Morgunblaðið - 01.02.2002, Síða 6

Morgunblaðið - 01.02.2002, Síða 6
DAGLEGT LÍF 6 B FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ tók fyrstu börnin að sér í septem- ber 1974, þá 37 ára gömul. Inga hefur nú starfað sem dag- móðir í rúmlega 27 ár, en í júní í sumar verður hún 65 ára gömul og segist alls ekki hafa í hyggju að leggja niður störf í bráð. Tvígift og tvífráskilin Ingibjörg hefur kynnst bæði gleði og sorgum á lífsleiðinni og þurft að takast á við margt æði mis- jafnt. Hún er tvígift og tvífráskilin, en segist alls ekki vera bitur í garð eins eða neins. Það þýði ekkert ann- að en að standa teinréttur í baki og bera sig vel enda sé hún nú fyrir löngu komin á lygnan sjó þótt útlit- ið hafi alls ekki verið gæfulegt þeg- ar hún stóð uppi 45 ára gömul, alls- laus með tvö börn, 7 og 8 ára gömul. Ingibjörg er frá Brú í Biskups- tungum, þriðja elst í sjö systkina hópi, fædd 11. júní árið 1937. Fyrri maðurinn hennar, Bjarni Sigurðs- son, var af næsta bæ, frá Geysi í Haukadal. Ung byrjuðu þau að búa saman í Hveragerði og var Ingi- björg rúmlega tvítug þegar hún var komin með þrjú börn, Sigrúnu, sem nú er 46 ára, Karl 44 ára og Bjarna 43 ára. Ingibjörg var 27 ára þegar þau Bjarni slitu samvistir og fóru þá drengirnir tveir í fóstur að Geysi til föðurforeldra, Sigurðar Greips- sonar og Sigrúnar Bjarnadóttur, þar sem þeir nutu ástar og umhyggju, en Inga flutti til Reykjavíkur með Sig- rúnu, dóttur sína. É G ER svo heppin að hafa aldrei fengið eina einustu kvörtun í öll þessi ár,“ segir Ingi- björg Óskarsdóttir um leið og hún ber kaffi og sörur á borð fyrir mig í stofunni sinni. Ingi- björg eða Inga, eins og hún er gjarnan kölluð, býr á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi, í rúmlega 70 fermetra íbúð í Álftamýri 30, þar sem hún ein ræður ríkjum og hefur þar skapað sér og sínum lífsviðurværið í gegn- um árin. „Ég er sjálfstæður at- vinnurekandi. Vinn frá 8 á morgn- ana til 16 á daginn við að passa börn og hér líður ekki dagur án þess að hringt sé og spurt eftir plássi fyrir barn.“ Í íbúðinni hennar er öllu hag- anlega fyrir komið og greinilegt er að húsmóðirin er sjálf mikil reglu- manneskja enda segist hún leggja mikið upp úr hreinlæti og hafa hlut- ina sem aðgengilegasta. Fimm svalavagnar eru úti á suðursvölun- um og tveir vagnar eru inni fyrir börn, sem þurfa einhverra hluta vegna, að kúra inni. Inga notar minna herbergið í íbúðinni fyrir sjálfa sig, en í stærra herberginu, sem er mjög rúmgott, fá börnin gott olnbogarými í leik og starfi. Alls kyns dót er að finna í nokkrum dótakössum, sem raðað er upp í hillur. Hljómflutningsgræjur eru í einu horninu og uppi á veggjum hanga þrjár viðurkenningar, sem Ingibjörgu hefur hlotn- ast í gegnum árin frá Sam- tökum dagmæðra fyrir vel unnin störf, síðast á 25 ára starfsafmæli sínu, en Inga „Það var auðvitað hræðilegt áfall að uppgötva það allt í einu og viður- kenna fyrir sjálfum sér að fyrsta ástin gengi ekki upp, sér í lagi þar sem þrjú börn voru í spilinu.“ Vildi verða hjúkka „Í Reykjavík bjó ég fyrstu mán- uðina hjá systur minni. Svo réðu hjónin Jóhanna Magnúsdóttir, lyfjafræðingur og apótekari, og Óskar Einarsson læknir, sem þá voru eigendur Iðunnar apóteks, mig til að sinna aðhlynningarstörf- um, en þá voru þau svo miklir sjúk- lingar að þau gátu ekki verið heima nema fá heimahjúkrun. Það var gullið tímabil. Ég fékk bæði íbúð og bíl til umráða auk þess sem þau gerðu mjög vel við mig í launum, og ekki skemmdi fyrir að ég var komin í starf, sem mig hafði dreymt lengi um. Ég hafði alið með mér þann draum að gerast hjúkrunarkona, en í stórri fjölskyldu var ekki til pen- ingur fyrir menntun. Jóhanna og DAGUR HJÁ DAGMÖMMU Ungur nemur, gamall temur. Ingibjörg Óskarsdóttir er sjálfstæður atvinnu- rekandi, sem passar börn frá morgni og fram undir kvöld. Jóhanna Ingvarsdóttir heimsótti dagmömmu með rúmlega 27 ára starfsreynslu og spjallaði við hana um starfið og annarra manna börn, lífshlaupið og hennar börn. Engar kaffipásur í vinnunni Óskar mátu mig mjög mikils og virtu öll mín störf. Hjá þeim var ég í tæp átta ár, en 1964, fyrsta árið hjá þeim heiðurshjónum á Lauga- veginum, kynntist ég seinni eigin- manninum og átti með honum tvö börn, Guðlaugu Maríu árið 1974 og Eið árið 1975. Þá vorum við flutt í leiguíbúð við Meistaravelli og þegar ég varð ófrísk að Guðlaugu, þurfti maður að fara að hugsa sinn gang upp á nýtt, en þótt ég ætti mann á þessum tíma, var ég alltaf fyrirvinna heim- ilisins og hef alltaf þurft að sjá ein fyrir báðum þessum börnum. Ég fór á stúfana og ræddi við þá ágætu konu, Margréti Sigurðardóttur, sem þá sá um dagvistunarmál borg- arinnar. Dagmömmustarfið var nánast í fæðingu og mér leist ágæt- lega á þá tilhögun að gerast dag- mamma. Ég sá fram á að geta verið heima með börnin mín með því að taka að mér fleiri börn í daggæslu sem ég og gerði. Frá byrjun líkaði mér dagmömmustarfið mjög vel og ég kunni vel að meta að geta verið heima enda var tómt mál að tala um að heimilisreksturinn gengi ef ég þyrfti að kaupa pössun fyrir mín tvö börn.“ Af götunni í eigin íbúð Þegar Inga gekk með Guðlaugu, sóttu þau hjónin um lóð undir rað- hús við Seljabraut og hófu hús- M orgunblaðið/K ristinn byggingu. „Ég átti peninga og var með góðar tekjur með mikilli vinnu sem ég lagði í húsbygginguna. Við fluttum frá Meistaravöllum inn í Traðarkotssund árið 1979 og stóð ég í þeirri meiningu að ég yrði þar aðeins í örfáa mánuði eða á meðan verið er að ljúka raðhúsabygging- unni. Til að gera langa sögu stutta, seldi fyrrverandi eiginmaðurinn raðhúsið án minnar vitundar árið 1980. Við fluttum inn í íbúð við Mið- tún, sem mér var sagt að yrði greidd með greiðslum, sem bærust frá kaupanda raðhússins. Þær greiðslur hef ég aldrei séð og í apríl 1982 hringdi loks í mig lögfræð- ingur, að beiðni þáverandi eigin- manns, og skipaði mér og börnun- um að hafa okkur á brott úr íbúðinni fyrir 1. júní. Ég stóð á þessum tímamótum uppi 45 ára gömul með tvö börn, en að öðru leyti allslaus, búin að missa bæði húsnæði og atvinnu. Ég flutti í byrjun með börnin inn á Sigrúnu dóttur mína, en það var þröngt hjá henni, svo ég leitaði á náðir Félags- málastofnunar í fyrsta skipti og var vísað til Sigrúnar Sigurðardóttur félagsráðgjafa sem ég hafði haft nokkur samskipti við á meðan ég bjó í Miðtúninu, en hún var fé- lagsráðgjafi móður átta mánaða gamallar stúlku sem ég tók að mér í sólarhringsvistun í sjö mánuði,“ en auk hennar hefur Inga verið með þrjú önnur börn í sólarhringsvistun, átta til níu mánuði í senn. „Sigrúnu kom staða mín ekkert sérstaklega á óvart og gekk í að útvega mér og börnunum herbergi hjá Félagi ein- stæðra foreldra í Skerjafirðinum. Þar tók ég upp þráðinn sem dag- móðir og passaði fyrir aðrar ein- stæðar mæður sem þarna voru. Kraftaverkið gerðist svo hálfu ári seinna eða í desember 1982 að ég fékk loforð um að fá keypta svokall- aða endursöluíbúð á vegum borg- arinnar og í janúar 1983 var ég flutt í nýju íbúðina í Álftamýrinni með börnin mín þar sem við höfum alið manninn síðan. Ég var ekki bjart- sýn á að geta haldið íbúðinni, en gat strax óáreitt farið að passa börn sem ég hef gert óslitið síðan og hef- ur allt farið vel. Ég geri mér hins- vegar grein fyrir því að ég hefði aldrei haft þetta af án barnanna minna tveggja. Þau eiga mikinn heiður skilið. Þau gengu í öll dag- mömmuverkin með mér og pössuðu svo upp á að mamma gamla gæti hvílt sig. Það er alls ekki sjálfgefið að eiga börn, sem gera ekkert ann- að en að hjálpa, styðja og styrkja. Þetta verður þeim vonandi gott veganesti í lífinu, en hættan er sú að börn þroskist of snemma þegar þau þurfa að ganga í gegnum erf- iðleika. Þá verður ósamræmi í lík- ama og sál.“ Mikið leikið á morgnana Ingibjörg hefur ekki nákvæma tölu á börnunum, sem hún hefur passað gegnum árin, en nærri Dagmamman Ingibjörg Óskarsdóttir með „krakkana sína“. Frá vinstri Stefán Kári Ægisson, Laufey María Knútsdóttir, Ólafur Heiðar Jónsson, Auðunn Óli Völuson og Pétur Matthías Sæmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.