Morgunblaðið - 07.12.2001, Side 6
DAGLEGT LÍF
6 B FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SPÁDÓMSGÁFA OddnýjarSen hefur ekki farið hátt, aðminnsta kosti ekki hér álandi. Hún er þekktari fyrir
ritstörf og þekkingu sína á kvik-
myndum. Oddný hefur hins vegar
rekið „spástofu“ í London og í París
á hún fasta viðskiptavini, sem vilja
láta hana segja fyrir um framtíðina.
„Þetta hefur fylgt mér frá barns-
aldri,“ segir hún um spádómsgáfuna
og áhuga sinn á hinu yfirskilvitlega.
„Ég hef aldrei óttast hið dulræna.
Þetta er mér í blóð borið.“
Í nýútkominni skáldsögu eftir
Oddnýju, Medúsan, kemur dul-
hyggjan berlega í ljós. Strax í fyrsta
kafla er söguhetjan María farin að
spá fyrir bróður sínum:
„Ertu til í að spá fyrir mér?“
spurði Igor.
„Ég skal reyna,“ sagði ég hikandi.
Hafsteini miðli hafði ekki tekist að
þurrka út spádómsgáfuna sem ég
hafði fengið í vöggugjöf þótt mamma
hefði farið með mig til hans í því
augnamiði, því einstaka sinnum sá
ég inn í framtíðina, pabbi hafði oft á
orði að þá hæfileika hefði ég erft frá
móður hans...“
Að sögn Oddnýjar er hér ekki um
sjálfsævisögu að ræða heldur skáld-
sögu byggða á minningum og fjör-
ugu hugarflugi. „Þetta er fyrst og
fremst þroskasaga sem er sögð eins
og ævintýri fyrir fullorðna. Eins og
oft er í ævintýrum koma fyrir óhugn-
anleg atvik og óttavekjandi, en þau
eru einungis táknræn. Söguhetjan
María er elt gegnum lífið af óhugn-
anlegum tvífara og síðan kemur í ljós
að þessi tvífari er hluti af henni
sjálfri og hluti af fortíð sem hún þarf
að gera upp. Eins er með þá karl-
menn sem hún hittir og verður ást-
fangin af. Þeir koma ekki vel fram
við hana og hún eyðir þeim með hug-
arorkunni. Þegar María kemst að því
að hún hefur ekki náð að sættast við
skuggann í sál sinni breytist fram-
vinda sögunnar. Hún kynnist manni
sem er líka tvífari hennar og lesend-
ur geta túlkað söguna á tvennan
hátt, hvort þetta sé rómantísk ást-
arsaga eða hvort þetta sé uppgjör
Maríu við sjálfa sig,“ sagði Oddný og
bætti við: „Þetta er eins konar töfra-
raunsæi vegna þess að sagan er sögð
í formi drauma og spádóma og hún
gerist líka á himneskum svæðum þar
sem María ræðir við elskhuga sinn.
Hún er að segja honum sögu sem
gerist á jörðinni, í Reykjavík frá
1975 og síðan í París, Madríd og
Feneyjum á áttunda og níunda ára-
tugunum. Þetta eru allt staðir sem
ég hef búið á og sagan er að hluta til
byggð á minningum mínum þaðan.“
Áhrif frá ömmu og afa
„Sem krakki varð ég fyrir miklum
áhrifum frá ömmu minni og afa, Sig-
urlaugu Margréti Jónasdóttur og
Jónasi Þorbergssyni, fyrsta útvarps-
stjóranum, en þau voru bæði spírit-
istar og unnu mikið með Hafsteini
miðli. Hús þeirra var eins og „hús
andanna“ þar sem borð og stólar
lyftust upp og það var útskýrt fyrir
mér sem hræringar að handan og að
ég þyrfti ekki að óttast það. Þetta
væri bara hluti af raunveruleikan-
um. Áhuga minn á hinu dulræna má
einnig rekja til þess að þegar ég var
krakki var fjölskyldan mikið úti á
Spáni, en landið laut þá stjórn ein-
ræðisherrans Francos. Undir slíku
stjórnarfari eru oft miklar hræring-
ar undir niðri í öllu þjóðfélaginu.
Fólk þorir ekki að segja skoðun sína
opinberlega eða setja sig upp á móti
stjórnvöldum, en þess í stað kraum-
ar dulhyggja undir niðri og það var í
raun og veru mikið ævintýri að upp-
lifa það. Ég tók eftir því að margir
karlmenn spiluðu á tarrot-spil og
ennfremur kynntist ég sígaunum,
sem bjuggu í tjaldvögnum í grennd-
inni þar sem við vorum í Granada.
Þeir sýndu mér tarrot-spilin og op-
inberuðu fyrir mér leyndardóma
þeirra. Þá vaknaði áhugi minn á tar-
rot-spilum og síðan hef ég haft spá-
dóma sem tómstundagaman, en hef
að vísu haft misjafnlega mikinn tíma
til að sinna þessu áhugamáli mínu.“
Oddný kvaðst hafa sett spástofu á
laggirnar þegar hún var búsett í
London og þar gekk hún undir nafn-
inu Madame Zarrucha. „Ég þóttist
vera rússnesk spákona og mér gekk
mjög vel í þessu hlutverki,“ sagði
hún. „Eitt sinn spáði ég fyrir þel-
dökkri konu að hún myndi brátt
verða ófrísk, en hún þvertók fyrir að
það myndi nokkurn tíma verða.
Hún varð hálfreið út í mig fyrir að
bera þessa vitleysu á borð. Hún væri
bæði á pillunni og lykkjunni og það
kæmi ekki til greina að fara að eign-
ast barn. Nokkrum mánuðum síðar
stoppaði hún mig á götu, á Kings
Road, og þá var hún kasólétt og virt-
ist bara hin ánægðasta með lífið og
tilveruna og þakkaði mér fyrir að
hafa komið þessari atburðarás af
stað. Konan kvaðst hafa látið orðróm
um spádómsgáfu mína berast út og
ég fékk mikil viðskipti bara út á
þessa einu spá.“
Spáð í spilin
Oddný sagðist ekki hafa haft mik-
inn tíma til að sinna spádómunum í
seinni tíð, en þó hefur hún gripið í
það af og til. Hún er með fyrrihluta
doktorsprófs í kvikmyndafræðum og
hefur starfað við Kvikmyndasafn Ís-
lands síðan 1995. Að auki hefur hún
verið önnum kafin við ritstörf hin
síðari ár. En til að kanna nánar spá-
dómsgáfuna var hún fengin til að spá
fyrir þremur manneskjum, konu um
þrítugt, konu á „besta aldri“ og mið-
aldra karlmanni. Fyrst rýndi hún í
fæðingardag, ár og tíma sólarhrings
sem viðkomandi var í heiminn bor-
inn. Þetta eru spádómar byggðir á
stjörnuspeki. Síðan tengdi spákonan
stjörnuspekina við spilaspádóma og
notaði tvenns konar spil, annars veg-
ar „búddisk tarrot-spil“ og hins veg-
ar frönsk spáspil, en uppskriftin að
þeim spádómum koma frá konu
einni, Madamoiselle Le Normandie,
sem var helsti ráðgjafi Napóleons
mikla, en hann tók engar hernaðar-
legar ákvarðanir nema að ráðfæra
sig við þessa spákonu. „Annars nota
ég hinar ólíkustu aðferðir við spá-
dómana,“ sagði Oddný. „Auk spil-
anna má nefna talnaspeki, teninga
og kínverska spápeninga, en sú að-
ferð hefur fylgt forfeðrum mínum í
margar aldir.“
Brennd fortíð
Spákonan setur sig í stellingar og
fyrst er það þrítuga konan sem dreg-
ur spil og hlýðir á „örlagadóminn“:
„Samkvæmt stjörnuspánni ert þú
á leið í ástarsamband. Mér finnst
maðurinn vera kominn í spilið, eða
þú þekkja hann nú þegar. Svo virðist
sem sambandið verði dálítið rysjótt
til að byrja með, svona sundur og
saman. Stjörnuspáin segir mér að
þetta ástarsamband verði komið á
fullan skrið sumarið 2002, en til að
byrja með veldur það þér töluverðu
hugarangri. Þið eruð bæði dálítið
brennd af fortíð, sérstaklega hann.
Hann hefur átt í erfiðleikum fjár-
hagslega. Raunar finnst mér þú líka
vera í hálfgerðu basli fjárhagslega,
akkúrat núna...“
„Ég er að kaupa mér íbúð,“ skýtur
sú þrítuga inn í, „þannig að þetta
getur vel passað.“
„Peningamálin verða hins vegar í
upprisu á næsta ári og þótt þetta
verði dálítið stressandi á tímabili
mun dæmið ganga upp.“
Eftir að spilin höfðu verið lögð
sagði spákonan að þau segðu ná-
kvæmlega það sama um ástarsam-
bandið sem væri í uppsiglingu.
Hún kvaðst ennfremur sjá
ferðalag á næsta ári: „Mér
finnst eins og þú og þessi
maður farið í langa
ferð, sennilega
til einhvers
Norður-
landanna, þar
sem hann þekkir
vel til, eða annað-
hvort ykkar
þekkir til þessara
slóða, ég átta mig
ekki alveg á
hvort ykkar það
er. Þetta verður
mjög skemmtileg ferð og ef að líkum
lætur mun samband ykkar verða
traustara eftir þessa ferð.“
Spákonan nefndi ýmislegt fleira,
eins og til dæmis breytingar á vinnu-
tilhögun og nána samvinnu við
ákveðinn karlmann á vinnustað.
Ennfremur sá hún einhvers konar
heimildarvinnu sem tengdist sjón-
varpsskjám. „Ég sé hérna marga
sjónvarpsskjái,“ sagði spákonan.
Ástarsambandið títtnefnda yrði þó
leiðandi kraftur í lífi þeirrar þrítugu
á næstu misserum.
Fallegt og ástríkt samband
Þá var röðin komin að konunni á
„besta aldrinum“:
„Stjörnuspáin segir mér að þú haf-
ir gengið í gegnum erfiðar breyting-
ar. Sólin er lífsorkan þín, en það er
eins og Satrúnus haldi henni aðeins
niðri. Það koma kvíðatímabil, það
koma fjárhagsáhyggjur, en þetta
stendur stutt yfir. Satrúnus er líka á
Venusi þínum og erfiðleikar í til-
finningamálum munu standa eitt-
hvað fram á næsta ár. En það sem
Satrúnus gerir líka, og fólki hættir
til að líta fram hjá, er að hann meitl-
ar og slípar og þegar upp er staðið
skilur hann alltaf eftir sig eitthvað
sem stendur upp úr. Þótt oft sé erfitt
að fara í gegnum þessi tímabil stend-
ur manneskjan oft sterkari á eftir.
Júlí 2002 verður mjög ánægjulegt
tímabil hjá þér. Þá er Júpíter í trínu
við sólina og Merkúr og Venus
tengdir þannig að það gætu orðið
skemmtilegar breytingar í tilfinn-
ingalífinu hjá þér. Þetta mun líka
deyfa áhrif Satrúnusar.
Ég sé líka breytingar á húsnæði,
en það þarf ekki að vera alveg strax.
Tíminn er mjög erfiður í öllum spá-
dómum og stundum ruglast hjá mér
nútíð og fortíð. En við skulum sjá
hvað spilin segja, dragðu tíu spil af
þessum,“ segir spákonan og réttir
fram spilastokkinn með frönsku spil-
unum. Spilin eru lögð og tarrot-spil-
in ennfremur stokkuð og dregin:
„Ég sé hér erfiðleika varðandi
ákveðinn mann. Ég veit hins vegar
ekki hvort þeir eru að baki eða
standa yfir núna, en mér finnst hafa
verið tilfinningaerfiðleikar. Ég sé
hins vegar rætast úr þessu og ef sú
er raunin að þú og þessi maður séuð
komin í fast samband eru þessir erf-
iðleikar áreiðanlega að baki. Þetta er
mjög fallegt og ástríkt samband.
Mér finnst þetta vera mjög sérstak-
ur maður sem þú ert í sambandi við,
hefur margt til brunns að bera. Mér
finnst eins og það eigi eftir að ríkja
mikil glaðværð í kringum ykkur eftir
að erfiðleikarnir eru yfirstignir.“
Spákonan kvaðst líka sjá einhverj-
ar sviptingar í peningamálum og
ennfremur að konan myndi líklega
fara í listnám af einhverju tagi og
skapandi starf fyrr en hana grunaði
og myndi það skila góðum árangri,
jafnvel í útlöndum. „Spilin styðja líka
stjörnuspádóminn um búferlaflutn-
inga fyrr en þú hafðir ætlað þér.“
Breyttur lífsstíll
„Af ykkur þremur finnst mér
mesta breytingin verða hjá þér á
næsta ári,“ segir spákonan þegar
karlmaðurinn og aldursforseti hóps-
ins sest hjá henni. „Ég vona bara að
þær verði ekki of róttækar því ég
kann ágætlega við tilveruna og lífið
eins og það er,“ svarar hann að
bragði. „Já, þér kann að finnast allt
með kyrrum kjörum og í föstum
skorðum, en það getur nú ýmislegt
gerst samt,“ segir spákonan og læt-
ur ekki slá sig út af laginu.
„Þessar breytingar eru tengdar
lífsorkunni þinni, starfinu, ástarmál-
um og þær eru tengdar búferlaflutn-
ingum. Mér finnst eins og rosalegir
kraftar leysist úr læðingi og gangi
með þér, og þetta byrjar allt á næsta
ári. Þú munt líklega gjörbreyta um
lífsstíl. Júpíter er í spennuafstöðu
við tunglið þangað til í ágúst 2002 og
það felur yfirleitt í sér að viðkomandi
færist allur í aukana. Hann gæti
bætt við sig húseign, þetta verður
góður tími til að kaupa. Ég er ekki að
segja að þú sért að fara að flytja að
heiman því þetta virðist allt vera af
jákvæðum toga.
Að vísu vil ég ekki draga fjöður yf-
ir að það verður dálítið erfitt hjá
ykkur hjónunum á tímabilinu júní til
september 2002. Hugsanlega brýst
þarna út spenna sem hefur verið
bæld undir yfirborðinu og mér finnst
hún brjótast fram á þessu tímabili,
en þetta er sterkt samband og það
mun halda og verða sterkara á eftir.
Ekki láta þetta stressa þig. Svo ertu
með Úranus í trínu við Venus á sama
tíma og það er eitthvert rómantísk-
asta og æðislegasta viðhorf sem um
getur.
Spilin segja mér að einhverjir erf-
iðleikar geti orðið eða hafi verið í
peningamálum, en mér finnst eins og
þú eigir eftir að leysa þau vandræði
og jafnvel fá óvæntan glaðning upp í
hendurnar og það gæti tengst þess-
um búferlaflutningum sem ég sá í
stjörnuspánni. Þessi breyting á lífs-
stíl kemur einnig fram í spilunum.
Hún mun ganga upp og þú verður
ánægðari með þessa breytingu en þú
heldur. Þú átt einnig eftir að fá upp-
fyllta einhverja ósk og ég bakka ekki
með að það er einhver húseign í spil-
unum.“
Svo mörg voru þau orð spákon-
unnar og öll þrjú voru sammála um
að ýmislegt gæti staðist í því sem
hún sagði um þeirra líf og horfurnar
í nánustu framtíð. Sú þrítuga taldi þó
afar ólíklegt að hún ætti í náinni
framtíð eftir að koma nálægt heim-
ildarvinnu fyrir sjónvarp. Konan á
„besta aldrinum“ var vantrúuð á að
hún myndi vekja athygli í útlöndum
fyrir skapandi vinnu eða listfengi, en
játaði að hugmyndin um listnám
hefði komið upp. Sá miðaldra var að
vonum afar ánægður með sína spá,
ekki síst „óvænta glaðninginn“, en
taldi samt útilokað að hann myndi
nenna að fara að vasast í búferla-
flutningum eða fasteignakaupum.
En maður á aldrei að segja aldrei.
Þau voru sammála um að tímasetn-
ingar á einstökum atburðum væru
óljósar og ónákvæmar enda hafði
spákonan lagt á það áherslu að í
svona spádómum væri erfiðast að
átta sig á hvort einstök atvik heyrðu
fortíðinni til eða nútíðinni. Hvað
framtíðina varðar væri hins vegar
víst að „enginn fengi flúið örlög sín“.
Óttast ekki
hið
Oddný Sen segir að
áhugi á dulrænum fyr-
irbærum sé sér í blóð
borinn enda hefur hún
oft fengist við að spá
fyrir um framtíð fólks.
Sveinn Guðjónsson
fylgdist með henni í
hlutverki spákon-
unnar og skráði nið-
urstöðuna.
Morgunblaðið/Sverrir
Oddný Sen í hlutverki spákonunnar.
svg@mbl.is
Auk spilanna má nefna
talnaspeki, teninga og
kínverska spápeninga
dulræna