Morgunblaðið - 17.01.2002, Side 4
Það sem þarf meðal annars að farabetur yfir er að búa liðið undir
að mæta fleiri afbrigðum af sóknar-
og varnarleik. Þá
koma leikirnir við
Dani og Frakka sér
vel því eftir þeim
upplýsingum sem ég
hef bestar þá leika Danir meðal ann-
ars 3/2/1 framliggjandi vörn og einn-
ig 5/1 svo að leikirnir við þá verða
væntanlega mjög lærdómsríkir. Þá
er einnig kærkomið að mæta heims-
meisturum Frakka í síðasta leik fyrir
EM. Þeir leika mjög fjölbreyttan
sóknar- og varnarleik undir stjórn
nýs þjálfara. Leikirnir um helgina
verða því viss prófraun á liðið mitt á
lokasprettinum,“ sagði Guðmundur
en leikirnir við Dani og Frakka eru í
Danmörku á föstudag og laugardag.
Eftir það eru ráðgerðar æfingar á
mánudag og þriðjudag í Kaup-
mannahöfn, tvær æfingar hvorn dag.
Að þræða hinn gullna
meðalveg
Guðmundur segir ennfremur að
hann reikni fastlega með að and-
stæðingarnir á EM gangi mjög
ákveðið út á móti Ólafi Stefánssyni
og eins gerist það eflaust í einhverj-
um mæli gegn Dönum og Frökkum.
Það er því íslenska liðinu hollt að
venjast þeirri staðreynd og sjá
hvernig þær lausnir reynast sem
æfðar hafa verið við þeirri aðgerð
andstæðinganna.
Um lokaundirbúninginn sagði
Guðmundur að hann myndi leggja
nokkuð jafna áherslu á varnar- og
sóknarleikinn. „Það er nú einu sinni
þannig að þegar maður þjálfar lands-
lið þá þarf að gera margt á stuttum
tíma. Um leið þarf einnig að gæta sín
á því að gera ekki of mikið. Málið er
reyna að finna og þræða hinn gullna
meðalveg og hann er ég að reyna að
þræða í fyrsta skipti. Eftir keppnina
í Svíþjóð kemur í ljós hvernig til hef-
ur tekist við það.“
Hefur þú fengið nýjar myndir og
upplýsingar um andstæðingana í
riðlakeppni EM; Spánverja, Slóvena
og Svisslendinga?
„Ég hef fengið myndir af leikjum
Svisslendinga og Spánverja. Reynd-
ar eru myndirnar af Spánverjunum
ekki nýjar, eru frá Super Cup-
mótinu í Þýskalandi í haust þar sem
Talant Duschebajev lék með þeim.
Nú er hann meiddur og leikur ekki
með á EM og það breytir eflaust eitt-
hvað leik spænska liðsins. Þeir leika í
Svíþjóð um næstu helgi og ég ætla að
verða mér úti um upptöku af leikjum
þeirra þar. Einnig hef ég verið í sam-
bandi við Pólverja sem léku við
Spánverja á Spáni um síðustu helgi
um að fá hjá þeim upptökur. Vonandi
tekst það.“
Slóvenar hafa lítið
leikið opinberlega
„Nú bíð ég eftir upptökum af leikj-
um Slóvena í Portúgal um síðustu
helgi og vænti þess að þær verði
komnar áður en við höldum til Dan-
merkur, annars verða þær sendar til
mín þangað. Slóvenar hafa ekkert
leikið opinberlega í langan tíma þar
til á fjögurra landa móti í Portúgal
um síðustu helgi og því liggja upp-
tökur af leik þeirra ekki á lausu.
Það er því miður lítið að marka
upptökur af leikjum Svisslendinga á
mótinu í Svíþjóð um síðustu helgi þar
sem í liðið vantaði þrjá lykilmenn, þá
Marc Baumgartner, Robbie Kostad-
inovich og Iwan Ursic. Fyrir vikið
má ekki draga of miklar ályktanir af
slæmum leik svissneska liðsins í Sví-
þjóð.
Það er ljóst í mínum huga að það
má ekki undir neinum kringumstæð-
um vanmeta Sviss.“
Hvaða markmið setur íslenska lið-
ið sér á EM?
„Það er mjög einfalt, fyrsti áfang-
inn er að komast í milliriðla. Fyrr en
það tekst er ekki rétt að setja sér
annað markmið því það hefur lítið
upp á sig á að horfa á einhver sæti í
keppninni ef liðið kemst ekki upp úr
riðlakeppninni og þarf að fara heim
að henni lokinni. Fyrst er að einbeita
sér að hinni erfiðu riðlakeppni áður
en farið er að hugsa lengra.
Við lítum heldur ekki á riðla-
keppnina þannig að þar sé nóg að
vinna einn leik til þess að komast
áfram. Málið sé að vinna Sviss og þar
með verði sæti í milliriðlum tryggt.
Ekki er víst að það dugi að vinna einn
leik til þess að komast í milliriðla auk
þess sem viðureignin við Sviss er sú
síðasta af þremur í riðlakeppninni og
því ekki ráðlegt að veðja á sigur í síð-
asta leik.
Þegar og ef okkur tekst að komast
í milliriðla þá setjum við okkur nýtt
markmið.
Við verðum bara að taka eitt skref
í einu í stað þess að vera með há-
stemmdar yfirlýsingar um ákveðin
sæti.“
Spánverjar og Slóvenar
hafa gert betur en
Íslendingar á stórmótum
Guðmundur segir að Evrópu-
keppnin sé mjög erfitt mót þar sem
flestallar bestu handknattleiksþjóðir
heims eru samankomnar. Komist ís-
lenska liðið í milliriðla þýðir það sjö
leiki á níu dögum. Það reyni mjög á
og ekkert megi út af bera.
Um andstæðingana í riðlakeppn-
ina, Spánverja, Slóvena og Sviss-
lendinga, segir Guðmundur:
„Slóvenar gerðu miklum mun bet-
ur en íslenska liðið á síðasta Evrópu-
móti fyrir tveimur árum og sömuleið-
is Spánverjar. Báðar þjóðirnar hafa
verið fyrir ofan okkur síðustu ár, á
því leikur enginn vafi og því verða
leikmenn og aðrir að gera sér grein
fyrir að liðsins bíður erfitt verkefni.
Svisslendingar hafa alltaf reynst
okkur erfiður andstæðingur á síð-
ustu árum, því skyldi enginn gleyma.
Þeir eru erfiður andstæðingur sem
ber síst að vanmeta heldur sýna til-
hlýðilega virðingu, samt sem áður
ekki of mikla.
Svisslendingar segja að leikurinn
við Íslendinga sé leikurinn sem þeir
ætla að vinna og komast áfram í
keppninni. Það hef ég heyrt og séð
haft eftir Arno Ehret, landsliðsþjálf-
ara Sviss. Því verðum við að fara af
fullri alvöru og einurð í þann leik eins
og aðra á Evrópumótinu, þar verður
enginn leikur auðveldur,“ segir Guð-
mundur Þ. Guðmundsson, landsliðs-
þjálfari í handknattleik.
Guðmundur Þ. Guðmundsson um Evrópukeppnina í Svíþjóð
Fyrsti áfanginn er að
komast í milliriðla
Morgunblaðið/Golli
Ólafur Stefánsson leikur lykilhlutverk með landsliðinu á Evrópumótinu í Svíþjóð, þar
sem Ísland leikur í riðli með Spáni, Sviss og Slóveníu.
„FRAM til þessa hefur undir-
búningurinn gengið vel, en svo
sannarlega er ýmislegt sem á
eftir að pússa til, það er eins og
gengur þegar líður að stórmóti,“
segir Guðmundur Þórður Guð-
mundsson landsliðsþjálfari nú
þegar átta dagar eru þar til
flautað verður til leiks Íslend-
inga og Spánverja í Skövde á
Evrópumótinu í Svíþjóð. „Ég trúi
því að sá tími sem til stefnu er
dugi til þess að ljúka því sem
þarf að ljúka áður en keppnin
hefst,“ segir Guðmundur enn-
fremur en hann fer með sveit
sína til Danmerkur á morgun
þar sem liðið verður saman í æf-
ingabúðum fram á næsta mið-
vikudag er haldið verður yfir
sundið frá Kaupmannahöfn til
Svíþjóðar.
GUÐMUNDUR UM SVISS
’ Lítið að marka upptökur af leikjumSvisslendinga í Svíþjóð, þar sem í liðið
vantaði þrjá lykilmenn – Baumgartner,
Kostadinovich og Ursic. ‘
Ívar
Benediktsson
skrifar
ALAN Shearer, sem hefur verið
nefndur sem næsti knattspyrnu-
stjóri Newcastle, er nú orðinn vin-
sæll hjá veðbönkum í London.
Shearer hefur leikið vel að undan-
förnu og er fyrrverandi fyrirliði
enska landsliðsins. Farið er að veðja
á að Sven-Göran Eriksson, lands-
liðsþjálfari Englands, kalli á hann
fyrir HM í Suður-Kóreu og Japan.
TOTTENHAM er komið í hóp
þeirra liða sem hafa sýnt norska
landsliðsmanninum og miðherjanum
John Carew, sem leikur með Val-
encia á Spáni, áhuga.
LOUIS Saha, framherji Fulham,
verður frá keppni og æfingum næstu
vikurnar þar sem hann nefbrotnaði í
bikarleik gegn Wycombe á miðviku-
dag.
SPÆNSKU dagblöðin Marca og
AS segja að Frakkinn Patrick
Veira, miðjumaðurinn snjalli hjá
Arsenal, hafi verið í viðræðum við
forráðamenn Real Madrid á mánu-
dag. Blöðin segja að Real Madrid sé
reiðubúið að greiða Arsenal 26 millj-
ónir punda eða sem samsvarar 3,8
milljörðum króna fyrir leikmanninn
og gera við hann fimm ára samning.
ARSENE Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, hefur ítrekað sagt að
Viera sé ekki falur og gildi þá einu
hversu hátt tilboð berist.
FRANCIS Jeffers, miðherjinn
sem Arsenal keypti frá Everton á tíu
milljónir punda sl. sumar, hefur lítið
sem ekkert getað leikið með liðinu
vegna meiðsla. Jeffers lék á ný –
með varaliði Arsenal gegn Chelsea á
þriðjudaginn. Hann fór af leikvelli
meiddur á ökkla.
ÁÐUR en Jeffers fór af leikvelli
hafði hann skorað tvö mörk í stór-
sigri á Chelsea, 5:0. Brasilíumaður-
inn Edu skoraði einnig tvö mörk.
Með Arsenal léku Richard Wright,
markvörður, Lee Dixon og Ray
Parlour, sem verða klárir í slaginn
gegn Leeds á Elland Road um næstu
helgi.
ALAN Shearer, miðherji New-
castle, er tilbúinn að veita Thierry
Henry, miðherja Arsenal, aðstoð í
máli hans, þegar hann kemur fyrir
aganefnd enska knattspyrnusam-
bandsins vegna framkomu sinnar við
dómarann Graham Poll, eftir leik
Arsenal og Newcastle á dögunum.
„Ég er tilbúinn að mæta fyrir nefnd-
ina og veita Henry stuðning ef hann
óskar,“ sagði Shearer.
HENRY fór til dómarans eftir leik-
inn til að fá svör við því hvers vegna
Poll rak Ray Parlour af leikvelli og á
hvað hann dæmdi vítaspyrnu undir
lok leiksins.
FABRIZIO Ravanelli, leikmaður
Derby, hélt fund með fréttamönnum
á æfingasvæði liðsins í gær, þar sem
hann tilkynnti að hann hefði ekki
áhuga á knattspyrnustjórastarfi Col-
ins Todds, sem var látinn fara frá lið-
inu sl. mánudag. „Ég er í góðri æf-
ingu og hef aðeins áhuga á að leika
knattspyrnu – ekki stjórna,“ sagði
Ravanelli.
GLENN Hoddle, knattspyrnu-
stjóri Tottenham, hefur augastað á
tveimur Brasilíumönnum – sóknar-
leikmanninum Washington, 26 ára,
og miðjumanninum Adrianinho, 21
árs, sem leika með Ponte Preta.
WASHINGTON skoraði 45 mörk í
47 deildarleikjum í Brasilíu sl.
keppnistímabil.
MARKUS Babbel, þýski varnar-
maðurinn sem er á mála hjá Liver-
pool, var í gær útskrifaður af sjúkra-
húsi í München í Þýskalandi en þar
hefur hann dvalið undanfarnar fimm
vikur. Babbel greindist með vírus-
sjúkdóm í haust sem lagðist á tauga-
kerfið og var lengi vel óttast um
heilsu hans. Læknar segja að Babbel
muni ná sér en hann getur þó ekki
leikið með Liverpool á næstunni.
FÓLK