tottenham
um sl. helgi. Það er því ljóst að Seth
Johnson, sem Leeds er nýbúið að
kaupa frá Derby, taki sæti hans.
NOKKRIR leikmenn landsliðs
Ástralíu hafa hótað að leika ekki
landsleikinn gegn Frökkum á
sunnudaginn, nema að ástralska
knattspyrnusambandið borgi þeim
bónusa, sem þeim var lofað.
ADRIAN Mihalcea, sóknarleik-
maður rúmenska liðsins Dinamo
Búkarest, bjargaði lífi manns á
knattspyrnuvellinum í þriðja skipti
sl. sunnudag, þegar lið hans lagði
Steaua, 2:0. Þá kom hann í veg fyrir
að mótherji hans kafnaði með því að
gleypa tunguna – er hann féll á völl-
inn. Í sumar bjargaði hann félaga
sínum á sama hátt og fyrir þremur
árum kom hann línuverði til hjálpar.
DANSKI landsliðsmaðurinn
Thomas Gravesen, leikmaður með
Everton, er eftirsóttur. Hamburger,
Newcastle og Aston Villa hafa
áhuga að næla sér í miðjumanninn.
CARLTON Palmer, fyrrverandi
landsliðsmaður Englendinga í
knattspyrnu, hefur tekið við knatt-
spyrnustjórn hjá Stockport. Félagið
er neðsta sæti 1. deildar. Palmer
hefur síðustu mánuði leikið með
Sheffield Wednesday.
GRÍSKI landsliðsmaðurinn Ange-
los Haristeas, 22 ára sóknarleikmað-
ur hjá Aris Saloniki, er á leiðinni til
Ipswich, fyrir rúmlega þrjár millj-
ónir punda.
LOUIS van Gaal, landsliðsþjálfari
Hollands, sagði í gær að hann muni
láta af störfum sem þjálfari hol-
lenska liðsins í janúar. Van Gaal,
sem þjálfaði Ajax og Barcelona á ár-
um áður, tók við hollenska liðinu eft-
ir EM 2000. Undir hans stjórn náðu
Hollendingar ekki að tryggja sér
sæti á HM næsta sumar.
FÓLK
ÚRSLIT
H
a
le
o
g
þ
ó
ja
e
h
f
u
fj
s
f
f
ú
b
þ
s
s
s
ly
g
t
v
v
K
h
e
o
m
S
a
g
ARON Kristjánsson, leik-
stjórnandi Hauka, verður að
hvíla sig á handknattleik
næstu tvær vikurnar vegna
veikinda og verður því ekki
með liðinu er það mætir
Barcelona á Spáni um
helgina.
Haukar hafa því fengið
Óskar Ármannsson til að
fylla skarð Arons á meðan
hann jafnar sig og verður
Óskar með Haukum er þeir
taka á móti Selfyssingum í
deildinni í kvöld.
Viggó Sigurðsson, þjálfari
Hauka, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi að
hann vonaðist til að Aron
yrði tilbúinn þegar Haukar
taka á móti Barcelona að Ás-
völlum en liðin leika seinni
leik sinn þar 17. nóvember.
Óskar hefur verið einn
lykilmanna Hauka und-
anfarin ár en hann ákvað að
leggja skóna á hilluna síð-
asta vor eftir að hann varð
Íslands- og bikarmeistari
með Hafnarfjarðarliðinu.
Hann tók við þjálfun Fjölnis í
sumar og hugðist stjórna
Grafarvogsbúum í 1. deild-
inni í vetur en þeir drógu lið
sitt úr keppni á síðustu
stundu.
Óskar í
stað
Arons
MAGNÚS Sigurðsson, handknatt-
leiksmaður úr Stjörnunni, braut
fingur á tveimur stöðum í síðasta
landsleik Íslands og Noregs í Laug-
ardalshöllinni á sunnudagskvöldið.
Þar með er ljóst að hann leikur
ekki meira til áramóta og missir því
af næstu átta leikjum Stjörnunnar í
1. deildinni. Þá gætu meiðslin kom-
ið í veg fyrir að Magnús leiki með
landsliðinu í úrslitum Evrópu-
keppninnar í Svíþjóð í janúar.
Magnús er örvhent skytta og
braut fingur vinstri handar en hann
gekkst undir aðgerð í gærmorgun.
Magnús leysti Ólaf Stefánsson af í
stöðu skyttunnar hægra megin og
gerði eitt mark í fyrsta og öðrum
landsleiknum við Norðmenn en í
þeim síðasta, þegar Ólafur var ekki
með, skoraði Magnús sjö mörk.
„Þetta er mikið áfall fyrir okkur
því Magnús er okkar elsti og
reyndasti maður. Meðalaldurinn í
liðinu lækkar mikið við að missa
hann úr okkar kornunga hópi en
það kemur maður í manns stað,“
sagði Sigurður Gunnarsson, þjálfari
Stjörnunnar, við Morgunblaðið í
gærkvöld.
Magnús frá
til áramóta
STOKE City missti í gærkvöld af
góðu tækifæri til að komast í annað
sæti ensku 2. deildarinnar í knatt-
spyrnu þegar liðið gerði jafntefli, 2:2,
við Blackpool á útivelli. Stoke náði
tveggja marka forystu um miðjan
síðari hálfleik þegar Chris Iwelumo
skoraði tvö mörk á þremur mínútum.
Blackpool náði að jafna metin 9 mín-
útum fyrir leikslok. Stoke er því með
33 stig en Brentford er efst með 37
stig og Brighton er með 35 en hefur
leikið einum leik meira en hin tvö.
Stoke og Brentford mætast á laug-
ardaginn kemur.
Bjarni Guðjónsson og Brynjar
Björn Gunnarsson léku báðir allan
leikinn með Stoke í gærkvöld. Lið
þeirra er nú ósigrað í síðustu níu
deildaleikjum sínum, hefur unnið 7
og gert 2 jafntefli, og þetta var í
fyrsta skipti í 12 deildaleikjum sem
Stoke fær á sig meira en eitt mark í
leik.
Stoke missti
niður forskotið