Morgunblaðið - 07.11.2001, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 2001 B 3
FÓLK
DANIEL Passarella, fyrrverandi
landsliðsþjálfari Argentínu – og fyr-
irliði Argentínumanna er þeir urðu
heimsmeistarar 1978 í Argentínu,
var í gær ráðinn þjálfari ítalska liðs-
ins Parma. Hann tekur við starfi
Renzo Ulivieri, sem hætti í sl. viku.
Um tíma leit allt út fyrir að Carlo
Ancelotti tæki við stjórninni, en þeg-
ar hann var ráðinn til AC Milan, var
Passarella ráðinn.
ÞÝSKI miðherjinn Uwe Rosler,
sem er í láni hjá WBA frá Southamp-
ton, er tilbúinn að leika áfram með
liðinu – skrifa undir tveggja ára
samning. Rosler, sem er 32 ára, skor-
aði sigurmark liðsins gegn Nott. For-
est um sl. helgi, 1:0.
FRANSKI markvörðurinn Richard
Dutruel, sem Bolton hefur verið að
reyna að fá til sín, fær ekki grænt ljós
hjá Barcelona til að yfirgefa liðið.
NORSKI markvörðurinn Thomas
Myhre, sem hefur verið í herbúðum
Everton, hefur rætt við forráðamenn
tyrkneska liðsins Besiktas. Everton
vill fá 500 þús. pund fyrir Myhre.
STOKE hefur fengið framherjann
Allan Smart að láni frá enska 1.
deildar liðinu Watford. Smart er 27
ára gamall og kemur til Stoke frá
skoska úrvalsdeildarliðinu Hibernian
en þar var hann í láni í þrjá mánuði.
MORTEN Olsen, landsliðsþjálfari
Dana í knattspyrnu, er mjög óhress
með þá ákvörðun FIFA að hann geti
ekki fengið Thomas Helveg og Mart-
in Laursen frá AC Milan í vináttu-
landsleikinn við Hollendinga á laug-
ardaginn. FIFA segir að Milan sé í
fullum rétti að meina leikmönnum að
spila enda hafi þeir tekið þátt í sjö
vináttulandsleikjum á árinu.
PATRIK Andersson, varnarmaður
Barcelona, sem varð Evrópumeistari
með Bayern München, hefur verið
útnefndur knattspyrnumaður ársins í
Svíþjóð – einnig besti varnarmaður-
inn.
HENRIK Larsson, Celtic, var út-
nefndur besti sóknarleikmaður Svía
og Fredrik Ljungberg, Arsenal,
besti miðvallarleikmaðurinn. Besti
þjálfarinn var kjörinn Sören Cratz,
Hammarby, og þá fékk Sven Göran
Ericsson, landsliðsþjálfari Englands,
séstaka viðurkenningu fyrir sitt
framlag að knattspyrnunni.
FRANSKI landsliðsmaðurinn
Emmanuel Petit, Chelsea, fer ekki
með franska landsliðinu til Ástralíu
þar sem hann er meiddur á ökkla.
THIERRY Henry, miðherji Arsen-
al, fer líklega heldur ekki til Ástralíu.
Hann mun fara í læknisskoðun í dag
áður en franska landsliðið heldur til
Ástralíu. Henry meiddist á ökkla í
leik Arsenal og Charlton.
MICHAEL Bridges, sóknarleik-
maður Leeds, sem hefur ekki leikið
með liðinu frá því í september 2000,
mun ekki leika með Leeds í vetur
vegna hnémeiðsla. Hann er að fara í
aðra hnéaðgerð – til læknis í Banda-
ríkjunum, sem skar Alan Shearer og
Ruud Van Nistelrooy upp með góð-
um árangri.
SVO virðist vera að kaupæði sé
runnið á Gordan Strachan, nýja
knattspyrnustjórann hjá Southamp-
ton. Hann hefur haft samband við
Nottingham Forest og spurt hvort
fyrirliði liðsins, Chris Bart-Williams,
sé til sölu og þá er hann tibúinn að
kaupa David Wetherall frá Brad-
ford.
NANNE Bergstrand var í gær vik-
ið úr starfi þjálfara sænska úrvals-
deildarliðsins Helsingborg. Brott-
reksturinn kemur í kjölfar ósigurs
Helsingborg á móti Hermanni Hreið-
arssyni og félögum hans í Ipswich í
UEFA-keppninni í síðustu viku og
eins voru forráðamenn liðsins allt
annað en ánægðir við nýliðið tímabil í
Svíþjóð þar sem Helginsborg hafnaði
í fimmta sæti.
SÖREN Cretz mun taka við liði
Helsingborg en hann gerði lið
Hammarby að meisturum á dögun-
um í fyrsta sinn í 107 ára sögu félags-
ins.
GUÐNI Bergsson og félagar hans í
enska úrvalsdeildarliðinu Bolton eru
komnir til Spánar, nánar til tekið til
Marbeilla sem er á suðurströnd
Spánar. Boltoekki að leika fyrr en
18. nóvember og því ákvað knatt-
spyrnustjórinn, Sam Allardyce, að
halda suður á bóginn með lærisveina
sína.
„Mér fannst upplagt að fara með
liðið til Spánar. Ég vill gefa mönnum
aðeins frí frá knattspyrnunni. Við
tökum léttar æfingar en fyrst og
fremst fá leikmenn að hvíla sig í
nokkra daga eftir mikla törn og ég
er viss um að einhverjir þeirra reyna
fyrir sér á golfvellinum,“ sagði Alla-
dyce en hans menn mæta Hermanni
Hreiðarssyni og samherjum hans í
Ipswich um aðra helgi.
Gestirnir byrjuðu betur, gerðufyrstu þrjú mörkin og fyrsta
mark heimamanna kom ekki fyrr en
eftir rúmar sjö mín-
útur. Fram tókst að
jafna, 4:4, og komust
síðan yfir í fyrsta
sinn er 8 mínútur
voru til leikhlés, 8:7. Þegar Fram
hafði 11:8 yfir fannst Valdimari
Grímssyni, þjálfara HK nóg komið
og tók leikhlé en er þrjár mínútur
voru eftir og staðan 12:9 misstu
heimamenn tvo leikmenn útaf með
nokkurra sekúndna millibili. Það
tókst HK ekki að nýta sér, Valdimar
rétti Sebastían Alexanderssyni bolt-
ann er hann fór inn úr horninu og
dæmd var ólögleg hindrun á sókn-
armann HK í næstu sókn en Fram
skoraði í millitíðinni og gestirnir
misstu mann útaf fyrir mótmæli.
Staðan 13:9 í leikhléi.
Fyrsta mark síðari hálfleiks var
heimamanna og staða þeirra orðin
vænleg. En HK-menn gáfust ekki
upp og hægt og bítandi minnkuðu
þeir muninn og þegar tíu mínútur
voru eftir náðu þeir að jafna 19:19 og
skömmu síðar komust þeir yfir 21:20
eftir að hafa gert sjö mörk gegn
tveimur á ellefu mínútna kafla.
Valdimar komst síðan í gegn en Se-
bastían varði vel og Fram jafnaði úr
hraðaupphlaupi. Síðan var jafnt á öll-
um tölum en Fram náði 23:22 og síð-
an 24:23 en HK jafnaði í lokin.
Leikurinn sem slíkur var ekki ýkja
burðugur en þó sáust ágætir kaflar
hjá einstaka leikmönnum. Bæði lið
hafa þokkalega leikmenn í flestum
stöðum í byrjunarliðinu en miðað við
hvernig skipt var inn á hjá félögun-
um í gær eru þau ekki með mjög
sterka leikmenn á bekknum. Fram-
arar notuðu svo til sama liðið í sókn-
inni allt þar til tólf mínútur voru liðn-
ar af síðari hálfleik og ljóst að þeir
voru að missa niður góða forystu.
Á þeim tíma þegar HK var að
vinna upp forystu heimamanna í síð-
ari hálfleik færði Valdimar sig fram
fyrir vörnina og truflaði sóknarleik
Fram en bæði lið höfðu leikið flata
vörn. Skömmu síðar, eða þegar HK
var komið yfir, brugðu Framarar
loks á það ráð að setja mann til höf-
uðs Jaliesky Garcia, sem virtist geta
skorað þegar hann langaði til.
Sóknarleikur Fram er mjög tilvilj-
anakenndur og hver sókn stendur
lengi án þess að mikið sé í raun að
gerast. Vörnin var hins vegar lengst
af sterk, sérstaklega í fyrri hálfleikn-
um, og að baki henni var Sebastían í
miklu stuði. Vörnin opnaðist þó
nokkrum sinnum alveg upp á gátt.
Róbert Gunnarsson var besti maður
Fram og hljóta félagar hans að vera
ánægðir með að hann er orðinn heill
á ný. Björgvin Björgvinsson efldist í
sókninni er á leið leikinn.
Hjá HK var Garcia sterkur í sókn-
inni og hún gekk í sjálfu sér ágæt-
lega og mun betur en sóknartilburðir
Fram. Kópavogsliðið var lengst af að
vinna upp góða forystu Fram og
mikil orka fór í það en þeim tókst
ekki að halda rétt á spilunum eftir að
þeir náðu forystu á ný og verða því
að sætta sig við eitt stig.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Vilhelm Gauti Bergsveinsson var fyrrverandi félögum sínum í Fram erfiður í gær. Guðlaugur Arn-
arsson og Ingi Þór Guðmundsson reyna að stöðva hann. Ólafur Víðir Ólafsson er tilbúinn í frákastið.
Þriðja jafnteflið
ÞAÐ ætlar að ganga erfiðlega hjá Fram að vinna sinn fyrsta sigur á
Íslandsmótinu. Í gær heimsótti HK Safamýrarliðið og niðurstaðan
varð 24:24, þriðja jafntefli Fram í sjö leikjum og annað jafntefli
Kópavogsliðsins.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Bolton í fríi á Spáni
HEIÐMAR Felixson, vinstrihand-
arskytta KA-manna í handknattleik,
eikur ekki með sínum mönnum í bráð
og væntanlega verður hann fjarri góðu
gamni með íslenska landsliðinu þegar
það tekur þátt í úrslitakeppni Evr-
ópumótsins í Svíþjóð sem hefst í lok
anúar.
Heiðmar er meiddur í vinstri öxl. Sin
er trosnuð eða rifin og líklega þarf
hann að gangast undir uppskurð til að
fá bót meina sinna. Verði það nið-
urstaðan þarf Heiðmar að hvíla í allt að
fjóra mánuði en þó svo að ekki þurfa að
skera í öxlina er ljóst að hann verður
frá handboltaiðkun næstu vikurnar.
„Heiðmar var sprautaður í öxlina
fyrir tíu dögum og læknarnir vildu bíða
út þessa viku með að sjá hvort einhver
bati hefði átt sér stað. Ef svo er ekki
þarf hann að fara í uppskurð og mér
sýnist allt stefna í það því hann er mjög
slæmur. Það er auðvitað skelfilega
slæmt að missa Heiðmar sem á gegna
ykilhlutverki í sókn og vörn. Ég er að
gæla við að fá hann aftur í slaginn eftir
vo mánuði en ef allt fer á versta veg
verður hann varla með okkur fyrr en í
vor,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari
KA, í samtali við Morgunblaðið.
Óheppnin hefur elt lærisveina Atla
hvað meiðslin varðar. Heimir Árnason
er nýstiginn upp úr erfiðum meiðslum
og lék sinn fyrsta leik á tímabilinu á
móti Aftureldingu í gær en fyrirliðinn
Sævar Árnason er enn á sjúkralist-
anum eftir að hafa gengist undir að-
gerð á öxlinni í sumar.
Heiðmar fer
líklega í
uppskurð
ÍÞRÓTTIR