Morgunblaðið - 03.01.2002, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2002 C 3
Manchester United er komið afalvöru í baráttuna um enska
meistaratitilinn á nýjan leik. Meist-
ararnir tóku af öll tvímæli um það í
gærkvöld þegar þeir sigruðu New-
castle, 3:1, á Old Trafford og þeir
hafa nú unnið sex leiki í röð. Margir
höfðu afskrifað lið Alex Fergusons í
byrjun desember þegar hvorki gekk
né rak, en nú þykir óráðlegt að veðja
háum fjárhæðum gegn því að United
vinni fjórða titilinn í röð.
Með sigrinum er Manchester
United komið í annað sæti úrvals-
deildarinnar, tveimur stigum á eftir
Leeds og með betri markatölu en
Arsenal og Newcastle sem einnig
hafa 39 stig. Liverpool er með 38 en á
leik til góða, eins og Arsenal.
Ruud van Nistelrooy kom United
yfir í fyrri hálfleiknum með sínu 20.
marki á tímabilinu. Paul Scholes
bætti við tveimur mörkum í þeim síð-
ari áður en Alan Shearer minnkaði
muninn í 3:1 þegar rúmar 20 mín-
útur voru til leiksloka.
Roy Keane, fyrirliði Manchester
United, sagði eftir leikinn að nú
gætu menn farið að gleyma slæma
kaflanum og lagði áherslu á að það
væru fyrst og fremst færri varnar-
mistök en áður sem hefðu komið lið-
inu á beina braut á nýjan leik.
„Við höfum staðið okkur vel síð-
asta mánuðinn en eins og við höfum
alltaf sagt er langt til vorsins. Við
áttum slæman kafla og erum von-
andi búnir að hrista hann af okkur.
Að undanförnu höfum við ekki fengið
á okkur nein ódýr mörk og einbeit-
ingin í liðinu er mun betri áður.
Vörnin er þéttari og liðið í heild
smellur betur saman. Sum mörkin
sem við fengum á okkur fyrr í vetur
voru ótrúlega slæm en við höfum
komist yfir það, og við munum alltaf
skapa okkur marktækifæri og skora
mörk,“ sagði Keane, sem var út-
nefndur maður leiksins í gærkvöld.
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, sagði að leikur-
inn hefði verið jafn en mörk sinna
manna hefðu verið frábær.
„Við vonumst til þess að hin liðin í
deildinni haldi áfram að misstíga sig,
og okkur takist að nýta okkur það.
Newcastle á fullt erindi í toppbarátt-
una og það er ekki hægt að afskrifa
liðið þrátt fyrir þetta tap,“ sagði
Ferguson.
Fulham kom sér á lygnan sjó um
miðja deild með sigri á Derby, 1:0, á
útivelli. Derby sótti mun meira en
Fulham nýtti eina af fáum sóknum
sínum þegar Horacio Carbonari
skoraði sjálfsmark á 72. mínútu.
Þetta eru slæm tíðindi fyrir Stokesem er að berjast um sæti í 1.
deildinni auk þess sem liðið mætir
Everton í bikarkeppninni á heimavelli
á laugardaginn. Mikill áhugi er fyrir
leiknum og fastlega búist við því að
uppselt verði á Britannia-leikvanginn
í Stoke þar sem leikurinn fer fram.
100. leikur Stoke undir
stjórn Guðjóns
Stoke komst á topp deildarinnar
með því að leggja Blackpool, 2:0 í
fyrradag en þetta var 100. leikur
Stoke undir stjórn Guðjóns Þórðar-
sonar. Bjarni Guðjónsson átti heiður-
inn af báðum mörkum Stoke. Fyrst
skoraði Hvít-Rússinn Sergei Shtan-
iuk eftir frábæra fyrirgjöf Bjarna og
Bjarni var aftur á ferðinni á 82. mín-
útu þegar hann átti góða sendingu á
James O’Connor sem skoraði. Bjarni
lék allan leikinn en Ríkharður Daða-
son fékk að spreyta sig síðasta stund-
arfjórðunginn.
Guðjón veðjar á
norskan framherja
Lítt þekktur norskur knattspyrnu-
maður, Ole T. Albrigtsen, mun skrifa
undir samning við Stoke City á föstu-
dag og er samningurinn til 28 mán-
aða. Hinn 26 ára gamli Albrigtsen
hefur aðeins leikið með Vesterålen í 3.
deild í heimalandinu en hann hefur
ekki farið af leikvelli án þess að skora
mark síðan í september árið 2000. Al-
brigtsen skoraði 55 mörk í 24 leikjum
á sl. keppnistímabili.
Norðmaðurinn lék einn leik með
varaliði Stoke um miðjan desember
og skoraði þá þrennu á aðeins 50 mín-
útum. Samkvæmt frétt Nettavisen
mun Albrigtsen fá um 11,5 milljónir
ísl. kr. á ári í laun en fyrst þarf hann
að sýna fram á hann geti komist í
betra líkamlegt ásigkomulag á allra
næstu mánuðum.
Samkeppnin um framherjastöð-
urnar hjá Stoke er mikil þar sem Guð-
jón Þórðarson fékk Souleymane Oul-
are leigðan frá Las Palmas á Spáni en
landsliðsmaðurinn frá Gíneu var
markahæstur í Belgíu með Genk fyrir
tveimur árum.
Brynjar
Björn fót-
brotnaði
ÞRÁTT fyrir að Íslendingaliðið Stoke City hafi tyllt sér á toppinn í
ensku 2. deildinni í knattspyrnu með því að innbyrða fjögur stig í ára-
mótaleikjunum varð liðið fyrir miklu áfalli. Brynjar Björn Gunnarsson,
sem verið hefur einn albesti leikmaður liðsins í vetur, braut bein í
hægri fæti þegar Stoke gerði markalaust jafntefli á útivelli á móti
Huddersfield á laugardaginn og verður hann frá næstu 6–8 vikurnar.
MARGRÉT Ólafsdóttir, knatt-
spyrnukona, fékk heldur dap-
urlega jólagjöf frá þjálfara sín-
um í bandaríska atvinnuliðinu
Philadelphia Charge. Á að-
fangadagsmorgun leyndist bréf
meðal jólakortanna þar sem
fram kom að búið væri að setja
hana á lista yfir samningslausa
leikmenn.
„Ég vissi þetta reyndar þrem-
ur dögum fyrr en þá hringdi
þjálfarinn í mig og sagði mér að
ég væri ekki inni í myndinni hjá
honum fyrir næsta tímabil.
Þetta voru engu að síður dap-
urlegar fréttir því ég var búin
að bíða eftir endanlegri ákvörð-
un frá honum í um 10 vikur.
Þetta eru mikil vonbrigði,“
sagði Margrét Ólafsdóttir í sam-
tali við Morgunblaðið.
„ Þetta var mjög góður tími
og ég er ánægð með að hafa
fengið tækifæri í þessari sterku
deild. Ég er sátt við mína eigin
frammistöðu þarna úti og miðað
við þau skilaboð sem ég fæ frá
þjálfaranum stóð ég mig vel,“
sagði Margrét.
Margrét taldi víst að Rakel
Ögmundsdóttir myndi leika
áfram með Philadelphia en hún
nýtur þess að teljast ekki með
erlendum leikmönnum í banda-
rísku deildinni þar sem hún hef-
ur tvöfalt ríkisfang.
„Ég á frekar von á því að
vera hér heima og fara að
vinna. Hvað fótboltann varðar
er ég ekki búin að ákveða hvar
ég spila. Ég æfi ekki með neinu
félagsliði eins og er, æfi aðeins
sjálf. Ég reikna því ekki með því
að taka þátt í innanhússmótinu
núna í janúar,“ sagði Margrét.
Óskemmtileg
jólagjöf FÓLK
HEIÐAR Helguson skoraði eina
markWatford sem steinlá fyrir Mil-
wall, 4:1, á heimavelli í ensku 1.
deildinni. Heiðar, sem lék allan leik-
inn, skoraði mark Watford á 82. mín-
útu leiksins og minnkaði þá muninn í
3:1.
LÁRUS Orri Sigurðsson lék allan
tímann í vörn WBA sem burstaði
Stockport á heimavelli, 4:0, í fyrra-
dag. Á laugardag tók Lárus út leik-
bann þegar WBA tapaði fyrir Gill-
ingham.
BRENTFORD tapaði fimmta úti-
leiknum í röð í ensku 2. deildinni
þegar liðið beið lægri hlut fyrir
Tranmere á laugardaginn. Ólafur
Gottskálksson og Ívar Ingimarsson
léku báðir allan leikinn fyrir Brent-
ford sem er í fjórða sæti deildarinn-
ar.
ANDY Cole lék sinn fyrsta leik í
búningi Blackburn þegar liðið sótti
Tottenham heim í fyrradag. Cole,
sem seldur var frá Man.Utd fyrir 8
milljónir punda, náði sér engan veg-
inn á strik og Blackburn tapaði, 1:0.
Varnarjaxlinn Dean Richards skor-
aði eina mark leiksins á lokamínútu
fyrri hálfleiks.
KEVIN Phillips markaskorarinn
mikli í liði Sunderland fær eflaust
ekki að taka fleiri vítaspyrnur fyrir
lið sitt á leiktíðinni. Phillips lét nefni-
lega Peter Schmeichel verja frá sér
vítaspyrnu í leik Sunderland og
Aston Villa í fyrradag og var þetta
þriðja vítið í röð sem Phillips klúðrar
á leiktíðinni. „Ég tek ekki fleiri víta-
spyrnur. Það er kominn tími á að ein-
hver annar fái tækifæri,“ sagði Phil-
ips.
OTTMAR Hitzfeld þjálfari
Bayern München hefur verið út-
nefndur þjálfari ársins í Evrópu en
blaðamenn frá 30 löndum í álfunni
stóðu að kjörinu. Í öðru sæti varð
Fabio Capello þjálfari Roma og í
þriðja sæti Gerard Houllier hjá Liv-
erpool.
KIERON Dyer ætlar að fram-
lengja samning sinn við Newcastle
en þessi 23 ára gamli miðvallarleik-
maður, sem á tvö og hálft ár eftir af
samningi sínum, hefur verið sterk-
lega orðaður við Manchester United
og Leeds.
WALTER Smith knattspyrnu-
stjóri Everton er ekkert á þeim bux-
unum að gefast upp hjá Everton þó
svo að lið hans hafi vegnað illa upp á
síðkastið. Everton hefur tapað fimm
leikjum í röð í úrvalsdeildinni og tapi
liðið fyrir Stoke í bikarkeppninni á
laugardaginn má fastlega búast við
því að þrýstingurinn á að reka Smith
aukist til muna.
FREDDY Shepherd, stjónarfor-
maður Newcastle, segist hafa orðið
fyrir vonbrigðum þegar ljóst var að
Bobby Robson, knattspyrnustjóri
liðsins, yrði ekki aðlaður af bresku
drottningunni um nýliðin áramót.
Shepherd segir að tæplega hálfrar
aldar gæfurík afskipti Robson af
knattspyrnunni kalli á að hann verði
aðlaður.
PÉTUR Guðmundsson og læri-
sveinar hans í Kongsberg töpuðu á
heimavelli gegn Tromsö, 73:75, sl.
sunnudag í norsku úrvalsdeildinni í
körfuknattleik. Warren Peebles var
stigahæstur í liði Kongsberg með 22
stig. Kongsberg er í fjórða sæti af
alls tíu liðum.
WERNER Lorant fyrrum þjálfari
1860 München í þýsku úrvalsdeild-
inni hefur verið ráðinn til tyrknesku
meistaranna í Fenerbache en liðið
rak þjálfara sinn, Mustafa Denizli,
fyrir tíu dögum.
STJÓRNARMENN Manchester
United segja að Alex Ferguson muni
hætta störfum sem knattspyrnu-
stjóri félagsins í vor en vangaveltur
hafa verið í gangi þess efnis að
Ferguson kynni að halda áfram eftir
allt saman. Ferguson ýjaði að því
sjálfur í blaðaviðtali að svo gæti farið
að hann yrði áfram en stjórnarmenn
félagsins sögðu við fréttamenn í gær
að nýr stjóri tæki við í vor.
AP
æði mörk Chelsea er liðið lagði Newcastle að velli á St James’ Park í
á hann í höggi við Sylvain Distin, leikmann Newcastle.
KR og Fylkir bítast um að fá knatt-
spyrnumanninn Veigar Pál Gunnarsson
til liðs við sig en Veigar ákvað sem kunn-
ugt er að snúa heim í haust eftir dvöl í
Noregi þar sem hann lék með Ströms-
godset. Veigar er með tilboð í hönd-
unum frá Reykjavíkurliðunum og þá
hyggjast Stjörnumenn blanda sér í bar-
áttuna en Veigar er alinn upp í Stjörn-
unni og lék með því liði áður en hann
gekk í raðir Strömsgodset.
KR og Fylk-
ir bítast um
Veigar Pál
GÚSTAF Bjarnason handknattleiks-
maður framlengdi nú um áramótin
amning sinn við þýska úrvalsdeild-
arliðið Minden um eitt ár og gildir nýi
amningurinn til júní 2003. Gústaf,
em gekk í raðir Minden frá Willstätt
árið 2000, hefur staðið sig vel með
Minden á leiktíðinni og er fjórði
markahæsti maður liðsins með 69
mörk en Minden hefur komið skemmti-
ega á óvart í vetur og er í sjöunda
æti þegar deildarkeppnin er hálfnuð.
Gústaf Bjarna-
son samdi
við Minden
Meistararnir
í annað sætið
ÍÞRÓTTIR