Morgunblaðið - 03.01.2002, Blaðsíða 1
2002 FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
BRYNJAR BJÖRN GUNNARSSON FÓTBROTNAÐI / C3
Reuters
Eiður Smári Guðjohnsen var hetja Chelsea er liðið lagði Newcastle úti, 2:1. Hann skoraði bæði mörkin og hann skoraði einnig gegn
Southampton á Stamford Bridge í London – fagnar því marki með áhorfendum hér á myndinni. Fögnuðurinn stóð ekki lengi, því að
gestirnir fögnuðu sigri, 4:2. Allt um baráttuna í Englandi á C2, C3.
Ástæðan að flugið í dag milli Ís-lands og Noregs er fullbókað
er sú að fjöldi íslenskra náms-
manna er að halda utan á ný eftir
jólaleyfi hér á Fróni. „Það er all
nokkuð síðan farið var að huga að
þessari ferð til Noregs og strax þá
varð ljóst að fullbókað var í flugið á
fimmtudeginum og því yrðum við
að fara utan að morgni og leika um
kvöldið. Vissulega verður þetta erf-
itt en við verðum að sætta okkur við
þetta. Í raun má segja að við séum í
nokkurri æfingu því ferðin til Pól-
lands á milli jóla og nýárs var svip-
uð,“ sagði Guðmundur ennfremur,
sem lítur á leikina í Noregi sem
kærkominn í undirbúning lands-
liðsins fyrir EM, en auk leiksins við
Norðmenn mæta Íslendingar
Egyptum á laugardag og Króötum
á sunnudag, áður en haldið verður
heim á mánudaginn. „Þetta er sú
leið sem við veljum að fara til Nor-
egs og það verður að hafa það þótt
föstudaginn verði erfiður.“ Króatar
taka einnig þátt í EM í Svíþjóð í lok
mánaðarins og gætu mætt íslenska
landsliðinu í milliriðlum keppninn-
ar komist báðar þjóðirnar upp úr
riðlakeppninni. Króatar verða með
sitt sterkasta lið í Noregi, eins og
Íslendingar og Norðmenn, sem síð-
ar í þessum mánuði taka þátt í for-
keppni að undankeppni heims-
meistaramótsins, en þeim lánaðist
ekki að tryggja sér sæti á Evrópu-
meistaramótinu í Svíþjóð. Egyptar
eru með eitt sterkasta lið heims og
höfnuðu í fjórða sæti á HM í Frakk-
landi fyrir tæpu ári eftir tap fyrir
Júgóslavíu.
Mæta beint í leik
eftir erfitt ferðalag
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik fer til Noregs í fyrramálið og
leikur strax annað kvöld, eftir erfitt ferðalag – í rútum og flugi, við
heimamenn í Þrándheimi í fjögurra landa móti. Ekki var mögulegt
að fá flug frá Íslandi til Noregs í dag þar sem flug milli landanna
er fyrir löngu fullbókað. „Það kom til athugunar að fara til Stokk-
hólms eða Kaupmannahafnar og fara þaðan til Noregs, en það
kostaði of mikið þegar gisting fyrir hópinn var komin inn í pakk-
ann,“ sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í
handknattleik í gær. Landsliðið fer fram Reykjavík kl. 5.30 í nótt
og kemur að hóteli í Þrándheimi ellefu klukkustundum síðar.
Þórey Edda Elísdóttir, stangar-stökkvari úr FH, er talin vera
níundi besti stangarstökkvari sl. árs
í kvennaflokki að mati bandaríska
frjálsíþróttablaðsins Track & Field
News. Blaðið hefur valið tíu bestu
íþróttamenn í hverri grein frjáls-
íþrótta síðan 1947 og í gegnum tíðina
hafa allnokkrir Íslendingar komist á
lista blaðsins, sem þykir hið stærsta
og virtasta í heimi frjálsíþrótta.
Þetta er í fyrsta sinn sem Þórey
Edda er í hópi tíu bestu stangar-
stökkvara ársins að mati blaðsins og
undirstrikar framfarir Þóreyjar á
síðasta ári. Hún er eini Íslending-
urinn sem er á listum blaðsins þetta
árið. Vala Flosadóttir var í 5. sæti á
lista stangarstökkskvenna árið 2000
og var einnig á meðal tíu efstu árin
1996, 1998 og 1999.
Það kemur fáum á óvart að banda-
ríski heimsmeistarinn og heimsmet-
hafinn Stacy Dragila er talin vera
besti stangarstökkvari sl. árs í
kvennaflokki. Svetlana Feofanova
frá Rússlandi er í öðru sæti og Pól-
verjinn Monika Pyrek í þriðja sæti.
Þessar þrjár voru í þremur efstu
sætunum á heimsmeistaramótinu
utanhúss sem fram fór í Edmonton
sl. sumar.
Þórey
Edda í
9. sæti
ÍVAR Ingimarsson, sem hefur
leikið mjög vel með Brentford í
Englandi, hefur verið valinn í
stað Brynjars Björns Gunn-
arssonar í íslenska landsliðið sem
leikur við Kúveit og Sádi-Arabíu
í næstu viku. Brynjar Björn
meiddist á fæti í leik með Stoke
og verður frá keppni í sex til átta
vikur. Ívar mun leika fyrri leik-
inn í ferðinni – gegn Kúveitbúum
í Oman, þar sem þeir eru í æf-
ingabúðum undir stjórn Berti
Vogts, þriðjudaginn 8. janúar, en
síðan verður leikið gegn Sádi-
Arabíu í Riyadh 10. janúar.
Ívar fer
með til
Oman
ÍSLANDSMEISTARAR ÍA og bikarmeistarar
Fylkis mætast í fyrsta opinbera leik knatt-
spyrnutímabilsins. Samkvæmt niðurröðun
deildabikars karla eiga ÍA og Fylkir að mætast í
efri deild keppninnar í Reykjaneshöllinni föstu-
dagskvöldið 15. febrúar, en á eftir eigast við lið
FH og Víkings. Félögin hafa tækifæri fram í
miðjan janúar til að breyta leikdögum en ólík-
legt er að um teljandi breytingar verði að ræða.
Daginn eftir, 16. febrúar, mætast KR-
Breiðablik, Keflavík-ÍBV og Dalvík-Grindavík
og á sunnudeginum leika ÍBV-KA, Þróttur R.-
Dalvík og Valur-Fram. Allir leikirnir fara fram
í Reykjaneshöllinni en þar verður keppnin ein-
göngu leikin fimm fyrstu helgarnar, eða fram í
miðjan mars. Riðlakeppni deildabikarsins lýkur
21. apríl og eftir það leika fjögur efstu lið úr
hvorum riðli til úrslita.
ÍA og Fylkir mæt-
ast í fyrsta leik