Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 01.02.2002, Blaðsíða 8
AUÐLESIÐ EFNI 8 FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ MIKIL sprenging varð í Lagos, borg í Nígeríu, á sunnudags-kvöldið. Vitað er að meira en 600 manns létust í kjölfar sprengingarinnar. Sprengingin átti sér stað í einu af vopnabúrum hersins. Talið er að kviknað hafi í byggingunni út frá nærliggjandi útimarkaði. Miklar sprengingar urðu í kjölfarið. Vopnabúrið tilheyrði nígeríska hernum. Það var staðsett í miðju íbúðahverfi. Margir voru á ferli þegar hamfarirnar hófust. Greip mikil skelfing um sig. „Það ríkti algjör ringulreið og allir voru skelfingu lostnir,“ sagði einn íbúa hverfisins um atburðinn. Margir létust í sprengingunni sjálfri. Enn fleiri létust þó vegna troðnings þegar fólk reyndi að flýja slysstað. Talið er að meiri hluti fólksins hafi drukknað í áveitu-skurði vegna troðningsins. Hafa meira en 600 lík fundist í skurðinum. Flestir þeirra sem fórust voru börn, unglingar og konur sem ýmist drukknuðu eða tróðust undir. Einn maður er sagður hafa misst sex af börnum sínum í harmleiknum. Á þriðjudag stóð enn yfir leit að þúsundum barna í Lagos. Leitaði örvæntingar-fullt fólk barna sinna sem týnst höfðu í ringulreiðinni eftir sprenginguna. Rauði krossinn hefur komið upp búðum í borginni til að aðstoða flóttafólk. Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Nígeríu. Miklar sprengingar í borginni Lagos í Nígeríu AP Fólk virðir fyrir sér eitt af húsunum sem eyðilögðust í sprengingunni. Hundruð fórust eftir sprengingar KARLMAÐUR um fertugt er ákærður fyrir að hafa valdið dauða ungbarns. Er hann talinn hafa hrist níu mánaða dreng svo harkalega að hann hlaut heila-skemmdir. Maðurinn rak dagvistun ásamt konu sinni í Kópavogi. Maðurinn neitar að vera valdur að dauða barnsins. „Ég er saklaus af þessari ákæru,“ sagði hann fyrir rétti á miðvikudag. Umfangsmikil rannsókn á dauða drengsins hefur staðið yfir undanfarna mánuði. Fólkið er líka sakað um að hafa verið með fleiri börn í gæslu en það hafði leyfi fyrir. Ákærður fyrir dauða barns SÆNSKI barnabóka- höfundurinn Astrid Lindgren lést á mánudag. Hún var 94 ára gömul og lést eftir nokkur veikindi. Bækur Lindgren eru flestum vel kunnar. Lína langsokkur er líklega þekktasta sögupersóna hennar. Lína varð strax uppáhald allra barna. Sumir foreldrar voru þó á báðum áttum með þessa uppreisnar-gjörnu stelpu. Af öðrum þekktum bókum Lindgren má nefna Elsku Míó minn, Bróðir minn, Ljónshjarta og Ronja ræningjadóttir. „Ég skrifaði til að skemmta barninu í sjálfri mér,“ sagði Lindgren einu sinni um bækur sínar. Bækur Lindgren hafa verið þýddar á ótal tungumál. Hennar er sárt saknað í heimabæ sínum. AP Höfundur Línu er látinn. Astrid Lindgren látin ÍSLENSKA landsliðið í hand-knattleik sigraði lið Júgóslava á miðvikudag með 34 mörkum gegn 26. Mikil spenna ríkti í leiknum. Einar Örn Jónsson, hornamaður liðsins, segir íslensku vörnina ekki hafa verið nógu góða í fyrri hálfleik. „Í leikhléi töluðum við saman og ákváðum að rífa okkur upp. Menn skyldu vinna allir fyrir einn og einn fyrir alla. Þá um leið var uppskriftin að sigri fundin.“ Á þriðjudag gerði liðið jafntefli gegn Frökkum. Segja margir lélega dómgæslu vera ástæðu þess að íslenska liðið fór ekki með sigur af hólmi. Eftir fimm leiki hafði liðið engum leik tapað. Í gærkvöldi léku Íslendingar gegn Þjóðverjum. Fyrir leikinn sagði Guðmundur Þ. Guðmundsson landsliðsþjálfari að Íslendingar yrðu að vinna. „Við verðum að leika til sigurs. Það þýðir ekkert að reikna sig áfram í undanúrslitin.“ Leikurinn gegn Þjóðverjum var síðasti leikur Íslendinga í þessum riðli. Undanúrslit Evrópu-meistaramótsins hefjast síðan nú um helgina. Í gærdag var ekki vitað hvort íslenska liðið myndi taka þátt í þeim leikjum. Evrópu-meistaramótið í hand-knattleik AP Aron Kristjánsson brýst framhjá júgóslavneskum leikmanni. Íslendingar unnu Júgóslava BJÖRN Bjarnason menntamálaráðherra mun leiða lista Sjálfstæðis- flokksins í borgarstjórnar- kosningunum í Reykjavík í vor. Björn tekur þar við af Ingu Jónu Þórðardóttur sem borgarstjóraefni flokksins. „Ég geri þetta vegna þess að Reykvíkingar eiga betra skilið,“ sagði Björn um ástæðu framboðs síns. Björn Bjarnason Björn Bjarnason í framboð Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ráðhús Reykjavíkur. Netfang: auefni@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.