Morgunblaðið - 01.02.2002, Síða 7
lætur að þau séu orðin um 150 tals-
ins. Persónulega finnst henni
mátulegt að vera með fimm börn
þótt hún hafi leyfi fyrir sjö.
„Kona, sem stendur vel að þessu
starfi og er með fimm börn, er
alls ekkert launalág. Ég bý í
haginn á haustin, geri slátur,
kaupi kjöt og fisk í miklu magni
í einu og fylli stóra frystikistu,
sem ég á.“
Dagskráin er í þrælföstum
skorðum og leggur hún blátt
bann við heimsóknum til sín
á meðan hún er í vinnunni.
„Hér eru engar kaffipásur á meðan
ég er í vinnunni,“ segir Inga. Börn-
in eru átta mánaða gömul til
tveggja ára, en þá fá flest börn inni
á leikskóla. Vekjaraklukkan hjá
dagmömmunni í Álftamýrinni
hringir klukkan 6.45 á morgnana og
börnin fimm koma svo rétt fyrir
átta. Þá þarf hafragrauturinn að
vera tilbúinn og síðan tekur leik-
urinn við þegar búið er að borða, yf-
irleitt kl. 9. „Morgnarnir eru okkar
bestu tímar. Yfirleitt elda ég hádeg-
ismatinn kvöldinu áður, en ef nýr
fiskur er á matseðlinum, er hann
eldaður rétt áður. Hádegismatur er
framreiddur um klukkan hálftólf.
Slátur er einu sinni í viku, fiskur
tvisvar og kjöt tvisvar. Þegar búið
er að borða, fara allir í eina röð til
að athuga hvort skipta þarf á boss-
unum og þegar pokinn með beisl-
unum er tekin fram, vita allir að
ferðinni er heitið út í vagnana.
Hvíldartíminn stendur í hálfan ann-
an til tvo tíma. Aftur er skoðað í
bleiurnar og gefin hressing upp úr
klukkan þrjú. Börnin eru svo sótt
um kl. 16. Það er auðvitað mikil
ábyrgð, sem fylgir því að taka að
sér börn annarra, sér í lagi sólar-
hringsbörn frá erfiðum heimilum
sem oft þurfa bara hlýju og um-
hyggju til að kalla fram vellíðan.
Öfugþróun
í dagvistarmálum
„Mikið óstand hefur verið á
dagvistarmálum hér í borg síð-
ustu fjögur til fimm árin og ég
hef mikla andstyggð á því
þegar talað er um „framboð“ og
„eftirspurn“ þegar börn eru annars
vegar,“ segir Ingibjörg. „Langt
skref aftur á bak var stigið þegar
gjaldskrá dagmæðra var gefin
frjáls, en síðan það gerðist og allt
fór úr böndun-
um, er maður að
heyra um háar tölur fyrir
daggæslu barna. Sjálf hef ég alla
tíð tekið mið af viðmiðunargjald-
skrá og finnst mér hún sanngjörn.
Samkvæmt henni kostar átta tíma
pláss 29.183 krónur á mánuði fyrir
utan niðurgreiðslu borgarinnar sem
nemur 10 þúsund krónum. Svo
hægt sé að bera virðingu fyrir fé-
lagsskap dagmæðra, er æskilegt að
vel sé að málum staðið. Þessi þróun
nær ekki nokkurri átt. Það vantar
pláss og í þeirri neyð, sem skapast
hefur í dagvistarmálum, virðast ein-
hverjar dagmæður vera að notfæra
sér ástandið. Fyrir vikið erum við
allar dæmdar.
Göngutúrar, bóklestur,
sund, þrif og dansiböll
Þegar talið berst að frístundum
dagmömmunnar, svarar hún því
til að það hafi ekki verið mikið
um frístundir á meðan börnin
hennar voru bæði heima. „Mér
hefur alltaf þótt skemmtilegast að
eyða frístundunum í að gera fínt í
kringum mig og vorum við öll, ég
og börnin mín, samtaka með það.
Eftir að ég varð ein, hef ég verið
dugleg við að fara í göngutúra og
sömuleiðis finnst mér gaman að
fara í sund. Ég hef aldrei verið gef-
in fyrir að vera í svokölluðum
saumaklúbbum. Mér finnst á hinn
bóginn gaman að dansa þótt ég geri
nú ekki mikið af því og svo les ég
talsvert mikið og er farin að detta
niður í bækur, sem ég hélt að ég
myndi ekki hafa tíma fyrir fyrr en á
elliheimilinu. Þetta eru ævisögur af
ýmsum toga. Ég kann orðið Einar
Benediktsson og Jónas Hallgríms-
son utan að. Álftagerðisbræður
komu svo í einum jólapakkanum og
geisladiskarnir þeirra er sömuleiðis
yndislegir. Svo er bara svo ynd-
islegt að geta sest niður í rólegheit-
unum og verið þakklátur fyrir lífið
og tilveruna.“
Vinn á meðan
heilsan leyfir
Það líður að lokum spjalls okk-
ar. Á leiðinni út, grípur Inga eitt
af mörgum jólakortum, sem
liggja í skál í stofunni. „Sjáðu
hvað þetta er fallega skrifað,“ segir
hún og réttir mér kortið. Á því
stendur: „Elsku Inga. Gleðileg jól,
gott og farsælt komandi ár. Takk
fyrir að vera besta dagmamma í
heimi. Ég á eftir að sakna ykkar
allra. Hafðu það gott um jólin. Guð-
mundur “góði“, mamma og pabbi.“
„Hugsaðu þér,“ segir Inga. „Þeg-
ar ég fer á elliheimilið, á ég kannski
200 svona kort. Annars ætla ég að
halda áfram í dagmömmustarfinu
eins lengi og Guð gefur mér heilsu
og ég treysti mér til þess að láta
börnum líða vel hér. Ég vinn bara á
meðan einhverjir vilja hafa mig sem
dagmömmu,“ segir Ingibjörg Ósk-
arsdóttir að lokum.
Auðunn Óli, Laufey María og Pétur
Matthías urðu steinhissa þegar blaða-
maður og ljósmyndari mættu til leiks.
Ekki líður dagur
án þess að hringt sé og
spurt eftir plássi fyrir barn
„Ég hef andstyggð á því þegar tal-
að er um „framboð“ og „eftirspurn“
þegar börn eru annars vegar,“ seg-
ir Ingibjörg Óskarsdóttir dag-
mamma.
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 B 7
Lið-a-mót
FRÁ
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Tvöfalt sterkara
með gæðaöryggi
FRÍHÖFNIN
Útsala - enn meiri verðlækkun
Langur Laugardagur opið 10—17
Klapparstíg 44 - sími 562 3614