Morgunblaðið - 17.01.2002, Blaðsíða 1
2002 FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR BLAÐ C
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
GUÐMUNDUR Þ. SPÁIR Í MÓTHERJA OG MÖGULEIKA Á EM / C4
Rangur
dómur að
mati Vialli
WATFORD hyggst reyna að
fá rauða spjald Heiðars
Helgusonar í leiknum við
Millwall fellt niður hjá aga-
nefnd enska knattspyrnu-
sambandsins en Heiðar, sem
var nýkominn inná sem vara-
maður, fékk reisupassann
fyrir brot á lokamínútunni í
leik Watford og Millwall í
fyrrakvöld. Dómarinn mat
brot Heiðars sem grófa tækl-
ingu aftan frá og vísaði hon-
um umsvifalaust að velli.
„Það var rangur dómur að
vísa Heiðari útaf. Ég sá at-
vikið vel. Tæklingin hjá hon-
um var heiðarleg og hann
snerti leikmann Millwall
óverulega,“ sagði Gianluca
Vialli, knattspyrnustjóri Wat-
ford og bætti því við að þessi
sami dómari væri búinn að
dæma þrjá leiki hjá Watford
á leiktíðinni og í þeim leikj-
um hefði hann vísað fimm
leikmönnum Watford af velli.
Fái Watford ekki þessum
dómi breytt fer Heiðar í
þriggja leikja bann.
Ég hef svona lauslega rætt viðforráðamenn WBA um málin
og komið þeim skilaboðum áleiðis
hvað ég vil fá fyrir minn snúð. Ég
sagði þeim að við fjölskyldan vær-
um búin að hugsa mikið um hvort
við ættum ekki að flytja heim, svo í
raun má segja að boltinn sé hjá
WBA. Ef ég fæ það sem ég vil
verð ég hér áfram en ég get alveg
sagt þér það að Akureyri togar.
Við höfum verið úti síðan 1994 og
það styttist í að við snúum heim á
leið,“ sagði Lárus Orri við Morg-
unblaðið en hann hefur verið í her-
búðum WBA frá haustinu 1999
þegar liðið keypti hann frá Stoke.
Lárus sagðist hafa verið búinn
að taka ákvörðun fyrir tímabilið
um að flytja heim í sumar en for-
sendur hefðu breyst.
„Ég gerði ekki ráð fyrir að vera
í liðinu en það hefur mikið breyst
síðan ég tók þá ákvörðun að þetta
yrði mitt síðasta ár. Ég hef spilað
hvern einasta leik, nema þegar ég
tók út einn leik í banni, og mér
hefur gengið mjög vel. Ég vona
bara að við ljúkum tímabilinu al-
mennilega og förum upp. Við erum
með í toppbaráttunni og höfum alla
burði til að vera það áfram, svo
framarlega sem við höldum ekki
áfram að tapa stigum á móti neðri
liðunum, en okkur hefur vegnað
mjög vel á móti toppliðunum.“
WBA vill halda Lárusi Orra
LÁRUS Orri Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er búinn að
fá í hendurnar skriflegt tilboð um að framlengja samning sinn við
enska 1. deildarliðið WBA um tvö og hálft ár, en samningur hans við
félagið á að renna út í sumar. Lárus, ásamt átta öðrum leikmönnum,
verður með lausa samninga í sumar og er Lárus einn þriggja leik-
manna liðsins sem stjórnarmenn WBA leggja hvað mesta áherslu á
að halda.
Birgir Leifur sagði í samtali viðMorgunblaðið í gær að skipu-
leggjendur áskorendamótaraðarinn-
ar hefðu enn ekki gengið endanlega
frá tímasetningum og keppnisstöðum
á næsta keppnistímabili. „Það er
margt sem þarf að athuga áður en
keppnistímabilið hefst og þessa dag-
ana er ég að bíða eftir svörum frá
hugsanlegum samstarfsaðilum,“
sagði Birgir Leifur.
Björgvin Sigurbergsson hefur sótt
um að fá að taka þátt í mótinu í Kenýa
en aðilar hér á landi vinna hörðum
höndum að málinu og var Björgvin
þokkalega bjartsýnn á að það tækist.
„Það er verið að ganga frá lausum
endum hvað varðar tímabilið og ég
vonast til þess að komast inn á mótið í
Kenýa en það er ætlunin að við Birgir
Leifur förum saman á mótið í Sam-
bíu. Það er slæmt að dagskráin skuli
ekki vera klár fyrir tímabilið og því
verð ég að bíða aðeins með að ganga
endanlega frá þeim hlutum sem snúa
að mér,“ sagði Björgvin í gær en hann
var þá á leið út á golfvöll Keilismanna
á Hvaleyrinni að æfa sig, enda voru
aðstæður eins og best verður á kosið
sé miðað við 16. janúar á Íslandi. Á
myndinni er hann ásamt börnum sín-
um, Guðrúnu Brá og Helga Snæ.
Birgir Leifur
og Björgvin
til Afríku
KYLFINGURINN Birgir Leifur Hafþórsson mun hefja keppn-
istímabilið á sterku móti sem fram fer í Kenýa í Afríku 28. febrúar
nk. Viku síðar tekur Birgir Leifur þátt í móti í Sambíu og í kjölfarið
fylgja mót í Marokkó og á Ítalíu.
Reuters
Frakkinn Jerome Golmard fagnar eftir að hafa lagt Goran Ivanisevic á opna ástr-
alska í tennis. Úrslit C2 og umsögn C3.
SOULEYMANE Oulare, framherji Stoke, var í
fyrradag fluttur í skyndi á sjúkrahús og var um
tíma óttast um líf hins 29 ára gamla Gíneubúa.
Oulare átti erfitt um andardrátt og kvartaði
einnig um mikla verki í brjósti. Læknar töldu í
fyrstu að blóðkökkur væri í lunga Oulares og er
haft eftir Stefáni Stefánssyni, sjúkraþjálfara,
að mönnum hafi ekki litist á blikuna um tíma.
„Hann þurfti mikla aðstoð frá læknum til þess
að geta andað og þeir áttu í vandræðum með að
finna út hvað olli þessu,“ sagði Stefán en á þess-
ari stundu er ekki vitað hvað hrjáir Oulare, sem
kom frá Las Palmas en miklar vonir eru bundn-
ar við Oulare, sem var markahæsti leikmaður
Belgíu er hann lék með Genk. „Þessi tíðindi eru
okkur mikið áfall en það mikilvægasta er að
finna hvað olli þessu og að Oulare nái bata sem
fyrst,“ sagði Guðjón Þórðarson.
Óttast var um líf
leikmanns Stoke