Morgunblaðið - 19.12.2001, Side 2
ÍÞRÓTTIR
2 C MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FYRSTU vikuna í desember var
brotist inn á heimili Thierry Henry,
sóknarmanns Arsenal, í norðurhluta
Lundúna. Þjófurinn hafði á brott
með sér ýmsan varning að verðmæti
25.000 pund eða sem nemur tæpum 4
milljónum króna.
EKKI hefur tekist að hafa hendur í
hári þjófsins en lögrelgan hefur var-
að félaga Henry hjá Arsenal, Sylv-
ain Wiltord, Patrick Vieira, Robert
Pires og Gilles Grimandi, við, enda
búa þeir í næsta nágrenni.
ARSENAL hefur gert samstarfs-
samning við belgíska félagið Bevern
og bjargað því þar með frá gjald-
þroti. Beveren hafði ekki fengið
keppnisheimild fyrir næsta ár vegna
fjárhagsörðugleika, en með samn-
ingnum við Arsenal er búið að kippa
því í liðinn.
GUÐJÓN Þórðarson, knatt-
spyrnustjóri Stoke, hefur skorað á
stuðningsmenn liðsins að haga sér
vel þegar tekið verður á móti Cardiff
í ensku 2. deldinni í kvöld. Síðast
þegar Cardiff kom í heimsókn á
Britannia Stadium, vorið 2000 þegar
félagið féll úr 2. deild, urðu mikil
ólæti.
GRAHAM Kavanagh, fyrrum leik-
maður Stoke, leikur með Cardiff og
það kann að auka enn frekar á
spennuna í kvöld. Peter Thorne,
sem skoraði grimmt fyrir Stoke, er
einnig i herbúðum Cardiff en missir
af leiknum vegna meiðsla. Stoke er
efst með 43 stig en Cardiff, er í
sjötta sæti með 36 stig.
LÁRUS Orri Sigurðsson hefur
verið úrskurðaður í eins leiks bann
vegna fimm gulra spjalda og leikur
ekki með WBA gegn Gillingham í 1.
deild ensku knattspyrnunnar 29.
desember. Lárus Orri hefur leikið
alla leiki WBA á þessu tímabili, alla í
byrjunarliði.
FÓLK
KNATTSPYRNA
England
Úrvalsdeild:
Arsenal - Newcastle ................................ 1:3
Robert Pires 23. - Andy O’Brian 60., Alan
Shearer 81., Lauren Robert 87.. Rautt
spjald: Ray Parlour (Arsenal) 42., Craig
Bellamy (Newcastle) 70. - 38.012.
Staða efstu liða:
Newcastle 17 10 3 4 30:20 33
Liverpool 16 10 3 3 25:15 33
Arsenal 17 8 6 3 35:21 30
Leeds 16 7 8 1 20:11 29
Chelsea 17 6 9 2 23:12 27
Bikarkeppnin, 2. umferð:
Bristol Rovers - Plymouth....................... 3:2
Southend - Chesterfield........................... 2:0
Frakkland
Lens - Nantes ........................................... 3:0
Bordeaux - Marseille................................ 0:0
Þýskaland
Hamburger - Energie Cottbus............... 5:2
Roy Präger 52. 61., Milan Fukal 63., Mehdi
Mahdavikia 75., Sergej Barbarez 82. - Silv-
io Schröter 26., Laurentiu Reghecampf 84.
- 32.445.
Werder Bremen - Freiburg.................... 3:2
Marco Bode 12., Mladen Krstajic 52., Vikt-
or Skripnik 59. - Soumaila Coulibaly 45.,
Andreas Zeyer 54. - 26.000.
Nürnberg - Dortmund ............................ 2:2
Lars Müller 52., Marek Nikl 66. - Lars
Ricken 73., Miroslav Stevic 76. - 25.000.
Hertha Berlín - St. Pauli......................... 2:2
Marcelinho 62., Andreas Schmidt 85. -
Thomas Meggle 50. (víti), Marcel Rath 63. -
25.000.
B. München - Mönchengladbach............ 0:0
25.000.
Belgía
Moeskroen - Club Brugge ....................... 2:0
Beveren - Anderlecht............................... 1:4
Spánn
Bikarkeppnin, 16-liða úrslit:
Real Madrid - Gimnastic.......................... 4:2
Real Madrid áfram, 4:3 samanlagt.
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Leikur í fyrrinótt:
Boston - Philadelphia............................83:99
ÚRSLIT
ATLI Eðvaldsson var einn af lands-
liðsþjálfurunum 132 sem tóku þátt í
að velja knattspyrnumann ársins hjá
Alþjóða knattspyrnusambandinu,
FIFA, en valið var kunngert í fyrra-
kvöld þar sem Luis Figo var kjörinn
sá besti.
Atkvæðaseðill Atla stakk nokkuð í
stúf við aðra því hann var sá eini sem
gaf Þjóðverjanum Stefan Effenberg,
leikmanni Bayern München, og
Spánverjanum Gaizka Mendieta,
sem lék með Valencia á síðustu leik-
tíð en er nú í herbúðum Lazio á Ítal-
íu, atkvæði. Atli setti Effenberg í
fyrsta sætið, Mendieta í annað og
Portúgalann Luis Figo í það þriðja.
„Ég get alveg tekið undir að Figo,
Beckham og Zidane og fleiri eru allt
frábærir knattspyrnumenn en að
mínu mati fannst mér Effenberg
standa uppúr. Hann leiddi Bayern
München til sigurs á þrennum víg-
stöðvum á árinu. Liðið varð Evrópu-
meistari, Þýskalandsmeistari og
heimsmeistari félagsliða og ég er
þeirrar skoðunar að Effenberg hafi
átt stóran þátt í því. Hann sem fyr-
irliði dró vagninn og mér fannst
hann eiga það skilið að verða fyrir
valinu. Hann er frábær persónuleiki
og Bæjarar hefðu ekki náð þessum
árangri án hans,“ sagði Atli í samtali
við Morgunblaðið þegar hann var
spurður um valið. Um val sitt á
Mendieta sagði Atli: „Ég hreifst af
honum í leikjum Valencia og það var
ekkert skrýtið að Lazio festi kaup á
honum í sumar. Hann átti frábært
tímabil sem leikstjórnandi liðsins og
það var ekki síst fyrir frammistöðu
hans að Valencia komst í úrslit
Meistaradeildarinnar.“
Þegar atkvæði kollega Atla á
Norðurlöndunum eru skoðuð kemur
þetta í ljós:
Morten Olsen (Danmörk)
Figo, Beckham, Shevchenko.
Allan Simonsen (Færeyjar)
Rivaldo, Zidane, Figo.
Antti Muurinen (Finnland)
Beckham, Figo, Nesta.
Söderberg/Lagerbäck (Svíþjóð)
Veron, Beckham, Raul.
Nils Johan Semb (Noregur)
Shevchenko, Beckham, Kahn.
Sven Göran Eriksson landsliðs-
þjálfari Englandi valdi Veron í fyrsta
sæti, Thierry Henry í annað og
Alessandro Nesta í það þriðja.
Atkvæðaseðill
Atla ólíkur öðrum
132 landsliðsþjálfarar í knattspyrnu
víðs vegar um heiminn stóðu að kjöri
knattspyrnumanns ársins hjá FIFA.
Landsliðsþjálfararnir voru beðnir
um að velja þrjá leikmenn. Leikmað-
urinn í fyrsta sæti hlaut 5 stig, leik-
maðurinn í öðru sæti 3 stig og í
þriðja sæti 1 stig. Þessir leikmenn
hlutu atkvæði:
Luis Figo, Portúgal...................... 250
David Beckham, Englandi .......... 238
Raul Gonzalez, Spáni ..................... 96
Zinedine Zidane, Frakklandi ........ 94
Rivaldo, Brasilíu............................. 92
Juan Sebastian Veron, Argentínu 71
Oliver Kahn, Þýskalandi................ 65
Michael Owen, Englandi ............... 61
Andrei Shevchenko, Úkraínu........ 46
Frencesco Totti, Ítalíu ................... 40
Thierry Henry, Frakklandi............15
Manuel Rui Costa, Portúgal.......... 14
Patrick Vieira, Frakklandi ............ 13
Henrik Larsson, Svíþjóð ................. 9
Roberto Carlos, Brasilíu.................. 8
Stefan Effenberg, Þýskalandi......... 5
Ruud van Nistelrooy, Hollandi ....... 4
Hernan Crespo, Argentínu ............. 4
Alessandro del Piero, Ítalíu ............ 4
Oscar Cordoba, Kólumbíu............... 3
Gaizka Mendieta, Spáni................... 3
Ebbe Sand, Danmörku .................... 3
Javier Saviola, Argentínu.................3
Giovane Elber, Brasilíu ................... 2
Hidetoshi Nakata, Japan................. 2
Steven Gerrard, Englandi............... 1
Luis Enrique, Spáni......................... 1
John Dahl Tomasson, Danmörku ... 1
Ali Daei, Íran .................................... 1
Roy Keane, Írlandi........................... 1
Carlos Alberto, Brasilíu................... 1
Diego Simeone, Argentínu .............. 1
Emmanuel Olisadebe, Póllandi....... 1
Eiður
varar sína
menn við
Bolton
EIÐUR Smári Guðjohnsen hefur var-
að félaga sína í Chelsea við fyrir leik-
inn á móti Bolton en liðin eigast við á
heimavelli Chelsea, Stamford Bridge
á sunnudaginn. Eiður mætir þá sínum
gömu félögum í fyrsta sinn eftir að
hann fór frá liðinu til Chelsea í fyrra.
Eiður Smári hefur átt góðu gengi að
fagna með Chelsea í síðustu leikjum.
Hann skoraði eitt mark og lagði upp
annað í stórsigri þeirra bláklæddu á
Liverpool um síðustu helgi og Eiður
skoraði einnig í sigurleikjunum við
Leeds og Manchester United á dög-
unum.
„Við sáum hvað gerðist eftir sig-
urinn á Manchester United – við töp-
uðum heima á móti Charlton þegar
allir reiknuðu með að við mundum
vinna. Bolton hefur ekki gengið sem
skyldi upp á síðkastið en við verðum
samt að mæta til leiks með sama hug-
arfari og við gerðum í leikjunum við
Manchester United og Liverpool. Ef
við gerum það ekki og verðum ekki
með hugann við það sem við erum að
gera er hætt við að illa fari. Bolton
hefur náð frábærum úrslitum á tíma-
bilinu. Liðið hefur meðal annars unnið
Liverpool og Manchester United og er
með leikmann eins og Michael Rick-
etts í sínum röðum sem hefur sýnt að
hann getur skorað mörk úr nánast
engu,“ segir Eiður Smári.
Það er ekki ofsögum sagt að Figoer hreinn listamaður. Hann
bæði skapar mörk og skorar og
tækni hans og skiln-
ingur gerir hann
nánast að fullkomn-
um knattspyrnu-
manni,“ sagði Sepp
Blatter, forseti FIFA, meðal annars í
ræðu sinni þegar hann afhenti Figo
viðurkenningu sína.
Figo er 29 ára gamall, fæddur 4.
nóvember 1972 í Almada í Portúgal.
Hann hóf ungur að sparka bolta en
fyrstu kynni hans af íþróttinni voru
þegar hann lék með götuliðinu Os
Pasthilas. 11 ára gamall mætti Figo
á sína fyrstu æfingu með unglingaliði
Sporting Lissabon. Fljótlega kom í
ljós að Figo hafði mikla hæfileika.
Hann var valinn í 16 ára landslið
Portúgala sem varð í þriðja sæti á
heimsmeistaramótinu árið 1989 og
ári síðar lék hann sinn fyrsta meist-
araflokksleik með Sporting. Figo lék
lykilhlutverk með 20 ára liði Portú-
gala sem varð heimsmeistari árið
1991 og það sama ár var hann valinn í
A-landsliðið, þá rétt orðinn 19 ára
gamall. Figo lék með Sporting til
ársins 1995 en þá hófst nýr kafli í
sögu hans.
Spænska stórliðið Barcelona, sem
þá lék undir stjórn Hollendingsins
Johans Cruyff, keypti Figo frá
Sporting í júnímánuði 1995 og í sept-
ember lék hann fyrsta leik sinn fyrir
Katalóníuliðið. Figo var kominn í
heimsklassa og það var ekki síst fyrir
hans frammistöðu sem Börsungum
gekk allt í haginn. Figo vann Evr-
ópukeppni bikarhafa með Barcelona
árið 1997, varð spænskur meistari og
bikarmeistari með liðinu 1997 og
1998 og þá urðu Börsungar meist-
arar meistaranna í Evrópu 1998 og
1999.
Frægðarsól Figos hélt áfram að
rísa í fyrra. Hann átti frábæru gengi
að fagna með landsliði Portúgala á
Evrópumótinu í Belgíu og Hollandi.
Figo var höfuðið og hjartað í liði
Portúgalanna á mótinu. Þeir léku
frábæran sóknarleik sem Figo var
maðurinn á bak við og það fór svo að
Portúgalar komust í undanúrslitin
þar sem þeir urðu að láta í minni pok-
ann fyrir sjálfum heimsmeisturum
Frakka. Figo var mikið í sviðsljósinu
á EM og enn meira þegar hann sneri
til Spánar eftir mótið því allt ætlaði
um koll að keyra þegar þær fregnir
bárust að Börsungar hefðu selt Figo
til erkifjendanna í Real Madrid fyrir
metfé. Figo lét allan hamaganginn
lítið á sig fá og lét verkin tala á knatt-
spyrnuvellinum. Með frábærri
frammistöðu á árinu 2000 varð hann
fyrir valinu sem knattspyrnumaður
ársins í Evrópu, varð annar í kjöri í
knattspyrnumanns ársins hjá FIFA,
knattspyrnutímaritið World Soccer
útnefndi hann knattspyrnumann
Evrópu og í fimmta sinn var hann
kjörinn knattspyrnumaður ársins í
Portúgal.
Með Figo í broddi fylkingar varð
Real Madrid spænskur meistari síð-
astliðið vor, í fyrsta sinn í fjögur ár,
og portúgalska landsliðið vann sér
keppnisréttinn á HM á næsta ári
ekki síst fyrir snjallan leik Figos.
Það var því vel við hæfi að Portúgal-
inn yrði fyrir valinu sem leikmaður
ársins, titill sem margir reiknuðu
með að Figo fengi einnig í fyrra.
„Ég tileinka verðlaunin samherj-
um mínum, fjölskyldu og vinum og
ekki síst eiginkonu minni og dóttur. Í
mínum huga verðskulduðu margir að
fá þessa viðurkenningu en ég hafði
heppnina með mér. Ég viðurkenni að
ég hef lagt hart að mér en ég er líka
heppinn að spila með tveimur frá-
bærum liðum og það er ástæðan fyrir
því að ég er hér staddur til að taka á
móti verðlaununum,“ sagði Figo.
Heppinn að spila með tveimur frábærum liðum
Listamað-
urinn Figo
Luis Figo fagnar marki sem hann sko
sem Portúgal vann, 5:0. Figo, s
LUIS Filipe Madeira Caeiro eða
betur þekktur sem Luis Figo var
í fyrradag útnefndur knatt-
spyrnumaður ársins hjá Alþjóða
knattspyrnusambandinu, FIFA,
en hann varð efstur í kjöri 130
landsliðsþjálfara víðs vegar um
heim. Þetta er í fyrsta sinn sem
portúgalskur leikmaður hlýtur
þessa eftirsóttu viðurkenningu
en í fyrra varð Figo í öðru sæti á
eftir Frakkanum Zinedine Zid-
ane.
BESTI KNATTSPYRNUMAÐUR HEIMS
Guðmundur
Hilmarsson
tók saman
FIFA-
listinn
ÞESSIR leikmenn hafa verið
útnefndir knattspyrnumenn
ársins hjá Alþjóða knatt-
spyrnusambandinu, FIFA:
1991: Lothar Matthäus, Þýska-
landi
1992: Marco van Basten, Hol-
landi
1993: Roberto Baggio, Ítalíu
1994: Romario, Brasilíu
1995: George Weah, Líberíu
1996: Ronaldo, Brasilíu
1997: Ronaldo, Brasilíu
1998: Zinedine Zidane, Frakk-
landi
1999: Rivaldo, Brasilíu
2000: Zinedine Zidane, Frakk-
landi
2001: Luis Figo, Portúgal