Morgunblaðið - 19.12.2001, Qupperneq 4
ÞEIR knattspyrnumenn, sem fengu
stig hjá France Football í ár, voru:
Michael Owen (Liverpool) ............176
Raul (Real Madrid) .......................140
Oliver Kahn (Bayern München) ..114
David Beckham (Man. Utd.) ........102
Francesco Totti (Roma) .................57
Luis Figo (Real Madrid).................56
Rivaldo (Barcelona) ........................20
Andriy Shevchenko (AC Milan).....18
Thierry Henry (Arsenal) ................14
Zinedine Zidane (Real Madrid) .....14
Bixente Lizarazu (B. München).....10
David Trezeguet (Juventus) ............7
Stefan Effenberg (B. München) ......6
Henrik Larsson (Celtic) ...................4
Alessandro Nesta (Lazio).................4
Hernan Crespo (Lazio).....................3
Juan Sebastián Verón (Man. Utd.)..3
Giovane Elber (Bayern München) ..2
Sami Hyypia (Liverpool) ..................2
Gaizka Mendieta (Lazio) ..................2
E. Olisadebe (Panathinaikos) ..........2
Roberto Carlos (Real Madrid).........2
Ebbe Sand (Schalke) ........................2
Damiano Tommasi (Roma) ..............2
Roberto Baggio (Brescia).................1
Steven Gerrard (Liverpool) .............1
Manuel Rui Costa (AC Milan) .........1
Owen er um leið fyrsti leikmaðurLiverpool sem hlýtur þetta
sæmdarheiti því þótt Keegan hafi
leikið með Liverpool
hluta úr ferli sínum
þá hafði hann róið á
önnur mið þegar
hann hreppti nafn-
bótina 1978 og aftur árið eftir. Sá
leikmaður Liverpool sem næst hef-
ur komist því að vinna gullbolta
France Football er Kenny Daglish,
arftaki Keegans hjá Liverpool.
Hann varð annar árið 1983 er
Frakkinn Michel Platini hreppti
hnossið.
Owen er um leið fyrsti Englend-
ingurinn sem hlýtur þessa nafnbót
sem leikmaður ensks liðs síðan
George Best var valinn knatt-
spyrnumaður Evrópu árið 1968 í
framhaldi af sigri Manchester Unit-
ed í Evrópukeppni meistaraliða
1968. Auk Owens, Keegans og Bests
hafa Englendingarnir Stanley Matt-
hews, Denis Law og Bobby Charlt-
on hlotið þessa eftirsóttu nafnbót.
„Útnefning mín kórónar framúr-
skarandi ár hjá Liverpool þar sem
við höfum unnið fimm bikara. Ég vil
því þakka félögum mínum í liðinu og
öllu starfsfólki Liverpool fyrir árið.
Allt þetta fólk á sinn hlut í þessum
sigri mínum,“ sagði Owen m.a. á
mánudaginn þegar upplýst var um
niðurstöðu kjörsins. „Ég átti bágt
með að trúa því þegar mér var tjáð
niðurstaða kjörsins þótt mér væri
kunnugt um að ég væri vissulega
einn þeirra sem kæmu til greina.
Niðurstaðan kom mér því þægilega
á óvart.
Það er ótrúlegt að ég skuli vera
kominn í hóp með Marco van Bast-
en, Michel Platini, Franz Becken-
bauer, Johan Cruyff, Rivaldo,
Bobby Charlton og Kevin Keegan
svo nokkrir séu nefndir af þeim sem
hlotið hafa þessa sömu nafnbót. Ég
er óumræðilega stoltur og fyllist
auðmýkt,“ sagði Owen ennfremur
þegar úrslit atkvæðagreiðslu sér-
fræðinga France Football var
kynnt.
Í öðru sæti í kjörinu varð Spán-
verjinn Raul Gonzalez, framherji
Real Madrid. Markvörður Evrópu-
meistara Bayern München, Oliver
Kahn, varð síðan í þriðja sæti.
Alls hefur Owen skorað 36 mörk í
54 leikjum á þessu ári með Liver-
pool og enska landsliðinu og átti svo
sannarlega sinn þátt í því að Eng-
lendingum tókst að tryggja sér sæti
í úrslitakeppni HM á næsta ári.
Þrennan þótti að margra mati sanna
að Owen var ekki lengur ungur og
efnilegur heldur fullþroskaður
framherji í heimsklassa. Þá er hann
að margra mati maðurinn sem vann
úrslitaleik ensku bikarkeppninnar
fyrir Liverpool sl. vor.
Hinn þrautreyndi félagi Owens
hjá Liverpool, Gary McAllister, seg-
ir Owen fyllilega verðskulda nafn-
bótina. „Owen er hættulegasti fram-
herji sem ég hef leikið með,“ sagði
McAllister og bætti því við að fáir
nýti færi sín eins vel og Owen.
„Hann nýtir mjög hátt hlutfall
þeirra marktækifæra sem hann
fær.“
Ian Rush, einn mesti markahrók-
ur sem leikið hefur með Liverpool,
tekur undir með McAllister og segir
Owen hafa leikið framúrskarandi vel
með enska landsliðinu og Liverpool
og hafi hann verið beittasti leikmað-
ur ensku úrvalsdeildarinnar síðasta
árið. Gerard Houllier, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, var í sjöunda himni
þegar hann frétti af kjöri Owens.
Hann sagði útnefningu France
Football vera þá mikilvægustu og
stærstu sem knattspyrnumanni
gæti hlotnast, enda hafi margir leik-
menn sem nú eru hreinar goðsagnir
orðið fyrir valinu á þeim 45 árum
sem blaðið hefur staðið fyrir því.
„Það er gríðarlegur heiður fyrir
Owen að vera valinn fremstur knatt-
spyrnumanna í Evrópu og skjóta
þar á meðal Raúl og David Beck-
ham ref fyrir rass,“ sagði Houllier
sem er allur að færast í aukana eftir
hjartaaðgerð á haustdögum.
Sven-Göran Eriksson, landsliðs-
þjálfari Englendinga, tók undir orð
Houlliers en bætti því við að þrenna
Owens fyrir Englendinga gegn
Þjóðverjum í undankeppni HM væri
örugglega hápunktur þessa fljóta og
leikna framherja á árinu.
„Í mínum huga er enginn vafi á að
Owen getur orðið besti knatt-
spyrnumaður heims,“ sagði brasil-
íski knattspyrnusnillingurinn Pele.
„Owen er enn mjög ungur, hefur
eigi að síður yfir mikilli reynslu að
ráða auk gríðarlegs hraða. Þetta er
uppskrift að framúrskarandi knatt-
spyrnumanni sem við getum vænst
mikils af næsta áratuginn,“ sagði
Pele.
MICHAEL Owen, sóknarleikmaður
Liverpool, fór á kostum þegar
Englendingar unnu stórsigur á
Þjóðverjum í undankeppni HM á
Ólympíuleikvanginum í München,
5:1. Hér fagnar hann þriðja marki
sínu, en Englendingar urðu fyrstir
til að leggja Þjóðverja að velli í
München síðan 1972.
FYRST var farið að útnefna knattspyrnu-
mann Evrópu hjá France Football 1956,
en þá var enski landsliðsmaðurinn Sir
Stanley Matthews fyrir valinu – Argent-
ínumaðurinn/Spánverjinn Di Stefano hjá
Real Madrid var í öðru sæti og þá kom
Frakkinn Kopa, Real Madrid, í þriðja sæti.
1956: S. Matthews, Blackpool
1957: Di Stefano, Real Madrid
1958: Kopa, Real Madrid
1959: Di Stefano, Real Madrid
1960: Suarez, Barcelona
1961: Sivori, Juventus
1962: Masopust, Dukla Prag
1963: Jarshin. Dynamo Moskva
1964: D. Law, Man. Utd
1965: Eusebio, Banfica
1966: B. Charlton, Man. Utd
1967: Albert, Ferenvaros
1968: Best, Man. Utd
1969: Rivera, AC Milan
1970: G. Müller, Bayern München
1971: Cruyff, Ajax
1972: Beckenbauer, Bayern München
1973: Cruyff, Barcelona
1974: Cruyff, Barcelona
1975: Blokhin, Dynamo Kiev
1976: Beckenbauer, Bayern München
1977: Simonsen, Mönchengladbach
1978: Keegan, Hamburger SV
1979: Keegan, Hamburger SV
1980: K. Rummenigge, Bayern München
1981: K. Rummenigge, Bayern München
1982: P. Rossi, Juventus
1983: Platini, Juventus
1984: Platini, Juventus
1985: Platini, Juventus
1986: Belanov, Dynamo Kiev
1987: Gullit, AC Milan
1988: Van Basten, AC Milan
1989: Van Basten, AC Milan
1990: Matthäus, Inter
1991: Papin, Marseille
1992: Van Basten, AC Milan
1993: R. Baggio, Juventus
1994: Stoitchkov, Barcelona
1995: Weah, AC Milan
1996: Sammer, Dortmund
1997: Ronaldo, Inter
1998: Zidan, Juventus
1999: Rivaldo, Barcelona
2000: Figo, Real Madrid
2001: Owen, Liverpool
Bestir í
Evrópu
Öruggt
hjá
Owen
AP
Kórónar frábært
ár hjá Liverpool
„ÉG er í sjöunda himni yfir þessari miklu viðurkenningu og mér er
það um leið mikill heiður að fá nafn mitt skráð meðal þeirra stór-
kostlegu knattspyrnumanna sem áður hafa staðið í þessum spor-
um,“ sagði Michael Owen, leikmaður Liverpool, eftir að upplýst var
að 50 blaðamenn á vegum franska knattspyrnublaðsins France
Football höfðu kjörið hann knattspyrnumann Evrópu fyrir þetta ár.
Owen, sem varð 22 ára á dögunum, fæddist sama ár og Kevin
Keegan hlaut þessa nafnbót síðastur Englendinga. Keegan var þá
leikamður með Hamburger SV í Þýskalandi.
Ívar
Benediktsson
tók saman
Michael Owen, knattspyrnumaður Evrópu 2001, fæddist sama
ár og Englendingur vann nafnbótina síðast – Keegan 1979
Fagnar þrennu