Morgunblaðið - 07.11.2001, Side 4
SVEN Göran Eriksson, landsliðs-
þjálfari Englands, hefur kallað á
Kevin Phillips, sóknarleikmann
Sunderland, í 26 manna landsliðs-
hóp sinn fyrir vináttulandsleik
Englands og Svíþjóðar á laugar-
daginn. Þá eru þeir Alan Smith,
Leeds, Darren Anderton, Totten-
ham og Chris Powell, Charlton,
komnir á ný í hópinn eftir meiðsli.
ROQUE Santa Cruz, sóknarleik-
maður Bayern München, verður
frá keppni í sjö vikur. Hann meidd-
ist á hné í leik gegn Santa Cruz, 20
ára, sem hefur skorað fimm mörk
fyrir Bæjara í deildakeppninni í
vetur, verður með fótinn í gifsi í
tvær vikur.
LOUIS Van Gaal, landsliðsþjálf-
ari Hollands, hefur valið landsliðs-
hóp sinn, sem mætir Dönum á
Parken. Markverðir eru Edwin
van der Sar, Fulham og Moens,
AZ. Varnarmenn Melchiot,
Chelsea, Reiziger, Barcelona,
Frank de Boer, Barcelona, Stam,
Lazio og, Van Bronckhorst, Arsen-
al.
MIÐJUMENN hollenska liðsins
eru Landzaat (Willem II), Boateng
(Aston Villa), Kluivert (Barcelona),
Ronald de Boer (Rangers), Seedorf
(Inter) og Davids (Juventus). Sókn-
armenn eru Makaay (Deportivo La
Coruna), Hasselbaink (Chelsea),
Zenden (Chelsea), Van Nistelrooy
(Man. Utd) og Van Hooijdonk
(Feyenoord).
ROY Keane verður með írska
landsliðinu sem leikur gegn Íran
um laust sæti á HM sem fram fer í
Japan og S-Kóreu á næsta ári.
Manchester United leikmaðurinn
hefur verið meiddur á hné að und-
anförnu en forráðamenn írska
landsliðsins segja að fyrirliði liðsins
sé staðráðinn í að leika á laug-
ardaginn í Dyflinni. Síðari leikur
liðanna verður miðvikudaginn 14.
nóvember í Íran.
VINNIE Jones, knattspyrnu-
kappinn gamalkunni sem hefur
reynt fyrir sér sem kvikmyndaleik-
ari, hefur tekið fram skóna á nýjan
leik. Hann ætlar að leika með
enska 3. deildar liðinu Carlisle.
COLIN Todd, knattspyrnustjóri
Derby, hefur áhuga á að fá franska
bakvörðinn, Francois Grenet, frá
Bordeaux til reynslu. Gerist það þá
verður Grenet þar með fimmti leik-
maður sem Todd fær til liðsins eftir
að hann tók við Derby á dögunum.
GRENET hefur verið í herbúðum
Bordeaux í sex ár en vill gjarnan
komast í burtu og þá er England
efst á óskalistanum. Hann hefur áð-
ur verið til reynslu hjá Middles-
brough og Sunderland.
LAMAR Odom var í gær úr-
skurðaður í 5 leikja bann af for-
svarsmönnum NBA-liðsins LA
Clippers þar sem hinn 22 ára gamli
framherji hafði fallið á lyfjaprófi.
Odom var valinn fjórði í röðinni í
háskólavalinu í körfuknattleik árið
1999 en í mars á þessu ári var hann
úrskurðaður í 4 leikja bann þar
sem hann féll þá einnig á lyfjaprófi.
Forsvarsmenn NBA-deildarinnar
vilja ekkert segja nánar um hvaða
lyf var um að ræða en fréttastofur
vestanhafs leiða að því líkum að um
kannabisefni hafi verið að ræða.
NORSKI spjótkastarinn Pål
Arne Fagernes var handtekinn 2.
nóvember sl. í Ósló þar sem hann
varð uppvís að notkun eiturlyfja.
Fagernes hefur á undanförnum
mánuðum átt í margvíslegum
vandamálum og mætti m.a. ölvaður
í sjónvarpsviðtal rétt fyrir HM í
frjálsum íþróttum sem haldið var í
Edmonton í Kanada. Frjálsíþrótta-
samband Noregs mun líklegast
dæma hinn 27 ára gamal Fagernes
í allt að tveggja ára keppnisbann.
FÓLK
Á síðasta tímabili voru liðin fjög-ur sem kepptu á Íslands-
mótinu, félögin þrjú sem nefnd eru
hér að ofan og lið ÍS, sem ætlar ekki
að senda lið til leiks í ár. Ekki er
betra ástandið hjá körlunum og allt
útlit er fyrir að liðunum fækki um
tvö frá síðustu leiktíð. KA og Þrótt-
ur Nes. senda ekki lið á Íslandsmót-
ið í ár og eftir standa því aðeins ÍS,
Þróttur R. og Stjarnan.
Blakáhugamenn sem Morgun-
blaðið ræddi við í gær lýstu yfir
miklum áhyggjum af stöðu íþrótt-
arinnar og einn þeirra er Petrún
Jónsdóttir, formaður blakdeildar
Þróttar í Neskaupstað. Petrún hef-
ur verið prímusmótorinn í geysilega
öflugu blakstarfi í Neskaupstað þar
sem blakíþróttin hefur lifað góðu lífi
mörg undanfarin ár.
Ekkert yngriflokkastarf
„Þetta er búið að valda okkur fyr-
ir austan miklu hugarangri í haust
og auðvitað hef ég áhyggur af gangi
mála. Mér finnst sorglegt að það
skuli bara standa eftir þrjú lið sem
ætla að vera með í karla- og kvenna-
flokki á Íslandsmótinu. Það hefur
einfaldlega ekki verið neitt yngri-
flokkastarf hjá mörgum félögum og
þau eru að að fá það í bakið núna og
eins hefur engin útbreiðsla verið á
blakíþróttinni. Þó finn ég fyrir
neista á landsbyggðinni og ég veit
að yngriflokkastarf er að hefjast á
nokkrum stöðum. Við vitum ekkert
hvernig staðið verður að keppni hjá
yngri flokkunum í ár. Blaksamband-
ið hefur ekkert látið í sér heyra um
það og meðan yngriflokkastarfið er
ekki betra í landinu en raun ber
vitni er ekki von á góðu og íþróttin
sjálfdauð ef ekki úr rætist,“ sagði
Petrún við Morgunblaðið.
Petrún segist hafa lagt fram til-
lögu um að keppnin í 1. deild kvenna
fari fram með þeim hætti í vetur að
félögin keppi á tveimur fjölliðamót-
um um helgi fyrir áramót og eftir
áramót verði deildin spiluð heima og
að heiman og tvö efstu liðin leiki til
úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.
„Það er margt fólk úti um allt
land sem leggur stund á blakið. Öld-
ungamótin hafa verið gríðarlega
vinsæl og ég vil sjá allt þetta fólk
sem stundar þessa skemmtilegu
íþrótt koma og starfa fyrir blak-
íþróttina. Það eru allt of fáir sem
gefa sig í þetta og starfið hjá félög-
unum liggur á herðum sama fólksins
ár eftir ár.“
Petrún segir að það hafi verið sárt
að geta ekki sent karlalið til leiks að
þessu sinni og útlitið sé ekki bjart
því fáir strákar æfi blak hjá félag-
inu.
„Þó svo að ástand íþróttarinnar sé
ekki glæsilegt um þessar mundir er
ég langt frá því að gefast upp. Blak-
ið er skemmtileg íþrótt sem mjög
margir hafa gaman af og stunda vítt
og breitt um landið og ég vona að
allt þetta fólk spyrni nú við fótum og
auki veg og virðingu blaksins.“
Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson
Hávörn hjá Þrótti Nes. í leik gegn ÍS í kvennaflokki sl. keppnistímabil.
Blak á undir
högg að sækja
BLAKÍÞRÓTTIN á Íslandi stend-
ur mjög höllum fæti um þessar
mundir og allt útlit er fyrir að
einungis þrjú lið verði með á Ís-
landsmótinu í ár í karla- og
kvennaflokki. Eins og fram kom
í Morgunblaðinu í gær hefur
stjórn blaksambandsins auglýst
eftir liðum til þátttöku í 1. deild
kvenna en þrjú lið skráðu sig til
leiks – Þróttur Nes., KA og Vík-
ingur.
SVISSLENDINGAR, sem leika í
sama riðli og Íslendingar í Evr-
ópukeppni landsliða í Svíþjóð í
handknattleik ásamt Spánverjum
og Slóvenum, gerðu góða ferð til
Portúgals um síðustu helgi. Sviss-
lendingar léku þar tvo landsleiki og
fögnuðu sigri í þeim báðum, sem
sýnir að þeir eru með sterkt lið.
Sviss vann fyrri leikinn 28:22 og
fór þá gamli foringinn Robbie Kost-
adinovich á kostum og skoraði átta
mörk. Skyttan Mark Baumgarther
skoraði þrjú mörk.
Svisslendingar fylgdu sigrinum
svo eftir með því að kjöldraga
heimamenn í seinni leiknum á
sunnudaginn með tíu marka sigri –
27:17. Stefan Massa skoraði þá sjö
mörk, Baumgarther fimm.
Portúgalar leika í riðli með Rúss-
landi, Danmörku og Ísrael í EM í
Svíþjóð, sem hefst 25. janúar.
Íslendingar mæta Spánverjum í
fyrsta leik, síðan Slóvenum laug-
ardaginn 26. janúar og Svisslend-
ingum sunnudaginn 27. janúar.
Þrjár þjóðir komast upp úr riðla-
keppninni og ef Ísland kemst í milli-
riðil verða mótherjarnir Frakkar,
Þjóðverjar, Júgóslavar eða Króatar.
Sigurför
Sviss til
Portúgals
SÆNSKA frjálsíþróttakonan
Ludmilla Engquist hefur við-
urkennt að hafa notað stera-
lyf í undirbúningi sínum fyr-
ir Ólympíuleikana í Salt
Lake City í Bandaríkjunum á
næsta ári. Þar ætlaði Ludm-
illa að taka þátt í bobsleða-
keppni en hún er fyrrverandi
heims- og ólympíumeistari í
100 metra grindahlaupi.
Ludmilla segir í viðtali við
Aftonbladet að lyfjapróf hafi
verið gert í Lillehammer í
Noregi fyrir nokkrum vikum
þar sem sænska landsliðið
dvaldi við æfingar. Ludmilla
er fyrrverandi landsliðs-
maður frá Rússlandi og ætl-
aði að ljúka keppnisferli sín-
um í Salt Lake City. Í
viðtalinu segir Ludmilla að
hún hafi reynt að svipta sig
lífi á Spáni fyrir skemmstu
þar sem hún hafi farið á bak
við eiginmann sinn og félaga
í sænska landsliðinu. Svíar
bundu miklar vonir við að
bobsleðalið þeirra gæti unn-
ið gull á ÓL og um 60 millj-
ónum ísl. kr. hafði verið var-
ið í undirbúning liðsins.
Þetta er ekki í fyrsta sinn
sem Ludmilla er tekin fyrir
ólöglega lyfjanotkun. Árið
1993 var hún dæmd í keppn-
isbann en þá keppti hún fyrir
Rússland. Tveimur árum síð-
ar var hún tekin af tolla-
yfirvöldum í Malmö í Svíþjóð
þar sem sterar fundust í far-
angri hennar.
Engquist
játar
sekt sína