Morgunblaðið - 19.12.2001, Qupperneq 1
2001 MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
BESTU KNATTSPYRNUMENN EVRÓPU FRÁ 1956 / C3
Gunnleifur á leið
til HK frá Keflavík
GUNNLEIFUR Gunnleifsson, sem hefur var-
ið mark Keflavíkur í úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu undanfarin tvö ár, hefur ákveðið að
leika með HK úr Kópavogi í 2. deild á næsta
tímabili. Félögin eiga eftir að ganga frá sam-
komulagi um félagaskiptin en að sögn Gunn-
leifs verður það gert á næstu dögum. HK
sigraði í 3. deildarkeppninni á síðasta tíma-
bili.
„Ég á ekki von á öðru en að þetta gangi
allt eftir og ég geti byrjað að spila með HK
strax á Íslandsmótinu innanhúss eftir ára-
mótin,“ sagði Gunnleifur við Morgunblaðið í
gær. Hann hefur lengst af leikið með HK en
spilaði með KR 1998–1999 og með Keflavík
síðustu tvö árin. Gunnleifur er 26 ára og hef-
ur leikið 3 A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
ÞAÐ verður sannkallaður stórleikur
á dagskrá í 8 liða úrslitum í EHF–
keppninni í handknattleik, en þýsku
liðin Kiel og Lemgo drógust saman
þegar dregið var í Evrópumótunum í
handknattleik í höfuðstöðvum evr-
ópska handknattleikssambandsins í
Vín í gær. Dráttur lítur þannig út:
Evrópukeppni meistaraliða:
Redbergslid (Sví) – Kolding (Dan)
Portland (Spá) – Metkovic (Kró)
Magdeburg (Þýs) – Celje (Sló)
Ademar Leon (Spáni) – Vesprém
(Ungverjalandi)
EHF-keppnin:
Wallau (Þýsk) – Sintelon (Júg)
Barcelona (Spá) – Drammen (Nor)
Galdar (Spá) – GOG (Dan)
Kiel (Þýsk) – Lemgo (Þýsk)
Áskorendakeppnin:
RK Bitola (Mak) – Kilkis (Gri)
Slaks Wroclaw (Pól) – Irvy (Fra)
Fredriksberg (Dan) – Suhr (Svi)
Rubiera (Íta) – Skjern (Dan)
Evrópukeppni bikarhafa:
Montpellier (Fra) – Ciudad (Spá)
Voronezh (Rús) – Flensburg (Þýs)
Partizan (Júg) – Runar (Nor)
Dunaferr (Ung) – Porto (Port)
Leikirnir eiga að fara fram 23. eða
24. febrúar og 2. eða 3. mars.
Kiel
mætir
Lemgo
Reuters
Arsenal-leikmaðurinn Ray Parlour nær hér knettinum af Alan Shearer, Newcastle, og var hann
rekinn af velli fyrir vikið. Newcastle sigraði 3:1 og er í efsta sæti deildarinnar.
Karl heldur áfram þjálfun 8.flokks drengja en „að öðru leyti
er afskiptum mínum af félaginu lok-
ið. Mér var tilkynnt í fyrrakvöld að
ég væri rekinn vegna slælegs árang-
urs kvennaliðsins. Ég var ekki tekinn
á teppið og skammaður, bara rekinn.
Mér var ekki sýnt gula spjaldið held-
ur beint það rauða,“ sagði Karl og
var heldur ósáttur. Hann sagði auð-
vitað rétt að staða kvennaliðsins væri
ekki sú sem menn hefðu vonast til.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun Krste Serafimoski taka
við þjálfun liðsins, en hann er nýlega
genginn til liðs við karlaliðið í 1. deild.
Ísak hættur hjá Njarðvík
Ísak Tómasson, þjálfari kvenna-
liðs Njarðvíkinga, er einnig hættur
störfum. Hann sagði starfi sínu lausu
í kjölfar lélegs gengis liðsins í vetur,
en Njarðvík hefur aðeins unnið einn
af fyrstu tíu leikjum sínum á þessu
keppnistímabili. Formaður körfu-
knattleiksdeildar Njarðvíkur sagði í
gærkvöldi að ekki væri enn frágeng-
ið hver tæki við liðinu.
Karl rekinn
frá KFÍ
KARL Jónsson er hættur sem
þjálfari kvennaliðs KFÍ í körfu-
knattleik. „Mér var sagt þetta í
fyrrakvöld,“ sagði Karl í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi.
Real
Madrid
slapp með
skrekkinn
REAL Madrid slapp með
skrekkinn gegn 2. deildarliði
Gimnastic í 16 liða úrslitum
spænsku bikarkeppninnar í
knattspyrnu í fyrrakvöld.
Gimnastic vann fyrri leik lið-
anna á sínum heimavelli, 1:0,
og náði tvisvar forystunni á
fyrstu 14 mínútum leiksins í
Madríd í gærkvöld. Þar með
þurfti Real að vinna með
tveggja marka mun og tókst
það, sigraði 4:2 og þar með
4:3 samanlagt. Raúl skoraði
þrjú marka Real Madrid í
leiknum og Guti gerði eitt.
NORSKA fyrstudeildarliðið Ham-
Kam hyggst setja sig í samband við
Fylkismenn um hugsanleg kaup á
Sævari Þór Gíslasyni. Sævar var til
skoðunar hjá norska liðinu á dög-
unum og lék æfingaleik á móti
Raufoss um síðustu helgi sem Ham-
Kam sigraði, 3:1. Sævar átti góðan
leik eftir því sem fram kemur á
heimasíðu félagsins en hann átti
þátt í tveimur mörkum Ham-Kam í
leiknum. Þess má geta að Haraldur
Ingólfsson kom Raufoss yfir í
leiknum. „Aðalstyrkleiki Sævars er
hraðinn og þá hefur hann góða eig-
inleika sem markaskorari,“ segir
meðal annars í umsögn heimasíðu
félagsins um Sævar Þór. Sævar er
samningsbundinn Fylki til ársins
2004 og því þarf Ham-Kam að
semja við Árbæjarliðið um greiðslu
ætli að það að fá hann í sínar raðir.
„Þetta gekk bara vel miðað við
hve langt er liðið síðan ég spilaði
leik. Forráðamenn liðsins voru
ánægðir og sögðust ætla að setja
sig í samband við Fylki. Það verður
bara að koma ljós hvert framhaldið
verður en ætli liðið að gera mér til-
boð verður það að vera mjög gott
eigi ég að slá til,“ sagði Sævar við
Morgunblaðið.
Ham-Kam
hyggst ræða
við Fylki