Morgunblaðið - 03.01.2002, Qupperneq 4
GUÐMUNDUR Þ. Guðmundsson,
landsliðsþjálfari Íslands í handknatt-
leik, stjórnaði liði sínu í ellefu leikj-
um á árinu og náði liðið 50% árangri
– vann fimm leiki, tapaði fimm og
gerði eitt jafntefli.
ÞRÍR leikmenn léku alla ellefu
leikina undir stjórn Guðmundar Þ. –
Rúnar Sigtryggsson, Sigfús Sig-
urðsson og Guðjón Valur Sigurðs-
son.
GUÐMUNDUR Þ. gaf fimm nýlið-
um kost á að spreyta sig; Bjarka Sig-
urðssyni, Val, Snorra S. Guðjóns-
syni, Val, Arnóri Atlasyni, KA,
Markúsi Mána Mikaelssyni, Val, og
Einari Hólmgeirssyni, ÍR, sem var í
fyrsta skipti í landsliðshópnum í Pól-
landsferðinni.
ALLS hafa 29 leikmenn leikið
undir stjórn Guðmundar Þ. í lands-
leikjunum ellefu.
HALLDÓR Ingólfsson, Haukum,
stóð sig vel í leikjunum þremur í Pól-
landi og skoraði alls nítján mörk í
leikjunum. Áður hafði hann skorað
12 mörk í sex landsleikjum, en hann
lék síðast með landsliðinu í tveimur
leikjum gegn Grænlendingum í
Nuuk á Grænlandi í desember 1995.
BOGDAN, fyrrverandi landsliðs-
þjálfari Íslands, heilsaði upp á lands-
liðsmennina í Póllandi. Einn leik-
maður landsliðsins lék undir hans
stjórn – Guðmundur Hrafnkelsson
markvörður. Guðmundur Þ. lands-
liðsþjálfari og aðstoðarmaður hans,
Einar Þorvarðarson, léku einnig
undir stjórn Bogdans, sem stjórnaði
landsliðinu á árunum 1983 til 1990.
ÍSLENSKA landsliðið lék alls 25
landsleiki 2001 – vann tíu, tapaði tólf
og gerði þrisvar jafntefli. Guðjón
Valur Sigurðsson lék 23 leiki, Einar
Örn Jónsson og Patrekur Jóhann-
esson 22, Róbert Sighvatsson 21,
Birkir Ívar Guðmundsson og Ólafur
Stefánsson 20 leiki.
ÓLAFUR Stefánsson skoraði flest
mörkin í landsleikjum á árinu, eða
202 mörk. Patrekur Jóhannesson
kom næstur á blaði með 84 mörk og
Guðjón Valur Sigurðsson var í
þriðja sæti með 74 mörk.
GÚSTAF Bjarnason skoraði 4
mörk fyrir GWD Minden er liðið
vann öruggan sigur á Grosswall-
stadt á heimavelli, 31:23, á laugar-
deginum fyrir áramót.
BARCELONA varð spænskur bik-
armeistari í handknattleik sl. sunnu-
dag. Liðið vann Portland San Ant-
onio, 26:25, í úrslitaleik eftir að hafa
verið yfir í hálfleik, 13:11.
MAGNUS Wislander, sem kjörinn
var besti handknattleiksmaður 20.
aldarinnar, ætlar að söðla um í vor
og hætta að leika með Kiel í þýska
handknattleiknum. Wislander verð-
ur 38 ára á þessu ári og ætlar að
leika eitt tímabil með sínu gamla liði,
Redbergslids frá Gautaborg, áður
en hann leggur skóna á hilluna vorið
2003.
CHRISTIAN Gaudin, franski
landsliðsmarkvörðurinn í herbúðum
þýska meistaraliðsins Magdeburg,
hefur ákveðið að framlengja samn-
ing sinn við félagið til vorsins 2004.
Gaudin var að velta fyrir sér að
halda heim til Frakklands og leika
þar.
ÓLAFUR Stefánsson er fimmti
markahæsti leikmaður þýsku 1.
deildarinnar í handknattleik að lokn-
um átján umferðum, en hlé hefur nú
verið gert á deildarkeppninni vegna
Evrópumótsins í handknattleik sem
hefst í Svíþjóð síðar í þessum mán-
uði. Ólafur hefur skorað 111 mörk,
eða 6,2 að meðaltali í leik. Stephan
Just hjá Eisenach er markahæstur
með 142 mörk, Kyung-Shin Yoon,
Gummersbach, er annar með 134
mörk og Stig Rasch, leikmaður Will-
stätt, er þriðji, hefur skorað 118
sinnum.
FÓLK
ÞJÓÐVERJAR, sem leika hér á
landi tvo landsleiki í handknatt-
leik 12. og 13. janúar, eru með
svipaðan lokaundirbúning og Ís-
lendingar fyrir Evrópukeppnina
sem hefst í Svíþjóð föstudaginn
25. janúar. Þjóðverjar taka nú um
helgina þátt í fjögurra liða móti í
Þýskalandi, þar sem a og b-lið
Þýskaland keppa ásamt Tékkum
og Svisslendingum, sem mæta Ís-
lendingum á EM.
Eftir leikina hér á landi mæta
Þjóðverjar Rússum í Nordhorn
18. janúar og síðan mæta þeir
Dönum í Flensborg 20. janúar.
Íslenska landsliðið heldur til
Danmerkur eftir leikina gegn
Þjóðverjum og leikur við Dani 18.
janúar og tveimur dögum síðar
við Frakka sem verða við æfingar
í Danmörku dagana fyrir EM.
Frakkar leika einnig við Dani.
Síðan verður landsliðið í æf-
ingabúðum í fjóra daga í Dan-
mörku áður en haldið verður til
Skövde í Svíþjóð. Fyrsti leikur Ís-
lands á EM verður gegn Spáni.
Þjóðverjar koma
ópumeistaramótinu og sagðist
Guðmundur reikna með að velja
endanlegan keppnishóp vegna EM
fljótlega að loknum tveimur
landsleikjum við Þjóðverja hér á
landi um aðra helgi. „Vegna
meiðsla, veikinda og annarra þátta
sem geta komið upp við undirbún-
ing landsliðsins fyrir EM vil ég
vinna sem lengst með sem stærst-
um hópi,“ sagði Guðmundur er
hann tilkynnti um valið í gær.
Hann sagði þennan 20 manna hóp
þann sterkasta sem völ væri á að
sínu mati með þeirri undantekn-
ingu vissulega að hann saknaði
Julians Róberts Duranona, sem
væri fjarri góðu gamni vegna
meiðsla. „Okkur vantar tilfinnan-
lega fleiri leikmenn eins og Dur-
anona en því miður er lítið um
slíka menn í íslenskum handknatt-
leik í dag. Því verðum við að haga
okkar leik samkvæmt því,“ sagði
Guðmundur ennfremur.
Landsliðið fer til Noregs á
föstudag hvar það leikur þrjá
landsleiki á föstudag, laugardag og
sunnudag við heimamenn, Króatíu
og Egyptaland. „Leikirnir í Nor-
egi segja mér mikið um hver staða
Þeir fjórir sem koma inn í hóp-inn nú eru Gústaf Bjarnason,
GWD Minden, Ólafur Stefánsson,
Magdeburg, Sigurður Bjarnason,
Wetzlar, og Patrekur Jóhannes-
son, Essen. Af þessum væntanlega
21 manns hópi taka 16 þátt í Evr-
landsliðsins er í dag. Nú eru
reynslumiklir menn komnir í hóp-
inn og því verða viðureignirnar
mjög fróðlegar fyrir mig,“ sagði
Guðmundur.
EM-hópur Guðmundar er skip-
aður eftirtöldum leikmönnum;
Markverðir eru Guðmundur
Hrafnkelsson, Pallamano Convers-
ano, Birkir Ívar Guðmundsson,
Stjörnunni, Bjarni Frostason,
Haukum, og Hreiðar Guðmunds-
son, ÍR.
Línu- og hornamenn eru Guðjón
Valur Sigurðsson, Essen, Gústaf
Bjarnason, GWD Minden, Einar
Örn Jónsson, Haukum, Sigfús Sig-
urðsson, Val, Róbert Gunnarsson,
Fram, og Róbert Sighvatsson,
Düsseldorf.
Útileikmenn eru Dagur Sigurðs-
son, Wakunaga, Gunnar Berg
Viktorsson, PSG, Rúnar Sig-
tryggsson, Haukum, Snorri Guð-
jónsson, Val, Aron Kristjánsson,
Haukum, Ragnar Óskarsson, US
Dunkerque, Halldór Ingólfsson,
Haukum, Sigurður Bjarnason,
HSG Wetzlar, Patrekur Jóhann-
esson, Essen, Ólafur Stefánsson,
Magdeburg.
Sextán þessara leikmanna leika
á mótinu í Noregi um helgina.
Af þeim leikmönnum sem Guð-
mundur valdi í desember voru það
Jón Karl Björnsson, Haukum, Páll
Þórólfsson, Aftureldingu, Bjarki
Sigurðsson og Markús Máni
Michalesson úr Val og Einar
Hólmgeirsson, ÍR, sem ekki hlutu
náð fyrir augum hans að þessu
sinni.
Morgunblaðið/Golli
Halldór Ingólfsson lék mjög vel í þremur landsleikjum í Póllandi.
Vil vinna sem lengst
með sem stærstum hópi
GUÐMUNDUR Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik,
hefur valið í landsliðshópinn sem hann hyggst vinna með fyrir Evr-
ópukeppnina sem hefst í Svíþjóð 25. janúar nk. Guðmundur kallaði
til 20 leikmenn í gær og heldur einu sæti lausu fram yfir helgi þegar
í ljós komið hvort Gylfi Gylfason, Düsseldorf, getur gefið á kost á
sér eða ekki vegna meiðsla. Ef Gylfi verður ekki klár í slaginn ætlar
Guðmundur að velja annan leikmann. Af þeim 20 sem voru valdir nú
voru 16 í æfingahópnum sem valinn var um miðjan desember. Ekk-
ert óvænt getur talist við val Guðmundar á þessum hópi.
Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari þrengir EM-hópinn
PÓLVERJAR ætla að endur-
gjalda heimsókn íslenska
landsliðsins í handknattleik í
lok þessa árs. Reiknað er með
að þeir komi hingað á milli
jóla og nýárs og leiki a.m.k.
tvo vináttulandsleiki. Báðar
þjóðirnar vænta þess að þær
verði þá að huga að und-
irbúningi HM í Portúgal í
ársbyrjun 2003 og því komi
leikirnir sér vel í þeirri
vinnu. Það skýrist þó ekki
fyrr en að lokinni undan-
keppni HM sem fram fer í lok
maí og byrjun júní í vor.
Pólverjar
koma næst